Tíminn - 15.09.1974, Qupperneq 17

Tíminn - 15.09.1974, Qupperneq 17
Sunnudagur 15. september 1974 TÍMINN 17 Óvíst um framtíð dansflokksins Undanfarin ár hefur islenzki dansflokkurinn auðgað islenzkt menningarlif. Nú er hins vegar óvist um framtið dansflokksins. Sá háttur hefur verið á hafður, að fjár- hagslegur grundvöllur flokksins hefur verið tryggð- ur eitt ár I senn. Gerð hefur verið fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár flokksins og nemur hún niu milljónum, en enn er óvist hvort veitt verð- ur fé til dansflokksins á næsta ári. íbúðir í Stykkishólmi Til sölu eru ibúðir I smíðum i fjölbýlishúsi I Stykkishólmi. íbúðirnar eru tveggja og þriggja herbergja og afhendast tilbúnar undir tréverk. Upplýsingar I simum 93-8244 og 30-733. Múrarar óskast Rafmagnsveitur rikisins óska að ráða múrara i vinnu við Laxárvatnsvirkjun. Upplýsingar veitir Páll Guðfinnsson, Laxárvatnsvirkjun við Blönduós eða starfsmannastjóri. Rafmagnsveitur rikisins Laugavegi 116 Reykjavik Leiðréttur mis- skilningur en nýjar spurningar H.E.H. segir að ég hafi mis- skilið sig þar sem hann talaði um milljarða, sem teknir væru bóta- laust af launþegum og afhentir fyrirtækjum einkabraksins. Hann hafði alls ekki átt við söluskatt heldur haft gengislækkun i huga. Þetta finnst mér rétt að lesendur Timans viti. Þegar ég las pistil H.E.H. mun ég hafa verið undir áhrifum þeirrar kenningar, sem rösklega varfluttiAlþbl.á sinum tima, að Alþfl. hefði fengið rikisstjórnina til að hverfa frá þvi ráði að hækka söluskatt um 1 stig og minnka niðurgreiðslur um 400 milljónir. Með þvi taldi blaðið að flokkurinn rétti launþegum 1200 milljónir króna. Það er satt að gengislækkun veldur þvi að launþegum verður minna úr kaupi sinu. En hvað er hægt að gera þegar launþegar eiga umsaminn rétt á að fá fleiri krónur en falla til? Þá er ekki nema tvennt til. Annað er að koma á einhverns konar endur- greiðslu svo að launþegar skili aftur hluta af launum slnum um- fram það sem áður var. Hitt er að smækka krónurnar svo að þær geti orðið nógu margar. Þessar leiðir hafa báðar verið farnar með ýmsum hætti á ýmsum tlmum. Þegar Alþfl. hefur verið stjórnarflokkur hefur hann vissulega átt sinn þátt i þvi. H.E.H. talar um fyrirtæki einkabrasksins. Nú er atvinnu- rekstur með ýmsum hætti hér á landi. Bæjarfélög reka útgerð og eiga viða meiri eða minni hlut i fiskiðnaði. Samvinnufélög bænda vinna útflutningsvörur úr ull og skinnum. Mér er ekki ljóst að gengislækkunin mismuni útflutn- ingsfyrirtækjum eftir þvi hvert rekstrarformiö er. Ég vildi að at- vinnureksturinn væri meira en enn er orðið á félagslegum grund- velli. En ég sé ekki annað en sama gengisskráning verði að gilda fyrir einkarekstur og félagsrekstur. Og ég held að félagsreksturinn hafi þurft hags- bætur núna. Svona aðgerðir má vitanlega kalla að taka frá launþegum handa fyrirtækjunum „einka- braskinu”, jafnt sem bæjar- félögum og öðrum. En hvernig ætlar H.E.H. að sjá launþegum fyrir tekjum ef atvinnu- reksturinn stöðvast? Telur hann ekki takmörk fyrir þvi hvað lengi sé hægt að reka meö halla? Heldur hann að beinn, opinber styrkur. hefði hentað betur en eengislækkun? Og hvernig átti þá að afla fjár i þá styrki? Sér H.E.H. einhverjar leiðir til þess án þess að snerta laun- þegana? Þetta skulum við láta nægja i bili. Ég vona að við getum haldið þessum viðræðum áfram án varanlegs misskilnings. ÞM Bestur þegar mest á reynir í höröustu hríöarveörum fer Blazer í gang á fyrsta snúningi og brýst yfir skafla, svell og hjarn án teljandi fyrirhafnar. í vorleysingum og haustrigningum öslar hann flaum og foræði, þegar færö versnar og vegir teppast. Á sumrin er Blazer besti feröafélaginn á fáförnustu slóðum óbyggöanna, á fundi viö ævintýriri, kyrröina og fegurö fjallanna. EINKAUMBOÐ FYRIR GENERAL MOTORS Á ÍSLANDI Glæsilegt útlit og vandaöur innri búnaður. V8 vél og sjálfskipting, vökva- stýri og aflhemlar, sjálfvirkur fjórhjóla driflás, rúmgóö yfirbygging og sérlega vel hannaöur undirvagn gera Blazer frábæran feröabíl. CHEVROLET BLAZER ER BESTUR ÞEGAR MEST Á REYNIR. A SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA $ Véladeild ÁDIIIII A O DCVIY IAX/ÍU' ciin o oonn ARMULA 3 REYKJAVIK, SIMI 38900 H.K.r

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.