Fréttablaðið - 17.10.2005, Blaðsíða 31
13MÁNUDAGUR 17. október 2005
201 Kóp.: 3ja herbergja íbúð í Lindahverfinu
Fífulind 9 í Kópavogi
Lýsing: Íbúðin er á neðstu hæð en engir stig-
ar eru úr sameign inn í íbúðina. Forstofa og
gangur eru flísalögð og þar er rúmgóður fata-
skápur. Hjónaherbergið er með stórum skáp
og í barna- og hjónaherbergi er plastparkett.
Baðherbergið er með baðkari og stórum
skáp frá gólfi og upp. Vaskurinn er innfelldur
í innréttingu og skápur fyrir ofan vaskborð.
Gólf og blautrými eru flísalögð. Þvottahúsið
er með glugga inni af baðherbergi. Eldhús er
með plastparketti á gólfum og innrétting er
einnig úr kirsuberjaviði. Í eldhúsinu er ljósgrá
borðplata. Enn fremur er bjartur og rúmgóð-
ur borðkrókur og útgengt er út á suðurver-
önd. Stofa og borðkrókur eru með plastparketti á gólfi.
Annað: Húsið er nýuppgert og málað að utan. Stutt er í skóla, leikskóla, verslun, sundlaug og heilsu-
gæslu
210 Garðabær: Falleg lóð og mósaík veggur
Tunguás 6: Fallegt einbýlishús með bílskúr.
Lýsing: Einbýlihús á einni hæð. Eignin skiptist í rúmgóða for-
stofu með fataskáp. Úr forstofunni er gengið inn í hol og þaðan
er gengið inn í öll rými eignarinnar. Björt stofa með arni og
hátt til lofts. Eldhús með eikarinnréttingu, mósaíkflísar á milli
innréttinga og mósaíkveggur sem skilur að eldhús og borð-
stofu. Björt borðstofa og þaðan er utangengt út í garð. Barna-
herbergi með fataskáp. Flísalagt gestasalerni. Rúmgott svefn-
herbergi með fataskápum. Flísalagt baðherbergi með sturtu og
baðkari við hlið hjónarherbergis. Vegghengt salerni og góð bað-
innrétting. Rúmgott þvottahús með útgangi. Gott aðgengi frá
þvottahúsi upp á risloft sem er yfir hluta af húsinu og nýtist
sem geymsluloft.
Úti: 48,7 fermetra bílskúr. Innangengt er í bílskúrinn sem er með tveimur bílskúrshurðum og raf-
magnsopnara. Næturlýsing. Innbyggt útvarpskerfi á nokkrum stöðum í húsinu. Fullgert bílaplan með hita.
Hiti einnig við aðalinngang.
Annað: Vönduð gólfefni á allri eigninni. Halógenlýsing í öllu húsinu utan bílskúrs.
Fermetrar: 208,5 Verð: 59,8 milljónir Fasteignasala: HraunhamarFermetrar: 85,5 fm og geymslan er 5,5 fm. Verð: 20,9 milljónir Fasteignasla: Nethús, www.nethus.is