Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 44
SVIPMYND Róm: Höfuðborg Ítalíu.
Íbúar: 2.655.970 milljónir.
Tungumál: Ítalska.
Trúarbrögð: Rómverjar eru flestir rómversk-kaþólskir. Í borginni eru líka mót-
mælendur og gyðingar og innfluttum múslimum hefur fjölgað gríðarlega á
undanförnum árum.
Þjóðerni: Ítalir eru í miklum meirihluta en 6,36% íbúa eru Filippseyingar, Pól-
verjar, Bandaríkjamenn, Spánverjar og Rúmenar.
Upphaf Rómar: Samkvæmt arfsögn Rómverja stofnuðu tvíburabræðurnir
Rómulus og Remus Róm á 8. öld fyrir Krist.
Aðalatvinnuvegur: Ferðaþjónusta, almannatengsl og tíska.
Lífsstíll: Róm er vinsælasti ferðamannastaður í heimi og íbúar taka vel á móti
gestum sem skipta milljónum árlega. Rómverjar eru eins og aðrir Ítalir opnir og
skapheitir. Góður matur og fjölskyldubönd skipta Rómverja miklu máli,
Litir borgarinnar: Gulur og rauður. Í Róm er sagan við hvert fótmál, fagrar bygg-
ingar, listasöfn og yndislegir garðar.
Rómverjar: Samkvæmt hefðinni eru ekta Rómverjar þeir sem geta rakið ættir
sínar til Rómar sjö kynslóðir aftur í tímann.
Ýmislegt: Róm og Páfagarður eru sögusvið Engla og djöfla, æsipennandi sögu
Dans Brown, þess sama og skrifaði Da Vinci-lykilinn.
5. mars 2005 LAUGARDAGUR 16
Vissir þú …
… að launahæsti sjónvarpsmaður
heims er Ray Romano frá Banda-
ríkjunum en hann fékk
127.800.000 íslenskar krónur fyrir
hvern þátt af Everybody Loves
Raymond?
… að stærsta fruman er blóð-
flagnafruman sem er 0,2 millimetr-
ar en hún er í beinmergnum og
framleiðir blóðflögurnar?
… að Gisele Weser í Þýskalandi er
elsti danskennari heims en hún
fæddist 1. febrúar árið 1921 og
kennir enn?
… að þúsund manns frá Guelph-
háskóla í Kanada mynduðu færi-
band 7. september árið 1998 en
seglbretti var flutt eftir „færiband-
inu“?
… að Eufemia Stadler í Sviss
straujaði stanslaust í fjörutíu
klukkustundir á strauborði 16. til
18. september árið 1999? Hún
straujaði alls 228 skyrtur.
… að mesta björgunaraðgerð á sjó
án manntjóns var 7. júní árið 1944
undan strönd Normandí í Frakk-
landi en þá var 2.689 bjargað um
borð í ameríska skipið Susan B.
Anthony?
… að þau ský sem lengst eru lóð-
rétt eru þrumuský en slík ský hafa
náð allt að 20.000 metra hæð í
hitabeltinu en það er nærri þreföld
hæð Everest-fjalls?
… að saltasta ferskvatnið er Don
Juan-tjörn í Wright-dal á Suður-
skautslandinu en hún er svo sölt
að hún frýs ekki einu sinni við
-53˚C?
… að hægfleygustu fuglar heims
eru kjarrsnípan og skógarsnípan
en í tilhugalífinu hafa þau mælst á
aðeins átta kílómetra hraða án
þess að hrapa?
… að hættulegast allra ígulkera er
blómaígulkerið en eitrið úr brodd-
um þess og griplum geta valdið
mönnum miklum sársauka,
andnauð og lömun?
… að hæsti aldur hests sem áreið-
anlega hefur verið skráður er 62 ár
en þeim aldri náði Old Billy í Bret-
landi en hann lést 27. nóvember
árið 1822?
… að prinsar sádiarabísku kon-
ungsfjölskyldunnar eru hvorki fleiri
né færri en 4.200 og aðrir ættingj-
ar 40.000?
… að sé miðað við fjármuni var
gjaldþrot fjarskiptafyrirtækisins
WorldCom Inc, 21. júlí árið 2002
stærsta gjaldþrot í heimi en það
hljóðaði upp á 7.480 milljarða
króna?
… að 38,89 metra maísstöng var
reist í New Westminster í Kanada
20. maí árið 1995?
… að verðmætasta hjólið var selt
hjá Philips í London í ágúst árið
1999 fyrir 12,2 milljónir króna?
… að Manfred Klauda í Þýskalandi
hefur safnað 9.400 koppum, þeim
elstu frá sextándu öld?
… að stærsta grasasafnið í Nátt-
úrufræðisafninu í París státar af
8.880.000 tegundum varðveittra
jurta?
… að stærsti rósagarðurinn í Ros-
eto di Cavriglia í Cavrigia í Ítalíu
státar af meira en 7.500 rósateg-
undum?