Tíminn - 24.06.1976, Blaðsíða 8

Tíminn - 24.06.1976, Blaðsíða 8
8 TÍMINN Moon-æðið í algleymingi RIKISLEIÐTOGAR MUNU LÚTA MÉR prédikar trúarleiöfogi, sem segir, að Kristur hafi ekki staðið sig nógu vel, og æflar að gera betur Reaœr&nd Sun Myong Moon' Principai Speaker Þetta veggspjald hefur veriö llmt upp svo þúsundum skiptir I New York borg. Þaö auglýsir samkomu, sem hann ætlaöi aö halda 1. júni s.l. I tilefni af tvö hundruö ára afmæli „lands Drottins”. Nokkur undanfarin ár hefur prédikari frá Suöur-Kóreu, Sun Myung Moon, látiö mikiö aö sér kveöa i Bandarikjunum. Hann leitast viö aö sannfæra fólk um að hann sé guösútvalinn til aö leiöa mannkyniö frá glötun. Kenningar hans hafa falliö i góöan jaröveg viöa, og siöan hann kom til Bandarikjanna hefur mikill fjöldi ungmenna bætzt i hóp lærisveina hans. Honum hefur safnazt mikiö fé, sem ýmsir telja illa fengiö og hefur hann veriö sakaöur um aö heilaþvo fylgismenn sina, leiöa þá á villigötur og jafnvel hneppa þá i þrældóm. Lærisveinar hans eru ýmist kallaöir „Moon Children” eöa bara „Moonies”, og I augum þeirra er þessi sannfærandi pré- dikari „þriöji Adam, næsti frels- ari og faöir mannkynsins”, — hann er nýr Messias, sem mun áöur en langt um liöur stjörna heiminum. En margir áhyggju- fullir foreldrartelja hins vegar aö hann sé falsspámaöur og svikari, sem meö klækjum hafi tælt börn þeirra til aö ganga i söfnuð sinn og síöan slitiö þau úr tengs lum við fjölskyldur sinar. Hann fær þau til aö selja blóm og ýmsa smá- hluti á götum úti, útbreiða kenn- inguna og afla fjár. Einnaf þeim, sem tókstaöslita sig lausan frá hreyfingunni er Ford Greene. Eins og svo margir aðrir varð hann hugfanginn af kenningunni eftir að hafa fariö á kynningarráöstefnu hjá þeim eina helgi. Opinberlega var það ekki tilkynnt, aö hún væri á veg- um Moons, en samtök hans hafa komið upp mörgum slikum helgarráðstefnum um allan heim, og hver og einn, sem sækir þær verður frá sér numinn af hrifn- ingu. Allir meölimirnir eru ákaf- lega vingjarnlegir. Þeir eru kátir, syngja hlæja og skemmta sér. Þeirsegja nýliöunum, aö Messias sé kominn og gefa sterklega i skyn, að það sé Moon. Og eftir aö hafa hlustað á fyrirlestra klukku- stundum saman án þess aö hafa tima til aðvelta þvi fyrirsér hvaö sé aö gerast, er fólk tilbúiö aö trúa hverju sem er og taka við þvi, sem að þeim er rétt. Eftir þvi sem Jean Merritt, sál- fræðilegur ráöunautur i Lincoln Massachusetts segir, eru þeir, sem ganga I samtök Moons, venjulega ungt, hugmyndarikt, fólk, sem hefur ekki gert þaö upp viö sig hvaö það ætlast fyrir i framtiöinni. — Kenningin býöur upp á heillandi valkosti gagnvart ytri heiminum — segir hún, — en á sama tima er meö lymsku- brögöum alið á eigingirni og ýms- um annarlegum hvötum hjá ung- lingunum ogþauvita ekki fyrir en þau eru oröin andlega fangelsuö Hvaö skyldi þaö svo vera sem fylgjendum Moons er . ætlaö aö trúa? Þrátt fyrir aö hann kalli sjálfan sig kristinn heldur hann þvi fram, aö Kristur hafi ekki staöiö sig nógu vel á meöan hann gekk um meöal manna, og aö honum hafi mistekizt hlutverk sitt á jöröinni. Áriö 1948 var Moon rekinn úr Prestbýta-söfnuöinum I Kóreu. Siðan þá hefur hann veriö aö vinna aö kenningu sinni og þröa fram hugtök sin og hug- myndir. Þeirra á meöal er sú full- yröing, aö Amerika sé fyrirheitna landiö, — og bandariska þjóöin, sú þjóö, sem kjörin hafi verið tií aö taka á móti Messiasi, þegar hann kemur til aö bjarga mann- kyninu. Moon prédikar ávallt á kóre- önsku, en hefur túlk, sem snarar boöskapnum jafnóöum yfir á ensku. Hann staöhæfir, að Guð starfi i gegnum þjóöirnar og þaö geri Satan einnig. Amerika sem „landGuös” veröur að vera tilbú- in að hefja baráttu fýrir Drottin á móti S o v é t r i k j u n u m , Norður-Kóreu og Alþýöulýðveld- inu Kina. Og eina leiöin til aö vinna slika baráttu sé aö gerast virkur meölimur i — Samein- ingarkirkjunni — og þaö fyrr en siöar. Bæöi drottinn og hann sjálfur eru viö þaö aö missa þolin- mæöina. „Kóngar og drottningar, sem og aörir rikisleiötogar, munu lúta mér”, hefur hann tilkynnt fylgis- mönnum sinum. ,,Ég mun sigra og undiroka heiminn”. Þáttur Suður-Kóreu Þaö eru tengsl á milli Moons og rikisstjórnarSuöur-Kóreu. Þaöer ekki aöeins, aö Chung Hee Park forseti landsins hafi opinberlega lýst yfir stuðningi viö samtökin, heldur hefur hann sent þúsundir borgara i andkommúniskan skóla, sem — Sameiningarkirkj- an — kom á fót. Aðalaöstoðarmaöur Moons er Bo Hi Pad, sem var hernaöarsér- fræöingur fyrir suöur-kóreönsku stjórnina i Washington á árunum TheKof&wToSíaaSet 1961-1964. Pak hefur einnig verið kenndur viö kóreönsku leyniþjón- ustuna. Hver svo sem trúarbrögð og lifsskoöanir Moons eru, leikur enginn vafi á þvi, að honum hefur tekizt aö koma þeim i verö. Þó hann segi fjölda aödáenda sinna vera á milli 2 og 3 milljóna i hundraö löndum, mestmegnis Japan og Suöur-Kóreu, þá eru þaö Bandarlkin, sem hann hefur haft að féþúfu. Neil Salonen, þrjátiu og eins árs, forseti Amerikudeildar sam- takanna hefur gefið upp, aö áriö 1975 hafi þeir i aðalstöövunum i New York veitt móttöku fé, hátt i 12 milljónir dala. En heildarfjár- hæðin, sem fékkst alls staöar i Bandarikjunum, var miklum mun hærri. Moon og hreyfing hans hafa stundaö fasteignabrask og varið miklum fjárupphæöum I kaup á húsum og landareignum. Til dæmis þurfti hann aö snara út á borðið, 820 þús. dölum, þegar hann festi kaup á tuttugu og tveggja ekru landsvæöi I Tarry- town og 625 þús. dölum, fyrir hús þaö I Irvington NY, sem hann býr nú i ásamt konu sinni, þeirri fjóröu I rööinni og átta börnum þeirra. Þá á söfnuöurinn 254 ekru land og prestaskóla I Barrytown, sem metinn er á eina og hálfa milljón dala. í skóla þessum eru óopinberlegar höfuðstöðvar — Sameiningarkirkjunnar —, en andlegt heimili þeirra er i Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu. Auk þess á Moon tvær segæskútur og hús I Manhattan. Auður hans hefur hjálpað til viö aö skapa svo öflug- ar áróöursvélar fyrir hann, aö þaö gæti gert hvern forsetafram- bjóðanda grænan af öfund. Eftir þvi sem þau, sem tekizt hefur að losna undan ægivaldi söfnuðarins segja, eru skilyrði þau, sem sannir trúmenn verða aö búa viö næsta fangelsisleg. Moonierarnir búa i húsum, sem söfnuðurinn leigir út. Eftir þvi, sem Salonen segir, eru aö minnsta kosti sex þjálfunarbúöir eða ibúðarmiöstöðvar I hverju riki, sumar hverjar meö fáum meölimum, en aðrar meö allt upp i hundrað. Meðlimum er bannað aö hafa áfenga drykki um hönd svo og að hafa kynferöisleg mök. Karlmenn og konur eru höfö aö- skilin i búðunum og fólk er meira aö segja latt til að stofna til vin- skapar við aöra meölimi. Fyrr- verandi meðlimir segjast aldrei hafa fengið meira en fimm tima svefn á nóttunni. Þeim er haldið uppteknum allan timann, annaö hvort með skipulögðum æfingum hópumræöum, fyrirlestrum, söng og bænahaldi og auövitaö er lagt mikið upp úr þvi, að hver einstak- ur meðlimur starfi i þágu sam- takanna við að boða kenningarn- ar meðal fjöldans, afla nýrra meðlima, matar og fjár. A bak viðgrimuyfirboröskæti, voru þau oft hungruð og þreytt og dofin af kulda,. og var þaö aðeins hug- myndin um að „þau væru aö bjarga heiminum”, sem hélt þeim gangandi. Hinn dæmigerði — Moonie — Hinn dæmigerði Moonie-postuli I USA, er að meðaltali tuttugu og fimm ára aö aldri, frá hvitum efri-miðstéttar heimilum. Margir eru háskólanemar, sem eru á öndverðum meiöi viö viðteknar skoöanir i Bandarikjunum og óánægðir meö lifsháttu landa sinna. „Viö fengum bréf frá henni svo að segja i hverri viku”, segir frú Swopæ, þegar hún minnist þess tima, er dóttir hennar hætti allt 1 einu námi til aö geta helgaö sig drottni og Moon. „Hún skrifaöi ætiö, að hún væri hamingjusöm, en aö hún gæti ekki komiö heim. Og hún geröi þaö heldur ekki all- an þann tima, sem hún var i söfnuðinum og ekki fyrr en viö náöum henni burt.” Jaime Shecran i herbergi slnu I einni af þjálfunarbúöum Moons. Hún hefur ekki I hyggju aö yfirgefa söfnuöinn a.m.k. ekki af sjálfsdáöum. Dóttir hennar, Winnie, var i hálft ár I einum af þjálfunar- búðunum og sagöi ekki skiliö viö þær fyrr en TedPatrick bjargaði henni úr þeim. Patrick er uppnefndur — Svarta eldingin — meðal Mooniea, bæöi vegna hörundslit- ar hans svo og vegna usla þess, sem hann hefur gert I liði þeirra. Hann hefur bjargaö. mörgum úr söfnuðinum og flesta segir hann að einhverju leyti hafa verið heilaþvegna. 1 bók sem hann gaf út nýlega, — Let our Children go —, ásakar Patrick Sameiningar- kirkjuna um aö nota heila- þvottaraöferðir, af sama tagi og voru notaðar I Kóreustyrjöldinni. Og reyndar segja allir fyrrver- andi Mooniear það, að þeir hafi verið skikkaðir til að hugsa og haga sér á ákveðinn hátt og trúa þvi, sem kenningin boöaði. „Dóttir min sagði, aö hún og aðrir myndu gera hvaö sem væri fyrir Moon, vegna þess að hann væri raunverulega fulltrúi drott- ins I augum safnaðarins,” segir frú Swope. „Þeir gjörsamlegatættui burtu hug minn og frjálsan vilja, segir Denise Peskin, — hugur minn var tómur. Ég er eins og vélbrúöa, sem endurspeglaði aðeins það sem þeir sögðu mér. Denise segist hafa unnið I San Fransisco viö að selja blóm og afla nýrra meölima. —Okkur var sagt aö neyta allra bragða, og segja hvað sem er til að ná i pen- inga. Mér gekk mjög vel og fékk 50manns til aöganga isöfnuðinn. Einn af áköfustu fjendum Moons, Rabbi Maurice Davis, kveðst hafa, ásamt fjölmörgum fjölskyldum fórnarlamba Moons, hafa bjargað um hundraö Mooni- eum úr söfnuöinum. 1 fyrstu, seg- ir hann, hugsa krakkarnir alls ekki skýrt, og það er þvi likast þvi aö móöa sé fyrir augum þeirra. Þaö er uppgeröarbros á andlitun- um og vottar ekki fyrir eölilegum tilfinningum. Þegar einn piltur- inn sá mig, hrökklaöist hann út i hom, bersýnilega dauöskelkaöur. Hann sagöi, aö honum heföi verið sagt, aö ég væri djöfullinn. Ég hélt áfram aö tala viö hann og reyndi aö fá hann til aö hugsa sjálfstætt aftur. Hann sagði, — Moon er aö berjast um sál mina og þaö ert þú einnig. Hvernig get égvitaöhvaöersannleikurinn? — Ég sagöi honum, aö Moon vildi aö hann væri áfram I hreyfingunni, en að ég vildi fá hann aftur út i heiminn, frjálsan. Pilturinn var greinilega á báöum áttum, en svo félihann samanog brast i grát. — Hvar hef ég verið, stundi hann, — þetta var eins og martröö. Þúsundir Mooniea vinna ótrú- lega langan vinnudag, viö aö afla fé með sölu á sælgæti, jaröhnet- um, blómum og þess háttar á götuhornum og bilastæðum. Fyrrve’randi meölimir segjast hafa misst allt timaskyn, og aö þeim hafi sjaldan áskotnazt minna en hundrað dalir á hverj- um degi. Frá þvi i april 1973 hefur Moon haft vegabréfsáritun, sem heimiiar honum búsetu i Banda- rikjunum, og mörgum til undrun- ar fær hann aö halda henni, þrátt fyrir að grúnsemdir hafi vaknað umaö hann eigi sér dulitið grugg- uga fortiö. Kvisazt hefur út, aö hann hafi kynsvall sem hluta af trúarathöfn sinni og formælandi hans I Seoul segir það rétt, aö hann hafi verið sakaöur um brot á siðferðislögum, en verið hreinsaður af þeim áburöi. Arið 1973, þegar Water- gate-hneyksliö stóð sem hæst, barðist Moon af eldlegum áhuga fyrir Nixon. Hann hóaði saman þúsundum Mooniea og lét þá fara i kröfugöngur meö spjöld, sem á var ritaö — Guð elskar Nixon —. Á fundi við Hvita húsiö faömaöi svo þessi digri sálnahirðir þáver- andi forseta aö sér iallra augsýn. Ein af fáum andsvörum, sem hreyfing hans hefur fengið frá háttsettum stjórnmálamönnum kom frá Mark Hatfield (R. Ore), sem segir að þaö sé afar hættu- legt að höföa til þjóðernishyggju fólks á þann hátt, aö þjóö þeirra sé eftirlæti Drottins, sér i lagi, ef þarna er blandað saman viö, dýrkun á honum sjálfum (Moon) og staðhæfing um að hann sé hinn nýi Kristur. Þaö er aldrei að vita hvað það getur leitt af sér. Fyrr- verandi Mooniear taka heils hug- ar undir þetta og bæta þvi við aö Moon sé einfaldlega aö sækjast eftir heimsyfirráöum og sé að safna um sig her ungra trúarofs- tækismanna, sem eru tilbúnir að fórna lífi sinu fyrir hann. Einn segist hafa yfirgefiö söfnuðinn, vegna þess aö þetta hafi ekki ver- ið kristilegur söfnuöur, heldur fasisk stjórnmálahreyfing. Þetta Hér er Moon aö ávarpa mannfjöldann i Madison Square Garden I New York, og stóöhann á bak viö skothelt tjald á meöan hann talaöi. A meöan hann prédikaöi um trú, von og kærleikann, gengu þúsundir áhangenda hans um stræti borgarinnar og söfnuöu peningum. Þingmennirnir James Buckiey og Robert Doie, hlusta á hrellda foreldra fórnardýra Moons, er þau krefjast þess aö opinber rannsókn veröi látin fara fram á Sameiningarkirkjunni. likist Hitlers æskunni meira en við höfum dæmi til i dag. Siöastliöinn febrúar söfnuðust yfir þrjú hundruö foreldrar, sem áttu börn i hreyfingunni saman i WashingtonD.C. á ráðstefnu. Þau fengu fulltrúa frá skattayfirvöld- um, atvinnumálaskrifstofunni, póstþjónustunni, innflytjenda- yfirvöldum auk annarra til aö koma á ráöstefnuna i von um aö geta fengið yfirvöld til að gera allsherjar úttekt og rannsókn á Sameiningarkirkjunni. Ekkert hefur heyrzt frá stjórn- völdum i sambandi við þetta, en fulltrúi frá skattayfirvöldum kvað það erfiöieikum undirorpiö að hefja rannsókn á málum kirkj- unnar þvi aö samtökin eru undan- þegin sköttum, og gæti þaö valdiö erfiðleikum ef það væri þá ekki ógerlegt að fara út i slikar rann- sóknir. Lögin segja að trúarlegir söfnuðir séu skattfrjálsir. Spurn- ingin er bara hvenær er hægt að telja samtök trúarleg eða ekki? Þvi er ekki auðvelt að svara. A meöan á þessu stendur heldur Sun Myung Moon áfram eins og ekkert hafi i skorizt að halda samkomur, gefa út yfirlýsingar, og safna auði og að þróa áfram útleggingu sina á ritningunni. (þýttogendursagt JB)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.