Tíminn - 16.11.1974, Blaðsíða 16

Tíminn - 16.11.1974, Blaðsíða 16
r ^ Laugardagur 16. nóvember 1974 _________J Tímlnner penlngar AuglýsM IHmamim fyrirgóéan mat $ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS — drætti — jafnvel stöövun á kjarnorkuvopnum. Aöur haföi hann gert grein fyrir áætlun- inni á þingmannafundi Atlantshafsbandalagsins i London. ★. EFTIRFARANDI frétt barst Timanum frá sovézku frétta- stofunni APN. í fréttinni er lýst undirbúningi aö fundi þeirra Leonid Bresjnefs og Gerald Fords.sem háöur veröur I Vladivostok i lok; þessa mánaöar: APN-Vladivostok. — Eitir tíu daga veröur borgin Vladivostok komin á listann yfir þá staði, þar sem sovézk- bandariskar viðræöur æöstu manna landanna hafa staöiö yfir. Sérfræöingar rikisstjórna landanna, sem þegar eru komnir til borgarinnar, eru nú aö leggja siöustu hönd á undirbúninginn. Þaö er margt', sem gefur til kynna, að slikar viöræöur séu i nánd. A hraðbrautunum fyrir utan borgina má sjá heiöurs- fylgdarliöiö að lokaæfingum. Ahugi borgarbúa á upp- lýsingum um Bandarikin og lifi bandarlsku þjóöarinnar fer ört vaxandi. Það sem blaðamaöur tekur fyrst eftir i Vladivostok, er fegurö borgarinnar. Það hefur ekki enn fallið snjór i Vladivostok, en þar er kalt a.m.k. á bandariskan mæli- kvaröa 5-8 stiga frost á C. Bandarisku sérfræöingarnir eru meö loöhúfur og i hlýjum frökkum, meðan þeir nota tómstundir sinar til aö fara I gönguferðir um svæöiö, þar sem viðræöur leiötoganna munu fara fram. Dvalarstaðir og fundar- staöur leiötoganna eru á landsvæöi eins hinna fjöl- mörgu heilsuhæla i nágrenni Vladivostok. Frá þjóöveginum liggur nýlega malbikaður vegur aö húsunum, sem standa strjálst á stóru svæöi, sem hallar niöur aö sjávar- ströndinni. Trjágróður er mikill á svæðinu. Fréttamennirnir hafa ekki gleymzt i öllum undir- búningnum. Sett hefur veriö upp þægileg fréttamiöstöö, en nú sem stendur starfar bráöa- birgöafréttamiðstöð I Reuter—Vin. Edward Kenn- edy, öldungadeildarmaöur frá Bandarikjunum, hélt fyrir- lestur á vegum austurriskra sósialista I Vin i gær. Kennedy kraföist þess, aö þegar yröi bundinn endi á vigbúnaöar- kapphlaupiö i heiminum og aö efni þeirra viöræöna, sem nú fara fram milli stórveldanna um gagnkvæma afvopnun, yröi birt. öldungadeildarmaðurinn lagði fram áætlun i fimm liö- um, þar sem stefnt er aö sam- Edward Kennedy Þingmannafundur NATO varar við auknum umsvifum sovézka flotans: Snúum þróuninni við veitingastofu nokkurri, og veröur aösóknin þangað æ meiri meö hverjum deginum, sem liöur. ★ NTB-Saigon. A þjóöþingi Suöur-Vietnam kom til handa- lögmála I gær eftir ailheitar umræöur. Atökin hófust meö þeim hætti, aö stjórnarþing- maður dró byssu upp úr pússi sinu og beindi henni aö þing- mönnum stjórnarandstööunn- ar. Aður höföu stjórnarand- stæöingar veizt harðlega aö þingmanninum I umræöum. Þegar afvopna átti hann, streittist hann á móti, svo aö skot hljóp úr byssunni. Sem betur fór hafnaöi þaö þó ekki i neinum viöstöddum. Stjórnarandstaöan hefur nú krafizt þess, að þingmannin- um veröi meinaöur aðgangur aö þingfundum og hann svipt- ur byssuleyfi. A þessu sést, aö viöa hitnar i kolunum i umræðum — jafn- vel svo, aö mannslif eru i stór- hættu! Könnun á skýrslu- haldi í sjúkrahúsum gébé Reykjavik — Hér á landi er nú staddur starfsmaöur frá AI- þjóöaheilbrigöismálastofnuninni, prófessor Reichart. Er hann hér á vegum islenzkra heilbrigðisyfir- valda til að kanna skýrslugeröir og bókhald sjúkrahúsa og heilsu- gæzlustööva, meö þaö fyrir aug- um aö samræma skýrsluhald og bókhald þessara stofnanna hér á iandi. Það er á þessum vettvangi, sem á svo mörgum öðrum, að tölvu- tæknin heldur innreiö sina. Pró- fessor Reichart hefur mest unnið aö þessum málum hér i Reykja- vik, en einnig hefur hann ferðazt út á land i þessum tilgangi. Meðal annars er hann nú nýkominn frá Húsavik Þetta er I annað sinn, sem starfsmaður frá Alþjóðaheil- brigðismálastofnuninni kemur hingaö til lands, til aö rannsaka og vinna að samræmingu skýrsluhalds og bókhalds I sjúkrahúsum, en þetta er gert af hagkvæmnisástæðum. Reuter-Osló. Norska rikis- stjórnin gaf I gær út fimm ný leyfi til oliurannsókna á land- grunninu undan Noregs- ströndum. I tilkynningu frá stjórninni segir, aöátta fyrirtækjum hafi verið úthlutaö rannsóknaleyf- unum. Rikisfyrirtæki þaö, er tekur þátt i leit aö oliu og framleiöslu hennar, mun ekki taka þátt i væntanlegum rannsóknum né bera kostnað af þeim. Aftur á móti rennur allt aö 75% af hagnaði af hugsanlegri oliuvinnslu, til rikisfyrirtækisins. Ummæli Schmidts kanslara hafa Veikt gengi dollarans Reuter—London. Þingmenn frá aöildarrlkjum Atlantshafsbanda- lagsins, sem setiö hafa á fundi i London, lýstu i gær áhyggjum sinum vegna aukinna umsvifa so- vézka flotans á noröurhluta At- lantshafs. Þá vakti þingmannafundurinn athygli á framförum i tæknibún- aöi sovézka flotans. Samþykkt var áskorun þess efnis, aö þegar yröi gripiö til úrræöa til varnar gegn þessari sivaxandi ógnun, og frekari gaumur yröi framvegis gefinn aö hinum auknu flotaum- svifum Sovétrikjanna. (Alyktanir þingmannafundar- ins eru ráðgefandi fyrir þjóöþing aöildarrikjanna og ráöherra- nefnd NATO, sem skipuð er utan- rikisráðherrum aðildarrikjanna og fer meö æöstu völd I málefnum bandalagsins.) Þá voru samþykktar ályktanir um mannréttindi, þar sem deilt er á Sovétrikin og fylgiriki þeirra I Austur-Evrópu fyrir aö fótum troöa almenn mannréttindi með þvl m.a. að hleypa mönnum, er þess óska, ekki úr landi. • Enn fremur skoraöi fundurinn á rikisstjórnir aðildarrlkja NATO aö halda áfram samningaviðræö- um viö Sovétrikin og önnur Aust- ur-Evrópuriki m.a. I þvi skyni aö koma á varanlegum friöi i Evr- ópu og tryggja mannréttindi i álf- unni. Þingmannafundi NATO lýkur i dag. Josef Luns, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, lýsti á- hyggjum sinum vegna ástandsins i Miðjaröarhafslöndum og hættu á nýjum átökum I þeim heims- hluta. — Við vonum, aö ekki komi til átaka. Þau stórveldi, sem hafa sérstakra hagsmuna aö gæta, eins og Bandarikin og Sovétrikin, veröa aö reyna að koma á varan- legum friöi, sagöi Luns. Framkvæmdastjórinn skoraði á þingmenn NATO aö beita sér fyrir bættri sambúö Vestur-Evr- ópu og Bandarikjanna. Hann lagði i þvi sambandi áherzlu á, aö Bandarikjastjórn væri ekki ein- ráö i samstarfinu innan NATO. Reuter-Zurich/Frankfurt. Gengi bandariska dollarans féll veru- lega á gjaldeyrismörkuöum I Sviss og Vestur-Þýskalandi i gær. Þaö var mikill handagangur I öskjunni á gjaldeyrismarkaðnum I Zurich i gær, og gengi dollarans féll svo, að það hefur ekki áður veriö svo lágt á siöari timum. Seölabanki Sviss gerði engar ráö- stafanir til að koma I veg fyrir gengisfall dollarans, en stjdrn- endur bankans sögðu I gær, aö svo gæti farið, að til einhverra ráð- stafana yrði gripið i þvi skyni. Bág staða dollarans er skýrö meö þeim rökum, aö gengi vestur-þýska marksins veröi breytt innan skamms, og jafn- framt sé útlit i efnahagsmálum i Bandarikjunum dökkt þessa stundina. Þaö sem sérfræðingar telja aö hafi ráðið úrslitum, eru ummæli þau, er Helmut Schmidt, kanslari Vestur-Þýzkalands, viðhafði I fyrrakvöld. Kanslarinn kvaðst þá ekki vera mótfallinn gengishækk- un vestur-þýzka marksins I þvi skyni að minnka greiösluafgang viö útlönd. Gengi dollarans féll einnig á gjaldeyrismarkaöi i Frankfurt am Main I gær, en aðgerðir seöla- banka Vestur-Þýzkalands til bjargar gengi dollarans réttu hlut hins bandariska gjaldmiöils. Einvígi Karpovs og Kortsnojs: Enn jafntefli Reuter-Moskvu. Þeir Anatoly Karpov og Viktor Kortsnoj tefldu 22. einvigisskákina I gær, en þeir heyja sem kunnugt er einvigi um rétt tii aö skora á núverandi heimsmeistara, Robert Fischer. Stórmeistararnir sömdu um jafntefli aö loknum 31 leik. Staöan I einviginu er sú, aö Karpov hefur hlotiö þrjá vinninga gegn tveim vinningum Kortsnojs. Aöeins tvær skákir eru nú eftir — og sigurinn blasir viö Karpov, þótt enn geti allt gerzt. Skilji skák- meistararnir jafnir aö einviginu loknu, ræöur hlutkesti, hvor þeirra öölast rétt til aö skora á Bobby Fischer. Allsherjarverkfall í Frakklandi? NTB-Paris. Lögregluvöröur var viö pósthús I Frakklandi I gær, en póststarfsmenn voru þá I verk- falli. Um leiö jókst spenna sú, sem aö undanförnu hefur magn- azt milli rfkisstjórnarinnar og verkalýöshreyfingarinnar vegna róttækra efnahagsráöstafana, er stjórnin hefur gripiö til. Þúsundir póststarfsmanna söfnuðustsamanlParis siödegis i gær til að mótmæla þvi athæfi lögreglunnar að fjarlægja verk- fallsveröi úr pósthúsunum. Það var rikisstjórnin, sem bauð lög- reglunni að gera þetta. Michel Poniatwoski innanrikis- ráöherra sagði i gær, að stjórnin heföi neyðzt til að gripa til þessa úrræöis til aö tryggja vinnufriö. Verkalýðsforystan hefur hins vegar látið á sér skilja, að ákvöröun stjórnarinnar væri eins og hnifsstunga I bak verkalýðsins i landinu. Verkalýðsforustan hef- ur áöur gefiö I skyn, aö ef til vill veröi efnt til allsherjarverkfalls I landinu n.k. þriðjudag. Verka- lýösleiðtogar sögðu i gær, aö þessi siöasta ákvörðun stjórnarinnar væri eins konar áskorun til verka- lýösins um að gera verkfall. Stór svæði I suðurhluta Frakk- lands voru gas- og rafmagnslaus I gær vegna verkfalls starfs- manna I orkuverum. Durafor, atvinnumálaráöherra Frakklands, ræöir viö verkalýös- leiötoga.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.