Fréttablaðið - 18.04.2005, Blaðsíða 6
6 18. apríl 2005 MÁNUDAGUR
Hús er skemmt eftir framkvæmdir:
Íbúarnir komast ekki ferða sinna
TJÓN Enn syrtir í álinn hjá íbúum
svonefnds Gestshúss í vesturbæ
Hafnarfjarðar en það hefur stór-
skemmst vegna holræsafram-
kvæmda sem bærinn hefur staðið
fyrir í götunni að undanförnu. Í síð-
asta mánuði mynduðust sprungur í
veggjum hússins og í fyrrinótt
hrundi skurðarkantur við það. Kom-
ast heimilismenn ekki lengur inn og
út með góðu móti.
Erni Ægi Óskarssyni, eiganda
Gestshúss, var illa brugðið þegar
kanturinn hrundi. „Þetta var eins og
versti jarðskjálfti, húsið nötraði. Ég
hef ekkert sofið síðan klukkan fjög-
ur í nótt. Ég fékk lögregluna til að
taka skýrslu í morgun því það verð-
ur að laga aðgengið að húsinu, ég
varð að klifra upp klöppina til að
komast inn.“
Örn segir ráðamenn í bænum
sýna málinu lítinn áhuga og því úti-
lokar hann ekki að hann muni leita
réttar síns hjá dómstólum.
Engu að síður er Örn borubratt-
ur og ætlar að búa áfram í húsinu. „
Maður verður að reyna að þrauka,
maður er harður Gaflari. Fæddur
og uppalinn í Firðinum.“ - shg
Afmæli Vigdísar Finnbogadóttur:
Um 40 kvenráðherrar til Íslands í ágúst
RÁÐSTEFNA Kvenkyns menntamála-
ráðherrar hvaðanæva að úr heimin-
um hittast í Reykjavík í lok ágúst til
að ræða þau margvíslegu vandamál
sem kvenráðherrar um heim allan
standa frammi fyrir. Gera má ráð
fyrir að um 40 ráðherrar komi til
landsins af þessu tilefni.
Fundurinn er einn liður í því að
minnast 75 ára afmælis Vigdísar
Finnbogadóttur fyrrverandi forseta
á þessu ári og er haldinn á vegum
Alþjóðlegra samtaka kvenna í leið-
togastörfum en Vigdís veitti þeim
samtökum formennsku um árabil.
Sömuleiðis koma forsætis-, utanrík-
is- og menntamálaráðuneytið að
undirbúningi fundarins.
Meðal annarra umræðuefna á
þessum fundi verða áhrif menning-
arhefða á jafnrétti kynjanna og kon-
urnar munu sérstaklega beina sjón-
um sínum að þeirri staðreynd að allt
of hægt gengur að auka áhrif
kvenna í stjórnsýslu og stjórnmál-
um. Enn fremur er stefnt að því að
leggja drög að víðtæku samstarfi og
samræðum kvenna um allan heim
um aukin áhrif kvenna á alþjóða-
vísu.
- ssal
Íbúðaverðið
hefur tvöfaldast
Fermetraverð á íbúðum í Reykjavík hefur rúmlega tvöfaldast á áratug. Fast-
eignaverð hefur hækkað um fimm prósent á síðustu fjórum vikum. Ólafur B.
Blöndal fasteignasali segir að verðið eigi eftir að hækka enn meira.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
■ PALESTÍNA
Verður næsti páfi ítalskur?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á að sameina yfirstjórn heilsu-
gæslustöðva á höfuðborgar-
svæðinu?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
59,6%
40,4%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
Á SLYSSTAÐ
Svissneskir hjálparstarfsmenn horfa niður
brekkuna þar sem rútan rann niður.
Umferðarslys:
Rúta ofan
í gljúfur
SVISS, AP Tólf manns fórust og
fimmtán slösuðust þegar rúta
með 27 ferðamenn innanborðs
rann 250 metra niður í gljúfur á
svissneskum fjallavegi í gær.
Um eitt hundrað hjálparsveit-
armenn létu sig síga niður í
gljúfrið til að bjarga ferðamönn-
unum en einhverjir þeirra höfðu
dottið úr rútunni á leiðinni niður.
Talið er að hálka hafi valdið því að
ökumaðurinn missti stjórn á rút-
inni með þessum hræðilegu af-
leiðingum. ■
AP
/M
YN
D
Borgaraleg ferming:
Aldrei fleiri
börn fermd
FERMING 93 börn fæddust borgara-
legri fermingu í Háskólabíó í gær
og hefur fermingarhópurinn
aldrei verið fjölmennari.
Borgaraleg ferming hóf göngu
sína á Íslandi árið 1989 og á síð-
astliðnum 17 árum hafa 755 börn
tekið þátt í undirbúningsnám-
skeiði Siðmenntar, sem heldur
utan um borgaralegu fermingarn-
ar. Um 9.000 manns hafa sótt loka-
athafnir á þessum tíma en athöfn-
in er haldin að námskeiði loknu og
taka fermingarbörn virkan þátt í
henni með tónlistarflutningi,
ljóðalestri og ávörpum. - sg
VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR
Afmæli hennar fagnað með al-
þjóðlegum fundi kvenna sem
gegna störfum menntamála-
ráðherra.
ÓFÖGUR SJÓN
Eigandi Gestshúss vaknaði við
vondan draum í fyrrinótt þegar
skurðarkantur við húsið hrundi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
VÍSITALA FASTEIGNAVERÐS ÍBÚÐAHÚSNÆÐIS Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Íbúðarverð alls
Fjölbýli
Sérbýli
Nafnverð
Janúar 1994
Febrúar 2005
100
251,3
245,7
244,9
231,0
FASTEIGNAMARKAÐURINN Fermetra-
verð í Reykjavík hefur rúmlega
tvöfaldast á tíu árum. Stað-
greiðsluverð á fjögurra herbergja
íbúð í fjölbýlishúsi var að meðal-
tali tæpar 68 þúsund krónur á fer-
metrann árið 1995. Í dag er það
rúmar 166 þúsund krónur, sam-
kvæmt gögnum hjá Fasteigna-
mati ríkisins.
Fasteignaverðið hefur hækkað
sérstaklega mikið síðustu árin.
Það hækkaði um 13 þúsund krón-
ur á fermetra milli ára 2002 og
2003 og um 15 þúsund krónur
milli ára 2003 og 2004. Langmest
hefur það þó hækkað frá 2004 til
2005, um heilar 29 þúsund krónur.
Rétt er að hafa í huga að fast-
eignaverðið árið 2005 er miðað við
fyrstu fjóra mánuði ársins.
Ólafur B. Blöndal, fasteigna-
sali og fyrrverandi varaformaður
Félags fasteignasala, segir að
fasteignaverð hafi haldið áfram
að hækka síðustu vikur og mán-
uði, það hafi til dæmis hækkað um
fimm prósent síðustu fjórar vik-
urnar, þrátt fyrir spár um að róast
taki á fasteignamarkaði.
Hann telur að fasteignaverð sé
víða komið upp í 200 þúsund krón-
ur á fermetrann og nefnir sem
dæmi fjögurra herbergja íbúð í
litlu fjölbýli í grónu hverfi. Sú
íbúð kostar í dag um 18,5 milljón-
ir en kostaði um 10 milljónir fyrir
tíu árum. Í nýjum íbúðum er fer-
metraverðið 225 þúsund, til dæm-
is á Vatnsendasvæði.
„Tölur segja að hækkunin hafi
verið fimm prósent undanfarnar
fjórar vikur, sem kemur okkur
fasteignasölum töluvert á óvart
því að við höfum ekki átt von á
þetta mikilli hækkun. Verðið er
ennþá að stíga en kannski ekki al-
veg jafn hratt og undanfarna
mánuði. Við teljum okkur alls
ekki sjá fyrir endann á þessum
hækkunum. Það er ennþá eftir-
spurn eftir fasteignum og lánum,“
segir hann.
Félagsmálaráðuneytið hefur
hækkað hámarkslán Íbúðalána-
sjóðs úr 14,9 milljónum í 15,9
milljónir og tekur breytingin þeg-
ar í stað gildi. Ólafur segir að
þetta sé góð hækkun en gera þurfi
enn betur. ghs@frettabladid.is
Erill á Akureyri:
Flestir til
fyrirmyndar
LÖGREGLUMÁL / AKUREYRI Það skorti
ekki verkefnin hjá lögreglunni á
Akureyri um helgina og var hún
stanslaust að, frá föstudags-
morgni til sunnudags. Fjórir
gistu fangageymslurnar, tveir
aðfaranótt laugardags og tveir
aðfaranótt sunnudags.
„Við reyndum í flestum til-
vikum að leysa þau mál sem upp
komu án þess að þurfa að henda
fólki inn,“ segir Hermann Karls-
son vaktstjóri hjá lögreglunni á
Akureyri.
Söngvakeppni framhalds-
skólanemanda fór fram á Akur-
eyri á laugardagskvöldið.
„Langstærsti hópurinn, sem
kom hingað til þess að fylgjast
með keppninni, var á vegum
skólans síns og þeir krakkar
voru til fyrirmyndar,“ segir
Hermann. Þeir sem voru á eigin
vegum voru frekar til vand-
ræða. ■
SKOÐA FRESTUN KOSNINGA
Palestínska heimastjórnin íhug-
ar að fresta þingkosningum í
Palestínu fram yfir brotthvarf
Ísraela frá Gaza. Hamasliðar,
sem eru taldir sigurstranglegir
í kosningunum, hóta því að end-
urskoða óopinbert vopnahlé sitt
við Ísraela ef kosningunum
verður frestað.
FERÐAMAÐUR SLASAÐIST
Bandarískur ferðamaður slas-
aðist þegar bíll sem hann var
farþegi í lenti utan vegar í
Lyngbrekku í Borgarfirði.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
sótti manninn sem reyndist
vera með háls- og bakmeiðsli.
Ökumaðurinn slapp ómeiddur.