Tíminn - 06.09.1974, Síða 15
Föstudagur 6. september 1974.
TÍMINN
15
Orrusta
fuglanna
(Skozkt ævintýri)
finna það, þvi ekki átti
það sinn lika i viðri
veröld. Það voru 500 fet
frá rótum þess að neðstu
greininni.
Kóngssonur gekk
marga hringi i kringum
treð og reyndi að ná fót-
festu. Þá bar þar að
stúlkuna, sem alltaf var
hans hjálparhella.
,,Þú ert að slita
skinninu á höndum og
fótum.”
,,Svo sannarlega,”
segir hann. ,,Ég renn
niður jafnskjótt og ég
kemst upp”.
,,Við megum engan
tima missa”, segir
Kolbrún.
Rak hún fingurna einn
af öðrum i trjástofninn
og bjó þannig til stiga
fyrir kóngsson upp að
hreiðrinu. Þegar hann
var þangað kominn
segir hún: ,,Flýttu þér
nú að koma með eggin.
Ég finn hitann frá
andardrætti föður mins
á baki mér.”
I flýtinum gleymdi
hún litla fingrinum efst
uppi i trénu.
„Farðu nú heim með
eggin”, segir hún. „Við
systurnar munum allar
vera eins klæddar i
kvöld, og allt verður
gert til þess að við
likjumst sem mest hver
annarri. En þegar faðir
minnsegir: „Gakk nú til
eiginkonu þinnar,
kóngssonur,” skaltu lita
á mig. Þú getur þekkt
mig á þvi, að mig vantar
annan litla fingurinn”.
Kóngssonur hélt nú
heim og fékk risanum
eggin.
„Jæja, jæja”, segir
risinn. „Farðu nú að búa
0 Mývetningar
júlimánuði i sumar könnunarferð
um afréttinn, og munusiðan fara
aðra ferð nú undir haustið.
— Þetta er visir að þvi, að við
getum haft hemil á land-
nýtingunni, sagði Sigurður Þóris-
son á Grænavatni við blaðið i gær.
Við viljum hafa hop af þvi, að
ekki sé gengið of nærri g
óörinum. Ég geri ráð fyrir hvi, að
áætlað verði, hversu margabeit-
ardala landið þolir, og i itölulög-
unum eru svo reglur um það,
hversu beitarpeningur skuli
skiptast á jaröirnar.
o
Iþróttir
geysilegum hraða og kom i mark
tveimur sekúndubrotum á undan
næsta manni, sem var Ovett frá
Bretlandi. Susanj hljóp á 1:44,1
min. en Ovett á 1:45,8 min. 1
þriðja sæti kom siðan Finninn
Taskinen á 1:45,9 min. Italar
bundu miklar vonir við heims-
meistarann Fiasconaro frá Italiu
— hann varð að láta sér nægja
sjötta sætið.
V-Þjóðverjinn Karl Honz bar
sigur úr býtum i 400 m hlaupinu,
hann hljóp á nýju Evrópu-
meistaramótsmeti 45.04 sek.
Honz sýndi mikið öryggi i
hlaupinu og sigraði örugglega.
Bretinn David Jenkins varð
annar á 45,67 sek, og i þriðja sæti
kom siðan V-Þjóðverjinn
Herrmann á 45,78 sek.
Bulgarska stúlkan Tomova
sigraði a-þýzku stúlkuna
Hoffmeister i 800 m hlaupinu hún
hljóp á 1:58,1 min. En Gunhild
Hoffmeister varð i öðru sæti á
1:58,8 min. 1 þriðja sæti kom svo
Suman frá Rúmeniu á 1:59,8 min.
Seljum í dag
1974 Chevrolet Blazer 6 cyl,
beinskiptur með vökva-
stýri.
1974 Vauxhall Viva De luxe
1974 Ford Bronco Ranger.
1973 Vauxhall Viva De
luxe.
1973 Scout II.
1973 Chevrolet Blazer V8
sjálfskiptur með vökva-
stýri.
1972 Volkswagen 1303
1972 Vauxhall Viva.
1972 Toyota Corolla station
1972 Saab 96
1971 Chevrolet Malibu
1971 Opel Rekord 4ra dyra
1971 Peugeot station 404.
1970 Saab 99
1967 Opel Rekord 2ja dyra
L.
1 M W “Ss® ■nvHxnvA | wl
Læknar
framtiðinni miðað við aðsókn að
læknanámi, en einnig þyrfti að
endurskipuleggja heimilislækna-
þjórtustuna. Fundurinn áleit að
bæta þurfi aðstöðu lækna, sem
vinna utan sjúkrahúsa bæði i
dreifbýli og þéttbæyli. En flestir
landsmenn fá þá læknisþjónustu
sem þeir þarfnast utan sjúkra-
húsa.
Núverandi heilbrigðisráðherra
hefur heildarendurskoðun al-
mannatryggingalaganna á verk-
efnaskrá sinni. Læknafélag
Islands vill fá aðild að slikri
endurskoðun en framkvæmd heil-
brigðisþjónustu er mjög undir þvi
komið að vandlega sé að slikri
endurskoðun unnið.
Þá kom i ljós á fundi Lækna-
félags íslands að afstaðan til
frumvarpsins um ný fóstur-
eyðingalög hefur ekki breytzt frá
þvi á siðasta aðalfundi i fyrra-
sumar. Læknarnir á fundinum
voru einróma andvigir frum-
varpinu, en þeir eru fylgjandi
mikilli rýmkun á núgildandi
fóstureyðingalögum. Telja þeir
að rétt sé að kona fái fóstur-
eyðingu vegna vissra félagslegra
ástæðna engu siður en vegna
vissra sjúkdóma. Fundurinn
varar við að neyða lækna til að
gera „ónauðsynlegar” aðgerðir.
Páll Sigurðsson ráðuneytis-
stjóri I heilbrigöis og trygginga-
málaráðuneytinu flutti fundar-
mönnum ítarlega greinargerð um
það sem gert hefur verið á vegum
ráðuneytisins á siðastliðnu ári.
liii
u
Vestfirðir
Kjördæmisþing Framsóknarmanna I Vestfjarðakjördæmi verð-
ur haldið i Bjarkarlundi dagana 7. og 8. september n.k. og hefst
það kl. 1 e.h. fyrri daginn.
Austurland
Kjördæmisþing framsóknarmanna á Austurlandi verður haldið i
Nesjaskóla Hornafirði dagana 7. og 8. sept. Þingið hefst kl. 14.00
laugardaginn 7. sept.
Stjórn Kjördæmissambandsins.
Miðstjórn SUF
Miðstjórn Santbands ungra framsóknarmanna kemur saman til
aukafundar laugardaginn 14. sept. í Leifsbúð, Hótel Loftleiðum,
kl. 2 e.h.
Miðstjórnarmenn eru hvattir til að fjölmenna.
'------------------------------------------------>
n
Bólusetning við
mislingum timabær
Ólafur ólafsson landlæknir
flutti greinargerð varðandi bólu-
setningar og rannsóknir, sem
landlæknisembættið lætur gera
þeim að lútandi. Landlæknir telur
m.a. að hefja skuli almennar
bólusetningar gegn mislingum.
Ennfremur greindi hann frá
árangri af bólusetningum.
Jón Steffensen prófessor flutti
itarlegt erindi um bólusótt á
Islandi. En við hæfi þótti að
lagður yrði slíkur skerfur til sögu
læknisfræöinnar á 1100 ára
afmæli byggðar I landinu.
Fundurinn sendi fyrrverandi
heilbrigðismálaráöherra
Magnúsi Kjartanssyni skeyti með
þökkum fyrir mikilsverð störf
hans i þágu heilbrigðismála.
Um 20 læknar sátu aðalfundinn
að Hallormsstað, þar af 16. full-
trúar hinna ýmsu svæðafélaga
hér á landi. Félag islenzkra lækna
i Bretlandi sendi ekki fulltrúa að
þessu sinni.
Fundurinn var haldinn I ný-
legum barna-og unglingaskóla að
Hallormsstað, en aðalfundur
félagsins er annað árið i Reykja- V^ LyV:,^
vik en hitt einhvers staðar úti á '
landi.
Framsóknarfélögin
í Reykjavík
Almennur fundur Framsóknarfélaganna í Reykja-
vík verður haldinn í súlnasal Hótel Sögu þriðju-
daginn 10. sept. kl. 8.30. s.d.
Fundarefni: Stjórnarmyndunin og viðhorfin
framundan. Frummælandi verður Olafur
Jóhannesson dóms- og viðskiptamálaráðherra.
Atvinna
Óskum að ráða nú þegar eftirtalið
starfsfólk:
a) Stúlku til simavörzlu, afgreiðslu o.
fl. i nokkra mánuði, vegna forfalla.
b) Stúlku til sendistarfa o. fl. hálfan eða
allan daginn.
Skriflegar umsóknir sendist skrifstofu
vorri eigi siðar en 10. september n.k.
Heilsuverndarstöð Reykjavikur
V.-uC
\ f«*
>w*
I
¥
$2
í>;
>*
«3wi:
A
Oskast keypt
Kulturhistorisk leksi-
kon for nordisk midd-
elalder. A.m.k. 5
fyrstu bindin. Vinsam-
legast hringið í síma
30022.
Eitt þekktasta merki á
Norðurlöndum^Q
RAF-
su/vwaK
BATTERER
GEYMAR
Fjölbreytt úrval af Sönnak rafgeymum
— 6 og 12 volta — jafnan fyrirliggjandi
77
ARMULA 7 - SIMI 84450
Reykjavik, 5. sept. 1974
Viðskiptaráðuneytið,
Seðlabanki íslands.
Reglur
um innborganir við
gjaldeyrisafgreiðslur
A grundvelli 1. gr. reglugerðar nr. 162 frá 27. október
1967, með heimild i 1. gr. laga nr. 30/1960 um skipan
innflutnings- og gjaldeyrismála o.fl., og með hliðsjón
af auglýsingu um sama efni frá 17. mai sl., hefur við-
skiptaráðuneytið i samráði við Seðlabankann, ákveðið
eftirfarandi reglur um innborganir til banka til
greiðslu inn á bundna reikninga við Seðlabankann.
Timabilið6. til 30. september n.k. 20%
októbermánuðn.k. 15%
nóvembermánuð n.k. 10%
desembermánuð n.k. 5%
af fjárhæð skjala
Allar aðrar reglur um innborganir þessar, skv. ofangr.
augiýsingu frá 17. mai sl., eru óbreyttar. Er innborg-
unarhlutfall fyrir 6. til 30 september iækkað úr 25% I
20%, og innborgunarskylda fyrir næstu þrjá mánuði
þar á eftir lækkun stig af stigi skv. ofanskráðu.