Tíminn - 06.03.1976, Síða 12
12
TÍMINN
Laugardagur 6. marz 1976.
gömlu ættar, sem flutt hafði með sér tignarmerki sín
alla leið í hinzta hvílustaðinn.
— Þér nefnduð einhver bein, hr. AAason. Getið þér
sýnt mér þau áður en þér farið?
— Þau eru hérna í þessu horni. Hr. AAason gekk þar til
og nam staðar þögull og undrandi, er við lýstum á stað-
inn.
— Þau eru horfin, mælti hann.
— Við þvi hafði ég einmitt búizt, sagði Holmes og hló
við lágt. — Ég hugsa, að aska þeirra sé nú í sama of nin-
um sem brenndi áður nokkurn hluta þeirra.
— En hvers vegna i ósköpunum mundi nokkur maður
fara að brenna bein, sem eru kannski þúsund ára gömul?
— Það er nú einmitt það, sem við eigum að komast
eftir. Það getur orðið löng rannsókn, og við viljum ekki
tefja frekar fyrir yður. Ég vona, að við fáum okkar úr-
lausn áður en næsti dagur rennur.
Þegar John AAason var farinn, hóf Holmes nákvæma
skoðun á kistunum. Voru þær sumar frá ævafornum
tíma, Saxar og Normannar ásamt fjölda annarra frá
síðari öldum. Loks fann Holmes kistur þeirra Sir Willi-
ams og Sir Denis Falder frá 18. öldinni. Eftir langa leit
kom Holmes að blýkistu, er stóð nærri inngangi hvelf ing-
arinnar. Ég heyrði til hans lágt fagnaðaróp og skildí af
hinum hröðu en ákveðnu hreyf ingum hans, að hann hefði
náð einhverju ákveðnu marki. Hann skoðaði brúnir og
samskeyti hinnar þungu kistu gegnum stækkunargler.
Hann tók upp úr vasa sínum lítið innbrotsjárn, líkast
dósahníf, og stakk því inn undir lok kistunnar. Það ískr-
aði og marraði í framhliðinni, er hún lyftist frá neðri
hlutanum, en rétt í sama bili kom fyrir alveg óvænt
truflun. Fótatak heyrðist í kapellunni uppi yfir okkur.
Það voru hröð og föst skref einhvers, sem þarna var
kunnugur og þekkti vel allar aðstæður. Ljósbirtu lagði
niður stigann og andartaki síðar sást maðurinn, sem á
Ijósinu hélt. Það var ægilegur maður, risi að vexti og
grimmdarlegur sýnum. Hann hélt á stórri hesthúslukt,
sem kastaði birtu á mikið yfirskegg og reiðileg augu,
sem stöðu á okkur félagana.
— Hvaða mannhundar eruð þið, og hvað eruð þið að
gera hér á minni eign?
Þegar Holmes bjóst ekki til að svara samstundis, gekk
húsráðandi nokkrum skrefum nær og hóf á loft þungan
staf, er hann hafði í hendi.
— Heyrið þið ekki, hvað ég segi? öskraði hann. —
Hverjir eruð þið, og hvað eruð þið að sýsla hér? Hann
hristi staf lurkinn frammi fyrir okkur. En í stað þess að
hopa gekk Holmes fram til móts við hann.
— Ég þarf líka að bera upp við yður eina spurningu,
Sir Robert, mælti hann. — Hver er þetta, og hví er það
hér? Hann snerist á hæli og lyfti upp lokinu á líkkistunni.
Við birtuna frá Ijóskerinu mátti sjá líkama, sem reifað-
ur var i hjúp frá hvirfli til ilja, náhvítt, vofulegt andlit,
þar sem mest bar á nef i og höku, lokuð innfallin augu og
andlitið allt með rotnunarblettum.
Sir Robert rak upp lágt óp, hörfaði undan og leitaði
stuðnings við eina steinlfkkistuna.
— Hvernig fóruð þér að komast eftir þessu? sagði
hann. Síðan bætti hann við með ógnandi rödd: Og hvað
varðar yður um þetta?
— Nafn mitt er Sherlock Holmes. Ef til vill hafið þér
heyrt mín getið áður. Starf mitt er að hlýða lögum og
rétti svo sem öllum góðum borgurum ber að gera. AAér
virðist hér vera nokkuð, sem þér þurfiðað útskýra.
Sir Robert hvessti fyrst augun, en róleg og köld orð
vinar míns höfðu þó sýnilega nokkur áhrif.
— Það veit Guð, hr. Holmes, að þetta er allt eins og á
að vera. Útlitið er mér óhagstætt, það játa ég, en ég gat
ekki farið öðruvísi að.
— AAér þætti vænt um að meta trúa því, en ég er hrædd-
ur um, að þér verðið að gefa lögreglunni skýrslu.
Sir Robert yppti sínum miklu öxlum. — Gott og vel, sé
það nauðsynlegt, þá verður það svo að vera. En komið
með mér heim til mín, og þá getið þér fengið f ulla skýr-
ingu á öllu þessu.
Að stundarf jórðungi liðnum vorum við komnir inn í
stofu Sir Roberts. Þar voru raðir gljáfægðra skotvopna
bak við glerhurðir, svo að ég áleit, að þetta hefði verið
eins konar vopnabúr í þessu gamla húsi. Húsgögnin voru
þægileg, og hér skildi Sir Robert okkur eftir um skamma
stund. Hann kom bráðlega aftur, og hafði með sér karl
og konu. Var konan hin sama, er ég hafði séð í vagninum.
AAaðurinn var lítill vexti, undirfurðulegur og fremur ó-
geðslegur að sjá. Bæði voru þessi hjú undrandi á svipinn,
og mátti af því ráða, að húsráðandi hafði engan tíma
haft til útskýringa á því, hvað í efni væri.
— Þetta, mælti Sir Robert og benti á þau — eru hr.
Einhver stekkur fram og ræðst á
,—. hermann inn.
Hundur, vertu feginn að
Ming lætur þig lifa!,-
Ég á ekkert til að
gefa fjölskyldu
minni. /
Hermenn Mings taka: \
bæði mat og verð ^
mæti frá þorspbúum.|i;_
LAUGARDAGUR
6. mars
7.00 Morgúnútvarp.
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Svala Valdimarsdóttir
les þýöingu sina á sögunni
„Barnaheimilisstráknum”
eftir Björn Gunder. Til-
kynningar kl. 9.30. Létt lög
milli atriða. óskalög sjúkl-
ingakl. 10.25: Kristin Svein-
björnsdóttir kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.30 tþróttir.Umsjón: Bjarni
Felixson.
14.00 Tónskáldakynning Atla
Heimis Sveinssonar.
15.00 Vikan framundan. Bjöm
Baldursson kynnir dagskrá
útvarps og sjónvarps.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. Islenskt
mál.Gunnlaugur Ingólfsson
cand. mag. flytur þáttinn.
16.40 Popp á laugardegi.
17.30 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Gatan min. Sólveig
Eyjólfsdóttir gengur um
Jdfriðarstaðaveg i Hafnar-
firöi með Jökli Jakobssyni,
— fyrri þáttur.
20.00 Hljómplöturabb Þor-
steins Hannessonar.
20.45 Svo kom öldin ’tuttug-
asta. Siðari þáttur um
minnisverö tiðindi áriö 1901.
Umsjón: Jónas Jónasson.
21.30 Gtvarpshljómsveitin i
Moskvu leikurtilbrigði eftir
Norchenko og Tokareff um
stef eftir Gershwin, Kal-
man, Kosma, Johann
Strauss o.fl. Stjórnandi:
Júri Sílantieff.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusáima (17).
22.25 Danslög.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
LAUGARDAGUR
6. mars 1976
17.00 iþróttir. Umsjónarmað-
ur Bjarni Felixson.
18.30 Pollyanna. Breskur
myndaflokkur, gerður eftir
skaldsögu Eleanor H. Port-
er. 4. þáttur. Efni 3. þáttar:
Frænka Pollyönnu fær
henni betra herbegi til ibúð-
ar og lætur óátalið, að hún
tekur að sér flækingskött.
Pollyanna kemst i kynni við
munaðarlausan dreng og
rikan einsetumann, sem
hún finnur fótbrotinn á viða-
vangi. Þýðandi Ellert
Sigurbjörnsson.
19.00 Enska knattspyrnan.
Illé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Iiagskrá og auglýsingar.
20.35 Krossgáta IV. Spurn-
ingaþáttur með þátttöku
þeirra, sem heima sitja,
Kynnir Edda Þórarinsdótt-
ir. Umsjónarmaður Andrés
Indriðason.
21.05 Nei, ég er hérna. Bresk-
ur gamanmyndaílokkur.
Aðalhlutverk Ronnie Cor-
bett. Þýðandi Stefán Jökuls-
son.
21.30 Þriðji maðurinn. (The
Third Man). Bresk biómynd
gerð árið 1949. Handrit Gra-
ham Greene. Leikstjóri
Carol Reed. Aðalhlutverk
Joseph Cotten, Valli, Orson
Welles og Trevor Howard.
Bandariski rithöfundurinn
Holly Martins kemur til
Vinarborgar skömmu eftir
siðari heimsstyrjöldina til
að hitta æskuvin sinn.
Martins fréttir við komuna
að Lime hafi farist i bilslysi
daginn áður. Martins talar
við sjónarvotta að slysinu,
en þeim ber ekki saman, og
hann ákveður þvi að rann-
saka málið frekar. Þýðandi
Jón Thor Haraldsson.
23.10 Dagskrárlok.