Tíminn - 05.09.1974, Blaðsíða 12
12
TÍMINN
Fimmtudagur 5. september 1974.
r Frank Usher: ($3)
A
TÆPU VAÐI
V__________________________________________)
detta í hug að þú viljir nokkuð fyrir mig gera. Þú hefur
aðeins áhuga á þínum skitnu tíu prósent. Og það var
Amanda sem lagði símann á.
— Hvers gat hún með réttu vænzt af Figl? Hún hafði
neitað að gerast ástmey hans, aðallega fyrir það að
henni fannst hann vera andstyggilegur. Stúlka í hennar
starf i gat ekki leyft sér að vera vandlát um elskhuga ef
hún átti að halda velli. Enda þótt hún hefði samþykkt að
sofa hjá honum mundi hann sennilega hafa synjað henni
um hjálp núna. Hann var slík manngerð.
Hvaða vini átti hún? Þeir voru ekkí margir, og enginn
þeirra í stöðu svo valdamikilli að þeir gætu hjálpað henni
eða Óskari.
Hún fékk ekki leyf i til að tala við Óskar, þótt hún hefði
þrábeðið Braun um það. Hann var eini maðurinn f rá lög-
reglunni sem hún hafði séð, að lögreglukonunni frátal-
inni.
Braun hafði yfirheyrt hana nákvæmlega. Hún var
sannfærð um að Óskar hefði ekki skotið Nickolai, þótt
hún gæti ekki lagt nokkuð það fram sem sannfærði
Braun. Þegar Braun efaðist um tilveru Petersons sagði
hún að Brieger mundi staðfesta að Peterson hefði komið
á hótelið ásamt þeim Óskari. En samkvæmt því sem
Braun sagði hafði Brieger ekki séð nokkurn Englending
að naf ni Peterson í för með þeim. Stanislov hefði aðeins
komið í f ylgd þeirra Amöndu og Óskars. Þegar Amanda
krafðist þess að fá að standa fyrir máli sínu augliti til
auglitis við Brieger, neitaði Braun henni um það.
— Við rekum ekki lögreglurannsókn á þann hátt. Þér
getið ráðizt á framburð Briegers í réttinum þegar vitna-
framburður verður sannprófaður.
Braun varð engan veginn þokað.
Henni fannst Bayliss, hinn lýtalausi Breti sem stóð á
þritugu, mikið ánægjulegri maður. Hann kom í heimsókn
til hennar frá brezka sandiráðinu En samtalið við hann
létti hann ekki af henni áhyggjum, heldur þvert á móti.
Hann þekKti ekkerttil Petersons að því er hann sagði.
— En hvað með Brieger? spurði Amanda. — Hann
þekkir Pterson, en neitar nú að hafa heyrt hann eða séð.
Er Brieger brezkur njósnari? Það e eina skýringin sem
ég get f undið. Þér hljótið að vita það, hr. Bayliss.
Bayliss hristi höfuðið.
Hann þekkti ekkert til Petersons að því er hann sagði.
— En hvað með Brieger? spurði Amanda. — Hann
þekkir Peterson, en neitar nú að haf a heyrt hann eða séð.
Er Brieger brezkur njósnari? Það er eina skýringin
sem ég get fundið. Þér hljótið að vita það, hr. Bayliss.
— Bayliss hristi höfuðið.
— Ég hef alls engan kunnugleika á slíkum málum, en
ég skal að sjálfsögðu gera skoðanir yðar kunnar á æðri
stöðum.
— Get ég ekki fengið að tala við sendiherrann? Við
erum bæði brezkir þegnar.
Bayliss hristi enn höfuðið. Það var eins og honum
fyndist uppástungan óviðurkvæmileg.
— Hans hátign situr í Bonn og þetta er ekki mál sem
hann hefur persónuleg e.fskipti af. Það mundi verða
gagnslaust að tala við hann.
— Er ekki einnig gagnslaust að tala við yður? spurði
Amanda hreint og beint. — Gerið þér nokkuð fyrir okk-
ur?
— Mín kæra unga dama, sagði Bayliss nokkuð
þurrlega.— Ef þér haf ið drýgtafbrot, verður hegning að
koma fyrir. Sú staðreynd að þér eruð brezkur ríkisborg-
ari gerir engan mun. Það getur ekki verndað ykkur fyrir
þýzkum lögum.
— En Óskar er ákærður fyrir glæp sem hann hefur
aldrei drýgf, það er alveg víst.
— Dómstólarnir í Bayern eru öruggir. Hvorugt ykkar
verður dæmtfyrir afbrotsem þið hafið ekki framið. Það
þurfið þið ekki að óttast.
Það varð þungbær þögn. Amanda hafði á tilfinning-
unni að hann hefði engan eldlegan áhuga fyrir
málefnum þeirra Óskars.
— Hafið þér heimsótt Óskar?
— Já.
— Hvernig hefur hann það?
— Hann lítur vel út og kvartar ekki undan meðferðinni
á sér.
— AAér er bannað að heimsækja hann.
— Það er ekkert óeðlilegt við það.
— En hvers vegna? Þeir haf engri sök komið á hann
ennþá. Eða eru þeir kannske búnir að ákveða að hann sé
sekur?
Bayliss hristi höfuðið.
— Þetta megið þér ekki segja. Þér fáið kannski leyf i til
að heimsækja hann seinna. Verið þolinmóðar.
— Þolinmóð! Skiljið þér hvað þetta allt þýðir fyrir
okkur?
— Ég held að ég geri það.
— Vitið þér þá hvað það er sem skeður?
—Það erítindir því komið hvort Braun f ulltrúa tekst að
byggja upp pottþétt mál á vin yðar. Þá kemur málið
fyrir rétt hér. Ef ekki munu yf irvöldin í Bayern skjóta
málinu til ríkislögreglunnar, sem ákveður svo hvort þið
skuluð framseljast til Kaltenburg.
Amanda horfði óttaslegin á hann.
— Og ætlið þið að framselja okkur?
Maður á heima I frumskóg,,
inum, kalláður Dreki
ey Já, og hvilikur
maður! Spurðu
frumskógarbúana,
sem vinna i^*
-Mkastalanum. beiri
* vita það kannski.
Ég þori að
veðja að Július
verður frægur
visindamaður
\begar hann
verður full
orðinn
/Og ég þori að veðja
um hvað Haddi
yerður þegar hann /
verður fullorðinn.
iifl
liil
1
FIMMTUDAGUR
5. september
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.20
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Ingibjörg Jónsdóttir
heldur áfram lestri sögu
sinnar „Lúsindu og Dabba”
(4). Tilkynningar kl. 9.30.
Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög
á milli atriða. Við sjóinn kl.
10.25: Ingólfur Stefánsson
ræðir við Guðmund Kjærne-
sted forseta Farmanna- og
fiskimannasambands ís-
lands um siglingatækjasýn-
ingu I Þrándheimi o.fl.
Morgunpopp kl. 10.40.
Hljómplötusafnið kl. 11.00
(endurt. þáttur G.G.)
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 A frivaktinni Margrét
Guðmundsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.30 Siðdegissagan: „Smið-
urinn mikli” eftir Krist-
mann Guðmundsson Höf-
undur les (7).
15.00 Miðdegistónleikar.Artur
Rubinstein leikur á planó
„Fantasiestucke” op. 12eft-
ir Robert Schumann. Búda-
pest-kvartettinn leikur
Strengjákvartett nr. 16 i
F-dúr op. 135 eftir Beethov-
,en.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphornið
17.10 Tónleikar.
17.30 Frá Egyptalandi Rann-
veig Tómasdóttir lýkur
lestri úr bók sinni „Lönd i
ljósaskiptum” (5).
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál, Helgi J.
Halldórsson cand. mag.
flytur þáttinn.
19.40 A fimmtudagskvöldi
Vilmundur Gylfason sér um
þáttinn.
20.10 Leikrit: „Blaðamaður-
inn og skáldiö” eftir Eriand
Josephson.Þýðandí og leik-
stjóri: Stefán Baidursson.
Persónur og leikendur:
Hann, Róbert Arnfinnsson.
Hún, Þórunn Sigurðardótt-
ir.
20.50 Guðmundur Guðmunds-
son skáld — aldarminninga.
Guðmundur G. Hagalin rit-
höfundur flytur erindi. b.
Steingerður Guðmundsdótt-
ir les ljóð. c. Flutt sönglög
við ljóð eftir Guðmund
Guðmundsson.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Sólnætur” eftir Franz
Eemil Sillanpáár Andrés
Kristjánsson islenskaði.
Baldur Pálmason les sögu-
lok (13).
22.35 Manstu eftir þessu?
Tónlistarþáttur i umsjá
Guðmundar Jónssonar
pianóleikara.
23.20 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Fyrstir á
morgnana