Tíminn - 06.09.1974, Page 6

Tíminn - 06.09.1974, Page 6
6 TÍMINN Föstudagur 6. september 1974. Kvennaskólinn d Blönduósi auglýsir: Tvö hússtjórnar- nómskeið í vetur 3ja og 5 mánaða. — Heimavist starfrækt fyrir stúlkur i 3. og 4. bekk Barna- og gagnfræðaskólans á Blönduósi og heimilisfræði sem valgrein fyrir nemendur 3. og 4. bekkjar, ef næg þátt- taka fæst. Umsóknarfrestur er til 15. sept. Nánari upplýsingar gefur skólastjóri i sima 95-4239. Hjúkrunarkonur Sjúkrahúsið i Húsavik óskar að ráða hjúkrunarkonur nú þegar eða eftir sam- komulagi. Góð launakjör. Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri i sima 96-4-13-33. $jíkr«l|ásii t Húsnvík s.f. Blaðburðarfólk vantar í Kópavogi aðallega í austurbæ. — Upplýsingar í síma 4-20-73 Handavinna Kaupum vel prjónaðar lopapeysur i öllum stærðum. Móttaka er á þriðjudögum og föstudögum kl. 1-5. fflS EP u ÍS ojAustutstræti ,Á XW í ■ .. fDenningar/tofriun Bondcifikjanno Tónlistarkvöld Sunnudag 8. september, kl. 20:30. Kammerkvartettinn ISAMER ’74 heldur tón- leika hjá Menningarstofnun Bandarikjanna, Neshaga 16, n.k. sunnudag kl. 20:30. Guðný Guðmundsdóttir (fiðla), Halldór Haraldsson (pianó), Guillermo Figueroa (fiðla, vióla) og William Grubb (selló) flytja verk eftir Dohnanyi, Copland og tvo höfunda frá Puerto Rico. FÆREYJAR Hvað er að gerast I Færeyjum? Þannig hafa margir spurt aö undanförnu. Þar hefir veriö boöuð fri- merkjaútgáfa 14. nóvember, og er ekki seinna vænna, því að danska póststjórnin hefir tilkynnt, að ekki megi nota dönsk frimerki á færeyskan póst frá 13. nóvember. 21. ágúst var fundur á lög- þingi Færeyja, þar sem fri- merkjaútgáfan var eina málið á dagskrá og sýndist sitt hverjum. Atli Dam vill gjarnan að fri- merkin komi út fyrir kosn- ingarnar, sem verða I Færeyjum 8. nóvember, en andstæðingar hans eru á öðru máli, meðal þeirra póst- meistarinn i Vestmannahöfn. Hann krefst þess að útgáfan verði stöövuö, þar til hún verður framkvæmd af Færeyingum sjálfum, og Færeyjar verði þá sérsvæði. Eftir mikið rifrildi á þinginu, var um þrjá möguleika að ræða: a) Að biðja dönsku póst- stjórnina að láta vera að gefa út dönsk Færeyjafrímerki þvi aö slikt verði gert af Færeyjum sjálfum, sem sér- svæði eða b) að fresta fri- merkjaútgáfunni þar til eftir- kosningarnar, svo að hið nýja þing geti tekið afstöðu til málsins eða c) að gefa merkin út eins og áætlað var. Málið er komið svo langt, að Dimmalætting er farið að skrifa um það i leiöurum og staöhæfir þar, að danskur fri- merkjakaupmaður standi á bak við útgáfuna, hvaðan sem sú hugmynd er nú komin. Annars verður hin áætlaða útgáfa mjög svo skemmtileg, ef hún sér dagsins ljós. 1 tS- kynningu frá dönsku póst- stjórninni I júli, segir, að út verði gefin 14 merki, með 7 myndun. Þess má þó geta, að áætlað er að hafa tilkynningu i litum tilbúna fyrir STOCHOLMIU, þar sem sam- stæðan verður kynnt nánar. Merkin verða af stærðinni 32,13x40,83 mm. Djúpprentuð i Finnlandi. 5,50 og 90 aurar sýna kort L.J. Debes af Færeyjum, frá 1951. 10, 60, 80 og 120 aurar sýna kort Abraham Ortelius af Noröur-Atlantshafi (1527-1598). 70 og 200 aurar með mynd frá vesturströnd Sandeyjar. 250 og 300 aurar, útsýni frá Straumey að Vogum. 350 aurar, málverk Eyvindar Mohr af Svíney. 450 aurar, málverk Ruthar Smiths byggö á Nesi 500 aurar, málverkiö, sólsetur á Skálafiröi A merkjunum stendur FÖROYAR og verð I aurum. Númer á marginal eru i 3 tölum, merkt með ö, 001 og áfram. Fyrstadagsstimplun verður i Þórshöfn og sér E.S.K. Midjord póstmeistari um hana. GRÓÐURKORT AF 60% LANDSINS Kdlfurinn Tumi þumall: • • Orverpi, sem að er hlúð sem barni SJ—Reykjavik — Þau tiðindi urðu á bænum Búðarhóli i Austur- Landeyjum á fimmtudagskvöldið var, að kýr bar kálfi, sem vó að- eins 8 kg nýfæddur, en meðalkálf- ur er um 20 kg. Kálfurinn er 45 sm að hæð og á stærð við litinn hund. örverpi þetta var alveg full- burða og drekkur úr pela, að sögn Konráðs Auðunssonar bónda á Búðarhóli. Honum hefur farið fram þessa fyrstu viku og er far- inn að leika sér. Fyrst var kálfur- inn hafður inni i bæ, en hann er eftirlæti allra á heimilinu, ekki sizt barna hjónanna á Búðarhóli, sem eru niu, það yngsta fimm mánaða. Tuma þumal kalla þau kálfinn litla, og faðir þeirra segist ákveðinn i að láta hann lifa. Nú er kálfurinn kominn út i skúr, en er búinn peysu, likt og barn i reifum, svo að tryggt sé, að honum verði ekki kalt, og börnin fara oft út að heimsækja hann, svo að hann sé ekki einmana. Þetta er þriðji kálfurinn, sem kýrin móðir Tuma þumals eign- ast, og voru hinir tveir alveg eðli- legir. — Einu sinni áður hefur fæðzt óeðlilega litill kálfur aö Búðar- hóli, segir Konráð bóndi, en ekki svona litill. Sá kálfur lifði stutt. Þessi var ekki nema eins og tvö nýfædd lömb að stærð. En ég býst við að hann lifi, fyrst honum hefur farið þetta fram og er orðinn vikugamall, sagði Konráð i gær. o Fornleifar hvort það er úr islenzku járni eða innfluttu. Alls hafa ellefu manns unnið að fornleifagreftrinum i Reykjavik i sumar. Einn þeirra gat þess til gamans, aö liklega væru þau búin að grafa burt um 150 rúmmetra af jarðvegi viö Suðurgötu. Þá ber að hafa i huga, að graftrartól forn leifafræðinganna eru ekki mikiL virk, þvi að þeir notast við múrskeiðar og þaðan af minni verkfæri til þess að ekkert fari forgöröum við gröftinn. HHJ-Rvík. — Nú er langt komið gerð gróðurkorta af landinu. Að sögn Ingva Þorsteinssonar, sem annazt hefur gerð gróðurkort- anna og þær rannsóknir, sem að baki þeim liggja, allt frá upphafi, er nú búið að kortleggja um 60% af landinu. Heita má að allt hálendið sé kortlagt, og sums staðar er byrjað að gera kort af byggðum svæðum, svo sem Austur-Skaftafellssýslu og Mýra- og Borgarfjarðarsýslu. Gróöurkortin hafa margvislegt hagnýtt gildi. M.a. má af þeim ráða beitarþol tiltekinna svæða, þá má og sjá hvar gróður- og jarðvegseyðing á sér stað eða hvar hætta er á sliku. Inn á gróðurkortin eru færð landa- merki jarða, og má siðan áætla ræktunarhæfni hverrar jarðar fyrir sig og búnaðargildi hennar. Gróðurkortarannsóknirnar sýna hvar skórinn kreppir með tilliti til gróðurnýtingar. Þær veita vitneskju um hvar land er vannýtt, fullnýtt eða ofnýtt. — Þannig má i stórum dráttum sjá, að land er ofnýtt, og þess vegna i nokkurri hættu, á Suður- landi vestanverðu og Suðvestur- landi, sagð* lngvi. Sama máli gegnir um Húnavatns- og Skaga- fjaröarsýslur. Þetta er þó ekki GB—Akranesi — Þriðjudaginn 27. ágúst var tekin i notkun inn- gangshluti nýbyggingar sjúkrahúss Akraness. Undirbúningur að byggingu hússins hófst, er byggingarnefnd var kosin, hinn 6. aprfl 1962. Bygging hússins hófst haustið 1963. í desember 1968 var tekin til notkunar sjúkradeild með 31 rúmi. Læknamiðstöð og heilsu- vernd var tekin i notkun vorið 1970 og röntgendeild árið 1972. Byggingaráfangi sá, sem nú er lokiö, er um 17% allrar nýbyggingarinnar. I honum er aðalanddyri, aðstaða fyrir alla stjórnun og skrifstofur, fundar- alveg einhlitt, þvi að sums staðar er vannýtt land aö finna i þessum héruðum. t sumum héruðum er land fullnýtt án þess að vera ofnýtt, og sums staðar má auka land- nýtinguna, svo sem i tsafjarðar- syslum. Greinilegt er og að gróður er að aukast i Austur- Skaftafellssýslu. Þar hefur gifur- leg ræktun á undanförnum áratugum létt mjög á beitilandi. Nýverið var sem kunnugt er ákveðið að verja einum milljarði króna til landverndar af ýmsu tagi. Þegar unnið var að áætlun- inni um landvernd og land- nýtingu, var leitað til heima- manna i öllum héruðum landsins, sagði Ingvi, og þeir beðnir að segja sitt álit á þvi, hvernig gróðurlendi væri á vegi statt. Það var gaman að sjá, að áliti þeirra og niðurstöðum gróðurkorta- rannsóknanna bar nánast alveg saman. Ætla má að gróöurkortagerð- inni verði að mestu lokið innan fimm ára, og alveg innan áratugs. Til viðbótar við það fé, sem áður hafði verið veitt til gróður- kortagerðar, voru veittar 20 milljónir króna af þjóðargjöfinni, s.k., og skiptist það fé á fimm ár. herbergi, biðstofa, skiptistofa, sölubúð, sjúkrastofa fyrir 4 rúm auk nauðsvnlegra snyrtiher- bergja. Auk þessa hefur verið sett upp lyfta. Aformað er að ljúka innréttingu eldhúss áþessu ári og taka i notk- un lyflæknindadeild með 31 rúmi á næsta ári. Byggingu hússins mun væntaiilega ljúka árið 1977. Húsið er teiknað af teiknistofu Húsameistara rikisins. Nú hin siðari árin hefur Verkfræði- og teiknistofan s/f, Akranesi, annast allar innréttingateikningar undir umsjá Húsameistara, en stofan hefur séð um hönnun burðar- virkja og lagna frá upphafi. Fyrsti hluti nýbygg- ingar sjúkrahúss Akraness í notkun

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.