Tíminn - 06.09.1974, Side 7

Tíminn - 06.09.1974, Side 7
Föstudagur 6. september 1974. TÍMINN 7 Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm). Jón Heigason. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gisiason. Ritstjórnarskrifstofur f Edduhúsinu viö Lindargötu, simar 18300—18306. Skrifstof- ur i Aöalstræti 7, simi 26500 — afgreiöslusimi 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Verö i lausasölu kr. 35.00. Askriftargjald kr. 600.00 á mánuöi. Blaöaprent h.f. Nýir íhaldsflokkar Það er talið, að enginn islenzkur stjórnmála- maður hafi lýst ihaldsstefnunni betur en Jón Þor- láksson i grein, sem hann reit i Lögréttu skömmu eftir að hann kom til landsins eftir að hafa lokið verkfræðiprófi i Kaupmannahöfn. Hinn ungi verk- fræðingur var þá fullur af miklum framfaravilja, vildi leggja vegi, þjóðnýta vatnsaflið o.s.frv. í áðurnefndri grein beindi hann geiri sinum einkum gegn ihaldsmönnum eða þeim, sem væru á móti framförum. — Ihaldsmenn eru svo klókir, sagði Jón, að þeir viðurkenna það ekki, að þeir séu á móti framför- um. Þvert á móti þykjast þeir vera fylgjandi þeim. Þeir vita, að það væri óvinsælt, ef þeir létu það i ljós. En ihaldsmenn segja annað. Þeir segjast vera á móti sköttum. Það er vinsælt að segja þao En með þvi að berjast á móti sköttum, eru þeir raunverulega að berjast á móti framförum. Þannig reyna þeir að standa i vegi framfaranna. Þessi gamla lýsing Jóns Þorlákssonar rifjast óneitanlega upp, þegar ihuguð eru viðbrögð hinna svokölluðu vinstri flokka, eftir að þeir lentu i stjórnarandstöðu. Fyrir aukaþinginu hefur legið að afgreiða þrjú frumvörp, sem öll höfðu verið flutt með einum eða öðrum hætti af vinstri stjórn- inni á siðasta þingi. Þá voru bæði Alþýðubanda- lagið og Samtök frjálslyndra og vinstri manna eindregið fylgjandi þessum málum. Nú bregður hins vegar svo við, að þessir flokkar snúast hatrammlega gegn þeim. Þingmenn þeirra, sem áður töldu þessi mál nauðsynleg, svo að hægt væri að halda uppi framfara- og jafnaðarstefnu i landinu, hafa við þá breytingu að lenda i stjórnar- andstöðu gerzt mestu ihaldsmenn þingsins. Fyrst þessara mála er hækkun söluskattsins um tvö stig. Vinstri stjórnin beitti sér fyrir þessari hækkun á siðasta þingi. Hún var þá talin nauðsyn- leg til þessm.a., að rikið gæti haldið uppi fullnægj- andi niðurborgunum á vöruverði, en það er ekki aðeins þýðingarmikið úrræði gegn verðbólgunni, heldur stuðlar flestum ráðstöfunum betur að jöfnuði og bættum hag þeirra, sem erfiðasta að- stöðu hafa t.d. stórra, fátækra fjölskyldna. Annað þessara mála er hækkun bensingjaldsins, sem rennur i vegasjóð. Ef það fengist ekki fram, myndi vegaviðhald dragast saman og nýju vega- framkvæmdirnar vera úr sögunni. Hér er þvi um mikið framfaramál að ræða, enda viðurkenndu bæði Alþýðubandalagið og Samtökin það á siðast- liðnum vetri. Nú snúast þessir flokkar hins vegar gegn málinu af mikilli hörku. Með þvi eru þeir raunverulega að berjast fyrir verra vegaviðhaldi og minni vegaframkvæmdum. Þriðja málið er verðjöfnunargjald á raforku. Ef það fengist ekki fram, yrði enn að hækka stórlega raforkuverð til þeirra, sem búa við óhagstæðasta verðið og lökustu aðstöðuna. Það myndi leiða til aukins óréttlætis og ójafnaðar, ef það fengist ekki fram. í þeim málum, sem aukaþingið fjallar um, hafa Alþýðubandalagið og Samtökin gengið undir merki ihaldsstefnunnar i verki, þótt þau geri það ekki i orði. Áreiðanlega hafa fylgismenn þessara flokka ætlað þeim annað en að taka að sér þetta hlutverk Sjálfstæðisflokksins, eftir að hann snerist til réttari vinnubragða. Þ.Þ. Grein úr Norges Handels- og Sjöfartstidende: Hverju breytir opnun Súezskurðarins? Áhrifin eiga að vera jákvæð fyrir heimsmálin SÚEZSKURÐURINN var notaður meira en nokkur annar skipaskurður allt þar til hann lokaðist fyrir sjö árum. Sú spurning er borin fram i júnlhefti „100 Al”, málgagns Lloyds, hvort hugsanlegt sé, að skurðurinn öðlist fyrra mikilvægi þegar á næsta ári. I grein timaritsins er þvi haldið fram að lokun skurðar- ins árið 1967 hafi sennilega verið afdrifarikasti atburður i alþjóðasiglingamálum siðan á heimsstyrjaldarárunum. Þá varð offramboð tankskipa allt i einu úr sögunni, og skortur á þeim i þess stað. Þá hófst kapphlaup i skipasmiðum og hefur það staðið siðan, og hafizt var handa um smiði hraðskreiðari, stærri og dýr- ari skipa en áður. SÚEZSKURÐARFÉLAGIÐ birti skýrslu réttum mánuöi áður en skurðurinn lokaðist. Samkvæmt henni fluttu tank- skip rúmlega tvo þriðju þess vörumagns, sem um skurðinn var flutt. Þau fluttu 84 af hundraði vara á norðurleið og þriðjungur skipa á suðurleið um skurðinn var tóm tank- skip. Eitt þeirra var norskt tankskip, 150 þús smálestir, og var það stærsta skip, sem þá hafði lagt leið sina um skurð- inn. Framtið Súezskurðarins veltur að verulegu leyti á þvi, hvort oliuflutningurinn verður látinn fara um hann að nýju. Flest tankskipanna eru nú stærri en 150 þús. smálestir. Árið 1967 var gert ráð fyrir 40 feta dýpi i skurðinum, og nægði sú dýpt þá niu af hundraði allra tankskipa i notkun eða smiðum.Árið 1971 nægði þetta dýpi ekki helmingi tankskipanna. TANKSKIP hafa ekki ein- ungis stækkað, heldur hefur komið i ljós að ódýrara er að flytja oliu frá Persaflóa suður fyrir Afriku til Evrópu. Flutningskostnaður á smálest hækkaði að visu ört eftir lokun skurðarins, en lækkaði aftur, þegar farið var að nota skipin, sem smiðuð voru eftir lokun hans. Arið 1971 var flutnings- gjaldið orðið jafnlágt og 1967 vegna stækkunar skip- anna. Ódýrara er að reka stærri skipin, og einnig eru þau ódýr- ari i smiðum. Talað er um 4,11 dollara rekstrarkostnað á smálest, þegar um 70 þús. smálesta tankskip er að ræða, en aðeins 2,53 dollara i 250 þús. smálesta tankskipi. Smiða- kostnaður er einnig 30 af hundraði lægri á smálest i stóru skipunum. 250 þús. smá- lesta tankskip teljast raunar ekki sérlega stór eins og nú er komið. Flutningur oliu með 200 þús. smálesta skipi frá Persaflóa til Evrópu er talinn ódýrastur með þvi móti, að skipið fari hlaðið suður fyrir Afriku en tómt um Súezskurð- inn. Næst ódýrast er að fara suður fyrir Afriku báðar leiðir. OPNUN Súezskurðarins leiöir tæplega til þess, að skipaeigendur smækki skip sin. I „100 Al” er ekki gert ráð fyrir að skipaeigendur vilji einvörðungu vera upp á flutninga um Súezskurðinn komnir enda er þar lýst van- trú á, að skurðurinn verði að nýju jafnmikilvægur sem flutningaleið milli Evrópu og Persaflóa og hann var áður. Egypzk stjórnvöld hafa stöðugt unnið að áætlunum um stækkun og dýpkun skurðarins siðan 1967. Egypzka rikis- stjórnin birti nýjustu áætlanir sinar fyrir skömmu. í fyrsta áfanga á skurðurinn að vera 38 fet á dýpt, eins og hann var fyrir sex-daga-striðið. Til þess að gera hann færan, verður að fjarlægja dufl og ósprungnar sprengjur, og dæla burt nokkurri leðju sums staðar. Brezki flotinn og sá bandariski veita aðstoð við þetta verk, og það á að taka um sex mánuði. Þar með er talin vinna við að fjarlægja 15 sokkin flutninga- skip. Siðan er gert ráð fyrir dýpkun i 53 fet, og þá geta 150 þús. smálesta tankskip farið hlaðin um skurðinn. Næst á að auka dýpið i 67 fet, og breikka skurðinn um leið úr 197 fetum i 294 fet, og þá geta 260 þús. smálesta tankskip farið hlaðin um skurðinn. Dýpkunin fer að nokkru fram á vegum skurð- stjórnarinnar, en erlendir verktakar munu taka að sér breikkunina. Bjartsýnustu áætlanir Egypta gera ráð fyrir opnun skurðarins i október i haust. Fyrirhuguð breikkun og dýpkun tekur sennilega um sex ár og kostar frá 800 til 2000 milljónir sterlingspunda. EBYPTAR gera ráð fyrir, að tekjurnar af skurðinum muni aukast jafnört og áður, eða um 10 af hundraði á ári, en það er nálægt árlegri aukn- ingu heimsverzlunarinnar. Tekjurnar af skurðinum eiga að geta staðið undir kostnað- inum við dýpkun hans og breikkun og skilað umfram- tekjum. Reiknað er með 28500 skipum árið 1980, og tekjurnar af siglingu þeirra verða um 230 milljónir sterlingspunda. Aætlanir Egypta kunna að sýnast byggðar á nokkurri bjartsýni, en þær eru gerðar með hliösjón af öðrum áform- um, sem Egyptar hafa á prjónunum. Enduruppbygg- ingin I Egyptalandi heyrir undir Osman Ahmed Osman ráðherra, og áformað er að gera borgirnar Port Said og Ismalia að risastórum iðnað- armiðstöðvum og frihöfnum. Borgina Súez á að fjórfalda úr þeirri stærð, sem hún var i fyrir árið 1967, og þar á að vera miðstöð skipasmiða og oliuhreinsunar. Áformað er að grafa fimm jarðgöng undir skurðinn til' Sínai, til þess að tryggja betur sameiningu þess svæðis og Egyptalands. ÝiySAR iðnaðarþjónir hafa látið I ljós áhuga á þessum áætlunum, og Japanir sendu hóp atvinnurekenda til Kairó i marz til þess að ræða ýmis áform, sem ætlað er að kosti nokkur hundruð milljónir bandarikjadala. Egyptaland hefur upp á fleira að bjóða en Súezskurðinn. Þar er miðstöð innflutnings til Evrópu vel sett, gnægð vinnuafls er i landinu, og vafalaust er völ á skattaafslætti og fleiri ivilnun- um. Kostnaðurinn við uppbygg- inguna ofbýður tvimælalaust fjárhagsgetu Egypta sjálfra, enda er gert ráð fyrir að fjár- festingin nemi alls 8 milljörð- um dollara. Af þessum sökum verður að verulegu léyti að treysta á erlend lán og erlent fjárfestingarfé, en fjár- hagshorfurnar eru taldar fremur bjartar. Bent er á i greininni i „100 Al”, að stóru tankskipin kunni með tlmanum að láta i minni pokann fyrir hinum smærri, sem geti notfært sér Súez- skurðinn, þegar búið sé að breikka hann og dýpka. Margt getur að þvi stuðlað, en enginn skipaeigandi mun telja stóru skipin óalandi fyrir það eitt, að skipaskurður er opnaður á ný. Þá verður að hafa hliðsjón af þvi, að ferðin frá Persaflóa til Evrópu tekur helmingi lengri tima suður fyrir Afriku en um Súezskurð. LOKUN skurðarins leiddi til skipasmiðakapphlaups, og þvi er liklegt, að opnun hans leiði til samdráttar i skipasmiðum. Einnig ber að lita á það, að Evrópumenn keppa að þvi að komast af án innfluttrar oliu. Sumir hafa jafnvel spáð þvi, að umframflutningageta tankskipanna muni nema 48 milljónum smálesta að liðnu næsta ári. Sömu áætlanir gera ráð fyrir þvi, að umframgetan muni nema 43 milljónum smá- lesta á fyrri hluta næsta árs, ef Súezskurðurinn verður opnaður, og komast upp i 58 milljónir lesta við árslok. Nýjar oliuleiðslur til Miðjarð- arhafs hafa einnig áhrif á flutningaskipaþörfina. Opnun skurðarins getur einnig dregið úr flutningaþörf á öðrum varningi en oliu. Talað er um, að fjögur skip geti annað sömu flutningum og fimm gera nú á milli Suð- austur-Asiu og Evrópu, ef Súezskurðurinn verður notaður. Opnun skurðarins hefur afar neikvæð áhrif á efnahagslif i Suður-Afriku, sem hefur hagnazt mjög á lok- uninni. En betri Súezskurður en áður hefur jákvæð áhrif á efnahagslif heimsins yfirleitt. Að visu er hvergi nærri vist, að hann dragi aftur til sin alla þá, sem notfærðu sér hann fyrr, né heldur, að áætlanirnar um breikkun hans og dýpkun standist i kostnaði eða tima. En ef úr framkvæmdum verð- ur, verður skurðurinn efalaust mikilvægasti skipaskurður i heimi.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.