Tíminn - 15.09.1974, Blaðsíða 2

Tíminn - 15.09.1974, Blaðsíða 2
2 TtMINN Sunnudagur 15. september 1974. Hermann Evrópubikarhátíð i Laugardal VALUR PORTADOWN r Omar Jón x Laddi Pétur d Laugardalsvelli þriðjudaginn 1 3. sept. kl. 17.30 |. ^ NÚ ER AFTUR tækifæri fyrir Val , að komast í 2. umferð í Evrópubikarkeppni Kalli jMr ” í ÞAR AÐ AUKI ;4i ■*'*'' ■ I munu landsfrægir heiðursmenn taka Alli þdtt í fyrstu 0/jú HINDRUNAR- TRIMKEPPNI d íslandi í 1/2 leik j|l ^ SssStíBsúíiííítm Raggi FORSALA aðgöngumiða fer fram í tjaldi í Austurstræti í dag og d morgun frd kl. 1 3 Magnús VALUR Bjarni Viðmiðunarlisti FrimerkjamiöstöBin hefur nú sent út sérstaka fri- merkjaskrá yfir islenzk fri- merki, sem kannski verður einna lenzkast að kalla við- miðunarlista. Þessi skrá er ætluð fyrir safnara, og eru skráð i henni islenzk frimerki, með 4 auðum reitum aftan við, þar sem menn geta merkt i, hvaða frimerki þeir eiga. Akveður hver og einn sjálfur, hvaö hann lætur hvern dálk gilda fyrir, t.d. ónotuð, notuð, fjórblokk ónotaða og notaða, fyrsta dags bréf, o.s.frv. ABur var komin út hjá sama útgefanda samskonar skrá yfir konungsrikið, en skrá sú, sem nú er út komin, er yfir lýðveldið. Auk þessa er i skránni listi yfir sérstimpla lýðveldisins, og er þar talinn hver dagur, sem þeir hafa veriði notkun. Er þetta þvi hin þarfasta skrá fyrir sérsafnara þessara hluta. Þess má þó geta, að i skrá þessa vantar. Framan við: 1907, Konungsheimsókn, og 1930, Alþingishátið. Þá vantar og aftan viö skrána eftirtalda sérstimpla á þessu ári: 1100 ára þjóöhátfö, Reykjavik, 12. III. Útgáfudagur. Reykjavik, 11. VI. Útgáfudagur. Selfoss, 15. VI., 16. VI., 17. VI, Frimerkjasýning F.F.S. og Þjóðhátið Arnesinga. Lónfell, 13. 7.14. 7., Þjóðhátið Vestfirð- inga. Reykjavik 16. VII. Út- gáfudagur og 28. júli Þing- vellir — Þjóðhátið. Keflavik, 25ára afmæli, 1. VI., 2. VI., 3. VI., 4. VI., 5. VI., 6. VI., 7. VI., 8. VI. og 9. VI. Reykjavik — Frímerki — 74 L.l.F. frimerkjasýning. 14. VI. 15. VI. og 16. VI. Reykjavik — Hestapóstur, 3. VII. Vind- heimamelar, Landsmót hesta- manna. 13. VII. og 14. VII. Reykjavik — 12. Norræna dýralæknamótið — D. 1. 7. VIII. og 8. VIII. Reykjavik - Evrópuráðstefna skáta. 1. IX., 2. IX. og 3. IX. Reykjavlk, Alþjóðapóstsambandið UPU 100 ára 1874 — 1974. 9. X., út- gáfudagur. Reykjavik, Dagur frimerkisins. Skal mönnum bent á, að þeir geta skrifað þessa sérstimpla inn I bækur sinar, svo að þeir hafi heildaryfirlit yfir alla Is- lenzka sérstimpla. Þess má einnig geta, að ennþá er til- tölulega auðvelt að ná i alla sérstimplana, að minnsta kosti I einu eintaki hvern, þótt ekki sé safnaö öllum dög- unum. Skráiner48 blaösiður og hin vandaðasta að öllum frágangi og myndir i henni góðar. Þess má einnig geta, að auk þessa gefur Frimerkjamið- stöðin út skrá yfir Islenzkar myntir. Siguröur H. Þorsteinsson. BRÚÐUHEIMILIÐ A fimmtudaginn var gaf Kiwaniklúbburinn Hekla I Reykjavlk Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra kælingarbaksturstæki, sem kostar um hundrað og fimmtiu þúsund krónur. Myndin var tekin við af- hendinguna, og er formaður klúbbsins Magnús Jónsson, yzt til vinstri, en Jónfna Guðmundsdóttir, for- stöðukona endurhæfingarstöðvarinnar við Háaleitisbraut yzt til hægri. — næsta mánudagsmynd í Háskólabíói Það eru nú liðin 95 ár siðan norski leikritahöfundurinn Henrik Ibsen lét frá sér fara „Brúðuheimilið” — eitt ádeiluleikrita sinna — og það er enn eitt vinsælasta leikrit, sem ritað hefur verið. Það má jafnvel segja, að það lifi „betra lifi” um þessar mundir en löngum áður, vegna þess að konur gera nú auknar kröfur til jafnréttis og frelsis. Þaö eru enskir aðilar, sem að þessu sinni hafa ráöizt i að gera kvikmynd eftir þessu fræga leik- riti, og má með sanni segja að þar sé valinn maður i hverju rúmi, allt frá höfundi kvikmyndahand- rits til minnsta hlutverks. Þess má geta sem dæmis, að Claire Bloom fer með hlutverk Nóru, en Þorvald mann hennar leikur Anthony Hopkins, sem er einn helzti leikari Old Vic leikhússins brezka, sem flestir kannast við. Sir Ralph Richardson leikur vin þeirra hjóna, Rank lækni, en Sir Ralph er viðurkenndur einn bezti leikari sem nú er uppi. Höfundur kvikmyndahandritsins er ungur maður, Christopher Hampton að nafni. Hann er einn sá þekktasti á sinu sviði i Bretlandi, þótt hann sé aðeins 25 ára gamall. Leikstjór- inn Patrick Garland, er meðal kunnustu sjónvarpsleikstjóra Breta. Það ætti að vera óþarfi að rekja hér gang þessa fræga leikrits, en á það má minna, að það var ritað á þeim tima, þegar orðiö „kven- frelsi” hafði ekki veriö myndað, og hugtakið var lika óþekkt að kalla. Þess vegna vakti það mikla athygli þegar Ibsen lét þetta verk frá sér fara, en óhætt er að segja, að það veki alltaf jafnmikla at- hygli meðal þeirra, sem það sjá, og það er oftar kveikja fjörugra samræðna um stöðu konunnar en flest önnur leikrit. Að endingu skal á þaö minnt, að samkvæmt venju verða aðeins 3 sýningar á þessari mánudags- mynd Háskólabiós, og verður sú fyrsta n.k. mánudag. Hollenzkur listamaður sýnlr í galleríSÚAA Laugardaginn 14. sept. 1974, kl. 4 verður opnuð sýning á myndlist HoIIendingsins Pieter Holstein I galleri SÚM, Vatnsstig 3B, Rvk. Pieter Holstein er búsettur i Amsterdam, þar sem hann er kunnur fyrir myndlist sina. Hon- um lýsir Sigurður Guðmundsson, sem einnig er starfandi mynd- listarmaður i Hollandi eftirfar- andi: Mér finnst það alltaf fela i sér gæði myndlistarverka þegar þau likjast manneskjunni, sem býr þau til. Sjaldan hef ég séð minni mun á verkum og höfundi, en á Pieter Holstein og verkum hans. Það er eins og ekkert sé þar á milli nema auð pappirsörk. Og að tala við hann, drekka meö honum kaffi, te eða eitthvað ennþá glær- ara, gefur manni sömu tilfinningu og að sjá a.m.k. þrjátiu verk eftir hann á sýningu. Pieter Holstein er alþýðuheim- spekingur, sem gefur myndlist- inni ekkert heiðurssæti i lifi sinu Hann kaupir einn litra af mjólk I mjólkurbúð meö sama hugarfari og hann teiknar mynd á sink- plötu. Það má alveg eins kalla hann trúboða eða spretthlaupara eins og myndlistarmann. t hol- lenzku simaskránni er hann skrif- aður leynilögreglumaður. Ég spurði hann, hvers vegna? Og hann svaraöi: „Leynilögreglu- menn hjálpa fólki að finna sann- leikann, ég geri það lika.” A sýningunni eru 30 grafikverk, sem gefin eru út i misjafnlega stóru upplagi, en þó eru engin tvö þrykk sömu myndar nákvæmlega eins vegna mismunandi hand- litunar. Pieter Holstein hefur áður haldið einkasýningu i galleri SÚM, árið 1970. Auk þess hefur hann tekið þátt i samsýningum SÚM, I Fodor Museum i Amster- dam, 1971, og á Listahátið i Reykjavik ’72. Sýning þessi er haldin á'vegum SÚM og er liður i markvissri við- leitni félagsins að kynna erlenda myndlist fyrir íslendingum, og i þessu tilviki er að hluta til notið styrks frá Menntamálaráði. Sýningin er opin daglega frá kl. 4-10 og stendur til 28. sept. nk. Hollenzki listamaðurinn Pieter Holstein sýnir verk sln I galleri SÚM um þessar mundir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.