Tíminn - 25.02.1976, Qupperneq 9
Miðvikudagur 25. febrúar 1976
TÍMINN
9
kæligeymslu, frystigeymslu,
þvottahúsi og fleira, likt eins og
gerist á sjúkrahúsum eða annars
staðar þar sem fjöldi fólks er.
Þessu máli var hrint i fram-
kvæmd árið 1966 og breyttist þá
mikið aðstaðan að Sólheimum.
Siðar var keypt hús af Kefla-
vikurflugvelli og flutt til Sól-
heima, þar sem komið var fyrir
vistmönnum ásamt ibúðum fyrir
konur með börn, sem oft kemur
fyrir að eru á Sólheimum, sem
aðstoðarfólk ýmist i eldhúsi, Uti á
deildunum, eða við aðra starfa.
Siðan var byggt hús, sem átti að
verða smiðahús, en vegna skorts
á húsnæði fyrir aðstoðarfólk, var
það einnig tekið fyrir það. Þar
var siðar byggt ibúðarhús fyrir
aðstoðarfólk, svo að aðstaða þess
ásamt aðstöðu vistfólksins hefur
batnað á þessum árum svo mikið,
aðvandkvæðieru varla á að fá að-
stoðaríólk, enda nauðsyn á svona
stóru heimili. Á s.l. ári var siöan
byggður vatnstankur, sem keypt-
ur var frá Noregi úr trefjaplasti
og settur saman en skortur hefur
verið á köldu vatni, — neyzluvatni
fyrirheimilið igegnum árin, enda
hafði Lionsklúbburinn látið bora
fyrir köldu vatni.
Þegar Lionsklúbburinn Ægir
byrjaði að hafa afskipti af málum
Sólheima voru aðeins þrjár
byggingar þar þ.e.a.s. gamla
húsið, sem byggt var 1930, vist-
mannahúsið, ásamt bragga, sem
var sarnkornusalur auk fjóss og
hlöðu. En á þeim 19 árum, sem
Lionsklúbburinn hefur aðstoðað
heimilið hafa verið byggð 8 hús
fyrir vistmenn og starfsfólk, auk
þess vatnstankurinn og má ætla
að verðmæti þessara bygginga í
dag sé um 80-90 milljónir.
Nú kemur sú spurning, hvaðan
þessir peningar hafa komið.
Fjáröflun Lionsklúbbsins Ægis
hefúr verið á ýmsan hátt og má
þar fyrst nefna að fá fé úr
styrktarsjóði vangefinna (tappa-
sjóði), en sá sjóður hefur fengið
fjárframlög af gosdrykkja-og öl-
flöskutöppurn, en stór hluti af
framkvæmdunum hefur verið
fjármagnaður þaðan. Hins vegar
hefur klúbburinn ennfremur haft
sælgætissölu i mörg ár, svo og
kúttmagakvöld, sem þekkt er
orðið og fleiri vilja komast að en
mögulegt er, og nú seinustu árin
haft bingó i sjónvarpi sem hefúr
gefið klúbbnum allmikið fé.
Auk þess sem Lionsklúbburinn
Ægir hefur aðstoðað við allar þær
byggingaframkvæmdir, málun
húsa, viðhald húsa og fleira og
hefur það verið venja i nokkur ár,
að Lionsbræður, ásarnt konurn og
börnum hafa farið i heimsókn að
Sólheimum að vori til og gróður-
sett og eru nú þúsundir plantna
þar, sem eru i uppvexti.
Ennfremur er það tilhlökkunar-
efni ekki siður hjá Lionsbræðrum
en vistmönnum og öðru heimilis-
fólki að litlu jólin eru haldin i litla
samkomusalnum einhvern
sunnudag I desember, þar sem
Lionsmeðlimirnir með Omari
Ragnarssyni, Svavari Gests, Sig-
fúsi Halldórssyni og öðrum lista-
mönnum halda skemmtun fyrir
vistrnennina og sýnir vistfólk
jafnfrarnt á senunni einhverja
leikþætti, sern það hefur æft.
Ég hefi sagt i gegnum árin og
segi enn. Ég get þakkað fyrir það
að hafa fengið tækifæri til þess að
vera einr. af Lionsmeðlimum
Ægis til að byggja upp og hjálpa
til við uppbyggingu að Sól-
heimum og hafa eignazt marga
og góða vini þar. Og ásetningur
okkar i Lionsklúbbnum er að
halda áfram aö byggja upp Sól-
heima,afla fjár og eyða okkar
tima og kröftum við að vinna
fyrir þá sem minna mega sin i
þjóðfélaginu. Þetta er mikil
ánægja, og þótt maður hafi stund-
um mikið annað að gera, þá þeg-
ar vinna þarf fyrir Sólheima,
hvort heldur er að fara austur og
vinna þar dagstund eða hóa
saman nokkrum félögum til að
útbúa bingóspjöld er maður
ánægður yfir að hafa eytt sinum
tima til að vinna fyrir gott mál-
efni.
Um leið og keypt eru bingó-
spjöldin, sem þessa dagana er
verið að selja, hefur fólk mögu-
leika á góðum vinningi, sem fyrst
og fremst eru möguleikar á að
hjálpa til við uppbyggingu Barna-
heimilisins að Sólheimum. Hver
króna, sem þangað fer er vel not-
uð og vel varið.
TÓNLEIKAR
ÁRSINS
Þótt árið 1976 sé skammt á
veg komið, og starfsár tónlist-
arfélaga og-stofnana rétt rúm-
lega hálfnað, má nafalaust slá
þvi föstu, að sjöttu tónleikar
Tónlistarfélagsins verði tónleik-
ar ársins (11. febrúar i Austur-
bæjarbiói). Þá lék Stradi-
vari-kvartettinn bandariski
Þrjá strokkvartetta, op. 18 nr. 4
i c-moll eftir Ludwig van Beet-
hoven (1770—1827), nr. 8 op. 110
eftir Dmitrij Sjostakovitsj
(1906—1970) og K 590 i F-dúr eft-
ir Wolfgang Amadeus Mozart
(1756—1791).
Kammermúsik er æðsta form
tónlistar, og strengjakvartett-
inn æðsta form stofutónlistar.
En Stradivari-kvartettinn er af
ýmsum talinn meðal hinna
beztu i heimi. „Þeim er allt leik-
ur einn — samræmd tónmynd-
un, frábær tóngæði, „vibrato”
bogadráttur, skirleiki, sam-
hljómun og jafnvægi. Ef eitt-
hvað gæti kallazt öðru full-
komnara væri það hin frábæra
samstilling” — hefur tónleika-
skráeftir St. Peterburgh Times.
Þvi góður strokkvartett leikur
sem ein heild. Þótt sérhver fé-
laganna I kvartettnum sé „sól-
isti” fórnar hann sjálfum sér
fyrir heildina (sjá mynd).
Félagar Stradivari-kvartetts-
ins heita Allen Ohmes (1. fiðla),
Don Haines (2. fiðla), William
Precuil (lágfiðla) og Charles
Wendt (knéfiðla), og hljóðfæri
þeirra allra eru Stradivari.
Antonio Stradivari (1644—1737)
var nemandi Nicolo Amati I
Cremona. Nicolo er höfuðsnill-
ingur Amati-fiðlusmiðanna.
Hann var sonarsonur Andrea
Amati, sem gerði Cremona að
miðstöð fiðlusmiði í veröldinni
(fiðlan er talin hafa þróazt frá
lýrunni á 16. öld). Elzta fiðlan,
sem merkt er Antonio, Stradi-
var, er frá 22. aldursári hans.
Á henni stendur „Antonius
Stradivarius cremonensis
alumnus Nicoli Amati faciebat
1666” (A.S. frá Cremmóna,
nemandi Nicolo Amati, smlðaði
árið 1666). Siðar merkti hann
fiðlur sinar aðéins meö „Stradi-
varius”. Hann starfaði án af-
láts, lifði spart og náði 93 ára
aldri. Hann varð svo auðugur af
smiðum sinum að „rikur sem
Stradivari” varð orðtæki i Cre-
mona. Fiðlur hans voru fegurst-
ar og beztar allra fiðla, en
menn vita eigi gerla i hverju
yfirburðir þeirra eru fólgnir —
rekja þá m.a. til lakksins, sem
enginn uppskrift hefur fundizt
fyrir. Tónninn I þessum hljóð-
færum er ákaflega fagur, og
engan hef ég heyrt spila eins
fallega á fiðlu og Allen Ohmes,
1. fiðlara Stradivari-kvartetts-
ins. Antonio Stradivari smið-
aði 1116 hljóðfæri, svo vitað sé
(fiðlur, lágfiðlur og knéfiðlur),
ogaffiðlum hans eru enntil 540.
Þeir fjórmenningar eru allir
kennarar við tónlistardeild Há-
skólans i' Iowa, og hafa leikið
saman siðan 1960. Leikur þeirra
er dæmalaust fágaður og sam-
stilltur, en býr samt yfir mikl-
um krafti og dýnamik, þegar á
þarf að halda. Að vanhugsuðu
máli mættu það þykja undur
mikil að slik fágun skuli koma
frá landi bilasalanna og
Bahama-stuttbuxnanna, en svo
er þó ekki — i Bandarikjunum
er saman komin mest kunnátta
allra landa I listum jafnt sem
visindum, þótt við fyrstu sýn
virðistmenningin drukkna I öllu
skruminu.
Fyrst fluttu þeir félagar
c-moll kvartettinn op. 18 nr. 4
eftir Beethoven. Þessi kvartett
er auðteknastur allra kvartetta
Beethovens, og um leið jafn-
beztur hinna sex op. 18 kvart-
etta. Um hann er sögð sú saga,
að kunningi Beethovens hafi
bent honum á óleyfilega mis-
hljóman knéfiðlu og lágfiðlu i 9.
og 10. takti finale-kaflans, og
spurt með hvaða rétti hann
leyfði sér slikt. Beethoven neit-
aði I fyrstu, að mishljóman
þessi væri yfirleitt fyrir hendi,
en sagði siðan, þegar ekki var
um að villast: „Ég leyfi það”.
(Menn hafa ranglega kennt
heyrnarleysi tónskáldsins um —
þessir kvartettar voru samdir á
árunum 1798—1800).
Næst var fluttur kvartett
Sjostakovitsj nr. 8 op. 110. Þótt
ég þekkti þennán kvartett alls
ekki „hitti hann beint i mark”,
hann er afar áheyrilegur, eins
og raunar mikið af tónlist
Sjostakovitsj, sem er uppfinn-
ingasamt, striðið og brellið tón-
skáld, þótt alvarlegurséi bland.
Siðasta á efnisskránni var
kvartett Mozarts K 590 I F-dúr.
Þetta er siðasti kvartett tón-
skáldsins, saminn 1790, ári áður
en Mozart dó. Hann er einn
hinna svonefndu prússnesku
kvartetta, sem Mozart samdi
fyrir Friðrik Vilhjálm II
Prússakeisara, eftirmann Frið-
riks mikla. Friðrik þessi lék á
knéfiðlu, þótt hálfgerður þurs
væri aö öðru leyti, og þess vegna
er hlutur þess hljóðfæris mikill i
prússnesku kvartettunum. í
flutningi Stradivari-kvartetts-
ins var F-dúr kvartettinn bezta
verk hljómleikanna — þegar vel
er leikið er Mozart óviðjafnan-
legur. Þeir, sem halda að hann
sé „hafður til uppfyllingar”
hafa ekki heyrt honum gerð viö-
unandi skil.
Tónleikum þessum var tekið
með miklum og verðskulduðum
fögnuði, sem vonlegt var. Var
þá leikið aukalag, molto adagio
úr kvartett bandariska tón-
skáldsins Samuels Barber (f.
1910).
22.2.
Siguröur Steinþórs son.
„Það eru engin mikilmenni til, drengur minn — aðeins mikiir
starfshópar”.
Einbeitt menningarstefna
Kammermúsikklúbburinn
hélt 3. tónleika þessa starfsárs
fimmtudaginn 19. febrúar i Bú-
staðakirkju. Þar léku Manúela
Wiesler (flauta), Helga Ingólfs-
dóttir (sembal) og Pétur Þor-
valdsson (knéfiðla) fjórar
flautusónötur eftir Jóhann
Sebastian Bach (1685—1750), nr.
IV i C-dúr fyrir flautu og grunn-
bassa (bassocontinuo), og nr. II
i Es-dúr, III i A-dúr og I i h-moll
fyrir flautu og sembal. Fyrr i
vetur (16. nóvember 1975, sjá
Timann 26. nóvember) fluttu
sömu hljóðfæraleikarar hinar
tvær sónöturnar (Nr. V i e-moll
og VI i E-dúr) ásamt partitu
fyrir einleiksflautu á vegum
Kammermúsikklúbbsins.
Stjórn Kammermúsikklúbbs-
ins hefur þannig tekið upp ein-
beitta menningarstefnu i verk-
efnavali sinu og gefið Reykvik-
ingum kost á að að heyra allar
sex flautusónötur Bachs i ágæt-
um flutningi Manúelu Wiesler
og félaga. Hér er brugðið frá
„potpourri-stefnunni”, sem
löngum hefur rikt i menningar-
málum vorum, en hún hefur
„eitthvað fyrir alla” að mark-
miði sinu. Um þá stefnu og ár-
angur hennar er dæmisagan um
Nasreddin og asnann, sem
margir þekkja.
Ef fullur árangur hefði átt að
nást af sónötuflutningi
Kammermúsikklúbbsins hefðu
þurft að fylgja samræmdar að-
gerðir gagnrýnenda og tón-
menntamanna, félagar klúbbs-
ins vissu nú allt um Bach sjálf-
an, eða a.m.k. timabilið 1717-23,
þegar þessar sónötur voru
samdar, tónfræði sónatanna,
sögu og þróun flautunnar,
sembalsins og grunnbassans,
sónötur yfirleitt, o.s.frv. Þvi
aðalmunurinn á heimspeki
menningar- og „potpourri”-
stefnanna er sá, að helzti (og
oftast eini) tilgangur hinnar
siðarnefndu er afþreying, nefni-
lega að drepa timann fyrir
mönnum, en tilgangur hinnar er
uppfræðsla með afþreyingu. Þvi
miður brugðust kjölfarsaðgerð-
irnar i þetta sinn, en hver veit
nema næstu menningartangar-
sókn verði betur fylgt eftir.
„Potpourri-stefnan” er þvi
miður alls ráðandi i útvarpi
voru og i sjónvarpi, þótt dæmi
finnist um hið gagnstæða.
Útvarpsdagskráin er að visu
„menningarleg” sem slik — þar
er talsvert af góðu efni, en i of
smáum brotum. Dagskráin er
samtiningur af hinu og þessu —
tónlist og töluðu máli héðan og
hvaðan — án takmarks og til-
gangs. Enda getur enginn sagt
með sanni: „Ég ætla að hlusta á
útvarpið i kvöld,” nema kannski
á fimmtudagskvöldum, sem eru
leikritakvöld útvarpsins, og
annað hvert föstudagskvöld,
þegar tónleikum Sinfóniuhljóm-
sveitarinnar er útvarpað. Oll
önnur kvöld eru sundurlausir
poppþættir, erindi, tónleikar,
snakkþættir, harmónikulög, út-
varpssögur, danslög, iþróttir,
harmónikulög — það eru of fá
gullkorn i dritnum til að það
borgi.sig að eyða i þau tima, og
liklega verður þetta aldrei
verulega gott fyrr en farið
verður að útvarpa á tveimur
rásum a.m.k.
Höfuðkostur sjónvarpsins
eins og það er nú er sá, að mað-
ur nennir nánast aldrei að horfa
á það. Þó væri það til stórra
bóta, ef tekin væri upp markviss
stefna i kvikmyndamálum,
þannig að i sjónvarpinu yrði
samfelld kvikmyndahátið, þar
sem teknar væru fyrir Bogy-
myndir, Chaplinmyndir, Berg-
mann-myndir, Carey Grant
myndir og.W.C. Fields-myndir,
svo eitthvað sé nefnt. Auk þess
virðist sjálfsagt að sýna þær 140
Perry Mason myndir, sem til
eru, i staðinn fyrir þær hörmu-
legu eftirlikingar, sem mönnum
er nú boðið upp á, og virðast
vera sérsmiðaðar fyrir fólk með
sérþarfir.
Eins og áður sagði eru flautu-
'sónötur Bachs sex að tölu, þar
af þrjár fyrir flautu og grunn-
bassa, og þrjár fyrir flautu og
sembal. Hinar þrjár siðar-
nefndu þykja merkilegri músik,
þótt allar séu þær ágætar, enda
taldar beztu kammerverk
Bachs fyrir blásturshjóðfæri.
Þó er I. sónatan i h-moll fyrir
flautu og sembal talin mest
þeirra allra. Manúela Wiesler
er afburða flautisti og iék af
dæmalausri fimi og öryggi, og
samleikur þeirra Helgu Ingólfs-
dóttur með ágætum (og þeirra
allra þriggja i fyrstu sónöt-
unni). Voru þessir tónleikar
mjög til fyrirmvndar i alla
staði.
22.2. Sigurður Steinþórsson.