Fréttablaðið - 26.10.2005, Síða 19
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Gísli Kjartansson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs
Mýrasýslu, hefur verið kjörinn formaður Sam-
bands íslenskra sparisjóða (SÍSP) og tekur við
starfinu af Jóni Kr. Sólnes.
Gísli segir að starfið felist í því að leiða samstarf
sparisjóðanna en sambandið er hagsmunagæslu-
aðili þeirra. Eitt brýnasta verkefni SÍSP er að finna
varanlega lausn á íbúðalánamálum. „Við leggjum
mikið upp úr því að það verði tryggt að bæði bank-
ar og sparisjóðir sitji við sama borð við að afla sér
fjármagns á ásættanlegum kjörum,“ segir Gísli.
Hann segir enn fremur að íbúðalánasjóður sé ekki
heilög kýr í þeirra augum en mikilvægt sé að til
staðar sé heildsölubanki sem geti fjármagnað spari-
sjóðina.
Gísli telur að það sé ríkjandi skoðun innan spari-
sjóðanna að þeir þurfi að sameinast og búa til sterk-
ari einingar. „Þetta er ekkert sem sambandið ætlar
að koma fram með boðvaldi. Hver og einn spari-
sjóður gerir þetta með sínum hætti. Við hjá Spari-
sjóði Mýrasýslu höfum keypt tvo sparisjóði með
samkomulagi við seljendur og höfum áhuga að
halda því áfram.“
Aðrir í stjórn SÍSP eru Angantýr Jónasson, Carl
H. Erlingsson, Geirmundur Kristinsson, Magnús
Pálsson, Ólafur Haraldsson, Ólafur Elísson, Páll
Sigurðsson og Ragnar Z. Guðjónsson.
Á aðalfundinum voru samþykktar miklar breyt-
ingar á lögum samtakanna. Áður fyrr hafði hver
sparisjóður haft eitt atkvæði innan SÍSP, óháð
stærð sjóðsins, og olli það nokkurri óánægju innan
sparisjóðahópsins, einkum þeirra stærstu. Til dæm-
is átti SPRON ekki stjórnarmann. „Þetta var ein
ástæða þess sem olli erfiðleikum í samstarfi spari-
sjóða,“ segir Gísli. Fyrirkomulaginu hefur verið
breytt: Annars vegar er hverjum sparisjóði gefinn
ákveðinn fjöldi atkvæða og hins vegar er miðað við
heildareignir áramótin á undan viðkomandi fundi.
„Við lítum á að samstarfið sé að verða betra.“ - eþa
Tryggja þarf sama aðgang að íbúðalánum
Sambúð sparisjóðanna betri eftir lagabreytingar.
GÍSLI KJARTANSSON „Við leggjum mikið upp úr því að það verði
tryggt að bæði bankar og sparisjóðir sitji við sama borð við að afla
sér fjármagns á ásættanlegum kjörum.“
Færeyska ríkið hefur ákveðið að selja fyrirtækið Faroe Seafood.
Frestur til að skila inn kauptilboðum í félagið er til 21. nóvember
næstkomandi. Faroe Seafood er stærsta framleiðslu- og sölufyrir-
tæki sjávarafurða í Færeyjum og varð til úr samruna Føroyoa
Fiskasøla og United Seafood.
Félagið er fyrst og fremst sölusamtök í sjávarútvegi en ræður
ekki yfir aflaheimildum. Félagið selur og kaupir ufsa, þorsk, ýsu og
skelfisk. Áætluð velta félagsins á árinu 2005 er um 7,2 milljarðar
króna. Það er fyrirtækjasvið KPMG í Danmörku sem annast sölu
fyrirtækisins. - hb
Einkavæða færeyskt
sjávarútvegsfyrirtæki
FRÁ FÆREYJUM Færeyingar einkavæða nú sölusamtök í sjávarútvegi.