Tíminn - 15.09.1974, Page 12

Tíminn - 15.09.1974, Page 12
12 TÍMINN Sunnudagur 15. september 1974. Menn og málefni Aukin launajöfnun er réttlætismól Sögulegt auka- þing Aukaþingiö, sem lauk störfum sfnum um mánaðamótin siðustu, ■ veröur fyrir margra hluta sakir sérstætt í sögunni. Það kom sam- an á Þingvöllum i tilefni af ellefu alda afmæli íslandsbyggöar, og samþykkti þar einróma merka áætlun um landgræðslu og gróðurvernd. Það náði samkomu- lagi um myndun starfhæfrar þingræðisstjórnar, þótt svo horfði um skeið, að mynduð yrði embættismannastjórn, án stuðn- ings i þinginu. Meö myndun núverandi rikis- stjórnar var náð merkum áfanga i þvi forustustarfi ólafs Jó- hannessonar, formanns Fram- sóknarflokksins, að snúizt yrði gegn verðbólguvandanum á raunhæfan og ábyrgan hátt af rikisstjórn, sem nyti stuðnings meirihluta Alþingis. Erfiðleikarnir á árinu 1974 Stafnsrétt i Svartárdal —cin af nafnkenndustu réttum landsins Það er óumdeilt, að siðastliðið ár var efnahagslega mjög hag- stætt Islenzku þjóðinni og at- vinnuvegum hennar. Afkoma at- vinnuveganna hefur sjaldan verið betri en þá. Það verður þvi ekki meö réttu sagt, að vinstri stjórnin hafi búið ilia að atvinnuvegunum. Hins vegar tók strax að syrta nokkuð i álinn um og eftir siðustu áramót, en þar voru að verki öfl, sem stjórnin réð ekki við. Fyrst var það hin mikla verðhækkun oliunnar, og raunar margra ann- arra aðfluttra vara, þótt oliuverð- hækkunin væri langsamlega til- finnanlegust. Annað var verð- lækkun á ýmsum útflutningsvör- um. 1 þriðja lagi voru svo kjara- samningarnir i febrúarmánuði siöastliðnum, þar sem samið var um meiri kauphækkanir en at- vinnuvegirnir gátu borið. Eftir það var ljóst, að þetta allt myndi i sameiningu leiða til mikillar veröbólgu og stöðvunar atvinnu- rekstrar, ef ekki yrði strax veitt fullt viönám. Forusta Olafs Jóhannessonar Ólafur Jóhannesson brá þegar við sem forsætisráðherra vinstri stjórnarinnar. Skömmu eftir að kaupsamningarnir höfðu verið gerðir, lagði hann fyrir rikis- stjórnina tillögur um sérstakar efnahagsaðgerðir. Þessar tillögur voru einnig lagðar fyrir stjórnar- andstöðuflokkana, þar sem vinstri stjórnin hafði ekki starf- hæfan meirihluta i neðri deild, eftir að Bjarni Guðnason skarst úr leik. Eftir margra vikna þóf, sem bar ekki neinn árangur, lagði Ólafur Jóhannesson tillögur sinar fyrir Alþingi, og gerði jafnframt tillögur um að mynduð yrði þjóð- stjórn, sem sæti fram yfir þjóð- hátlöina, en þá yrðu látnar fara fram kosningar til Alþingis. Verk þjóöstjórnarinnar yrði að gera nauösynlegar bráðabirgðaráð- stafanir, unz kosningar hefðu far- ið fram. Engar af þessum tillög- um ólafs hlutu nægilegan stuðn- ing. Ljóst var af þvi, að ekkert fengist að gert að óbreyttri skipan Alþingis. Ólafur Jóhannesson tók þvl þá ákvörðun að rjúfa þing i trausti þess, að hægt yrði að mynda starfhæfa stjórn eftir kosningar. Þaö sem gerzt hefur eftir kosn- ingar er öllum enn I fersku minni. Geir Hallgrimssyni var fyrst faliö að mynda stjórn, en honum mis- tókst. ólafi Jóhannessyni var þá falin stjórnarmyndun. Hann reyndi fyrst að mynda vinstri stjórn, en það mistókst vegna sameiginlegs viljaleysis Alþýðu- bandalagsins og Alþýðuflokksins. Þá var ekki um annaö aö ræöa en stjórnarmyndun Framsóknar- flokksins og Sjálfstæðisflokksins eða utanþingsstjórn. Fram- sóknarmenn völdu hiklaust fyrri kostinn. ólafur Jóhannesson hafði forustu um myndun slikrar stjórnar og var þvi sá maður, sem myndaði hana, þótt annar yrði forsætisráðherra. Myndun þessarar stjórnar gef- ur fyrirheit um að hægt verði nú að snúast gegn verðbólguvandan- um af fullri einbeitni og alvöru. En miklu auðveldara hefði þetta allt orðið, ef farið hefði verið að ráðum ólafs Jóhannessonar og snúizt strax gegn vandanum i marzmánuði i vetur. En þá var enginn flokkur fáanlegur til þess, nema Framsóknarflokkurinn. AAál vinstri stjórnarinnar Þegar fram liða stundir, verður aukaþingsins vafalitið einkum minnzt vegna landgræðslu- áætlunarinnar og stjórnar- myndunarinnar. t náinni framtiö veröur þess sennilega meira minnzt vegna þeirra snöggu skoð- anaskipta, sem urðu hjá öllum flokkum þingsins, nema Fram- sóknarflokknum. Vinstri stjórnin beitti sér fyrir þvi á vetrarþingi, að söluskattur yrði hækkaður um tvö stig. Þetta taldi stjórnin nauðsynlegt til þess að geta fengið aukið fjármagn til dýrtiðarráðstafana og niðurborg- ana, en þótt söluskattur sé ekki æskilegur, leiðir hann til aug- ljósrar jöfnunar á lifskjörum og kjarabóta hinna lægstlaunuðu, ef hann er notaður til niðurborgana. Þegar söluskattur er þannig notaður, er hann raunverulega ekki álögur, sem renna i rikis- sjóð, heldur millifærsla milli þjóðfélagsþegna til leiðréttingar á lifskjörum. Þá beitti vinstri stjórnin sér fyrir þvi á vetrarþinginu, að bensinskatturinn yrði hækkaður, svo aö meira fé yrði handbært til vegaviðhalds og vegalagningar. Þetta var i samræmi við umbóta- stefnu hennar. Loks beitti vinstri stjórnin sér fyrir þvi á vetrarþinginu, að lagt yrði nokkurt verðjöfnunargjald á raforku, svo að ekki þyrfti aö hækka mest raforkuverð hjá þeim, sem búa við lakasta að- stöðu. Þetta var augljóst jafnaöarmál. Snöqq skoðana- skipti Aukaþingið afgreiddi öll þessi mál vinstri stjórnarinnar, og tryggði þannig framgang mikil- vægra þátta I stefnu hennar. En það furðulega geröist, að við af- greiðslu þeirra skárust bæöi Alþýðubandalagið og Samtökin úr leik. Þessir aðilar greiddu nú atkvæði gegn málum, sem þeir höfðu stutt á siðasta þingi. Jafn-' vel Magnús Kjartansson greiddi nú óbeint atkvæði gegn frum- varpi, sem hann hafði sjálfur flutt, og mun það einstætt i þing- sögunni! Það bjargaði hins vegar þessum málum vinstri stjórnar- innar, að Sjálfstæðisflokknum hafði snúizt hugur og veitti þeim nú brautargengi. Hann mun jafn- framthafa gert sér ljóst, að betra hefði verið, að hann hefði stutt þessi mál strax á vetrarþinginu. Eini flokkurinn, sem var sjálfum sér samkvæmur á báðum þingun- um, var Framsóknarflokkurinn. Alþýðubandalagið og Samtökin héldu þvi fram, meðan þau tóku þátt I vinstri stjórninni, að þau vildu stuðla að aukinni samneyzlu og framförum. Þess vegna studdu þau umrædd frumvörp á þinginu i vetur. A aukaþinginu snerust þau hins vegar til augljósrar ihalds- stefnu og greiddu atkvæði gegn þeim. Hver getur treyst slikum tækifærissinnum? Viðræðurnar við stéttasamtökin í samræmi við stjórnarsamn inginn, ræða þrir ráðherrar nú við fulltrúa stéttasamtakanna um kjaramálin. Fyrst um sinn munu þessar viðræður aðallega snúast um launajöfnunarbætur eða tryggingabætur, sem tækju sem fyrst gildi, til handá þvi fóiki, sem skarðastan hlut ber frá borði. Eins og komið hefur fram, er stefnt að þvi að ná samkomulagi við stéttasamtökin um launajöfn- unarbæturnar fyrir lok þessa mánaðar. Ætlunin er, að um- ræddar launajöfnunarbætur komi fyst um sinn i stað dýrtiöarbóta samkvæmt visitölu. Ætlunin er að þeir, sem meira bera úr býtum, verði að sætta sig við visitölu- skerðinguna óbætta fyrst um sinn, enda myndu efnahagsráð- stefanir haldlausar, ef visitölu- kerfiö héldist óbreytt áfram. Launajöfnun Það er kunnara en frá þurfi að segja, að kaupsamningarnir, sem gerðir voru á siðastliðnum vetri, höfðu I för með sér stóraukið óréttlæti i launamálum. Þeir, sem bezt voru settir fengu mesta hækkun. í efnahagsfrumvarpi vinstri stjórnarinnar, sem lagt var fyrir Alþingi á siðastliðnu vori, var lagt til aö þetta yrði leið- rétt á þann hátt, að skertur yrði hlutur þeirra, sem mest hefðu fengið. Þetta fékk ekki nægan hljómgrunn og þótti illfram- kvæmanlegt. 1 tillögum þeim, sem Ólafur Jóhannesson lagði fram, þegar hann hóf stjórn- armyndunarviöræður við vinstri flokkana I sumar, lagði hann til, að sú leið yrði farin til launajöfn- unar, að þeir, sem heföu lægst kaup og lakastar aðstæður, fengju sérstakar bætur vegna væntanlegra efnahagsaðgerða, en aðrir ekki. Um þetta yrðu höfð nánari samráð við launþega- hreyfinguna. A þetta féllust vinstri flokkarnir svonefndu. Sjálfstæðisflokkurinn féllst einnig á þetta, eftir aö viðræður hófust við hann. Það liggur i augum uppi, að hér er um augljóst réttlætismál að ræða. Það er réttlátt að jafna aftur launin eftir þann ójöfnuð, sem átti sér stað við gerð kjara- samninganna á siðastliðnum vetri. Það er réttlátt að tryggja sérstaklega hlut þeirra, sem lak- ast eru settir, þegar gera þarf meiriháttar efnahagsaðgerðir. Fyrsti áfangi Þess ætti að mega vænta, að til- lögunni um launajöfnuð verði vel tekið af verkalýðssamtökunumÞau settu sér það mark, þegar viðræð- ur hófust um kjaramálin i fyrra, að stefnt yrði sérstaklega að þvi aö bæta kjör hinna láglaunuðu. Það var þvi ekki að vilja heildar- samtakanna, að útkoman varð önnur. Nú fá verkalýðssamtökin sérstakt tækifæri til að auka jöfn- uðinn að nýju. Við þær erfiðu að- stæður sem nú eru, er vitanlega ekki hægt að koma á fullum jöfn- uði, enda þarf lengri tima til að vega og meta þau hlutföll, sem hér eiga að vera og telja verður eðlileg. Eðlilegum launajöfnuði verði ekki komið á öðruvisi en i áföngum. Hérer tækifæri til að ná fyrsta áfanganum. Ýmsir telja það ekki góðs vita og kenna pólitik um, að Alþýðu- sambandið hefur mælt með upp- sögn kaupsamninganna vegna gengisfellingarinnar. Það þarf þó ekki að vera, heldur séu samtökin hér að styrkja samingsstöðu sina. Engum ætti að vera það ljósara en leiðtogum verkalýðshreyf- ingarinnar, að almennar kaup- hækkanir nú væru engum til hags, nema verðbólgubröskurum, og sizt af öllu venjulegu launafólki. Flokkur byggða- stefnunnar Allt frá stofnun Framsóknar- flokksins hefur hann unnið öðrum flokkum fremur að hagsmuna- málum hinna dreifðu byggða. Þetta starf hans hefur beinzt að þvi, aö veita landbúnaðinum margvfslegan stuðning, svo að hann gæti haldið hlut sinum til jafns viö vaxandi atvinnuvegi bæjanna. Það hefur beinzt að þvi, aö stuðla að aukinni vegagerð um allt land, hafnargerðum og öðrum samgöngubótum. Það hefur verið fólgið i þvi, aö hafa forustu um skólastofnanir I dreifbýlinu og eru menntaskólarnir á Akureyri og Laugarvatni nokkurt dæmi þess. Um langt skeið var þetta fundið Framsóknarflokknum til foráttu af þeim flokkum, sem einkum leituðu sér fylgis i þétt- býli, og það t.d. áréttað með þvi að kalla Framsóknarmenn i Reykjavik utanbæjarmenn og óvini Reykjavikur. Jafnvel allt fram til ársins 1959 var þessu haldið áfram og það notað sem röksemd gegn einmenningskjör- dæmunum, sem þá voru lögð nið- ur, að þau stuðluðu að pólitiskri fjárfestingu, en þá var átt við framlög til vega, hafnarbóta, og annarra framfara i viðkomandi héruðum. Tillaga Gísla Guðmundssonar Fyrst eftir kjördæmabreyting- una 1959 hallaði enn undan fæti hjá landsbyggðinni. Þá hófu Framsóknarmenn, undir merki Gisla Guðmundssonar, baráttuna fyrir stofnun byggöajafnvægis- sjóðs, sem siðar hefur hlotið nafnið Byggðasjóður. Takmark hans skyldi vera, að efla einkum þærbyggðir, sem stóðu höllustum fæti, jafnt kaupstaði, kauptún og sveitir. Framlag til sjóðsins skyldi vera 2% af tekjum rikis- sjóðs samkvæmt ríkisreikningi. Baráttu fyrir þessu máli var haldið uppi sleitulaust á árunum 1962 — 1971. Þá varð Fram- sóknarflokkurinn stjórnarflokkur að nýju, og fékk þvi framgengt, að sett voru lög um Byggðasjóð. Hins vegar fékkst fram mun minna framlag til hans en Fram- sóknarmenn vildu. Það var hins vegar bætt nokkuð upp með sókn i byggðamálum á öðrum sviðum, t.d. til eflingar skipastóls og fisk- vinnslustöðva um allt land. Öhætt er þvi að fullyrða, að aldrei hefur verið unnið meira og markviss- ara I byggðamálum en i stjórnar- tiö Ölafs Jóhannessonar. Samkvæmt stefnu Fram- sóknarfiokksins var hér þó aöeins um upphaf sóknar að ræða. Það er I samræmi við þetta, að ákveð- ið er i stjórnarsamningi Fram- sóknarflokksins og Sjálfstæðis- flokksins að efla stórlega fjárráð Byggðasjóðs. Framlög til hans munu verða eftirleiðis 2% af rikis útgjöldum. Þetta mun margfalda fjárráð sjóðsins og auka fram- kvæmdagetuhans að sama skapi. Framsóknarflokkurinn mun fylgja þvi fram I hinu nýja stjórnarsamstarfi, að byggða- stefnan seti æ meira svipmót á þjóðlifið. Sú stefna er i þágu allra landsmanna, jafnt fjárhagslega og menningarlega. Þannig mun Islenzkt þjóðlif dafna bezt, að þjóðin byggi allt landið og nýti öll gæöi þess. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.