Tíminn - 06.07.1976, Side 23
Þriðjudagur 6. júli 1976
TÍMINN
23
1
jfilili
Vestfjarða-
kjördæmi
Framhald þingmálafunda I Vestfjaröakjördæmi verður sem hér
segir:
Steingrlmur Hermannsson mætir:
Drangsnesi: þriðjudaginn 6. júll kl. 21.
Arnesi: miðvikudaginn 7. júli kl. 21.
Allir velkomnir.
Fró happdrætti
Framsóknarflokksins
Vínningar í vorhappdrætti Framsóknar-
flokksins verða birtir næst komandi
laugardag 10. júlí
GÓÐ AÐSÓKN
AÐ HÓTELUM í
HÚNAVATNSSÝSLU
Kvenfélag Akraness
fimmtíu óra
Mö-Sveinsstööum. Straumur
feröafólks um Austur-Húnavatns-
sýslu virðist vera svipaður sam-
kvæmtupplýsingum frá hótelum I
sýslunni. t sumar eru þar rekin
þrjú hótel eins og undanfarin
sumur, en það er auk hótel
Blönduóss sem rekið er allt árið,
sumargistiheimili I Kvenna-
skólanum á Blönduósi og Eddu-
hótel á Húnavöllum.
A hótel Blönduós var gistirými
fyrir 40 til 50 manns og þar eru
framleiddar allar máltlðir. Aö-
sókn að hótelinu I mal og fyrri-
hluta júnl var góö, en minni siðan
sumargistihótelin tóku til starfa.
A sumargistiheimilinu I
Kvennaskólanum, sem Sigurlaug
Eggertz rekur eru rúm fyrir um
40 gesti og er þar einnig hægt að
fá allar máltiðir. Að sögn Sigur-
laugar hefur aðsókn verið svipuð
og undanfarin ár, en þetta er sjö-
unda sumarið sem Sigurlaug rek-
ur gistiheimilið. Mikið er um að
sama fólkið komi ár eftir ár.
Sigurlaug sagði að margir sem
kæmu I fyrsta sinn I Húnaþing
héldu að þar væri lltið eöa eíckert
að sjá, enda væru fagrir og merk-
ir staðir lítt auglýstir. Hins vegar
þyrfti fólk ekki lengi að dvelja I
Húnaþingi til að komast á aðra
skoðun, þvl þar væri margt að
skoða.
A Húnavöllum var sömu sögu
að segja og af hinum stööunum,
aðsókn var svipuð og undanfarin
ár. Strax og hóteliö var opnað
uppúr miðjum júni dvaldi þar um
100 manna hópur eina helgi, en
slðan hefur aðsókn veriö jöfn og
góð. Þar eru að jafnaði um 40
gestir, en þegar stórir hópar
koma er hægt að taka á móti um
100 manns. íslendingár, sem á
hótelinu dvelja, eru þar oft I um
þrjá daga, viö veiðar I Svlnavatni
eða fara I skoðunarferöir um
hérað. Einnig er á Húnavöllum
sundlaug fyrir hótelgesti.
G.B. Akranesi Þann 19. júni s.l.
hélt Kvenfélag Akraness hátlð-
legt 50 ára afmæli sitt með veg-
legu hófi I Hótel Akraness. Hófið
sátu um 100 manns.
Kvenfélag Akraness var stofn-
að 11. aprll 1926. Stofnfundinn
sátu 64 konur, og af þeim eru nú á
lifi 13 konur. 7 konur voru gerðar
að heiðursfélögum i hófinu. Fé-
lagskonur eru nú 154. Ekki reynd-
ist unnt að halda afmælishófið
þann 11. april s.l. vegna ferminga
hér á Akranesi þann dag og var
þvi frestað, eins og áður greinir
til kvenfrelsisdagsins.
1 tilefni afmælisins kom út þann
19. júní s.l. veglegt afmælisrit
með ágripi af fimmtiu ára sögu
Kvenfélags Akraness, auk ann-
arra greina, s.s. um orlof hús-
mæðra, dagheimili barnaá Akra-
nesi, ferðasögu o.fl. Forsiðu
blaðsins prýðir falleg blómamynd
— tákn vors og gróðurs — gerð
eftir málverki eftir önnu
Magnúsdóttur, tónlistarkennara
en hún er ein félagskvenna. Blað-
iðer 50 siður, prýttfjölda mynda.
Félagið setti strax á stefnuskrá
sina alhliða mannúðar- og menn-
ingarmál. Það má segja, að frá
byrjun hafi Sjúkrahús Akraness
verið óskabarn félagsins og
margar góðar gjafir hefur félagið
gefið sjúkrahúsinu allt frá þvi að
bygging þess var hafin og fram á
þennan dag.
I hófi á Sjúkrahúsi Akranpss
föstudagskvöldið 18. júni s.l. að
viðstöddum stjórn Kvenfélags
Akraness, fréttamönnum, yfir-
lækni, Guðjóni Guðmundssyni, og
nefndarkonum, afhenti formaður
kvenfélagsins, Anna Erlendsdótt-
ir forstöðukonu sjúkrahússins,
Asthildi Einarsdóttur, að gjöf frá
félaginu, handofið teppi. Teppið
er hannað og ofið af önnu öllu
Björgvinsdóttur, vefnaðar-
hönnuði. Teppið er 1.06x2.30 m að
stærð. Efnið er hör og norskt
ullargarn til listvefnaðar og vefn-
aðargerðin er tvöfaldur vefnaður.
Ber það fagurt vitni um fallegt
handbragð.
Er teppið var afhent, fórustfor-
manni kvenfélagsins, önnu Er-
lendsdóttur m.a. orö á þessa leið:
„Fornmenn tjölduðu skála sma,
þegar stórveizlur voru haldnar og
mikið stóð til, ekki aöeins til
skrauts heldur einnig til þess að
gjöra hibýlin hlýlegri. Þegar við
horfum á fallega handurininn
hlut, hvort sem það er málverk,
höggmynd, útskurður eða vefnað-
ur, fyllumst við innri gleði og um-
Kormaöur kvenfélags Akraness
dóttur fyrir vel unnið verk.
hverfið verður allt friðsælla. Um
leið og ég fyrir hönd Kvenfélags
Akraness afhendi sjúkrahúsinu
veggteppi þetta, óska ég þess, að
það verði þar til prýðis um ókom-
in ár og færi öllum þeim, sem um
þessa stofnun ganga, hvort þeir
eru sjúkir eða heilir, heimamenn
eða gestir, einhvern hlýleika og
innri frið”.
Kvenfélag Akraness rekur
dagheimili fyrir börn á Akranesi
með styrk frá Bæjarsjóði Akra-
ness og er dagheimilið vel búið af
leiktækjum og öðru er með þarf.
Allt frá árinu 1927 hefur félagið
haldið I janúar ár hvert skemmt-
un fyrir eldri borgara Akraness
við miklar vinsældir. Þá veitir fé-
lagið árlega handavinnu- og mat-
reiðsluverðlaun til nemenda i
þakkar önnu Öllu Björgvins-
Gagnfræðaskóla Akraness, sem
skara fram úr i þessum greinum.
Félagið hefur fyrr og siðar haldið
uppi námskeiðum i saumaskap,
matreiðslu, leirmunagerð, fé-
lagsmálum o.fl.
„Einn er ei maðurinn nema
hálfur, með öðrum meiri en hann
sjálfur”. Þessiliking getur vel átt
við þann góða félagsanda, og allt
það starf sem Kvenfélag Akra-
ness hefur unnið frá stofnun þess
fram á þennan dag.
Stjórn Kvenfélags Akraness
skipa nú: Anna Erlendsdóttir,
formaður Erna Hákonardóttir,
ritari Heba Stefánsdóttir, gjald-
keri. Meðstjórnendur: Halla Þor-
steinsdóttir, Hrefna Siguröar-
dóttir Lilja Steinsdóttir og Una
Guðmundsdóttir.
Aðalfundur Alþýðuorlofs
ASK-Reykjavik. t siOastHðinni
viku var haldinn aðalfundur
Alþýðuorlofs. Þar flutti formaður
Alþýðuorlofs, óskar Hallgrims-
son, skýrslu stjórnarinnar, en þar
kom fram að aöild að Alþýðuor-
lofi eiga nú um 85 félög innan
A.S.Í. og þrjú landssambönd og er
félagsmannatala þeirra yfir 30
þúsund. Þá eiga aðild aö orlofs-
samtökunum aðilar utan A.S.I.,
þ.e. Iðnemasamband tslands og
Bifreiðastjórafélagið Frami.
Aðalfundurinn samþykkti fyrir
sitt leyti ákvöröun hluthafafund-
ar Landsýnar um að auka hlutafé
félagsins um 15 milljónir króna.
Að lokum geröi aðalfundurinn
svohljóðandi ályktun um hóp-
ferðarfargjöld: — Aðalfundur
Alþýðuorlofs skorar á rikisstjórn-
ina og fulltrúa íslands I Norður-
landaráði að styðja framkomnar
tillögur um frjálsar reglur um
leiguflug milli Norðurlandanna.
Sérstaklega hvetur fundurinn til
að komið veröi á hóflegum far-
gjöldum i skipulegum orlofsferö-
um á vegum ferða- og orlofesam-
taka alþýðu á Norðurlöndum. Þaö
er álit fundarins, að með frjálsari
reglum en nú gilda I þessum efn-
um, verði lagður raunhæfasti
grundvöllurinn að norrænu sam-
starfi. —
t stjórn Alþýðuorlofs fyrir
næstá kjörtimabil voru kjörnir,
formaður óskar Hallgrimsson,
ritari Sigurjón Pétursson, gjald-
keri Guðriður Eliasdóttir.vara-
formaður Björn Jónsson, og með-
stjórnendur þeir Einar ögmunds-
son, Luther Jónsson og Jón
Björnsson.
Ný tjaldstæði við Varmahlíð
MÓ—Sveinsstöðum. — Að undan-
förnu hefur veriö unnið aö gerö
nýrra tjaldstæða viö Varmahliö I
Skagafiröi, sem væntanlega verð-
ur hægt að taka I notkun næsta
sumar. Þar hefur 1,2 ha. I brekk-
unni fyrir neðan þjóöveginn verið
tekinn til þessara nota, en þaöan
er fagurt útsýni austur yfir
Skagafjörð. Norðan við svæðið er
skógrækt og veitir skógurinn gott
skjól þegar norðanátt er.
Búið er að gera stalla i brekk-
una, en á hverjum stalli á að vera
ein tjaldaröö. Ofar I brekkunni
eru bollar, sem rúma eitt til tvö
tjöld hver. Bilastæði verða fyrir
neðan brekkuna, en ekki verður
leyft að aka um tjaldsvæöiö. Þó er
gert ráð fyrir að þar sé hægt að
koma fyrir nokkrum hjólhýsum.
Það er Skagafjarðarsýsla,
Seyluhreppur, Ungmennafélagið
I Seyluhreppi, félagsheimilið
Miðgarður og Kaupfélag Skag-
firðinga, sem tekið hafa höndum
saman um að koma þessu I fram-
kvæmd, en alla umsjón með
framkvæmdum hefur Guðmann
Tobiasson, útibússtjóri Kaup-
félags Skagfiröinga I Varmahlið.
Guðmann sagði, aö það væri
mikill kostnaöur við að gera
svona svæði vel úr garði, þvi að
bæði væri mikið verk að gera
stallana I brekkuna, og einnig
þyrfti að leiða heitt og kalt vatn á
svæðið og gera upp hús, sem þar
er fyrir væntanlega gæzlu. Bjóst
hann við að kostnaður skipti
milljónum, en slik svæði, sem
þessi væru mikil nauðsyn I hverju
héraði þvi sifellt ykist ferða-
mannastraumurinn.
© Amin
þessa mætti ekki veröa til þess
að skapa of mikla bjartsýni.
— Skæruliðasamtökin hafa
goldiö mikið afhroö, sagði blað-
ið, en þau geta brotizt fram að
nýju I endurteknum ofbeldisað-
gerðum,
Gad Yaacobi, samgöngu-
málaráðherra Israels, sendi i
gær skilaboð til allra þeirra
landa, sem hafa flugsamgöngur
við Israel, og hvatti til aukinna
öryggisaðgerða I flugvélum,
auk þess að hann lagöi til að
vélarnar kæmu ekki við I þeim
löndum, sem ekki gerðu viðhlit-
andi öryggisráðstafanir.
Air France, sem á þotuna
sem ræningjarnir flugu til
Uganda, hefur þegar tekiö fyrir
viðkomur I öðrum löndum, á
leið til og frá ísrael, meðal
annars 1 Aþenu, en talið er að
ræningjarnir hafi komið þar um
borð.
Ekki hafa borizt neinar fregn-
ir af þvi I smáatriðum hvernig
staðiö var að aögerðunum á
Entebbe-flugvelli, og er greini-
legt að yfirmenn Israelska hers-
ins hafa ekki I hyggju að gefa
slikt upp — einkum það sem
hugsánlega gæti orðið til gagns
siöar meir.
Þess má og geta að fagnaðar-
lætin I Israel vegna aögerðanna
þykja minna helzt á fögnuðinn
þegar Israelar höföu sigrað i
sex daga styrjöldinni foröum.
Gera þeir nú jafnvel grin að Idi
Amin og flugræningjunum og i
gær birti eitt dagblaöanna I
Israel teiknimynd af Israela,
sem sagöi: — Idi Amin er reiö-
ur, skæruliöarnir eru reiðir, en
ég fæ ekki skiliö hvers vegna.
Þeir kröfðust svars fyrir klukk-
an eitt á sunnudag og við
svöruðum þeim fyrir klukkan
eitt.
© Blikarnir
vegaö og skynsamlega. Hann
stöövaði hvaö eftir annaö sóknar-
lotur Valsmanna, sem náðu sér
ekki á strik gegn baráttuglööum
Breiðabliksmönnum.
MAÐUR LEIKSINS: Einar Þór-
hallsson. —SOS.
© „AAarka-Kiddi"
Þeir Jón Pétursson og Marteinn
Geirsson léku langt undir getu og
hafði það sitt aö segja. Asgeir
Eliasson var bezti leikmaður
Fram-liðsins — var alltaf á ferð-
inni. Sigurður Indriðason átti
ágætan leik hjá KR-liðinu, en
annars voru leikmenn liðsins
mjög jafnir.
Maður leiksins: Kristinn
Jörundsson. —SOS