Tíminn - 06.09.1974, Side 1

Tíminn - 06.09.1974, Side 1
 SLÖNGUR BARKAR TENGI Landvélar hf Haustsýning Félags islenzkra myndlistarmanna verður opnuð á morgun, klukkan 17, eins og sagt er frá á 3ju siðu blaðsins í dag. Hér er ein myndin, sem verða mun á sýningunni. Við ætlum okkur ekki þá dui að fella um hana dóm i stuttum myndatexta, en leyfum okkur að hverja fólk til þess að láta ekki sýninguna framhjá sér fara. Tímamynd Róbert. Þingi slitið AUKAÞINGINU, sem setið hefur að undanförnu var slitið I gær og verður þing ekki kvatt saman að nýju fyrr en 29. október. Aukaþingið var kvatt saman hinn 18. júli og hefur þvi staðið ails 50 daga. Alls hafa verið haldnir 47 þingfundir, 19 i neðri deild og 211 efri deild, en i sameinuðu þingi voru fundirnir 7. Fimm lagafrumvörp frá stjórninni voru lögð fyrir neöri deild og 3 fyrir efri deild. Sjö stjórnarfrumvörp voru afgreidd sem lög, en ekki varð lokið afgreiöslu eins stjórnar- frumvarps. Tvær þingsályktunartil- lögur voru bornar fram i sam- einuöu þingi og lauk meðferð annarrar með ályktun alþingis, en ekki varð lokið umræðu um hina. Þau mál sem þingið hafði til meðferðar urðu þvi alls tiu. ' ......... Dömur! Nýjung! DRESSFORM fatnaður loks á Islandi Pantið bækling núna 33373 Sjálfvirkur simsvari allan sólarhringinn. Póstverzlunin Heimaval/ Kópavogi. >___' AAargar gátur óráðnar um byggð Ingólfs -fornleifagreftri í Reykjavík lokið að sinni HHJ-Rvik. — Nú er fornleifa- greftrfnum i Reykjavík lokið að sinni. Þetta er fjórða sumarið, sem grafið er I Reykjavik, og hið þriðja, sem grafið er við Suður- götu. Alls hafa 487 munir af ýmsu tagi fundizt við rannsóknirnar I Suðurgötu. Sænski fornleifafræðingurinn Else Nordahl, sem stjórnað hefur fornleifagreftrinum frá upphafi, sagði Timanum, að i sumar heföi meðal annars veriö unnið að rannsókn á langhúsi, sem virtist vera frá landnámsöld. Húsið er tiu sinnum þrir metrar aö innan- máli og eldstæði i þvi miðju. í öðrum enda hússins hafa fundizt ýmsar menjar um vefnað, svo sem hluti af vefjarskeið, snældu- snúðar og kljásteinar. Þá var grafin upp steinþró, sem virðist hafa verið notuð sem korngeymsla, þvi að þar fundust korndrefjar. Ekki er enn vitað' hvers konar korn þar er um aö ræða, né hvort það er innflutt eða ræktað hér- lendis, en væntanlega mun vera hægt að skera úr þessu, þegar kunnáttumenn hafa rannsakað kornið. Ekki er annaö vitaö um aldur kornþróarinnar en að hún er örugg frá þvi fyrir 1500. — Það má raunar segja um allar þær mannavistarleifar, sem hér hafa fundizt, sagði Else, að allt er mjög flókið, þvi að hús hafa verið reist á sama eöa svipuðum stað æ ofan i æ, þannig að tiðast er illt að greina, hvað á saman og hvað ekki. Else gat þess, og að undir gólfum heföi viða fundizt birki- hris, og sagðist hún hafa látið sér detta I hug, að hrisið hefði verið lagt undir gólfin til þess að þurrara yrði i húsunum. Það styddi þessa hugmynd, að votlent hefði liklega verið á þessum staö. Hins vegar væri einkennilegt, að húsin hefðu ekki verið reist i brekkurótunum fáeinum metrum ofar, þvi aö þar hefði verið þurrt. Einna skemmtilegast.' þeirra muna, sem fundizt hafa, veröur að telja fimmtán sentimetra langa mannsmynd úr viði. Þá má og geta þess, að fundizt hefur mikið af gjalli. Þaö er enn órannsakað og þvi ekki vitað, Frh. á bls. 6 í ÖÐRUM enda ianghússins frá landnámsöid, sem sagt er frá i greininni, fundust marg- vislegar minjar um vefnaö, svo sem hluti af vefjarskeið, snældusnúður og kljásteinar. Vefjarskeiðin var svo illa leikinn, að ekki var viðlit að hrófia við henni, án þess að gripa til sérstakra ráða. Else Nordahl, sein stýrt hefur forn- leifarannsóknunum, brá á það ráð að rjóða vatnsleysaniegu limi á skeiðina. Það var látið þorna, og siðan var unnt að lyfta skeiöinni. Siðan verður vefjarskeiðin látin þorna smám saman til þess að hún springi ekki og eyðileggist. Tímamynd Gunnar Aðalfundur L.l. að Hallormsstað: Læknar enn andvígir frjólsum fóstureyðingum SJ-Reykjavik — Það var álit fundar Læknafélags tslands, sem haldinn var að Hallormsstaö að gera þurfi stórátak I uppbyggingu heilbrigðisþjónustu i landinu, m.a. til þess að nýju heilbrigðis- lögin komist i framkvæmd. Til þess töldu læknarnir að þurfi aukna fjárveitingu frá þvi sem verið hefur. Með nýju lögunum tók rikisvaldið á sig auknar skuldbindingar, en siðasta fjár- veiting alþingis var engan veginn I samræini við þau áform, sem felast i nýju lögunum. — Afstaða lækna til fóstureyöingafrum- varpsins er óbreytt eftir niöur- stöðu fundarins að dæma, þeir eru andvigir frjáisum fóstur- eyðingu. Fundurinn varar við að neyöa iækna til að gera ónauðsyn- legar aðgerðir. Þó vilja læknarnir að fóstureyðingalöggjöfin verði rýmkuð, þannig að vissar félags- legar ástæður verði metnar til jafns við sjúkdóm. Aðsögn Snorra P. Snorrasonar, formanns Læknafélags Islands, var á fundinum talsvert rætt um framkvæmd nyju heilbrigðislag- anna. Læknarnir telja að ganga þurfi frá þeim hlutum laganna, sem frestað hefur verið að afgreiða. Héraðslæknar eru t.d.ekki skipaðir ennþá sam- kvæmt nýju lögunum. En sam- kvæmt þeim verða heilsugæzlu- stöðvar úti á landi og jafnframt nokkrir héraöslæknar, sem hafa stærri svæöi að sinna en héraðs- læknar nú. Fundarmenn töldu að endurskoða þurfi hvernig þessu verði hagaö og lögunum siðan komið i framkvæmd sem fyrst. Margt var rætt um læknis- þjónustu i dreifbýli yfirleitt. Einnig var rætt um skipulag læknisþjónustu utan sjúkrahúsa og tengsl hennar við sjúkrahús. Sérstaklega var fjallað um skipu- lag og starfsemi göngudeilda sjúkrahúsa, en þær geta verið mikill þáttur i læknisþjónustunni. Fundarmenn voru sammála um að mikið átak þyrfti að gera til uppbyggingar læknisþjónustu á Reykjavikursvæðinu. A það bæði við um heimilislækna- þjónustu og uppbyggingu lækna- miðstöðva og heilsugæzlustöðva i þéttbýli, en slíkar stöövar úti á landi hafa af eölilegum ástæðum verið látnar hafa forgang. Þörf væri á fleiri læknum, en útlit er fyrir að úr rætist með það i Frh. á bls. 15 Hið eina rétta er, að maðurinn dó — segir rannsóknarlögreglumaður um forsíðufrétt Vísis í gær Gsal-Rvik. — i fyrrakvöld lézt 74 ára gainall maður á heimili sinu við Vesturgötu. Ljóst er, að dauöa hans bar ekki eðli- lega að höndum, en rannsókn mátsins stendur yfir, og þvi er ekki liægt að segja frá máls- atvikum, að svo stöddu. Að sögn Eggerts Bjarna- sonar rannsóknarlögreglu- manns, sem hefur rannsókn þessa máls, með höndum, er nú beöið eftir niðurstöðum krufningar. Sagði Eggert, að frétt sú um þennan atburð, sem birtist i VIsi i gærdag, væri ekki höfð eftir rannsóknarlögreglunni, og þar væri rangfarið með flest. — Það má næstum þvi segja, að það eina rétta, sem þar kemur fram, sé að maður- inn dó, sagöi Eggert.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.