Fréttablaðið - 26.10.2005, Page 2
Björgvin Guðmundsson
skrifar
„Við vorum heilluð af auglýsing-
um eftir Jónsson & Le’macks.
Þær eru bæði frumlegar og
skemmtilegar eins og sést á
auglýsingum 66 gráður norður.
Meðal annars af þeim ástæðum
ákváðum við að fá þá stofu til að
hanna auglýsingar fyrir Reyka-
vodka,“ segir Elwyn Gladstone,
þróunarstjóri William Grants &
Sons sem er alþjóðlegur banda-
rískur áfengisframleiðandi.
Viggó Örn Jónsson, einn eig-
enda Jónsson & Le’macks, segir
samninginn við William Grants
ganga út á hönnun og gerð kynn-
ingarefnis og auglýsinga fyrir
Reyka-vodka. Það verði notað til
að koma vörunni á framfæri –
fyrst og fremst í Bandaríkjun-
um en einnig í Evrópu. Til dæm-
is verði kynningarefni hannað
af þeim notað á alþjóðlegri sölu-
sýningu fríhafnarverslana í
Cannes 1. nóvember.
„Tekjur okkar verða stöðugri
með þessum samningi en við
rukkum einnig fyrir einstök
verkefni. Það er líka skemmti-
legt að gera áfengisauglýsingar,
sem eru bannaðar á Íslandi.
Þetta stækkar því markaðinn
fyrir okkur og er um leið spenn-
andi verkefni fyrir metnaðar-
fullt starfsfólk, sem er undir-
staðan í starfsemi allra auglýs-
ingastofa,“ segir Viggó aðspurð-
ur um þýðingu þessa verkefnis.
Elwyn segir William Grant
hafa keypt bruggverksmiðju í
Skotlandi og flutt hana til Borg-
arness. Hreinleiki Íslands skipti
miklu máli í markaðssetningu
Reyka-vodka. Þetta sé eini
áfengi drykkurinn í heimi þar
sem jarðhiti er notaður til eim-
ingar og hreina vatnið þekki all-
ir. Til að koma þessari hugsun á
framfæri notfæri fyrirtækið
sér þekkingu Íslendinga. Fjalar
Sigurðsson hjá Inntaki hafi
meðal annars séð um kynning-
armál.
Viggó segir mjög sjaldgæft
að íslenskar auglýsingastofur
séu fengnar til að auglýsa fyrir
erlend stórfyrirtæki í útlöndum.
Þetta sé þróunarvinna sem
byggi á því að skapa ímynd
Reyka-vodka og koma réttum
áherslum til skila. Vörumerkið
sé nýtt og því skiptir máli að
vita hvað virki og hvað ekki.
Vika Frá áramótum
Actavis Group -4% 10%
Bakkavör Group 0% 80%
Flaga Group -6% -41%
FL Group -1% 43%
Grandi -1% 16%
Íslandsbanki -1% 34%
Jarðboranir -2% 6%
Kaupþing Bank 0% 36%
Kögun -1% 16%
Landsbankinn 1% 83%
Marel 0% 30%
SÍF 0% -8%
Straumur 0% 38%
Össur -1% 23%
*Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005 MARKAÐURINN2
F R É T T I R
G E N G I S Þ R Ó U N
Gera auglýsingar
fyrir alþjóðamarkað
Auglýsingastofan Jónsson & Le’macks var valin til að búa
til auglýsingar fyrir erlendan áfengisframleiðanda.
Andri Már Ingólfsson, forstjóri
Heimsferða, segir félagið ekki
hafa skoðað hvort það
muni leggja fram til-
boð í Iceland Express
en eigendur Iceland
Express hafa nú til-
kynnt að þeir munu
selja félagið í kjölfar
þess að þeir hafa eignast
hlut í FL Group.
„Við höfum lagt aðaláherslu á
að vaxa í Skandinavíu en það hef-
ur verið mikill vöxtur í okkar
starfsemi bæði þar og hér heima.
Iceland Express er eitthvað sem
við höfum ekki leitt hugann að,“
segir Andri Már. - hb
Fetaostur sem Mjólka framleiðir
fór á markað á mánudaginn.
Ólafur M. Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Mjólku, segir ost-
inn framleiddan undir nafninu
Feti og fari fyrst til stóreldhúsa
og veitingastaða. Hann vilji fá
umsögn fagaðila um vöruna áður
en hún fari á neytendamarkað.
Aðspurður af hverju Mjólka
framleiðir fetaost en ekki aðra
mjólkurafurð segir Ólafur fram-
leiðsluferlið stutt. Hins vegar
hefjist framleiðsla á öðrum vör-
um í kjölfarið. Þar skipti sam-
starf við Vífilfell miklu, sem
keypti 34 prósent í Mjólku nýver-
ið. Vífilfell sé eitt stærsta fram-
leiðslufyrirtæki landsins og búi
yfir mikilli markaðsþekkingu.
Hann vill ekki upplýsa hvers
konar vörur verði framleiddar.
Mjólka nýtur ekki ríkisstuðn-
ings eins og stóru mjólkursam-
sölurnar. Ólafur segist ætla að
keppa í gæðum, fjölbreytni og
handhægum umbúðum. Í raun
hafi neytendur strax fengið um
50 prósenta afslátt af hans vöru
því skattgreiðendur niðurgreiði
hana ekki eins og vörur annarra
mjólkurframleiðenda. - bg
Ekki hugsað til
Iceland Express
Heimsferðir leggja áherslu á Skandinavíu.
Afurð Mjólku á markað
Í vikunni var fetaosti dreift til stóreldhúsa.
Skuldabréfaútgáfa erlendra aðila
í íslenskum krónum er nú komin
í 92 milljarða króna samkvæmt
upplýsingum frá grein-
ingardeild KB
banka. Gefin voru
út skuldabréf fyr-
ir 6 milljarða
króna í síðustu
viku en til sam-
anburðar má geta
þess að útflutn-
ingsverðmæti sjáv-
arafurða var um 123
milljarðar á síðasta ári.
Gengisvísitala íslensku krón-
unnar er nú í um 101 stigi en
margir búast við því að hún
muni fara niður fyrir 100
stig á næstu dögum ekki
síst ef skuldabréfa-
útgáfan tekur kipp að
nýju. - hb
Straumur-Burðarás
kaupir meirihluta
hlutafjár í Festingu
samkvæmt heimild-
um Markaðarins.
Með því leysist
langvinn deila milli
hluthafa félagsins
sem rekin hefur
verið á skrifstofu
sýslumanns, með
lögbannsbeiðnum,
og átti að taka fyrir
hjá dómstólum.
Þessi lausn er síðasta skrefið á
aðskilnaði fyrrverandi við-
skiptafélaganna í Sundi ehf. og
Ólafs Ólafssonar, stjórnarfor-
manns Samskipa. Áður hafði
Straumur-Burðarás keypt hlut
Sunds-manna í Keri, sem er að
meirihluta í eigu Ólafs.
Festing á og rek-
ur eignir Olíufélags-
ins Esso og Sam-
skipa, sem er stjórn-
að af Keri. Í mars
síðastliðnum ákvaðu
tveir stjórnarmenn
að auka hlutafé
Festingar, í sam-
ræmi við samþykkt
aðalfundar en í and-
stöðu við fulltrúa
Ólafs Ólafssonar, og
selja það félagi í
eigu framkvæmdastjóra Fest-
ingar. Náðu þeir þannig yfir-
ráðum í félaginu. Um lögmæti
þessa snerist deilan. Hluturinn
sem Straumur-Burðarás kaupir
var í eigu Sund ehf., Nordic
Partners og Angus, félags
framkvæmdastjórans. – bg
STARFSFÓLK JÓNSSON & LE’MACKS Reyka-vodki er framleiddur af alþjóðlegum
áfengisframleiðenda á Íslandi. Starfsfólk Jónsson & Le’macks fékk það verkefni að hanna og
búa til auglýsingar fyrir Reyka-vodka sem notaðar verða meðal annars í markaðssetningu í
Bandaríkjunum.
ANDRI MÁR INGÓLFSSON,
FORSTJÓRI HEIMSFERÐA
Leggja aðaláherslu á að
vaxa í Skandinavíu.
GENGISVÍSITALA STEFNIR
NIÐUR FYRIR 100 STIG Að-
eins hefur hægt á skuldabréfa-
útgáfu erlendra aðila í íslenskum
krónum en hún stendur nú í 101
stigi.
Skuldabréfaútgáfan
komin í 92 milljarða
Hreinleiki Íslands skipti miklu máli í markaðssetningu Reyka-vodka.
ÓLAFUR M. MAGNÚSSON Ekki niður-
greiddur með skattfé.
Á LEIÐ TIL SÝSLUMANNS
Jóhann Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Festingar, og Sig-
urður G. Guðjónsson hæsta-
réttarlögmaður á leið til full-
trúa sýslumannsins þar sem
stærstu eigendur Kers kröfðust
lögbanns á hlutafjáraukningu
Festingar.
Losnar um í Festingu
Leiðir fyrrverandi viðskiptafélaga skilja.