Fréttablaðið - 09.08.2005, Side 17

Fréttablaðið - 09.08.2005, Side 17
Smáauglýsingar Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar Góðan dag! Í dag er þriðjudagurinn 9. ágúst, 221. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 5.00 13.33 22.04 AKUREYRI 4.31 13.18 22.02 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Hera Ólafsdóttir, leik- stjóri og pródúsent, hefur í nógu að snúast í leikhús- og sjónvarps- bransanum og því er lítill tími eftir til að halda heilsunni við. Hún reynir þó eins og hún getur og hugsar vel um mataræðið. „Ég geri eiginlega ekki neitt til að halda mér í formi,“ segir Hera og hlær en blaða- kona er fullviss um að hún vanmetur það stórlega. „Já, ég náttúrulega hlæ, borða góðan mat, fer í sund og fer til útlanda.“ „Ég fer í sund þegar ég kemst í sund. Undanfarin ár hef ég verið að vinna svo mikið að ég hef meira að segja sleppt því að fara í sund og koðnaði eiginlega niður en núna er ég að taka mig á. Mér finnst voðalega gott að vera úti og fara í sund en nú er planið að fara í rækt- ina. Ég er alltaf á leiðinni en það er bara svo brjálað að gera. Ég er ein af þeim sem kaupa kort og mæta síðan ekki þannig að það má segja að ég haldi helstu líkams- ræktarstöðvum bæjarins uppi,“ segir Hera og hlær dátt, greinilega í góðu sumar- skapi. Hera þeysist mikið um í vinnunni og má segja að það haldi henni að vissu leyti í formi en hún hugsar líka tals- vert um mataræðið. „Matar- æðið er svona upp og niður. Þegar ég flutti til Bretlands árið 2001 tók ég mig til og breytti algjörlega um matar- æði. Ég hætti að borða mjólk- urvörur og drakk frekar sojamjólk og borðaði ekkert hvítt hveiti. Ég tók aldeilis á því og hef nokkurn veginn staðið við það,“ segir Hera, sem hefur þó fundið leið til að borða bara góðan mat. „Ég er alltaf meira og meira á því að maður eigi bara að borða mat sem gerir mann ham- ingjusaman. Það er líka svo gaman að borða eitthvað sem gerir mann glaðan, eins og sushi. Síðan verður maður bara að vona að það sé hollt, sem það er oftast.“ lilja@frettabladid.is Matur sem gerir mig hamingjusama heilsa@frettabladid.is Fuglaflensan hefur greinst í tveimur rússneskum héruðum til viðbótar og líklegt er að sjúkdóm- urinn muni breiðast út í Norður- Kasakstan. Yfirvöld í Rússlandi ótt- ast að undir- tegund fuglaflensunnar sem er hættuleg mönnum geti stökkbreyst í ban- vænt afbrigði sem gæti jafnast á við eða verið skæðari en spænska veikin sem drap tuttugu til fjörutíu millj- ónir manns í öllum heiminum í lok fyrri heimsstyrjaldarinnar. Í Rússlandi hefur rúmlega tíu þús- und heimilisfuglum verið safnað saman á síðustu dögum svo vírusinn breiðist ekki út. Mikil hreyfing eins og sund, hlaup og garðyrkja getur minnkað líkur á heilablóðfalli, samkvæmt nýrri finnskri rannsókn. 47.721 Finni á aldrinum 25 til 64 ára tók þátt í rannsókninni. Í rannsókn- inni kom fram að líkurnar á að þeir sem stunduðu hreyfingu á hverjum degi fengju heilablóðfall voru 26 prósentum minni en hinna. Þeir sem stunduðu hreyf- ingu í hófi voru fjórtán prósentum ólíklegri til að fá heilablóðfall en þeir hreyfingarlitlu. Daglegur skammtur af fjöl- vítamínum og steinefnum hindrar ekki öndunar-, maga-, húð- eða aðrar sýkingar í öldruðu fólki, samkvæmt nýrri rannsókn í Bret- landi. Níu hundruð manns tóku þátt í rannsókninni, sem greint er frá í British Medical Journal. Helmingnum var gefin fjölvítamín og steinefni en hinum gervilyf. Þegar fjöldi sýkinga og lífsgæði voru borin saman fannst enginn munur á þessum tveimur hópum. Áætlað er að tíu prósent fólks á sjötugsaldri eða eldra í Bretlandi og víðar fái ekki nóg af vítamín- um og steinefnum. Ákveðin efnasambönd í spergilkáli geta hindrað eða hægt framvindu krabbameins í þvag- blöðru, samkvæmt rannsókn við Ohio State-háskólann í Bandaríkj- unum. Vísindamennirnir einangr- uðu jurtaefni, sem heitir glucosin- olati, í spergilkáli. Þegar það er tuggið og melt breytist það í efnasambönd sem kölluð eru isothiocyanöt sem talin eru berj- ast gegn krabbameini. Í rannsókn- inni kom í ljós að isothiocyanöt hægðu á vexti krabba- meins- fruma í þvag- blöðr- unni. Heru finnst sushi voðalega gott enda gerir það hana hamingjusama. LIGGUR Í LOFTINU í heilsu FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl. KRÍLIN Vi› fengum spennandi hádegismat, fla› heitir makkarónur og er litlar, hvítar slöngur me› tómatsósu! Varahlutir á brúðkaupsdaginn BLS. 8 ][ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is ÞÚ GETUR PANTAÐ SMÁAUGLÝSINGAR Á visir.is Konur sem reykja og eiga einnig maka sem reykja eru samkvæmt nýrri rannsókn í sex sinnum meiri hættu á að fá heilablóðfall en konur sem reykja og eiga reyklausa maka. Rannsóknin var gerð í Lækna- og tannlæknaháskólanum í New Jers- ey í Bandaríkjunum undir leiðsögn dr. Adnan I. Qureshi. Hann og fé- lagar hans greindu gögn frá 5.379 konum. Af þeim voru 2.347 reyk- ingamenn eða fyrrum reykinga- menn og 1.904 voru giftar reyk- ingamönnum. Konurnar sem reyktu og áttu maka sem reyktu voru í 5,7 sinnum meiri hættu á að fá heilablóðfall en hinar. Konur sem reykja ekki og eiga maka sem reykja voru ekki í miklu meiri hættu á að fá heilablóðfall en reyklausar konur með reyklausa maka. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Konur sem reykja í hættu á að fá heilablóðfall KONUR SEM REYKJA OG EIGA MAKA SEM REYKIR ERU Í SEX SINN- UM MEIRI HÆTTU Á AÐ FÁ HEILALÓÐFALL. M YN D /G ET TY

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.