Tíminn - 06.07.1976, Side 17
Þriðjudagur 6. júli 1976
TÍMINN
17
„Folkið grét af gleði
— og það var dansað og sungið d götum úti," sagði Ásgeir Sigur-
vinsson, sem var staddur í Tel Aviv, þegar Israelsmenn komu
heim úr hinni frægilegu för til Uganda
— Þaö voru mikil hátiðarhöld í Tel Aviv. Geysileg stemmning var allstaðar og
fögnuðurinn ofsalegur hjá fólkinu — sumsstaðar var dansað og sungið á götum úti,
sagði knattspyrnumaðurinn Ásgeir Sigurvinsson, sem var staddur í Tel Aviv í
israel, þegar ,,víkingasveitirnar" f rá ísrael, sem gerðuárásá Entebbe-f lugvöllinn
í Uganda, komu til Tel Aviv með rúmlega 100 gísla, sem höfðu verið í haldi f lug-
ræningja í Uganda.
— Það var mikil upplifun að
vera staddur i Tel Aviv, þegar
þetta gerðist — hátiðarhöldin i
borginni voru geysileg. Við strák-
arnir i Standard Liege vissum
ekki hvað væri að gerast, þegar
við komum inn á hótelið, sem við
bjuggum á — þar var varla hægt
að þverfóta fyrir fólki, sem tók
danssporið og fögnuðu heimkomu
„vikingasveitarinnar” með gisl-
ana. Þá var ekkert um annað tal-
að i sjónvarpi, en hina frækilegu
för þeirra til Uganda. Já, gleðin
var ofsaleg — fólk grét af gleði,
sagði Ásgeir i stuttu viðtali vð
Timann, þar sem við náðum hon-
um i Liege i gærkvöldi, þegar
hann var nýkominn heim úr
ísraeis-ferðinni með Standard
Liege.
Standard Liege mætti Israelska
X. deildarliðinu Hapoel Beer-
Sheva i Tel Aviv i ,,Toto”-keppni
Evrópu, sem er knattspyrnu-
keppni, sem komið hefur verið á,
til að halda getraunastarfseminni
I Evrópu gangandi. —Við tryggð-
um okkur jafntefli (0:0) og gerö-
um okkur mjög ánægða með það,
þar sem við höfum aðeins æft
saman I vikutima, eftir sumarfri-
ið. Hitinn var alveg óþolandi og
völlurinn mjög slæmur — þurr
moldarvöllur, sagði Asgeir.
Þá sagði Asgeir, að Standard
Liege væri búið að kaupa nýjan
sóknarleikmann frá Antverpen. —
Hann heitir Hicel og er mjög
marksækinn og var hann mark-
hæstur í Belgiu 1974, en i fyrra lék
hann litið með, vegna meiðsla.
Ricel er mjög hávaxinn leikmaö-
ur, sem er góður með skalla og
mjög sprettharður — hann leikur
stöðu vinstri útherja, sagði
Asgeir.
—SOS
ASGEIR SIGURVINSSON
STAÐAN i 1. deildarkeppninni i
knattspyrnu er nú þessi:
KR—Fram..................3:4
Valur—Breiðablik.........1:1
Keflavik—Þróttur.........2:1
Akranes—FH ..............1:1
Valur........... 9 6 3 0 29:7 15
Fram............10 6 2 2 15:12 14
Víkingur........ 9 6 1 2 12:8 13
Akranes ........ 9 5 2 2 13:11 12
Keflavik........ 9 4 1 5 15:15 9
KR ............ 10 2 4 3 15:14 8
Breiðablik.... 9 3 2 4 9:12 8
FH............. 10 1 4 5 6:17 6
Þróttur.........10 1 0 9 6:24 1
Markhæstu menn:
Guðmundur Þorbjörnss. Val.... 9
Hermann Gunnarsson, Val......9
Ingi B. Albertsson, Val .....7
Teitur Þórðarson. Akranesi...6
Kristinn Jörundsson, Fram....5
Jóhann Torfason, KR.........5'
Rúnar Georgsson, Kefla vlk...5
Sigþór ómarsson, Akranesi....4
Ilinrik Þórhallss. Breiðab...4
[! mwr
BAKPOKAR
Verð fró
kr. 6.905.—
STAÐAN
1. DEILD
„Marka-Kiddi" var á
skotskónum gegn KR
— hann
skoraði 3
mörk og
tryggði Fram
sætan sigur
(4:3) í
gærkvöldi
KRISTINN JÖRUNDSSON
skoraði ,,Hat-trick” gegn KR
ingum I gærkvöldi.
KRISTINN Jörundsson „Marka-Kiddi” var heldur
betur á skotskónum á Laugardalsvellinum i gær-
kvöldi, þegar Framarar unnu góðan sigur (4:3) yfir
KR-ingum i leik hinna glæsilegu marka. Kristinn
skoraði sigurmark Framara 15. minútum fyrir
leikslok og þar með skoraði hann sitt þriðja mark —
„Hat-trick”.
KR-ingar byrjuðu leikinn af
miklum krafti, og þeir sóttu stift
að marki Framara, sem vörðust
vel. Framarar urðu þó fyrri til að
skora (25. min.) þegar Kristinn
skoraði af stuttu færi, eftir að Ás-
geir Eliasson hafði reynt mark-
skot.
KR-ingar gáfust ekki upp —
þeir tviefldust við þetta mótlæti
og skoruðu þrjú næstu mörk
leiksins, á fimm minútna kafla,
og voru mörkin hvert öðrú
fallegra.
1:1...Guðmundur Jóhannes-
son lék á 3 varnarmenn Fram og
brauzt laglega i gegn — þegar
hann var kominn á auðan sjó, lét
hann gott skot riða af, sem Arni
Stefánsson markvörður Fram,
réð ekki við (31. minúta).
2:1... Fram-leikmönnunum
urðu aftur á varnarmistök. Mar-
teinn Geirsson misreiknaði knött-
inn með þeim afleiðingum að
hann skauzt fram hjá honum á
blautu grasinu. Birgir Guðjóns-
son fékk knöttinn og skoraði með
góðu skoti frá vitateig (35.
minúta).
3:1...Jóhann Torfason komst
fram hjá varnarmanni Fram og
skoraði glæsilegt mark með
„bananaskoti” frá vitateig.
Knötturinn sveif yfir Árna
Stefánsson markvörð Fram, og
hafnaði upp undir þverslá (36.
minúta).
pumn ^
fótboltaskór
10 gerðir
Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar
Klapparstfg 44 * Sfmi 1-17-83 O
Hólagar&i f Brai&holti • Sfmi 7-50-20
EGGERT.... skoraði stórglæsi-
legt mark.
Framarar áttu siðan næsta orð,
þegar Agúst Guðmundsson gaf
góða sendingu til Kristins
Jörundssonar, sem skoraði
örugglega af stuttu færi. Kristinn
fékk siðan tvö gullin tækifæri til
að jafna metin fyrir Framara, en
honum brást bogalistin I bæði
skiptin, þannig að KR-ingar höfðu
yfir (3:2) i hálfleik.
Eggert Steingrimsson náöi
siðan að jafna (3:3) fyrir Fram á
60. minútu, með þrumufleyg af 23
m færi. Knötturinn skall upp
undir samskeytunum, algjörlega
óverjandi fyrir Halldór Pálsson,
nýliðann i marki Vesturbæjar-
liðsins. Þetta mark Eggerts var
stórglæsilegt — það glæsilegasta,
sem hefur sézt i 1. deildarkeppn-
inni i sumar.
Kristinn Jörundsson átti siðan
siðasta orð leiksins. Hann skoraði
af stuttu færi, eftir að hafa fengið
sendingu frá Rúnari Gislasyni,
sem skallaði til hans. Þar með
voru Framarar búnir að tryggja
sér dýrmæt stig i baráttunni um
íslandsmeistaratitilinn.
KR-ingar voru mjög ákveðnir i
leiknum og höfðu yfirhöndina á
miðjunni. Þeir náðu oft að skapa
usla i vörn Fram-liðsins, sem lék
sinn lélegasta leik i langan tima.
Framhald á bls. 2 3
SKAGA-
AAENN
AAISSTU
DÝRAAÆTT
STIG TIL
FH-jNGA
AKVEÐNIR FH-ingar voru i
miklum vigamóði, þegar þeir
léku gegn tslandsmeisturunum
frá Akranesi upp á Skaga — þeir
börðust hetjulega og uppskáru
jafntefli (1:1), Skagamenn
byrjuðu leikinn á fullum krafti og
óðu þeir þá i marktækifærunum
— en þeir náðu aðeins einu sinni
að skora hjá Hafnfirðingum. Það
var Sigþór ómarsson, sem skor-
aði markið (14 min.), eftir auka-
spyrnu frá bezta manni vallarins,
Guðjóni Þórðarsyni. FH-ingar
náðu að jafna (1:1) þremur
minútum siöar, þegar Logi Ólafs-
son skoraði með góðu skoti — sitt
fyrsta 1. deildarmark. Eftir þetta
jafnaðist leikurinn og skiptust liö-
in á að sækja.
MAÐUR LEIKSINS: Gúöjón
Þórðarson.