Fréttablaðið - 01.09.2005, Síða 2
2 1. september 2005 FIMMTUDAGUR
Litháinn hef›i mátt
sækja s‡runa sína
Ófullnægjandi rannsókn lögregluyfirvalda á Keflavíkurflugvelli er har›lega
gagnr‡nd í s‡knudómi yfir Litháa sem ákær›ur var fyrir smygl á brennisteins-
s‡ru. Litháinn er farinn úr landi en hef›i í raun geta› sótt efni› aftur.
DÓMSTÓLAR Litháískur karlmaður á
fertugsaldri var í gær sýknaður af
ákæru um að hafa smyglað hingað
brennisteinssýru til fíkniefnagerð-
ar. Þá var upptökukröfu ákæru-
valdsins vísað frá dómi og sakar-
kostnaður felldur á ríkissjóð.
Sævar Lýðsson, fulltrúi sýslu-
manns á Keflavíkurflugvelli,
sagði eftir að dómurinn hafði
verið skoðaður í gær að honum
yrði ekki áfrýjað. Litháinn hafði
þá fengið afhent vegabréf sitt og
var á leið úr landi.
„Ég bjóst nú frekar við þessari
niðurstöðu,“ sagði Guðrún Sess-
elja Arnardóttir, verjandi Lit-
háans. Dómurinn telur ekki fullar
sönnur hafa verið færðar á inni-
hald flasknanna sem teknar voru
af honum. „Álit dómsins er að sá
vafi nægi einn og sér til sýknu, en
bætir svo líka við að efasemdir
séu um huglæg refsiskilyrði fyrir
brotinu, það er að segja hvort
ákærði hafi vitað eða mátt vita að
hann væri að flytja brennisteins-
sýru til landsins,“ bætti hún við.
Dómurinn gagnrýnir rannsókn
málsins harðlega og segir sókn
þess öðru fremur hafa einkennst
af „órökstuddum dylgjum um að
ákærði sé bendlaður við alþjóð-
lega glæpastarfsemi“. Þá er því
hafnað að útskýringar mannsins á
ferðum sínum hafi verið ótrú-
verðugar. „Er og alþekkt að menn
leggja í langferðir til að leyna
framhjáhaldi fyrir maka sínum,“
segir dómurinn.
„Dómurinn er náttúrlega mjög
strangur og mikil vonbrigði.
Hingað til hefur verið litið
framhjá sögutilbúnaði burðar-
dýra sem tekin hafa verið með
ólögleg efni í tolli og því kemur
þetta nokkuð á óvart,“ sagði
Jóhann R. Benediktsson, sýslu-
maður á Keflavíkurflugvelli, en
hann var í gær staddur í útlönd-
um. „Ég er ekki fyllilega búinn að
kynna mér forsendur dómsins en
við tökum til skoðunar og úrbóta
aðfinnslur gagnvart okkar vinnu.“
Heimildir blaðsins herma að
innan lögreglu velti menn því nú
fyrir sér hvort farin hafi verið rétt
leið í vali á ákæru í málinu, því
ekkert hafi legið fyrir um tengingu
við amfetamínframleiðslu. Þannig
hefði ef til vill verið líklegra til
sakfellingar að kæra Litháann
fyrir að hafa stofnað lífi og limum
fólks í hættu með því að vera með
sýruna í handfarangri í flugvél.
olikr@frettabladid.is
FRÁ FUNDINUM Á ÞRIÐJUDAG Matthías G.
Pétursson, formaður sóknarnefndar, ásamt
sóknarbörnum í Garðasókn.
Deilur í Garðasókn:
Sta›a sóknar-
prests augl‡st
GARÐASÓKN Þrír voru kjörnir í
sóknarnefnd Garðasóknar á aðal-
safnaðarfundi sóknarinnar á
þriðjudag en listi með stuðnings-
mönnum Hans Markúsar Haf-
steinssonar náði ekki kjöri. Hans
Markús fékk í gær frest til 1.
október til að ákveða hvort hann
ætli að þiggja nýja stöðu héraðs-
prests eða óska eftir lausn frá
embætti. Staða sóknarprests í
Garðasókn verður auglýst á næst-
unni en sóknarnefnd mun í fram-
haldinu skipa valnefnd. Sóknar-
börn geta þó krafist þess að kosið
verði milli umsækjenda ef til þess
fást undirskriftir þrjátíu prósenta
atkvæðisbærra sóknarbarna. - hb
Sat inni í 22 ár:
Fær ekki a›
kæra ríki›
FLÓRÍDA, AP Karlmaður sem sat 22
ár í fangelsi fyrir glæp sem hann
framdi ekki getur ekki höfðað
skaðabótamál á hendur Flór-
ídaríki. Þannig hljóðar úrskurður
dómara í máli Wilton Dedge, sem
var dæmdur fyrir nauðgun sem
hefur síðan verið sýnt fram á að
hann var saklaus af.
Dómarinn sagði mál Dedge
sorglegt en að löggjöf Flórída
verndaði ríkið frá lögsóknum sem
þessari. Því gæti aðeins ríkisþing
Flórída tekið á máli hans. ■
SPURNING DAGSINS
Árni, flú vilt ekki vera í ein-
hverju ö›ru sæti?
„Jú, ég er til í að vera í hvaða öðru sæti
sem er.“
Árni Þór Sigurðsson sækist eftir öðru sæti á lista
VG fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
GUÐRÚN SESSELJA ARNARDÓTTIR LÖGMAÐUR OG LITHÁÍSKUR SKJÓLSTÆÐINGUR HENNAR
Lithái var sýknaður af broti á fíkniefnalöggjöf í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Dómurinn
taldi skýringar hans á ferð sinni hingað ekki hafa verið hraktar og það sama gilti um fyrri
ferðir hans hingað. „Vart má útiloka að hann sé einfaldlega hrifinn af landi og þjóð,“ segir
í dómnum.
Langlundargeð starfsmanna hjúkrunar- og meðferðarheimila á þrotum:
Verkfall yfirvofandi ef ekki semst
ATVINNUMÁL „Við eigum fund í dag
með ríkissáttasemjara og ef ekki
næst samkomulag þar er ég ansi
smeykur um að það þurfi að koma
til verkfalls,“ segir Árni Stefán
Jónsson, framkvæmdastjóri stétt-
arfélagsins SFR, sem í sex mánuði
hefur reynt að ganga frá kjara-
samningum við Samtök fyrir-
tækja í heilbrigðisþjónustu, SFH,
en án árangurs.
Starfsmenn samtakanna, sem
eru jafnframt félagsmenn hjá
SFR, vinna hjá meðferðar- og
hjúkrunarheimilum eins og Hrafn-
istu, Grund, SÁÁ og fjölda ann-
arra. Því er ljóst að áhrifin yrðu
gríðarleg ef til verkfalls kæmi.
Starfsmennirnir héldu fund í
gær og segir í ályktun fundarins
að langlundargeð þeirra sé á þrot-
um og því krefjist þeir þess að
forsvarsmenn SFH gangi frá
kjarasamningum við SFR án tafa
svo ekki þurfi að koma til alvar-
legra átaka. Einnig var stjórn SFR
falið að undirbúa atkvæða-
greiðslu um verkfall hjá stofnun-
um innan samtakanna.
„Í raun er það sárgrætilega
lítið sem ber á milli og það er því
alveg sorglegt að svo lítil þúfa
ætli að velta svo stóru hlassi,“
segir Árni Stefán. - jse
HRAFNISTA Í HAFNARFIRÐI Hrafnista er ein af þeim stofnunum sem yrðu fyrir miklum
skakkaföllum ef til verkfalls kæmi hjá starfsmönnum Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu.
Iceland Express fjölgar áfangastöðum frá og með maí á næsta ári:
Flogi› til sex n‡rra áfangasta›a
FERÐAMÁL Flugfélagið Iceland
Express mun hefja áætlunarflug til
sex borga í Evrópu frá og með maí á
næsta ári, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins. Þrír áfangastaðanna
eru á Norðurlöndunum og þrír í
Þýskalandi.
Borgirnar sem flogið verður til á
Norðurlöndunum eru Björgvin,
Gautaborg og Stokkhólmur en
þýsku áfangastaðirnir eru Ham-
borg, Berlín og Friedrichshafen.
Mun Iceland Express meðal annars
ætla að reyna selja ferðir sínar er-
lendum ferðamönnum á þessum
slóðum auk þess sem áfangastaðirn-
ir munu vera valdir þar sem ferðir
Íslendinga til norrænu borganna
eru tíðar.
Iceland Express mun taka í notk-
un þrjár nýjar vélar af sömu gerð
og stærð og félagið notar í dag
vegna hinna nýju áfangastaða. Má
búast við að fargjöld verði á svip-
uðu verði og þau eru til núverandi
áfangastaða félagsins en félagið
flýgur til Kaupmannahafnar, Lund-
úna og Frankfurt í dag. Áætlað er að
flug til þessara borga muni standa
til boða fljótlega en fyrstu vélarnar
halda utan í lok maí á næsta ári. - hb
NÝJAR FLUGLEIÐIR Iceland Express ætlar
að bæta þremur þotum í flota sinn.
Fuglaflensa:
Brei›ist
líklegast ví›ar
RÓM, AP Fuglaflensan, sem hefur
gert vart við sig víða í Austur-Asíu,
mun líklega dreifast til Evrópu,
Mið-Austurlanda, Suður-Asíu og
Afríku að mati Matvæla- og land-
búnaðarstofnunar Sameinuðu þjóð-
anna. Stofnunin hvetur ríkisstjórnir
til að auka eftirlit og gera ráðstafan-
ir ef neyðarástand skyldi skapast.
Að mati stofnunarinnar berst
veiran líklega langar leiðir með
villtum fuglum. Flensan greindist
nýlega í Síberíu og getur auðveld-
lega borist að Kaspíahafi og Svarta-
hafi og átt þaðan greiðan aðgang að
Mið-Evrópu. ■
Eiturefnaleki við Krókhals:
Saltpéturs‡ra
lak hjá Össuri
LÖGGÆSLA Töluvert magn af salt-
pétursýru lak út við húsnæði Öss-
urar við Krókháls á tíunda tíman-
um í gærkvöldi. Verið var að
vinna í húsnæðinu þegar starfs-
menn urðu lekans varir og
hringdu í Neyðarlínuna.
Eiturefnakafarar frá Slökkvi-
liði höfuðborgarsvæðisins voru
sendir á vettvang og nærliggjandi
götum var lokað. Ekki var talið að
neinn hefði andað efninu að sér
þannig að skaði hlytist af. - hb
EITUREFNAKAFARAR AÐ STÖRFUM
Eiturefnakafarar frá Slökkviliði höfuð-
borgarsvæðisins við Krókháls í
gærkvöldi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI