Fréttablaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 6
JAPAN Stjórnarkreppa ríkir í Jap-
an eftir að þingmenn Frjáls-
lynda demókrataflokks Jun-
ichiro Koizumi forsætisráðherra
sviku lit og greiddu atkvæði
gegn stjórnarfrumvarpi í efri
deild þingsins sem kvað á um
einkavæðingu póstþjónustunnar.
Neðri deildin samþykkti
frumvarpið á dögunum en í efri
deildinni í gær snerist dæmið
við þar sem þingmenn felldu
frumvarpið með 125 atkvæðum
gegn 108. Í kjölfarið hélt
Koizumi neyðarfund í ríkis-
stjórninni þar sem ákveðið var
að leysa upp neðri deild þingsins
og boða til kosninga í haust.
„Efri deildin hefur lýst því
yfir að einkavæðing póstþjón-
ustunnar sé ekki nauðsynleg. Því
vil ég gefa japönsku þjóðinni
kost á að svara því hvort hún sé
þessu sammála,“ sagði Koizumi
á fréttamannafundi í gær. For-
sætisráðherrann sagði að kosn-
ingarnar yrðu haldnar 11. sept-
ember næstkomandi og kvaðst
ætla að segja af sér mistakist
flokki hans, frjálslyndum demó-
krötum, og samstarfsflokki hans
í ríkisstjórninni að halda meiri-
hluta. Frjálslyndir demókratar
hafa verið við völd í Japan nán-
ast óslitið síðustu fimmtíu árin
og því yrði fall hans úr stjórn
stórtíðindi. Skoðanakannanir
benda til þess að heldur sé farið
að falla undan fæti hjá flokknum
á meðan Demókrataflokkurinn,
stærsti stjórnarandstöðuflokk-
urinn, hefur verið að sækja í sig
veðrið.
Yoshinobu Shimamura land-
búnaðarráðherra sagði af sér
embætti í kjölfar ákvörðunar
Koizumi í gær. Sú staðreynd,
auk sjálfrar atkvæðagreiðslunn-
ar, sýnir að miklar sviptingar
eru í flokknum og að óvinsældir
Koizumi fari vaxandi.
Einkavæðing póstþjónustunn-
ar hefði þýtt tilurð stærsta
banka heims en innlán á
póstgíróreikningum nema 180
billjörðum króna. Stuðnings-
menn frumvarpsins telja að
einkavæðingin hefði haft veru-
lega jákvæð áhrif á þjóðarbú-
skapinn. Þeir sem lögðust gegn
sölunni kváðust hins vegar ótt-
ast að hún myndi leiða til mun
verri póstþjónustu í strjálbýlli
héruðum landsins og uppsagna
tugþúsunda póststarfsmanna.
Svo greiddu einfaldlega sumir
atkvæði gegn sölunni til að mót-
mæla stjórnarháttum forsætis-
ráðherrans. sveinng@frettabladid.is
6 9. ágúst 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Snurða er hlaupin á þráðinn í kjarnorkuviðræðum:
Íranar halda áfram úranvinnslu
ISFAHAN, AP Íranar hófu í gær vinnslu
úrans, Vesturveldunum til mikillar
gremju. Búist er við að þau þrýsti á
Sameinuðu þjóðirnar að beita Írana
efnahagsþvingunum fyrir vikið.
Í nóvember síðastlinum hættu
Íranar að gera tilraunir til auðgunar
úrans svo að ekki yrði gripið til
þvingana gegn þeim en í gær tóku
þeir upp fyrri iðju. Þá tóku eðlis-
fræðingar í kjarnorkuvinnslustöð-
inni í Isfahan að vinna gas úr hráu
úrani en það er fyrsta stig auðgunar
úrans. Gasið verður þó ekki leitt í
gegnum skilvindur um sinn en það
er nauðsynlegt til að auðga það.
Boðað hefur verið til neyðar-
fundar í stjórn Alþjóðakjarnorku-
málastofnunarinnar til að ræða
stöðu mála. Ríkisstjórnir Banda-
ríkjanna, Frakka, Þjóðverja og
Breta hafa þrýst mjög á Írana að
reyna ekki að auðga úran. Enda þótt
Íranar staðhæfi að þeir hyggist ein-
göngu ætla að vinna úran til raf-
orkuframleiðslu þá óttast Vestur-
veldin að þeir hyggist smíða kjarn-
orkusprengju. Þau hafa boðist til að
sjá Írönum fyrir kjarnorkuelds-
neyti sem einungis er hægt að nota
til raforkuframleiðslu auk annarrar
efnahagsaðstoðar. Íranar hafa hins
vegar hafnað þessum tilboðum og
er því búist við að málinu verði nú
vísað til öryggisráðs SÞ sem gæti
beitt landið refsiaðgerðum. ■
Borgnesingar vilja framhaldsskóla í heimabyggð:
Leita til rektors og skólastjóra
SKÓLAMÁL Bæjarstjórn Borgar-
byggðar stefnir að því að funda
með rektor Háskólans á Bifröst
og skólastjóra Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi um
möguleika á að koma upp fram-
haldsskóla í Borgarnesi. Málið
er á byrjunarstigi en þó hefur
hugmyndin verið rædd við ein-
hverja þingmenn kjördæmisins.
Helga Halldórsdóttir, forseti
bæjarstjórnar, segir að þetta
hafi verið rætt á síðasta kjör-
tímabili en þá hafi verið ákveðið
að hafast ekkert að í bili. Nú sé
þessi umræða aftur að fara af
stað. „Það er mikill áhugi fyrir
þessu hjá fólki í sveitarfélag-
inu,“ segir Helga. „Í heild eru
þetta 120-150 unglingar héðan
sem eru utan héraðsins í námi.“
Helga segir ýmsar ástæður
fyrir því að áhugi á framhalds-
skóla í Borgarnesi hafi aukist á
ný. Verið sé að gera vaxtar-
samning við stjórnvöld og búist
sé við mikilli fjölgun á svæðinu
á næstu árum. Þá sé aðsókn í
framhaldsnám að aukast og nú
séu fimmtíu nemendur á biðlista
í Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi.
- grs
Koizumi bo›ar
til kosninga í haust
Sameiningartillögur:
Kosi› í 61
sveitarfélagi
SVEITARFÉLÖG Sveitarfélögum
landsins fækkar um 54 ef allar
sameiningartillögur verða sam-
þykktar í atkvæðagreiðslu 8.
október. Þá verður kosið um til-
lögur um að sameina samtals 61
sveitarfélag í sextán.
Sveitarfélög landsins eru 102
talsins í dag og hafa íbúar tólf
þeirra þegar samþykkt samein-
ingu sveitarfélaga í kosningum
að undanförnu og tekur sú sam-
eining gildi samhliða sveitar-
stjórnarkosningum næsta vor.
Fari svo að allar sameiningartil-
lögur sem liggja fyrir 8. október
verði samþykktar verða sveitar-
félögin 47 talsins, rúmlega
helmingi færri en þau eru nú.
Reynslan af fyrri kosningum
gefur þó ekki til kynna að svo
fari.
Atkvæðagreiðsla utan kjör-
fundar hefst laugardaginn 13.
ágúst 2005. - bþg
BJÖRGUNARSVEITARMENN Keppa við tím-
ann við að bjarga mönnunum út úr
námunum.
Námumenn enn fastir:
Kapphlaup
vi› tímann
SHANGHAI, AP Björgunarsveitar-
menn keppast við að dæla vatni úr
kolanámu í suðurhluta Kína til að
bjarga 102 mönnum sem sitja þar
fastir. Flóð olli því að mennirnir
festust inni. Vatnsyfirborðið
hækkar um 50 sentímetra á
klukkustund og fara lífslíkur
mannanna dvínandi eftir því sem
lengri tími líður.
Hu Jintao, forseti Kína, sem
hefur lofað að bæta öryggi námu-
verkamanna, skipar héraðsyfir-
völdum að leggja allt kapp á að
bjarga mönnunum. Það gerir
björgunarmönnum erfiðara fyrir
að ekki er ljóst hvaðan vatnið sem
flæðir í námuna kemur. Yfirvöld í
Kína verjast allra frétta af mál-
inu. ■
Alltaf einfalt
www.ob.is
14 stöðvar!
Hefurðu ferðast innanlands í
sumar?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Var rétt af KEA að meina
framkvæmdastjóra sínum að
fara í fæðingarorlof?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
23%
77%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
MYNDAVÉLIN MYNDUÐ Alþjóðakjarnorkumálastofnunin hefur sett upp eftirlitsmyndavélar í
kjarnorkuvinnslustöðinni í Isfahan til að tryggja að kjarnorkueldsneyti verði ekki flutt þaðan út.
M
YN
D
/A
P
FRÁ BORGARNESI Bæjarstjórn Borgarbyggðar hefur nú hafið vinnu við að því að fá fram-
haldsskóla í Borgarnes.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
BRETLAND
VARA VIÐ HRYÐJUVERKUM Bresk
stjórnvöld vara þegna sína við
ferðalögum til Sádí-Arabíu í kjöl-
far hótana þarlendra hryðju-
verkahópa í garð vestrænna
manna. Varað er við því að
hættan við hryðjuverk sé mikil
og beinist hugsanlega að flugum-
ferð til og frá Sádí- Arabíu. Flest-
um sendiráðsstarfsmönnum
hefur verið gefið leyfi til þess að
fara heim til Bretlands.
Rússneska áhöfnin tjáir sig:
Höf›u skrifa›
kve›jubréfin
RÚSSLAND, AP Skipverjar rúss-
neska smákafbátsins sem lá
fastur á hafsbotni hafa tjáð sig í
fyrsta sinn um veruna í bátnum
áður en þeim var bjargað. Þeir
segja vatnsskortinn hafa verið
tilfinnanlegastan þar sem þeir
hafi þurft að láta sér nægja tvo
til þrjá vatnssopa á dag, þar sem
þeir lágu flatir í þröngu,
myrkvuðu rými.
Þá hafi líkaminn vissulega
orðið var við að súrefni var af
skornum skammti, en í ljós
hefur komið að súrefnisbirgðir
hefðu ekki dugað nema í sex
tíma til viðbótar þegar þeim var
bjargað. Þegar á fimmtudag
voru skipverjarnir búnir að
skrifa kveðjubréf til ástvina
sinna ef færi á versta veg. ■
Junichiro Koizumi, forsætisrá›herra Japans, leysti upp ne›ri deild japanska
flingsins í gær eftir a› efri deildin felldi stjórnarfrumvarp um einkavæ›ingu
póstfljónustunnar. Búist er vi› afar spennandi haustkosningum.
KOIZUMI Í KLEMMU Kosið verður um neðri deild japanska þingsins 11. september næstkomandi. Flokkur Koizumi hefur verið nánast
óslitið við völd síðan 1955.
M
YN
D
/A
P