Tíminn - 08.05.1976, Síða 7

Tíminn - 08.05.1976, Síða 7
Laugardagur 8. maí 1976. TÍMINN 7 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri: Steimgrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur i Edduhús- inu viö Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur I AOalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug- lýsingasími 19523. Verö I lausasölu kr. 50.00. Askriftar- gjald kr. 1000.00 á mánuöi. Blaðaprent h.f. Svefngenglar Myndþættir þeir frá heimsstyrjöldinni siðari, er fluttir hafa verið i sjónvarp undanfarnar vikur, sýna ofboðslega tortimingu, hamslausa grimmd og ósegjanlegar þjáningar tugmilljóna manna i mörgum löndum, er urðu leikvangur þessara heiftúðugu átaka. En það er fleira, sem lesa má út úr þessum mynd- þáttum. Þeir sýna einnig ótrúlega seiglu og vilja- þrek, sem fólki er gefið, mitt i hinum þyngstu raunum. í kvöl og kröm getur það axlað svo þungar byrðar, að ótrúlegt má vera, og borið þær árum saman, án þess jafnvel að geta gert sér grein fyrir, hvort fórnir þess bera þann árangur, sem að er keppt, byssurnar þagna og sprengjum linnir. Annað dæmi um þetta ótrúlega þol mannskepn- unnar i hinni hörðustu raun höfum við nýlega lifað, þar sem var úthald og seigla Viet-nama, svo von- laust sem áratuga strið þeirra mátti virðast við annað eins ofurefli og þar var að etja. Geta þjóðir ekki tileinkað sér svo einbeittan vilja og óbugandi seiglu nema andspænis dauðanum? Getum við, íslendingar, ekki tileinkað okkur eitt- hvað af þessari þrautseigju og þessum sigurvilja, er á móti blæs, þótt ekki eigum i yfirlýstu striði? Við eigum óneitanlega í vök að verjast um þessar mundir, bæði fjárhagslega og af völdum Breta, sem ekki vilja unna okkur þeirra auðlinda, sem i hafinu eru umhverfis landið, og hafa meira að segja leitazt við að valda þar sem mestri tortímingu. En okkur stafar ekki mest hætta af Bretum, þótt miskunnar- lausir séu, né heldur þeim efnahagsvandkvæðum, sem okkur eru óviðráðanleg. Okkur stafar mest hætta af okkur sjálfum, sundurþykkju okkar, blindni og viljaleysi til þess að haga okkur á annan veg i mótgangi en meðvindi. Við sköpum okkur sjálf örlög með manndómi okkar eða manndómsleysi, og það er þegar i harð- bakkann slær, að á manninn reynir. Við sigrum, ef við viljum, en við troðumst niður i svaðið, ef viljann skortir til þess að standa uppréttur. Menn hrista höfuðið mæðulega, þegar talið befst að gjaldeyrishallanum og geigvænlegri skulda- söfnun erlendis. I næstu andrá hringja þeir hinir sömu á ferðaskrifstofurnar til þess að leggja drög að skemmtiferðum sinum i önnur lönd. Aldrei hafa fleiri lyft simatólinu i þeim erindagerðum en einmitt nú, og mun ekki fjarri lagi, að á þessu ári muni hátt á þriðja milljarði króna ráðstafað á þann veg. Það er svar fólksins i landinu við æpandi gjald- eyrishallanum — að nokkru leyti að minnstakosti sama fólksins og veltir vöngum yfir þvi, hversu skorinn skammt það hefur til þess að sjá sér og heimilum sinum farborða. Og hvaða máli tala þyrpingarnar við veitingahúsin á kvöldin, dýru, bensinfreku ökutækin, sem æða um götur og þjóð- vegi, útlendi iðnvarningurinn, sem jafnvel er hyllzt til að kaupa, þó isl framleiðsla sé á boðstólum? Þetta talar allt sama máli, segir allt sömu sögu: Við kunnum ekki fótum okkar forráð — við viljum ekki stinga við fótum — við viljum ekki neita okkur um neitt til uppfyllingar gerviþörfum okkar, þótt syrti i álinn. Forfeður okkar stóðu af sér miklar nauðir. Erum við kannski ættlerar. Við tjöldum að minnsta kosti ekki þeirri þrautseigju og staðfestu, sem fólkið i Leningrað, Coventry og Birmingham sýndi á styrjaldarárunum, eða eigum hugarfar hinnar smávöxnu, gulu þjóðar i Viet-nam. Ef við létum okkur skiljast, hvar við stöndum, og ættum brot af eiginleikum þessa fólks, gætum við sópað skuggun- um burt, greitt skuldirnar, þótt tölurnar séu svim- háar, og haldið jafnframt áfram að gera landið okk- ar betra og by ggilegra. — JH Bandaríkin: „McCarthy" hinn nýi risinn til dáða? — í líki varaforseta Bandaríkjanna, Rockefellers Grýlur geta verið úkaflega lifsseigar og gefast ekki allar upp á rólunum, jafn baráttu- laust og hin eina sanna Islenzka. Þær hafa gjarnan þann háttinn á aö dyljast um tima, fara sér hægt og safna kröftum, en hefja síðan merki sitt á loft að nýju og láta svipu sina ganga á saklausum jafnt sem sakbitnum. Bandarikjamenn hafa ekki farið varhluta af þessu á þeim tveim öldum sem þeir nú fagna, enda ekki von, þar sem þeirra þjóðfélag er vist jafnháð mannlegum viðbrögð- um og önnur. Hafa grýlur, ýmissa tegunda, skotið þar upp kollinum og náð áhrifum sem stundum hafa jaðrað við móðursýki. Er þar skemmst að minnast kömmúnistagrýl- unnar, sem tröllreið þjóðlifi þeirra um áratugabil og varð þar valdandi ómældum vand- kvæðum, jafnvel þjáningum. Fyrir ekki allmörgum árum var rekin gífurlega umfangs- mikil hreinsunarherferö meðal bandariskra embættis- manna, sem höfðuð var undir merki herferðar gegn kommúnisma. Með einn af þekktustu stjórnmálamönnum Bandarikjanna i fararbroddi fór nefnd nokkur hamförum innan stjórnkerfis rikisins og útdeildi kommúnistastimplum á báða bóga. Þá grund- vallaðist sú nafngift, sem siðan hefur verið Bandarikja- mönnum svo töm, þegar þurft hefur skilgreiningu á Ulum öflum, ólöglegum eða óþægi- legum, það er að þar eru allir þeir, sem sýna af sér óæski- lega eiginleika, nefndir kommúnistar. SVO sem aðrar grýlur hefur kommúnistagrýla Banda- rikjamanna þó legið niðri nú um nokkurt skeiö og lítið boriö á henni. Hafa þeir látið sér að mestu nægja að beita nafngift- um þessum út á við, og hafa haft áhyggjur af framgöngu vinstri manna i öðrum lönd- um, fremur en heima fyrir. Nú hefur þessi grýla þó sýnt ófélegt smetti sitt að nýju og glottir nú viö tönn, þar sem hún hefur fengið að minnsta kosti tvo af framámönnum þar til að bera sig á herðum. Svo virðist sem þessi endur- reisneigi rætur sinar að rekja, að minnsta kosti að nokkru leyti, til Henry Kissingers-, utanrikisráðherra Bandarikj- anna, og áhyggja þeirra, sem hann hefur látið i ljós vegna aukins fylgis kommúnista og annarra vinstri flokka i Evrópu. Kissinger hefur hvað eftir annað orðað þann ótta sinn, að ef kommúnistaflokkar komast til valda i Evrópu, þá muni þeir geta ógnað wyggi NATO verulega. Þessi ummæli Kissingers virðast svo aftur hafa minnt menn á, að Bandarikin sjálf geti hugsanlega fóstrað kommúnista heima fyrir, sem vitað er að visu, þar sem nokkrir róttækir hópar og flokkar marxista eru þekktir þar. Nú hefur merkiö verið hafið á loft, í McCarthy-stil, og umræður hafnar um vinstri-samúð ákveðinna embættismanna og áhrifa- manna. RAUNAR ER ÞAÐ aðeins einn maður, sem fram til þessa hefur orðað slikt á heimavigstöðvum, en það er sjálfur Nelson Rockefeller, Menn eru ekki á eitt sáttir um það, hvern tilgang ásakanir varaforsetans hafa. Liklegast þykir þó að hann sé að reyna að styðja við bak Kissingers. varaforseti Bandarikjanna. Hann réðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, fremur en sá maður sem virðist fyrir- mynd hans, Joe McCarthy, gerði, þvi að hann beindi spjótum sinum beint að starfs- liði eins af frambjóðendum i forkosningum demókrata, Henry Jackson. Lét Rocke- feller að þvi liggja, að minnst tveir aöilar úr starfsliði Jackson væru mjög vinstri- sinnaðir, jafnvel kommún- istar. Hann hefur getið þessa oftar en einu sinni og oftar en tvisvar, þannig að honum virðist alvara með ásakanir sinar. Sá fyrsti, sem hann tiltók, var Richard Perle, sem hann sagði að væri fyrrverandi kommúnisti, en hefði snúizt i trúnni á yfirborðinu, til að komast hjá óþægindum. Perle hefur unnið fyrir Jackson I ein sjö ár, og sérsvið hans hefur verið að fjalla um málefni andófsmanna i Sovét- rikjunum, einkum Gyðinga, sem flytjast þar úr landi. Hann hefur lýst þvi yfir, meðal annars þegar ásakanir varaforsetans bárust honum til eyrna, að hann væri vinstri sinnaður i ýmsum innanrikis- málum, sem honum væri engin launung á, en hins vegar þyrftu menn ekki annað en að lita yfir feril hans til að sjá, að hann er andkommúnisti af hörðustu gerð. Hann hefur greinilega svipaðar skoðanir á þeim málum og vinnuveitandi hans, Jackson, sem er þekktur andkommúnisti, talinn einn af þeim hörðustu. Þá hefur Rockefeller einnig ásakað Dorothy Fosdick, sem er sérfræðingur i utanrlkis- málum, um vinstri tilhneig- ingar. BÆÐI Perle og Fosdick hafa lýstundrun sinni með ásakan- ir þessar, sem þau telja of fáránlegar til að svara þeim. Jackson hefur einnig lýst undrun sinni og krafizt þess að varaforsetinn biöjist opin- berlega afsökunar á um- mælum sinum. Þvi hefur hann ekki fengið framgengt enn. ÞAÐ SEM MESTUM heila- brotum veldur, enn sem komiö er, er þó ekki hvort meðal embættismanna geti hugsan- lega leynzt kommúnistar, heldur hitt, hvaða tilgang þessar ásakanir varaforset- ans geti hugsanlega haft. Telja sumir, að hann hafi með þeim verið að gera klaufalega tilraun til að hefja nafn sitt upp og skapa sér þannig möguleika til þess að verða varaforsetaefni Repú- blikanaflokksins viö forseta- kosningarnar á komandi hausti. Sé svo, hefur hann reiknað dæmið skakkt, þvi ásakanirnar hafa valdið honum sjálfum mun meiri vandkvæðum en nokkru sinni þeim, sem ásakaðir voru, og hafa minnkað möguleika hans á útnefningu, ef þeir á annaö borð voru einhverjir. Aðrir telja, að hann hafi ætlað að rétta vini sinum Kissinger hjálparhönd með þessu, sem er öllu liklegra, þar sem Perle hefur um nokkurt skeið verið einn harö- asti andstæöingur utanrikis- ráðherrans innanlands. Sé það tilfellið, hefur Rocke- feller engu að siður sýnt af sér klaufaskap og klúður, þvi Perle hefur einmitt gagnrýnt Kissinger hvað haröast fyrir að hafa verið of undanláts- samur við Sovétríkin. Þetta þykir Perle sjálfum líklegast, •en hann segir að Kissinger áliti sig versta fjanda sinn innanlands. Þá hefur sú skýring skotiö skotið upp kollinum innan Bandarikjanna, aö Sovétrikin standi i raun á bak við þessar ásakanir. Hafi Sovétmenn látið að þessu liggja við Kissinger, sem hafi siðan sagt Rockefeller frá, og þvi sagan komizt á kreik. Sovétmenn vilji með þessu koma frá þeim, sem þeir telja versta fjendur sina innan Banda- rikjanna. Liklegasta skýringin er þó sú, að Rockefeller vilji reyna aö vernda Kissinger með þessu. ÓUMDEILANLEGT er þó það, að þessar ásakanir Rockefellers gætu átt eftir að draga dilk á eftir sér. Nýlega lýstu yfirvöld þvi yfir, aö komizt hefði upp um áætlun um byltingu á þjóðhátið Bandarikjanna, en byltingar- menn hefðu lætt sér inn i nefnd nokkra, sem starfaði á hálf- opinberum grundvelli. Þegar uppljóstranir af þvi taki leggj- ast við þessar ásakanir vara- forsetans, þarf ekki margt við að bætast til að upp risi ný McCarthy-öld. Þá væri verr farið en heima setiö. Það sem sumum mönnum þykir þó kaldhæönislegast við mál þetta er það, hversu aðferðum Rockefellers svipar til þeirra, sem beitt var gegn Teng, fyrrverandi vara- forsætisráðherra Kina, þegar hann var þvingaður til að láta af völdum fyrir skömmu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.