Tíminn - 06.03.1976, Page 16

Tíminn - 06.03.1976, Page 16
METSOUIBÆKim Á ENSKU í VASABROTI :~jði fyrirgóóan maí ^ KJÖTIONAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS SÍS-FÓINJll SUNDAHÖFN Tóku vörð í gíslingu Krefjast réttarhalda Reuter, Napóli — Ellefu italskir vinstrisinnaðir skæruliðar tóku i gær fangavörð i fangelsinu I Poggioreale sem gisl og kröföust þess, að ekki yrðu frekari tafir á réttarhöldum þeirra. Mennirnir, sem sakaðir eru um að vera félagar i skæruliðasveit NAP (vopnuðu öreigasveitun- um), tóku fangavöröinn sem gisl i gærmorgun, þegar hann kom þeim að óvörum við að saga i sundur rimla i klefum sinum. Þeir kröfðust þess að fá að tala við dómarana, sem hafa mál þeirra með höndum, og fengu þeim skilaboð sem þeir vildu láta lesa i útvarpi. Mennirnir ellefu kröfðust skjótra réttarhalda og flutnings til annars fangelsis, þar sem þeir gætu verið allir saman og haldið uppi stjórnmálaumræðum. Mennirnir kváðust ekki hafa ætlað að flýja, heldur hefðu þeir sagað rimlana til að ná athygli yfirvalda. Sveitir lögreglu umkringdu fangelsið, meðan viðræður áttu sér stað. HtirfiSHORNA "o !Á miLLI 4?" Kissinger ávitaður Reuter, Washington. Jonathan Bingham, einn fulltrúa demó- krata á Bandarikjaþingi, ávit- aði á fimmtudag Henry Kissing- er utanrikisráðherra fyrir um- mæli hans um kúbönsku her- mennina i Angóla. Sagði Bing- ham, að ummæli Kissingers gætu orðið til þess að rikisstjórn hvita minnihlutans i Ródesiu og Suöur-Afriku, byggjust við að- stoð Bandarikjanna, ef til kyn- þáttastyrjaldar kæmi i suður- hluta Afriku. — Það er nauðsynlegt, að rikisstjórnir hvitra i þessum' löndum skilji, að þær mega engrar aðstoðar vænta frá okk- ur sagði Bingham. Kissinger svaraði: „Við getum einfaldlega ekki gefið Kúbumönnum það upp, hversu langt þeim er fært að ganga. Við getum ekki viðurkennt Kúbumenn sem lögreglu Afriku” og „komi til ihlutunar Kúbu, getum við engu spáð um það nú, hvað við gerum i þeirri aöstöðu”. Fylgir orðum Neto eftir Rcuter, Austur-Berlin. Varna- málaráðherra Angóla, Iko Darreira, hefur varað Suður- Afrikumenn viö, að ef þeir dragi ekki herlið sitt frá angólskum landsvæðum, geti komið til vopnaviðskipta milli rikjanna. Fylgir þessi viðvörun i kjölfar yfirlýsingar Neto, forseta Angóla, en hann lýsti þvi yfir fyrr I þessari viku, að þjóð hans myndi skera upp herör gegn Suður-Afrikuherjum og reka þá úr Sambiu. OPEC-löndin rausnarlegust Reuter, Parls. Aðildarlönd sam- taka olfuútflutningsrikja (OPEC) veittu þróunarrikjunum peninga- lán sem svarar fimm og hálfum ; milljarði (5.500 milljónum) doll- ara á siðast liðnu ári. Er það tæp- um milljaröi meira en árið þar á undan, 1974. Samtals voru það 5.589 milljón- ir dollara, sem OPEC-löndin tiu lánuðu þróunarlöndunum. Af þessari upphæð voru 2.589 milljónir dollara lánaðar á lágum vaxtakjörum. Samsvarar það sem nemur 1.28% af he'ldar þjóðarframleiðslu OPEC-rikj- anna á árinu. Til viðmiðunar má geta þess, að iðnaðarlöndin miöa aðstoð sina við þróunarríkin viö 0.7% af þjóðarframleiðslu sinni. Saudi-Arabía var efst á lista yfir iánadrottna á árinu, en þaðan fengu þróunarlöndin rúm- lega 900 milljónir dollara, Næst var Iran, meö tæplega 460 milljónir. Rannsókn hafin i Belgiu Reuter, "BrusseJ. Belglsk yíir- völd hafa byrjað rannsókn vegna grunsemda um að stjórn- endur Lockheed-flugvélaverk- smiðjanna hafi látið dreifa gjöf- um meðal belgiskra embættis- manna pg mútað þeim. Seint fyrnast fornar syndir Reuter, Róm. Arturo Errico, sem fangelsaður var árið 1940 fyrir að stela einum asna og þremur svinum, var látinn laus úr fangelsi i gær, eftir að frétta- menn höfðu fjallað um mál hans I blöðum. Errico, sem nú er fimmtiu og fjögurra ára gamall og hefur starfað sem kokkur á hóteli I Róm undanfarin ár, var hand- tekinn á nýjan leik fyrir afbrot sitt i siðast liðnum mánuði, þrátt fyrir að hann fullyrti, að hann hefði setið dóminn af sér að fullu. Dómurinn hljóðaði upprunalega upp á sjö ára fang- elsisvist. Saksóknarinn i Catanzaro á Italíu lét handtaka Errico að nýju, á þeim forsendum, að hann hefði flúið úr fangelsinu ásamt öörum föngum árið 1943, og þvi ekki setið af sér allan dóminn. Fangahópurinn, sem talið var að hann hefði farið með, strauk þegar loftárás stóð yfir á fangelsið og umhverfi þess. AAöguleikar Ford aukast Reuter, Washington. Möguleikar Fords Banda- rikjaforseta til að hljóta útnefningu sem for- setaefni repúblikana við kosningarnar Siðar á þessu ári júkust verulega i gær, þegar fréttir bár- ust af þvi að atvinnuleysi væri nú minna en verið hefur i heilt ár. Er nú álitið, að forsetinn sé liklegastur sigur- vegari i forkosningunum i Flórida, sem fara fram næstkomandi þriðjudag. Sumir stuðningsmanna hans halda þvi einnig fram, að ef hann sigrar einnig i forkosningunum i Illinois, 16. marz, gæti það riðið samkeppni Reagans við Ford að fullu. Forsetinn fór i gær i tveggja daga kosningaferð til Illionis. Þar gefst honum fyrsta tækifæri sitt til að svara ásökunum Reagans um að hann og Kiss- inger séu að leiöa Bandarikin i „frið grafarinn- ar”. Tugþúsundir fylgdu ungmennunum þrem til grafar í Vitoria í gær Reuter, Vitoria. — Sveitir sér- þjálfaðra lögreglumanna notuðu i gær skotvopn, hlaðin gúmmikúl- um, til að dreifa hópum mótmæl- enda i bænum Pamplona, meðan fram fór þar útför ungmennanna þriggja, sem lögreglan skaut til bana i Vitoria á miðvikudag. Hópar mótmælenda stöðvuðu og trufluðu umferð i Pamplona, með götuvigum, og verksmiðjur og verzlanir i nokkrum Baska- borgum voru lokaöar i gær, með- an útförin fór fram. Borgin Vitoria var sem lömuð, þar sem tugir þúsunda af syrgj- endum, ásamt nokkrum reiðurh prestum, breyttu sorgargöngunni i kröfugöngu. Þúsundir manna fylltu dóm- kirkjuna i Vitoria við athöfnina og tóku undir með föður Esteban Al- onso, þegar hann sagði úr ræðu- stól: — Við fordæmum þetta blinda ofbeldi stjórnvalda og krefjumst réttlætis fyrir verka- menn Spánar. Meðan á útförinni stóð, dreifðu leiðtogar verkamanna dreifibréf- um, þar sem hvatt var til alls- herjarverkfalls i Baskahéruðun- um i næstu viku „til að berjast fyrir frelsi og sósialisma”. Kisturnar þrjár voru bornar um götur Vitoria i tveggja klukkustunda mótmælagöngu, og þar sem einn hinna látnu, nitján ára gamall stúdent, var drepinn, vottaði fólkið einföldu minnis- merki virðingu sina. Min-nis- merkið var logandi kertaljós i flösku. Að minnsta kosti sjötiu manns eru enn i sjúkrahúsi vegna meiðsla eftir átökin á miðviku- dag, þar af margir með SKot- sár. Áð minnsta kosti fimm eru enn taldir i hættu, þar á meðal einn lögreglumaður. Utanríkisráðherra S-Afríku: Hvetur til sameiginlegra aðgerða gegn Kúbu og Sovét Reuter, Cape Town — Utanrikis- ráöherra Suður-Afriku, dr. Hil- gard Muller, hvatti i gær blökku- þjóðir Afriku til að berjast gegn „heimsvaldastefnu Rússa” og sagði jafnframt, að þær gætu treyst á stuöning Suður-Afriku I baráttu gegn kommúnismanum. 1 ræðu sinni i þinginu Itrekaði dr. Muller einnig beiðni sina um aöstoð frá vestrænum löndum, sérstaklega frá Bandarikjunum. Dr. Muller sagði, að ef ekki kæmi til sameiginlegt átak vest- rænna rikja um ákveðnari að- gerðir, væri i hæsta máta óliklegt, að Sovétmenn og Kúbanir hliðr- uðu sér hjá frekari Ihlutun i mál- efni Afriku. „Það stöðvar þá ekkert nema sterkar og ákveðnar aðgerðir,” sagði Muller. „Og það er stuttur timi til stefnu.” Muller sagði enn fremur, að skoðanir vestrænna rikja væru að breytast mikið nú. Sérstaklega ætti það við um almenningsálitið i Bandarikjunum, sem brátt myndi krefjast aðgerða af stjórnvöldum þar. Utanrikisráðherrann sagði enn fremur, að vera kúbanskra her- manna i Angóla væri ógnvekjandi fyrir nágrannalönd þess. „Spurningin er, hver er næst- ur?” sagði hann. Herinn stækkaður vegna skæruliða Reuter, Salisbury — Varnamála- ráðherra Ródesiu, Pieter van Der Byl, sagði i gær, að ákveðiö hefði verið að auka mannafla i herliði landsins, vegna ógnana af hendi skæruliða. Kvaðst Der Byl engar sönnur hafa fyrir þvi, að kúb- anskir hermenn eða sovézkir skriðdrekar væru i nágrannarik- inu Mósambik. Sagði hann, að um eitt þúsund skæruiiðar væru I Ródesiu, og um fjögur eða fimm þúsund i ná- grannarikjunum. I gær bárust fréttir um það frá Zambiu, hafðar eftir heimildum I vestrænum leyniþjónustum, að kúbanskir hermenn og sovézkir T-34 skriðdrekar hefðu komið til hafnarborgar i Mosambik i sið- asta mánuði. Aætlað er að Ródesia geti kall- að til allt' að fimmtiu og fimm þúsund manna varnarher með stuttum fyrirvara. EIMSKIP — VIKULEGAR HRAÐFERÐIR EINNIG REGLUBUNDNAR FERÐIR Fró NORFOLK WESTON POINT KRISTIANSAND HELSINGBORG GDYNIA VENTSPILS VALKOM Fra ANTWERPEN mónudaga - FELIXSTOWE þriójudaga - KAUPMANNAHÖFN þriójudaga - ROTTERDAM þriójudaga - GAUTABORG mióvikudaga - HAMBORG (immtudaga — FERÐIR FRA ÖÐRUM HOFNUM EFTIR FLUTNINGSÞÖRF HF. EIMSKIPAFELAG ÍSLANDS Sími 27100 - Telex nr. 2022 IS

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.