Tíminn - 06.07.1976, Side 10
10
TÍMINN
Þriðjudagur 6. júli 1976
Svona haldið þið ykkur
heilbrigðum, hressum
og grönnum á
einfaldan hátt
— Það er skylda hvers og eins
aö hirða sig vel og lita eins vel út
og efni standa til. Þetta er
skylda okkar gagnvart um-
hverfinu, og einnig gagnvart
okkur sjálfum. I hörðum og ó-
öruggum heimi verðum við oft
aö láta sem við séum sjálfs-
örugg. Þeim sem er nokkurn
veginn ánægður meö útlit sitt,
gengur betur I baráttu hvers-
dagslifsins.
Þetta segir Olly Griin alþjóð-
legur snyrtisérfræðingur.
Þrátt, fyrir starf sitt heldur
Olly Grun þvi ekki fram að viö
eigum að mála okkur og vera
eins og óeðlilegar dúkkur. Nei,
þvert á móti. Hún leggur
áherzlu á mikilvægi þess, að
vera geislandi af hlýju og vin-
semd ... Fegrunarlyf eiga að-
eins aö undirstrika persónuleik-
ann litiö eitt.
Rétt mataræði er
mikilvægt
Olly telur rétt mataræði
mikilvægt. Ekki sizt hvað fjör-
efnum við kemur. Einkum á
haustin og veturna byrjar hún
daginn á einhverjum heilsu-
drykk.
— Blandið saman tveim mat-
skeiðum af ölgersdufti, nypon-
safa og pressaðri appelsinu eða
tómatsafa. Hristið vel og hellið i
stóra tebolla — og njótið
drykkjarins.
Að sjálfsögðu geta menn
breytt til og drukkið margskon-
ar annan ósætan safa úr ávöxt-
um eða grænmeti. Eða hreint og
beint jógúrt án ávaxta. ölgerið
er fullt af B-vitaminum. B-vita-
min eru þekkt fyrir að töfra
fram glans á hárið, ferska húð
og sterkar neglur. Læknar kalla
B-vitamin vopn gegn þreytu,
þunglyndi, lystarleysi, svefn-
leysi, maga- og þarmakveisum.
Aöeins helmingurinn af Svíum
eru álitnir fá nóg af B-vitamini.
ölgerduftið, sem er svo auð-
ugt af B-vitaminum, færðu t.d. i
náttúrulækningabúðum.
C-vítamindrykkir
Olly er ekki heldur hirðulaus
um A-vitaminið. Hún fær sér
gjarnan sinn daglega skammt i
formi hrárra gulrótna — eða
drekkur gulrótarsafa. Ahrifin
koma fljótt i ljós — og augun
verða skær, en A-vitaminið er
gott fyrir sjónina.
C-vitamin — einnig kallað
ascorbinsýra — er höfuðóvinur
allra smitbera, en eykur einnig
almenna velliðan. Heima ber
Olly Grun C-vitamindrykki
fram með máltiðum. Stundum
drykki úr C-vitamin gospillum,
stundum úr neytraliseruðu
ascorbinsýru dufti, en hvort
tveggja fer vel með magann.
Ein tafla á dag ásamt öllum hin-
um vitaminunum sakar ekki á
veturna!
Klukkutima morgunleikfimi
er þáttur i heilsuprógramminu
hjá Olly. Og auk þess mikið af
fersku lofti. Of litið súrefni veld-
ur þvi að fólk er fölt og ræfils-
legt i útliti. Höfuðverkur og ým-
iss konar vanliðan fylgir einnig
meö. Ekki timi? Opnaöu glugg-
ann, dragðu djúpt að þér and-
ann nokkrum sinnum. Þér liður
strax betur!
Að fasta einn dag i viku — og
drekka aðeins vatn — er einnig
heilsugjafi. Ef þér lizt illa á það
og þú kviðir sulti skaltu fara eft-
ir uppskrift Ollyar:
Byrjaðu daginn á desilitra af
sellerisafa. Ef þú finnur til sult-
ar seinna um daginn fáðu þér
harðsoðið egg, nokkrar sneiðar
af mögrum osti, magurt kjöt —
eða e.t.v. soðna hænu — ferskan
ananas eða ananas úr dós —
ósætan — hreint jógúrt. 52 slik-
ir dagar á ári gera það að verk-
um að það verður ánægjulegra
að stiga á viktina.
Gættu þess aö sofa nóg
Gættu þess að sofa nóg,
segir Olly lika. Ef þú átt erfitl
með að sofna farðu þá i stundar-
fjórðungsgöngu áður en þú ferð i
háttinn. Volg undanrenna eða
bolliaf róandi jurtate eru einnig
góð svefnmeðul.
Ef þú ert hinsvegar yfir þig
þreytt(ur) getur verið járr. -
skorts um að kenna. Um það bil
fjórða hver kona á aldrinum 15-
55 ára fær of litið járn. Auk þess
að valda svima og þreytu skilur
járnskorturinn eftir fleiri
merki: neglurnar brotna, hárið
er reytt... Innmatur, grænkál.
spinat, persilja, nypon... eru
járnauðug. Mikinn járnskort
þurfa læknar að sjálfsögðu að
meðhöndla, en gott er að eiga
járntöflur heima, þær fást i
lyfjabúðum. Nýlega kom á
markað ný gerð, sem er góð fyr-
ir þá sem eru þola illa járntöflur
i magann. Þær heita Plus-járn
og fást án lyfseðils i apótekum.
Reiknað er með, að konur á
aldrinum 18-55 þurfi almennt
um 18 mg á dag.
Og snúum okkur nú að ytri
umhirðu!
— Ég ir alveg hissa á þvi nve
sumar konur eru kærulausar
um útlit sitt. Já, jafnvel hrósa
sér af þvi, segir Olly, og bætir
við:
— Hver hrósar sér af þvi að
hafa ekki tekið til i eilifðartima?
Húðhreinsun
Þar erum við komin að einu
helzta kappsmáli Ollyar.
— t 23 ár hef ég talað um
hvað það er mikilvægt að
hreinsa húðina, og ég held þvi
áfram, þvi að það er nauðsyn-
legt...
— Þannig geturðu t.d. með-
höndlað andlitshúðina á kvöld-
in:
Fjarlægðu öll „meik”, ryk og
óhreinindi með hreinsimjólk
Ég nota aldrei „meik,” en
þeir, sem það gera, hafa þeim
mun rikari ástæðu til að hreinsa
húðina. Margir telja að „meik”
sé til þess eins að fela ágalla.
Þetta er að nokkru leyti rétt —■
en gleymið ekki að „meik” er
lika góð vernd nú þegar loftið er
orðið svo óhreint. (Þetta á tæp-
ast við á Islandi).
— Eftir andlitshreinsunina
ergott að nota friskandi andlits-
vatn. Andlitsvatn eins og
hreinsimjólkin er til af ýmsum
gerðum fyrir óllkar húðgerðir.
Nú er röðin komin að góðu
næturkremi. Punktum basta!
Meira þarf ekki til að hreinsa
andlitið. Fyrirhöfn? Þetta tekur
aðeins fáeinar minútur og borg
ar sig bæði i nútið og framtið?
Hefurðu hitt einhvern, sem ger-
ir sér að vana að sofa i fötun-
um? Einmitt þannig lit ég á
fólk, sem ekki þværsér i framan
áður en það fer að sofa. (Olly er
ákveðin i röddinni, þetta finnst
henni mikilvægt.)
Og á morgnana? Hvernig er
þá bezt að hirða um húðina?
— Strangt tekið nægir að
nudda varlega inn i húðina ólit-
uðu rakakremi. Gleymið ekki
hálsinum— þetta nægir lika sem
þvottur. Auk þess: Slikt vernd-
andi krem ættu karlmenn lika
að nota. Húð þeirra er lik húð
kvenna og verður fyrir sams-
konar loftmengun.
Lit í andlitið
Viltu gjarnan fá svolitinn lit i
andlitið? Það eru til ágæt
„meikkrem”. En veldu krem,
sem hefur i sér raka og inni-
heldur ekki púður, segir Olly.
— Stundum getur verið upp-
lifgandi að nota kinnalit. Með
honum geturðu breytt andlitinu.
Mundu bara að setja ekki kinna-
lit of neðarlega á kinnarnar.
Það „dregur niður” allt andlit-
ið. Yfileitt á maður að muna að
draga allar linur i andlitinu upp.
Þetta á jafnvel við um auga-
brúnirnar. Velsnyrtar augna-
brúnir, sem vita upp á við, gera
undraverk á andlitinu. Þær
lyfta andlitsdráttunum...
Þegar rætt er um augu visar
Olly á bug þeirri gömlu he’fð að
velja augnskugga, sem hæfi
augunum. 1 staðinn segir hún:
— Leiktu ér að litum, veldu
gjarnan lit, sem á við fötin eða
skap þitt! En gakktu ekki of
langt. 1 þvi samhengi vitna ég i
eftirlætismyndhöggvarann
minn Rodin:
— Við menn eigum ekki að
ýkja náttúruna, við eigum að
likja eftir henni! Með öðrum
orðum konur eiga að mála sig i
hófi, persónulega og af glæsi-
leik.
Olly gefur góð ráð i sambandi
við varirnar:
— Málaðu varirnar rækilega
þegar þú gerir það. Varir eiga
að vera stórar, skinandi og
nautnalegar. Varagljái er
góður, með hann virðistu ný-
kysst.
Vieittu þér andlitsmaska
Olly finnst, að sænskar konur
hugsi of litið um sjálfar sig. —
Veittu þér þann munað að fara i
smáfegurðarkúr i hverri viku.
Settu á þig maska, plokkaðu
augabrúnirnar, snyrtu hendur
og fætur — þreyttir, aumir fætur
setja greinileg merki á andlitið.
Viltu lit á neglurnar? Notaðu
alltaf undirlakk. Það verndar
neglurnar.
Olly álitur að gott sé að bera
rakakrem á allan likamann.
Það er hrein nautn eftir bað eða
sturtu, og húðin verður frisk og
teygjanleg.
— Þegar um fegurð er að
ræða er allt leyfilegt — nema
aðgerðaleysi, segir Olly.
Og loks er ein lifsregla, sem
er fegurðarauki.
— Elskaðu náungann. Sýndu
það i verki. Hatur og beizkja
gerir fegurðardisir að nornum...
Og ef hin eðlishressa Olly er
niðurdregin dansar hún. Ef ekki
vill betur til, þá ein innan um
potta og kastarollur, og girni-
legan, magran mat, sem hún
sjaldan setur saltkorn i.
— Þvi salt bindur vatn og
maður verður þyngslalegur.
— Likaminn á að vera eins og
nýstillt fiðla. Það á að syngja i
hverri frumu hans.....
(S.J. þýtt og endursagt)
Það er skylda hvers
og eins að hirða sig vel,
segir Olly Griin, aðal-
snyrtisérf ræðingur
Pierre Robert í
Malmö. Hún telur þó
ekki, að konur eigi að
vera málaðar dúkkur.