Tíminn - 15.09.1974, Page 11
Sunnudagur 15. september 1974,
TÍMINN
n
Miklar eru vinsældirnar — jafnvel hænan vill vera einhvers staðar
nærri Tuma.
Margrét ósk er bara tveggja ára, og hér er hún að gefa Tuma að sjúga úr pela.
TUMI ÞUMALL Á BÚÐARHÓLI
TUMI ÞUMALL lifir og dafnar í
allri sinni smæð og verður ekki
annað séð en honum heilsist
sæmilega. A hinu leikur grunur,
að til séu menn, sem unna honum
varla langra lifdaga og vilji jafn-
vel til vinna að sækja fáeinabláa
eða brúna I veskið til þess að
eignast Tuma og hafa hann upp-
stoppaðan inni hjá sér. En börn-
unum á Búðarhóli finnst meira
gaman að sjá hann lifa og leika
sér.
Nokkur vafi leikur á um hagi
kýrinnar móður Tuma Sá grunur
hefur sein sé komið upp, að hún
kunni að eignast annan kálf núna
um mánaðamótin, þegar talið
hennar var. Sliks munu dæmi. En
hún mjólkar eins og vera ber, og
dýralæknir mun ekki hafa skoðað
hana. Svo það er bara að biða og
sjá, hvort hún gengur enn með
afkvæmi.
Yzt til vinstri. Margrét Ósk og bak við hana hundurinn Spori, siöan Auöur og Unnur og Gunnar og loks
sá, sem allt snýst um, Tumi þumall i hlýrri lopapeysu.
Hér sýnir Tumi, hve hann er greindur. Eða er þetta kannski ekki
hentugt hús handa honum?
Ljósmyndir: Ottó Eyfjörð