Tíminn - 05.09.1974, Side 16

Tíminn - 05.09.1974, Side 16
*.... Firamtudagur 5. september 1874. - n í sís-iómjR SUNDAHÖFN 1 — , ■ - fyrir góöan mai $ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Fjöldagröf í Mósambík NTB—Beira — Blaðið Noticias i Mósambik sagði I gær, að frétta- menn þess hefðu fundið fjöldagröf með likum fólks sem leyni- þjónustan portúgalska hefði myrt fyrr á þessu ári I forsiðufrétt blaðsins segir, að fréttamaður þess, sem veriðhafi I heimsókn i þorpinu Sena, um 300 km norður af höfuðborginni Beira, hefði tekið tali mann, sem kvaðstvera sá eini, sem lifði fjöldamorðin af. Maðurinn sagði, að menn úr leyniþjónustunni hefðu pyndað 68 af ibúum þorps- ins þann 19 aprll i ár en siðan hafi fangarnir verið færðir út 1 skóg, þar sem þeim var skipað að grafa sina eigin gröf, áður en þeir voru skotnir. Blaðamaðurinn fann siöan gröfina um fjóra kilómetra fyrir utan þorpið Leyniþjónustan var leyst upp eftir byltinguna I Portúgal 25. april. Portúgölsk yfirvöld rann- saka nú staðhæfingar um, að .8 menn úr þjónustunni hafi pyndað pólitiska fanga. Átök á landa- mærum Líbanons NTB—Reuter — Tel Aviv, Damaskus — Israeiskur her var I fullri vigstöðu meðfram landa- mærum Libanons I gærkvöidi eftir blóðug átök við paiestinska skæruliða fyrr um daginn. Að sögn talsmanns hersins i Tel Aviv féllu tveir úr hvoru liði, þegar Palestinumennirnir reyndu að taka Israelska gisla viö þorpið Fassuta, þremur kllómetrum sunnan við landamærin I yfirlýsingu frá Palestinu- mönnum segir, að markmiðið með töku gislanna hafi verið að fá látna lausa 12 menn, sem. eru i fangelsi I Israel þeirra á meðal erkibiskupinn af Jerfisalem, Hilarion Capucci, sem er sakaður um vopnasmygl til Palestinu- manna. Haig yfir- maður Nato? NTB-Washington — Alexander Haig hershöfðingi, sem var yfirmaður starfsliðs Hvita hússins siðustu 15 mánuðina, sem Nixon var við völd, og hefur haldið áfram starfi eftir að Ford tók við, mun væntanlega veröa útnefndur yfirmaður Atlands- hafsbandalagsins i Evrópu með haustinu. Þótt fregnir um þetta, sem borizt hafa frá V-Evrópu hafi ekki verrið opinberlega stað- festar, viðurkenna talsmenn Hvita hússins, að þetta sé það starf, sem helzt komi til greina fyrir Haig. Aður en Haig, sem verður fimmtugur i desember, getur tekið við starfinu af Andrew Goddpaster, þurfa öll aðildar- riki Nato og öldungadeild Bandarikjaþings að sam- þykkja hann. í Brússel er sagt, að Max van der Stoel, utanríkisráð- herra Hollands, sé ekki alls kostar ánægður með Haig, bæði vegna náinna tenglsa hans við Nixonstjórnina og lit- illar reynslu i stjórn heildar, sem mynduð er úr mörgum einingum. Þess má geta, að síðan Eisenhower var yfirmaður Nato, hefur það verið sjálf- sagt, að Bandarikin útnefndu yffrmanninn, og hafa Nato- rikin jafnan samþykkt hann. ísamer '74 leíka á Nesvegi KAMMERKVARTETTINN ISAMER ’74,sem eins og kunnugt er hefur verið á tónleikaferðalagi viða um landið á vegum Mennta- málaráðs, mun halda tónleika hjá Menningarstofnun Bandarikj- anna sunnudaginn 8. september n.k. Hjá Menningarstofnun Banda- rikjanna mun ISAMER ’74 leika lög eftir Dohnanyi, Copland og tvo höfunda frá Puerto Rico. Tón- leikarnir hefjast kl. 20.30 þann 8. september hjá Menningarstofnun Bandarikjanna að Neshaga 16. Aðgangur er ókeypis. Lindargata Laugarnesvegur Laugarásvegur Akurgerði Austurbrún Kjartansgata Háteigsvegur Bergsstaðastræti Hart barizt um þorp á Kýpur — þrátt fyrir vopnahlé NTB-Nikósiu — Tyrkir tóku I gær þorp, vestan við Nikósiu eftir bar- daga, sem sagðir eru hafa verið meðal þeirra hörðustu á eynni siðan um miðjan ágúst, þegar vopnahléð tók gildi. Tyrknesku hermennirnir réöust inn i þorpið Aline eftir að hafa skipzt á skotum við þjóðvarðliða. Tyrkir segja, að fyrst hafi verið skotið á þá, en hinir segja, að Tyrkirnir hafi rofið vopnahléð. Talsmenn Sþ segja, að Tyrkir hafi trúlega ráðizt inn i annað þorp. Jafnframt segja þeir, að menn úr griska þjóðvarðliðinu á eynni hafi reynt að hindra Sþ- menn i að rannsaka sannleiks- gildi staðhæfinga um fjöldagröf i grennd við Limassol. Leiðtogi Kýpur-Tyrkja, Rauf Denktas, sagði i gær, að Grikk- land og stjórn Kýpur væru nú fús til aö samþykkja, að Kýpur væri skipt I griskt og tyrkneskt svæði. I viðtali við Reuter sagði Denktas, að hann hefði fengið þessar upplýsingar frá opin- berum aðilum. Hann sagði einnig, að samningaviðræður um varanlega lausn Kýpurdeilunnar yrðu teknar upp að nýju á næstu vikum. Fyrri umræður, þar sem Bret- land, Grikkland og Tyrkland tóku þátt ásamt fulltrúum þjóðarbrot- anna á Kýpur, sigldu I strand I fyrra mánuði. Skömmu siðar hófu Tyrkir stór- sókn sina og tryggðu sér umráð yfir þriðja hluta eyjarinnar. — Stjórnin i Aþenu og Kýpurstjórn undir forsæti Kleridesar er komin að þeirri niðurstöðu, að þjóð- stjórn sé bezta lausnin á eynni, sagði Denktas. Það sýnir, að grisk og kýpur-grisk yfirvöld hafa gert sér ljóst, hvernig ástandið er. Þvi fyrr sem setzt veröur að samningaborði, þeim mun betra fyrir alla, sagði hann að endingu. Etna að gjósa Reuter, Cataniu, Sikiley— Þykkur, svartur reykur byltist upp úr eldfjallinu Etnu á Sikiley I gær, og sprengingar heyrðust frá aðalgignum, sem tók siðan aö þeyta hraungusum upp i loftið Eldfjallasérfræðingar hafa mikinn áhuga og fylgjast með fjallinu af athygli. Powell fékk sprengjuhótun NTB—Belfast — Stjórnmála- maðurinn umdeildi Enoch Powell, fékk i gær sprenguhótun, eftir að hann hafði verið út- nefndur frambjóðandi Sam- einingarflokks mótmælenda i kjördæmi I Norður-lrlandi Rétt áður en von var á Powell til aðalstöðva flokksins i Belfast ók bill að húsinu. Bilstjórinn stökk út og hrópaði, að sprengja værii bilnum. Lögreglan stöðvaði bil Powells og visaði honum til Hótel Evrópu handan við hornið. Nokkrum minútum siðar var svo öllu fólki skipað þaðan út, og Powell fór til annars hótels, þar sem hann hélt blaðamannafund. Hann sagðist ætla að fylgja for- dæmi margra annarra stjórn- málamanna, sem aldrei væru á ferðinni utan dyra án þess að vera vopnaðir. ALLNÝSTARLEG vöru- kynning átti sér stað siðari hluta dags I gær, en þá brá hljómsveitin Pelican á leik utan dyra til að kynna nýút- komna LP-hljómplötu sina „Uppteknir” Hljómsveitin lék fjögur iög af hljómplötunni fyrir framan hljómplötuverzlun eina hér I borg, að við- stöddum á að gizka fjögur hundruð áheyrendum. Enn slys á gangbraut Gsal—Rvik — Gangbrautarsiys eru tið þessa dagana. t gærdag varð gangbrautarslys á Lauga- vegi á móts við húsið númer 178 Gekk stúlka i norðurátt yfir gangbrautina, en bilar á hægri akrein, sem óku i austurátt, höfðu numið staðar til að hleypa henni yfir. Þegar hún kom að vinstri akgrein, kom bill aðvi'fandi, og skipti engum togum, að hann lenti á stúlkunni Fótbrotnaði stúlkan og hlaut höfuðhögg. Hún er ellefu ára gömul. Frh. á bls. 15 Volvo stýrisbúnaður Ef til árekstrar kemur, gefur stýrisbúnaöurinn á Volvo eftir á þrem stööum, og sjálft stýrishjólið lagar sig eftir líkama ökumannsins. Volvo öryggi.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.