Tíminn - 16.11.1974, Síða 2
2
TÍMINN
Laugardagur 16. nóvember 1974
Laugardagur 16. nóvember 1974
Vatnsberinn (20. jan.—18. febr.)
Þú þarft að afla þér stundarhlés til þess að
ganga frá ýmsu þvi, er varðar þig persónulega,
og þá sérstaklega vandamálin, svo að þú ættir að
reyna aö taka þér fri i dag, ef þess er nokkur
kostur.
Fiskarnir (19. febr.—20. mai
Þú hefur kastað teningunum, svo að ekki verður
aftur snúið, en þú ert i það erfiðri aðstöðu, að þú
þarft á öllu þinu að halda, ef þú átt að koma upp-
réttur úr þessum leik. Aðstaðan er erfið.
Hrúturinn (21. marz—19. april)
Það er alls ekki að vita, nema þetta verði erfiður
dagur fyrir þig, af þvi að það hefur eitthvað
gerzt, sem gerir aðstöðu þina erfiða. Þú skalt
gæta þin á einhverjum, sem reynir að gera þér
lifiö leitt.
Nautið (20. april—20. maí)
Þaö er einhver vinur þinn, sem þarf sannarlega
á þér að halda, og enda þótt þér finnist þú eiga
erfitt með að hjálpa honum, skaltu ekkert til
spara, þvi að þetta er mál, sem kann siðar að
snerta þig sjálfan.
Tviburarnir (21. maí—20. júni)
Þér ætti að geta orðið vel ágengt i dag, en til þess
þarftu að beita skipulagsgáfunum. Þú verður að
gera þér ljósa grein fyrir eöli málanna, áður en
þú framkvæmir nokkuð, og þú skalt nota kvöldið
til að kryfja þau til mergjar.
Krabbinn (21. júní—22. júli)
Það er eins og skapið i þér sé eitthvað skrýtið i
dag, og aö likindum er það farið að valda á-
hyggjum hjá þinum nánustu. En það er mikils
um vert, að þú kippir þessu i lag. Farðu varlega i
umferöinni i dag.
Ljónið (23. júlí—23. ágúst)
Það er rétt eins og þessi dagur virðist ósköp ró-
legur, en það er bara á yfirborðinu. Það eru i
vændum mikil átök, sem þú skalt búa þig undir.
Þú gerir þér ljóst eðli málsins, og þú einn getur
ráöið þvi farsællega til lykta.
Jómfrúin (24. ágúst—22. sept.)
Mundu, að það eru tvær hliðar á hverju máli.
Þetta er mikilvægt i dag. Taktu ekki ákvörðun
fyrr en þú hefur kynnt þér eðli málsins niður i
kjölinn, og forðaztu aö láta ögrun ákveðinnar
persónu fara i taugarnar á þér.
Vogin (23. sept.—22. okt.)
t dag skaltu hafa það hugfast, að i ákveðnu máli
er varasamt að gera nokkuð, nema hafa samráð
við þina nánustu. Þú átt i einhverjum erfiðleik-
um viö persónu af gagnstæða kyninu, en með til-
litssemi er hægt að laga það.
Sporðdrekinn (23. okt.—21. nóv.)
Þú hefur átt erfitt með að gera þér grein fyrir
þvi að undanförnu hvað þaö er, sem þú vilt, en
þetta er nokkuð, sem þú verður að gera upp við
þig. Þú verður að finna leið og fara eftir henni,
þegar þú ert ákveðinn.
Bogmaðurinn (22. nóv.—21. des.)
Þú skalt vera gagnrýninn á sjálfan þig i dag, svo
að þú getir kinnroðalaust kannazt við það, sem
þú hefur gert. Það er rétt eins og sumt megi
kyrrt liggja af þvi, sem þú hefur fullan hug á að
koma á framfæri.
Steingeitin (22. des.-19. jan)
Það er rétt eins og fyrri hluti dagsins veröi þér
þungur i skauti. Þú skalt ekki hafa mikið um-
leikis i dag, og ekki taka neinar afgerandi á-
kvarðanir. Hitt er annað mál, að kvöldið getur
orðið sérlega ánægjulegt.
Óskil í Villinga-
holtshreppi
Svartur kálfur i óskilum. Mark: Bragð
aftan vinstra. Verður seldur eftir hálfan
mánuð hafi réttur eigandi ekki gefið sig
fram.
Hreppstjóri.
Ný kennslu-
bók í dönsku
Komin er út hjá Rikisútgáfu
námsbóka ný kennslubók i
dönsku, eftir Guðrúnu Halldórs-
dóttur skólastjóra. Bókin nefnist
I talehjörnet og er einkum ætluð
3. og 4. bekk gagnfræðaskóla.
Eins og nafnið ber með sé er hér
um talæfingabók að ræða.
1 bókinni eru 20 kaflar ásamt
leiðbeiningum. Hver kafli er um
afmarkaðefni og fylgja köflunum
spurningar sem þyngjast stig af
stigi. Hverjum kafla fylgja
myndir til að auðvelda umræður
um efnið.
Bókin er hjálparbók, sem
hentar með hvaða kennsíubók
sem er. Með henni hafa verið
gefin út hljómbönd, sem ættu að
auðvelda kennurum mjög notkun
hennar og tryggja betri árangur.
Teikningar i bókinni gerði Þór-
hildur Jónsdóttir. • Prentun
annaðist Rikisprentsmiðjan
Gutenberg.
ÍMBMlBflMviögeröir
SAMVIRKI
Húsavið-
gerðir s.f.
Látið okkur skoða hús-
eignína fyrir veturinn.
Sími 12197.
Nýtt listaverk blasti við þeim, sem áttu leiö um Austurstræti um
helgina. Það var komiö á stallinn, þar sem áöur haföi verið verk eftir
Ólöfu Pálsdóttur, en veðurguðirnir munu hafa feykt þvl af stallinum.
Listaverkið var upprunnið I Iðnskólanum. Nokkrir nemendur I járn-
smiöi tóku sig saman og bjuggu til, og sáu einnig um uppsetningu á
þvl. Ekki vitum við.hvort verkið fær að gleðja augu vegfarandanna
framvegis, þar sem Iðnskólapiltarnir höfðu smíðað það og sett upp
óumbeðnir. (Timamynd Róbert)
Skátarnir i Reykjavik dreifa miðunum og fá fyrir
það sölulaun til styrktar starfi sinu.
Ágóðinn af þessu happdrætti rennur til uppbygging-
ar sumardvalarheimilis að Laugarási i Biskups-
tungum.
Fæst nú í flestum söluturnum bæjarins!