Fréttablaðið - 26.10.2005, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005 MARKAÐURINN6
Ú T L Ö N D
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir
skifar
George Bush Bandaríkjaforseti tilnefndi á mánu-
dag eftirmann Alans Greenspan, einhvers far-
sælasta seðlabankastjóra Bandaríkjanna fyrr og
síðar. Sá sem varð fyrir valinu er Bernard Bern-
anke, formaður nefndar efnahagslegra ráðgjafa
ríkisstjórnarinnar og fyrrverandi hagfræðiprófess-
or við Princeton-háskóla.
Bernanke var af flestum talinn hæfastur fram-
bjóðenda og líklegasti kosturinn í starfið. Gagnrýn-
israddir benda þó á að hann hafi litla reynslu af
raunverulegri framkvæmd þrátt fyrir mikla
akademíska reynslu. Hann er talinn munu fylgja
sömu stefnu og Greenspan að mestu. Hann er þó
mikill talsmaður þess að sett verði verðbólgumark-
mið eins og algengt er í Evrópu. Því hefur Green-
span ávallt verið mótfallinn en hann telur mikil-
vægt að markaðurinn geti sér til um hvernig seðla-
bankinn bregst við verðbólgu.
Bernanke á erfitt verk fyrir höndum þegar hann
tekur við embættinu. Eldsneytisverð fer hækkandi,
verðbólga eykst og hægst hefur á húsnæðismark-
aðnum. Allt þetta er talið að muni minnka einka-
neyslu í Bandaríkjunum töluvert á næstu mánuð-
um. Þar að auki hafa sérfræðingar af því áhyggjur
til lengri tíma að vaxandi viðskiptahalli við útlönd
og fjárlagahallinn setji þrýsting á bandaríska doll-
arann.
Ljóst er að fylgst verður grannt með störfum
Bernanke. Greenspan var einn aðalsmiður efna-
hagsstefnu Bandaríkjanna og valdamesti seðla-
bankastjóri heims. Ekki er laust við að hræðslu
gæti við hvað gerist þegar hann fer frá. Ráðning í
starf seðlabankastjóra er ein mikilvægasta efna-
hagslega ákvörðun sem Bush hefur þurft að taka á
sinni stjórnartíð. Bandaríska þingið þarf einnig að
staðfesta ráðningu Bernanke og mun líklega gera
það fyrir jól.
Á þessum degi árið 1916 fædd-
ist Francois Maurice Adrien
Marie Mitterrand. Í æsku sinni
var Mitterand mikill íhaldsmað-
ur og heitur kaþólikki. Hann
barðist í seinni heimsstyrjöld-
inni en var hnepptur í varðhald
árið 1940 til ársins 1941. Þegar
hann slapp fór hann að vinna
með Vichy-stjórninni sem var
við völd í Frakklandi árin 1940-
1944 og var hliðholl nasistum.
Árið 1943 gekk þó hann til liðs
við andspyrnuhreyfinguna. Síð-
ar meir reyndi hann að gera lít-
ið úr vinnu sinni fyrir stjórnina.
Eftir stríðið fór Mitterrand
fljótt aftur í pólitík og fór fyrir
bandalagi demókrata og sósíal-
ista. Hann gegndi alls ellefu
ráðherraembættum frá árinu
1946 en sagði af sér árið 1957
vegna andstöðu sinnar við
stefnu ríkisins í sjálfstæðisbar-
áttu Alsír. Mitterrand var talinn
hafa í embætti sínu haldið ýms-
um upplýsingum leyndum um
ólöglegt athæfi gegn Alsírbúum
meðan á kúguninni stóð, meðal
annars pyntingum.
Mitterand beið lægri hlut
fyrir Charles de Gaulle í for-
setakosningunum árið 1965, fór
fyrir bandalagi sósíalista og
frjálslyndra á árunum 1965 til
1968 og varð síðar leiðtogi sósí-
alistaflokksins. Hann reyndi
aftur fyrir sér í forsetakosning-
unum 1974 án árangurs. Árið
1981 náði hann loks kjöri og
varð ríkisstjórn hans fyrsta
vinstri stjórnin í Frakklandi í 23
ár. Helstu sigrar Mitterrands
voru á alþjóðasviðinu og þá sér-
staklega í Evrópumálum. Hann
var mikill Evrópusinni og vann
náið með Helmut Kohl og áttu
þeir stóran þátt í að bæta sam-
skipti Þýskalands og Frakk-
lands.
Mitterrand var sérstaklega
umhugað um sess sinn í sögunni
og þegar hann greindist með
krabbamein árið 1996 hóf hann
að undirbúa táknræna brottför
sína héðan úr heimi. Hann ákvað
að síðasta kvöldmáltíð hans
skyldi vera kjarrtittlingur sem
er lítill fugl sem þykir mesta
lostæti og sagt er að beri sál
Frakklands. Mitterand neitaði
staðfastlega að borða nokkuð
annað eftir máltíðina og lést átta
dögum síðar, þann 8. janúar
1996. - hhs
S Ö G U H O R N I Ð
Mitterrand kemur í heiminn
-um víða veröld
Galdurinn er að láta okkur vinna fyrir þig
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
JO
N
22
57
2
1
0/
20
03
Skipasendingar Flugsendingar Hraðsendingar Vörumiðstöð Tollafgreiðsla Akstursþjónusta Útflutningur
Kjalarvogi • Sími 535 8000
jonar@jonar.is • www.jonar.is
JÓNAR TRANSPORT bjóða alhliða
flutnings þjónustu í samstarfi við
bestu flutnings aðila sem völ er á,
bæði hérlendis og erlendis. Þéttriðið
þjónustu net um allan heim tryggir
flýti, öryggi, hagstæð gjöld og góða
vörumeð höndlun frá verksmiðju vegg
og heim í hlað.
Bernanke var af flestum talinn hæfastur frambjóðenda og líklegasti kosturinn í
starfið. Gagnrýnisraddir benda þó á að hann hafi litla reynslu af raunverulegri
framkvæmd þrátt fyrir mikla akademíska reynslu.
GREENSPAN, BERNANKE OG BUSH Bernand Bernanke tekur við starfi seðlabankastjóra þegar Greenspan sest í helgan stein í janúar.
Á erfitt verk fyrir höndum
Eftirmaður Alans Greenspan tilnefndur á mánudag.
Fyrirtæki Land Gengi Gjald- (Gengi Breyting
miðill gjaldmiðils)
BTC Búlgaría 10,11 Lev 37,10 -4,59%
Carnegie Svíþjóð 94,50 SEK 7,56 -5,03%
Cherryföretag Svíþjóð 28,30 SEK 7,56 -6,48%
deCode Bandaríkin 8,64 USD 60,39 4,75%
EasyJet Bretland 2,83 Pund 106,74 0,18%
Finnair Finnland 10,40 EUR 72,11 -3,58%
French Connection Bretland 2,44 Pund 106,74 -3,12%
Intrum Justitia Svíþjóð 67,50 SEK 7,76 0,37%
Keops Danmörk 18,90 DKR 9,83 -6,44%
Low & Bonar Bretland 1,09 Pund 106,74 -0,44%
NWF Bretland 5,70 Pund 106,74 -0,63%
Sampo Finnland 12,55 EUR 72,11 -2,89%
Saunalahti Finnland 2,44 EUR 72,11 0,33%
Scribona Svíþjóð 15,60 SEK 7,56 -3,14%
Skandia Svíþjóð 39,20 SEK 7,56 -4,22%
Miðað við gengi bréfa og gjaldmiðla á mánudag
Ú T R Á S A R V Í S I T A L A 1 0 5 , 5 4 - 2 , 9 8 %
FRANCOIS MAURICE ADRIEN MARIE
MITTERRAND Hann var umdeildur stjórn-
málamaður og honum var umhugað um að
eiga sérstakan sess í sögunni.
Spænska flugfélagið Iberia hefur tilkynnt að það hyggist skera niður
2.100 störf á næstu þremur árum. Það jafngildir níu prósentum alls
starfsfólks félagsins. Áætlað er að aðgerðirnar
spari félaginu 600 milljónir evra sem
jafngildir rúmlega 43 milljörðum ís-
lenskra króna. Þetta kemur fram á vefsíðu
Bloomberg. Uppsagnirnar eru liðir í sparnað-
araðgerðum til að koma til móts við hátt eldsneytisverð sem bitnað
hefur á félaginu líkt og öðrum flugfélögum að undanförnu. Hlutabréf
í félaginu féllu í verði við fréttirnar. - hhs
Uppsagnir hjá Iberia
Stærsti stálframleiðandi heims, Mittal Steel,
tryggði sér úkraínsku stálsmiðjuna Kryvorizhstal
á uppboði í beinni útsendingu á mánudag. Tilboð-
ið var slegið á 4,8 milljarða bandaríkjadali sem
jafngildir rúmlega 290 milljörðum íslenskra
króna. Þetta er stærsta erlenda fjárfesting sem
gerð hefur verið í fyrrum Sóvétríkjunum. Með
sölu stálsmiðjunnar var Viktor Jústsjenko, forseti
Úkraínu, að efna kosningaloforð. Hann hefur
einsett sér að sanna fyrir erlendum fjárfestum að
þar séu vænlegir fjárfestingakostir.
Tuttugu prósent af allri málmframleiðslu
landsins fer fram í Kryvoizhstal. Ekki voru allir
sammála forsetanum um ágæti sölunnar. Mót-
mælendur söfnuðust saman meðan á uppboðinu
stóð og héldu á skiltum sem á stóð „Fólkið á
Kryvorizhstal“. - hhs
Stálsmiðja seld í beinni útsendingu