Tíminn - 14.01.1976, Blaðsíða 16
Miðvikudagur 14. janúar 1976.
MEÍSfiUmÆHUR
ÁENSKU . ,
VASABROTI t
fyrirgódan mat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Árið 1975 reyndist norsk-
um sjávarútvegi erfitt
Síðasta ár var eitt hið erfiðasta
fyrir norskan sjávarútveg frá
striðslokum, að þvi er norsk yfir-
völd hafa skýrt frá. Ástæðurnar
eru margs konar en helztar þó
minnkandi fiskistofnar, iækkandi
verðlag á heimsmarkaðinum og
siæmar gæftir.
Framangreindar ástæður
ásamt hækkuðum tilkostnaði við
rekstur útgerðarinnar, leiddi til
þess, að afkoman innan norska
sjávarútvegsins var mun verri
heldur en árið 1974 og hlaut
sjávarútvegurinn umfangsmikla
rikisaðstoð, sem standa mun
a.m.k. fram i mai á þessu ári.
Eivind Bolle, sjávarútvegsráð-
herra Norðmanna hefur þó spáð
þvi, að upp úr þvi muni ástandið
fara batnandi.
Heildarveiðin nam á siðasta ári
2.311.684 tonnum samkvæmt
bráðabirgðatölum frá yfirvöldum
sjávarútvegsmála i Noregi og er
það minnkun um 78.549 tonn, eða
sem nemur 3,3% miðað við árið
1974.
Heildarverðm æti aflans
minnkaði um 16% frá þvi sem það
var 1974, eða frá 2.235.4 milljón-
um norskra króna niður i 1.885.3
milljónir. Verðið á hverju tonni
féll niður i 816 kr. úr 935 krónum.
Ötflutningsverðmæti norskra
sjávarafurða minnkaði um 400
milljónir norskra króna á árinu
1975, niður i 2.780 milljónir
norskra króna.
K»jjj
Spænska stjórnin herðir
tökin á verkfallsmönnum
— þátttaka í verkföllunum minni heldur en ætlað var
Reuter/Madrid — Lögreglan i
Madrid á Spáni ruddi aðalbygg-
ingar pósts og sima i borginni i
gær, en þar höfðu verkamenn i
verkfalli safnazt saman, og neit-
uðu að yfirgefa bygginguna að
boði yfirvalda. Virðist spænska
stjórnin nú vera að herða tökin i
viðureign sinni við upplausnar-
öflin i landi.
Vinna lá niðri i gær i mörgum
bönkum, verksmiðjum og bygg-
ingum, en þó er talið, að tala
verkfallsmanna hafi alls ekki náð
100 þúsund, eins og talsmenn
verkalýðsfélaga i Madrid höfðu
skýrt frá.
Þaö tók lögregluna um hálfa
klukkustund að ryðja byggingu
póstsins, en að þvi loknu um-
kringdi hún bygginguna, en póst-
menn, sem eru i verkfalli, reyndu
að safnast þar saman.
Um skeið var óttazt, að
sprengjum hefði verið komið fyr-
irinni i aðalbyggingu póstsins, en
sprengja olli miklum skemmdum
á brautarteinum neðanjarðar-
járnbrautanna i borginni i fyrra-
dag, en þann dag fundust átta
sprengjur, sem gerðar voru
óvirkar.
Lögreglan ruddi og i gærmorg-
un byggingu simans, sem er i
miðhluta Madrid-borgar, en nótt-
ina áður hafði komið til heiftar-
legra átaka milli lögreglunnar og
simastarfsmanna, og var mót-
mælafundur þeirra leystur upp
með táragassprengjum.
Talsmenn simans sögðu, að
innan við 10% starfsmanna hans
hefðu tekið þátt i verkföllunum,
og að starfsemin hefði af þeim
sökum alls ekkert raskazt.
Starfsmenn simans i Madrid eru
15 þúsund.
Bankar urðu að loka i Barce-
lona, Sevilla og fleiri stórum
borgum vegna skyndiverkfalla,
sem starfsmenn efndu til. Verk-
smiðjuverkamenn virtist hins
vegar skorta samstöðu til þess að
breiða verkfallsaðgerðir sinar út
til úthverfanna.
Allt var með kyrrum kjörum i
úthverfum Madrid i gær, en há-
vaðasamir fjöldafundir hafa að
undanförnu verið haldnir þar.
Hryðjuverk hafa farið sivaxandi um heim allan á undanförnum árum.
Mikill viðbúnaður er jafnan að hálfu yfirvalda til að koma i veg fyrir
þau. Hér sést flugvallarstarfsmaður i Washington leita að sprengjum í
farangri farþega.
Enginn árangur af
OAU fundinum
Líkur á aukinni erlendri íhlutun í Angola
Reuter/Addis Ababa. Enginn þeim, sem
árangur varð af aukafundi samtaka
ieiðtogar Einingar-
Afrikurikja efndu til
vegna ástandsins I Angola, en.
fundinum lauk i gær i Addis
4 biðu bana í öflugri
sprengingu í Belfast í gær
Spreng jutilræðin
í París:
SamtökGyð-
inga lýsa
sig ábyrg
Reuter/Paris. Hreyfing, sem
kallar sig sjáfsvarnarsveit
Gyðinga, lýsti þvi yfir i gær,
að hún bæri ábyrgð á
sprengjutilræðunum tveim i
Paris i fyrrinótt, en þá
sprungu sprengjur i bókabúð i
eigu araba og skrifstofu
alsirskra verkamanna i borg-
inni.
Hreyfing þessi hefur þegar
lýst yfir, að hún beri ábyrgð á
tveimur sprengjutilræðum,
gegn aðalstöðvum UNESCO,
menningarmálastofnun Sam-
einuðu þjóöanna, en i tilræð-
um þessum var eldsprengjum
beitt.
Reuter/Belfast — öflug sprengja
sprakk i verzlun i einu helzta
verzlunarhverfi Belfastborgar
siðdegis I gær, og biðu f jórir bana.
Ekki var gefin nein viðvörun um
sprenginguna.
Sprengjutilræði þetta er að
máti fréttaskýrenda svar við
siðustu ósk brezku stjórnarinnar,
um að kaþólskir og mótmælendur
komi sér saman um myndun
samsteypustjórnar á Norður-tr-
iandi, til þess að treysta stjórnar-
farið i landinu.
Irlandsmálaráðherra brezku
stjórnarinnar var á blaðamanna-
fundi ekki langt frá staðnum, þar
sem atburður þessi átti sér stað,
en það var eins og fyrr segir á 2.
hæð i kjörbúð i fjölförnustu verzl-
unargötu borgarinnar.
Þak verzlunarinnar hrundi að
mestu við sprenginguna, og fjöldi
verzlunarstarfsmanna og við-
skiptavina lokuðust inni, er brot
hrundu úr veggjum verzlunarinn-
ar. Fjöldamargir slösuðust, er
glerbrot þeyttust I andlit þeirra.
Rúður i meira en 30 verzlunum i
nágrenninu brotnuðu viö spreng-
inguna. 20 manns voru flutt á
sjúkrahús, en 17 leyft að fara
fljótlega heim aftur.
Talsmenn lögreglunnar álita,
að sprengjunni hafi verið smygl-
að inn i járnvörudeild kjörbúðar-
innar i innkaupatösku, og hafi þar
verið að verki konur tvær. Rann-
sókn hefur verið fyrirskipuð til að
leiða i ljós, hvernig konurnar gátu
sloppið inn með sprengjuna þrátt
fyrir allar öryggisráðstafanir,
sem viðhafðar voru.
Fjöldi þeirra, sem beðið hafa
bana i átökunum á Norður-lrlandi
frá áramótum er nú kominn upp i
22 og eru þá hefndarmorðin i
South-Armagh talin með.
Ababa. Hin sjálfstæðu riki
blökkumanna i Afríku hafa nú
grcinilega klofnað i tvær
fylkingar vegna afstöðunnar til
máls þessa.
Fréttaskýrendur eru þeirrar
skoðunar, að mun meiri ákafi
muni nú færast i bardagana i
Angola, og erlend hernaðar-
ihlutun aukast stórlega, þar
sem nú sé útséð, að samkomu-
lag náist ekki i deilunni.
Fundinum i gær lauk mjög
skyndilega rétt fyrir klukkan
sex i gærkvöldi og tókst leiðtog-
unum ekki einu sinni að berja
saman sarneiginlega yfirlýs-
ingu til að gefa i lok fundarins.
22 aðildarriki Einingarsam-
takanna Oau vildu að lýst yrði
yfir stuðningi við MPLA sem
nýtur stuðnings Sovétstjórnar-
innar, en álika fjölmennur hóp-
ur lagði til, að hreyfingarnar
þrjár i Angola yrðu hvattar til
að leggja niður vopn og mynda
samsteypustjórn.
Varaforseti Kenya, Arap Moi,
sagði, er hann hélt frá Addis
Ababa i gær, að þjóðarleið-
togarnir, sem þátt tóku i fundin-
um, hefðu brugðizt angólsku
þjóðinni.
Koma Luns til Reykja-
víkur hlýtur daufar
undirtektir í Bretlandi
Reuter/London — Koma Joseph
Luns, aöalframkvæmdastjóra
NATO til Reykjavikur hefur hlot-
ið frekar daufar undirtektir með-
al brezkra ráðamanna, að þvi er
fréttastofa Reuters I London
skýrði frá i gær.
Brezkir embættismenn sögðu i
gær, að þeir sæju ekki á fram á
neinn „sveigjanleika” i núver-
andi stöðu i landhelgismálinu.
Þeir skýrðu fréttamönnum frá
þvi, að brezka stjórnin fagnaði för
Luns til Reykjavikur, en hvöttu til
varúðar. „Víð munum fagna þvi
að sjá dr. Luns hér, ef hann sér
fram á aö hægt verði að setjast
aftur að samningaborði,” sögðu
embættismennirnir.
Þeir sögðu, að þeir Luns og
Callaghan utanrikisráðherra
Breta myndu geta hitzt á fundi
markaðsnefndar Efnahags-
bandalagsins, sem haldinn verð-
ur snemma i næstu viku, er utan-
rikisráðherrar EBE rikjanna
koma saman til fundar.
Embættismennirnir endurtóku
þá afstöðu brezku stjórnarinnar,
að hún væri reiðubúin til að kalla
brezku herskipin út fyrir hin um-
deildu 200 milna mörk, ef varð-
skipin islenzku hætti áreitni sinni
i garð brezkra togara á miðunum.