Tíminn - 15.09.1974, Page 4
4
TÍMINN
Sunnudagur 15. september 1974.
Þægindi borgarlífsins í þorpunum
t sovétlýðveldinu Úkrainu er
verið að ljúka skipulagningu og
byggingu sjö þorpa af nýrri
gerð. Arkitektarnir og skipu-
leggjendur þessara nýju þorpa
hafa hagnýtt allt hið nýjasta og
bezta, sem fram hefur komið i
þróun bygginga úti á lands-
byggðinni á siðari árum. 1 sex
★
nýju þorpanna eru ibúarnir
fluttir inn i hús sin.
Þessi nýju þorp hafa vakið
verulega athygli og áhuga, bæði
i öðrum sambandslýðveldum i
Sovétrikjunum, svo og utan
landamæra Sovétrikjanna. Eitt
hinna nýju þorpa, Kodaki, ligg-
ur i grennd við Kiev, höfuðborg
Ctkrainu. Hafa komið þangaö i
heimsókn yfir 100 sendinefndir
frá ýmsum stöðum, bæði i og ut-
an Sovétrikjanna. Hafa gestirn-
ir hrósað mjög hinum þægilegu
ibúðum, skóla og menningar-
miðstöð, svo og öllu skipulagi
þorpsins, sem einkennist af
breiðgötum.
Yngingar á eyðimörk
Palm Springs er bær á miðri y
eyðimörk i Kaliforniu. Þessi vin
hefur margt sér til ágætis, t.d. b
að þar eru heimili margra miil- S
jónamæringa og er tæpast á ú
annarra færi að búa þar þvi s
vegna hitans er ekki verandi úti Þ
við nema um tima kvölds og f
morgna, en öll hús eru loftkæld u
og inni i þeim láta þeir forriku 1;
fara vel um sig i svalanum. Ný u
atvinnugrein hefur skotið upp b
kollinum i Palm Springs og til e
að njóta hennar þurfa viöskipta- í
vinirnir að vera milljónamær-
ingar, þvi þjónustan kvað ekki
beinlinis vera gefin i þeim bæ.
Smásjúkrahúsum hefur skotið
upp eins og gorkúlum á staðnum
seinustu árin og mánuðina og
þangað safnazt færustu sér-
fræðingar i sköpunarlækning-
um, sem er sú sérgrein skurð-
lækninga sem fæst við að breyta
útliti á fólki. Þarna fara fram,
brjósta og andlitslyftingar, nef
eru rét og sléttað úr hrukkum.
Er Palm Springs þvi orðinn
sannkallaður yngingarbrunnur.
Þangað kemur fólk gamalt og
grett, dvelur i nokkrar vikur á
staðnum, vel falið fyrir um-
heiminum i loftkældum lúxus-
húsum og fer þaðan með slétta
húð, réttar tennur og skafin
nefbein og getur einbeitt sér að
þvi að eyða peningunum sinum
annars staðar. Meðfylgjandi
myndir eru af leikkonunni
Phyllis Diller og er önnur tekin
fyrir aðgerð og hin á eftir.
„Allar vildu meyjarnar eiga hann"
Hér sjáum við mynd af Clark
Gable leikara og eiginkonu hans
Carole Lombard. Þau voru bæði
mjög fræg á sinum tima,
einkum þó hann — þvi að kven-
fólkiö fór aftur og aftur á kvik-
myndirnar, sem hann lék i og
ófáar höfðu stærðar myndir af
honum yfir rúminu sinu. Clark
var mikill ævintýramaður og
fór ekki alltaf troðnar slóðir.
Þessi mynd er tekin á þvi tima-
bili ævi hans, þegar allt lék i
lyndi. Þau voru talin mjög
hamingjusöm hjón og Carole og
hann voru alltaf saman alls
staðar og hann hætti sinu fyrra
æsilega liferni. Þetta var á
striðsárunum, en þá fóru leik-
arar i Bandarikjunum og viðar
i miklar ferðir til þess að
skemmta hermönnum, bæði á
vigstöðvum og öðrum herstöðv-
um. Carole Lombard fórst i
flugslysi i einni slikri ferð. Þetta
var auðvitað mikið áfall fyrir
eiginmanninn og hann virtist i
langan tima varla mönnum
sinnandi, en svo fór hann að
vinna aftur af krafti og
nokkrum árum seinna kvæntist
hann á ný. (hann hafði reyndar
verið kvæntur a.m.k. tvisvar
áður). Sú kona, sem þá varð
eiginkona hans var ekki leik-
kona og þau höfðu þekkzt lengi
og verið vinir. Sambúð þeirra
var hin bezta, en varð enda-
slepp, þvi að Clark lézt af
hjartaslagi eftir að hafa ofreynt
sig við töku kvikmyndar, sem
hann lék i og krafðist mikilla
átaka við hesta og margs konar
erfiðis, en hann vildi ekki láta
leika erfiðustu atriðin fyrir sig,
eins og margir leikarar gera.
Þá vareiginkona hans ófrisk, og
fyrsta barn þessa fræga
kvennagulls fæddist rétt eftir
dauða hans. Um það leyti, sem
Carole Lombard fórst i flugslys-
inu, þá gengu slúðursögur I
Hollywood upi það, að ekki hefði
tekizt að ná i Clark til að til-
kynna honum um slysið, þvi að
hann hefði verið með stúlku ein-
hvers staðar sem enginn vissi
um. Þetta var þaggað niður sem
hvert annað kjaftæði en nýkom
in er nú út bók i Hollywood, eftir
Anitu Loos, sem er sjálfsævi-
saga hennar, og heitir hún „Kiss
Hollywood Goodby”. Þar stað-
festir Anita þennan gamla orð-
róm um Clark og þótti þá ýms-
um gömlum vinum hans, að
ævisöguritarinn hefði mátt láta
satt kyrrt liggja og véfengdu
jafnfram að hún myndi svo ná-
kvæmlega ýmis atvik, sem hún
tlar um, þvi að kerla er komin á
niræöisaldur. Hún varð fræg
sem rithöfundur fyrir bók, sem
kom ut fyrir mörgum árum og
hneykslaði þá marga. Sú bók
hét „Gentlemen Prefer Blond-
es”. Hvort Anita gamla var
ljóshærðog talaði af reynslu um
það, að karlmenn kysu heldur
ljóshært kvenfólk, er ekki sagt i
þessu bandariska blaði, sem
mynd þessi er úr, en kannski
hefur hún lika verið dökkhærð
og enginn viljað hana og hún
kennt háralitnum um.
DENNI
DÆMALAUSI
„Ef ég sný litla hjólinu svolitið
svona, getur verið að hún fari að
búa til búðinga aftur.”