Fréttablaðið - 26.10.2005, Page 1
Hægir á vexti McDonald’s
Ekki nógu
hollur biti
Fjárfestirinn með járnkarlinn
Pálmi
Haraldsson
á flugi
Fyrsta afurð Mjólku
Feti kominn á
markað
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 26. október 2005 – 30. tölublað – 1. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
EasyJet hækkar | Gengi í breska
lággjaldaflugfélaginu easyJet
hækkaði mjög í vikunni og náði
sínu hæsta gildi í gær þegar bréf-
in fóru yfir 300. Þetta má rekja til
væntinga um áframhaldandi kaup
FL Group í fyrirtækinu. FL Group
á nú um þrettán prósent í félag-
inu.
Keypti Sterling | FL Group og
Fons eignarhaldsfélag undirrit-
uðu samning á sunnudag um sölu
á Sterling til FL Group fyrir 15
milljarða króna.
Nýr Greenspan | George Bush
Bandaríkjaforseti tilnefndi Ben
Bernanke, einn af efnahagsráð-
gjöfum stjórnarinnar, sem arftaka
Alans Greenspan, seðlabanka-
stjóra Bandaríkjanna. Bernanke
tekur við starfinu 31. janúar þeg-
ar Greenspan lætur af störfum.
Lækkar hámarkslán | Lands-
bankinn hefur ákveðið að lækka
hámark íbúðalána úr 90 prósent-
um í 80 prósent af markaðsvirði
eigna. Hvorki KB banki né Ís-
landsbanki ætla að lækka há-
markshlutföll að svo stöddu.
SPRON veitir 80 prósenta lán að
hámarki.
1.100 milljarðar | Heildareignir
lífeyrissjóðanna voru orðnar
1.100 milljarðar í lok ágúst og
höfðu aukist um 123 milljarða frá
áramótum. Ef eignum lífeyris-
sjóðanna væri skipt niður á hvert
mannsbarn fengi hvert og eitt 3,7
milljónir króna í sinn hlut.
Hannes forstjóri | Hannes
Smárason, stjórnarformaður FL
Group, er nýr forstjóri félagsins.
Ragnhildur Geirsdóttir hefur látið
af starfi og hættir hjá félaginu.
Skarphéðinn Berg Steinarsson
tekur við stjórnarformennsku af
Hannesi.
Ármann
forstjóri
Singer & Friedlander 19.
stærsti banki Bretlands.
„Þetta er mjög spennandi verk-
efni og umfang starfseminnar er
meira en ég hef áður fengist við,“
segir Ármann Þorvaldsson
nýráðinn forstjóri breska bank-
ans Singer & Friedlander, sem
KB banki tók yfir í sumar. Áður
gegndi Ármann stöðu fram-
kvæmdastjóra fyrirtækjaráð-
gjafar en nú stýrir hann allri
starfsemi KB banka í Bretlandi.
Samkvæmt upplýsingum
Markaðarins er Singer & Fried-
lander 19. stærsta fjármálafyrir-
tæki Bretlands miðað við eigið
fé.
„Nú er unnið að því að sam-
eina starfsemi Singer og Kaup-
þings í London. Síðan liggur fyrir
að við ætlum að láta fyrirtækið
vaxa og auka hagnaðinn,“ segir
Ármann aðspurður um framhald-
ið. Vorið 2006 flytji öll starfsem-
in undir sama þak í London þar
sem um 500 manns muni vinna.
Tony Shearer, sem gegnt hef-
ur starfi forstjóra Singer &
Friedlander, mun starfa við hlið
Ármanns út nóvember. Aðspurð-
ur um brotthvarf hans segir Ár-
mann það í góðri sátt. Forsendur
hafi breyst; Singer sé ekki lengur
skráð félag heldur dótturfélag
KB banka.
Við starfi Ármanns tekur
Helgi Bergs en hann hefur áður
starfað sem aðstoðarfram-
kvæmdastjóri fyrirtækjaráð-
gjafar Kaupþings banka á sam-
stæðugrundvelli við hlið Ár-
manns. . - hb/bg
„Auðvitað höfum við mikinn áhuga á þessu félagi,“
segir Hannes Smárason, forstjóri FL Group, um fjár-
festingar félagsins í easyJet. Hann vill þó ekkert
segja um næstu skref FL Group vegna strangra yfir-
tökureglna í Bretlandi.
Í breska blaðinu The Independent í gær segir að
kaupin á Sterling geri hlutabréf í easyJet enn eftir-
sóttari fyrir FL Group. Næstu skref hljóti að vera til-
raun til yfirtöku á félaginu. Það geti þó verið erfitt
því sannfæra verði auðkýfinginn Stelios Haji-Ioann-
ou, sem á um 40 prósent í félaginu, um að selja sinn
hlut.
Hlutabréf í easyJet hækkuðu um sex prósent í
gær og hafa hækkað um ellefu prósent frá því að til-
kynnt var um kaup FL Group á Sterling.
Dönsku blöðin veltu fyrir sér í gær hver hagnað-
ur Fons af bréfunum í Sterling er og hvert kaupverð-
ið á Maersk-flugfélaginu var, sem rann svo saman
við Sterling. Pálmi Haraldsson, einn eigandi Fons,
vill ekki gefa upp kaupverðið á Maersk en segist
hafa keypt Sterling á fjóra milljarða. Hann vill þó
taka fram að það sé fjarri lagi að hann hafi hagnast
um tíu eða ellefu milljarða króna eins og hafi komið
fram í fjölmiðlum. Hann leggur mikla áherslu á trú
sína á Sterling og að FL Group hafi gert góð kaup.
Eftir sölu Fons á Sterling hafa félög í eigu Pálma
Haraldssonar, Fengur og Fons, mikla burði til að láta
til sín taka. Pálmi getur ekki gefið upp eigið fé félag-
anna. „Ég get þó sagt að fjárfestingargeta félaganna
Fengs og Fons er á bilinu þrjátíu til fimmtíu millj-
arðar eftir eðli verkefna. Þá geta menn séð styrk
þessara félaga.“
Nokkur gustur hefur verið um FL Group að
undanförnu en ekki er langt síðan þrír stjórnarmenn
sögðu sig úr stjórn félagsins. Engar skýringar feng-
ust þá á skyndilegu brotthvarfi þeirra þegar Mark-
aðurinn leitaði eftir því. Þá varð samkomulag milli
stjórnar félagsins og forstjórans, Ragnhildar Geirs-
dóttur, að hún lyki störfum hjá félaginu í síðustu
viku.
Hlutabréf í FL Group hafa hækkað lítið í Kauphöll
Íslands eftir að tilkynnt var um þessi viðskipti á
sunnudaginn.
- sjá fréttaskýringu á bls. 10 og úttekt í miðopnu
F R É T T I R V I K U N N A R
2 12-13 7
Hagnaður Íslandsbanka nam 4,8
milljörðum króna á þriðja árs-
fjórðungi en var 3,7 milljarðar á
sama tíma í fyrra. Er þetta tölu-
vert betri árangur en spáð hafði
verið en meðaltalsspáin hljóðaði
upp á 4.228 milljónir.
Hagnaður bankans fyrstu níu
mánuði ársins er því orðinn um
15,4 miljarðar króna sem er met í
sögu hans.
Hreinar vaxtatekjur námu 6,7
milljörðum króna á tímabilinu og
hækkuðu um 3,8 milljarða milli
ára eða um 130 prósent. Útlán
bankans hafa meira en tvöfaldast
frá áramótum.
Aðrar rekstrartekjur voru um
2,8 milljarðar sem er lækkun upp
á fjörtíu prósent á milli ára. Sam-
anlagðar tekjur eru því 9,5 millj-
arðar og hækka um 1,3 milljarða
milli ára. Ein skýring á því að
uppgjör bankans var umfram
væntingar markaðarins liggur í
minni kostnaði en búist var við.
Rekstrargjöld voru 3,5 milljarðar
en voru til samanburðar 3,2 millj-
arðar í fyrra. Kostnaðarhlutfall á
fjórðungnum, það er hlutfall
kostnaðar af tekjum, var því um
36 prósent sem er svipað hlutfall
og fyrir árið í heild. Markaðsaðil-
ar höfðu spáð að hlutfallið yrði 40
prósent.
Heildareignir samstæðunnar
eru komnar í 1.319 milljarða
króna og hafa aukist um 95 pró-
sent frá áramótum. Eigið fé Ís-
landsbanka er orðið 76 milljarðar
króna. - eþa
Útrásarvísitalan lækkar:
DeCode hækkar
DeCode hækkaði mest allra fé-
laga í úrvalsvísitölunni milli
vikna eða um 4,75 prósent. Lækk-
anir einkenndu félög í útrásar-
vísitölunni en breska félagið
NWF lækkaði mest milli vikna
eða um 10,63 prósent. Ellefu fé-
lög af fimmtán lækkuðu milli
vikna og mælist útrásarvísitalan
nú 105,54 stig og lækkar um 2,98
prósent frá því í síðustu viku. - hb
Aukinn áhugi FL
Group á easyJet
Forstjóri FL Group segist hafa mikinn áhuga á easyJet. Eftir
söluna á Sterling er fjárfestingargeta félaga Pálma
Haraldssonar á bilinu 30 og 50 milljarðar.
Gott uppgjör hjá Íslandsbanka
Rekstargjöld minni en búist var við. Hreinar vaxtatekjur stóraukast.
A F K O M A Í S L A N D S B A N K A
Á 3 . Á R S F J Ó R Ð U N G I
( í m i l l j ó n u m k r ó n a )
Hagnaður 4.801
KB banki 4.400
Landsbankinn 4.055
Meðaltalsspá 4.228