Tíminn - 25.07.1976, Blaðsíða 15
Sunnudagur 25. júli 1976.
TÍMINN
15
Heiðrún Björnsdóttir og Jensina Stefánsdóttir sauma húsgagnaáklæði.
opnum við hér meðan dálitil lægð
er i efnahagslifinu. Við erum með
trésmiðaverkstæði og bólstrun.
Þarna vinna um 50 manns, eða
hjá fyrirtækinu.
Vinnuaðstaða er mjög góð, og
fólk, sem hingað kemur, er mjög
ánægt með vörurnar, eða hús-
gögnin. Margir hafa sagt, að
þetta sé nú fallegasta húsgagna-
verzlunin, sem það hefur komiö
inn i.
Þetta er vægast sagt mjög upp-
örvandi fyrir okkur, en hér hafa
menn reynt að leggja sig fram til
þessað allt megi takast sem bezt.
— Nú er hér mikið úrval. Hver
teiknar þessi húsgögn?
— Þessar húsgagnagerðir eiga
sér margvislega forsögu.
— Við förum á sýningar
erlendis að staðaldri og fáum
þannig það nýjasta, sem kemur á
heimsmarkaðinn. Sumt er svo
teiknað her heima, en það er i
raun og veru sorgarsaga, hversu
illa hefur gengið að fá innlenda
húsgagnaarkitekta til þess að
vinna fyrir stóru verkstæðin. Við
eigum toppmenn i þessu fagi.
Menn, sem unnið hafa til verð-
launa erlendis, og margir þeirra
hafa reynslu i smiðum, — voru
húsgagnasmiðiráður en þeir fóru
i arkitektaskóla.
Húsgögn iðnaðarvara
— En hindraði þetta ekki nýj-
ungar og sjálfstæðan stil
islenzkra húsgagna?
— Það kann auðvitað að vera.
En við, sem fylgjumst með
þessum hlutum að staðaldri
gegnum tiðina, sjáum i raun og
veru afskaplega fátt „nýtt”.
Einhver sagði mér, að orðið
„arkitekt” þýddi upphaflega
verkamaður, eða sá sem léti hlut-
ina gerast. Þessi forna merking
orðsins, þyrfti að vera i meira
samhengiviðatvinnulifið en núna
er. Arkitektar lita á sig sem lista-
menn, sumir hverjir a.m.k. en
áhrif þeirra eru harla litil hvað
varðar húsgagnasmekk,ef ekkert
er smiðað eftir þá að heitið getur,
vegna þess hversu langt á undan
L,inni samtið þeir eru. Húsgagna-
iðnaðurinn er fýrst og fremst
framleiðslustöð fyrir nauðsynja-
vöru, og falurfræðileg þróun
verður að haldast i hendur við
almennan rekstur og góða, eða
viðunandi, afkomu fyrirtækj-
anna.
Fljótir með nýjungar
— En úrvalið. Er það mikið hér
miðað við aðra?
— Við höfum mikla breidd.
Menn þurfa ekki annað en koma
hér til þess að sjá það. Stöðugt er
verið að vinna að nýjumgerðum.
Gert er „model” af þvi sem taka
á til framleiðslu og yfirmenn hér
ræða málin og gerð er fram-
leiðsluáætlun.
— Samkvæmt minu mati, er
siður en svo minna úrval hús-
gagna hér en i sambærilega
stórum verzlunum, sem byggja á
innflutningi aðveruleguleyti. Við
flytjum inn góðar hugmyndir á
teiknuðum blöðum, — það bezta
sem fram kemur á erlendum
sýningum, og erum oft fyrri til að
koma fram með nýjungarnar
enþeir sem biða verða eftir
erlendri framleiðslu, þvi bak við
þe-nan vegg þarna er fjölefli fag-
manna, sem lætur ekki sitt eftir
liggja, þegar nýjungar eru á döf-
inni.
— Ertu bjartsýnn?
— Ég hefi aldrei mátt vera að
þvi að lita til baka. Ég lit aðeins
fram á við og ég er ekki tiltakan-
lega svartsýnn á .islenzka hús-
gagnaframleiðslu, annars væri
þetta ekki hér, sagði Emil
Hjartarson að lokum.
JG.
NOTIÐ
ÞOBESIA
KVEIKJUHLUTIR
i flestar tegundir
bíla og vinnuvéla
frá Bretlandi og
Japan.
ER
KVEIKJAN
í LAGI?
—IIIjOSSB------------<
Skipholti 35 ■ Símar:
8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæöi • 8-13-52 skrifstofa
— .......
JEPPAEIGENDUR
Eigum.aftur fyrirliggjandi
2 gerðir farangursgrinda á
Bronco/ Range Rover og Land
Rover. Tökum einnig að okkur
smiði á aðrar tegundir bila.
Sendum í póstkröfu.
\ MÁNAFELL H.F.
Járnsmiðaverkstæöitopið 8-11 á
kvöldin og laugardaga).
Laugarnesvegi 46. Heima-
simar: 7-14-86 og 7-31-03.
Seljast göfug húsgögn
ekki?
— Þegar þeir svo koma heim
með öll verðlaunin, þá vandast
hins vegar málið. Þeir vilja
breyta, hafa örari breytingar en
almenningur vill leyfa, taka ein-
hvern veginn stærri skref i fram-
tiðina en fólk almennt. Þeir hafa
vafalaust rétt fyrir sér i ýmsu.
Það má oft bæta smekk al-
mennings, og það verulega, en
þetta verður að vera samferða,
og það er vissulega hægt að fram-
leiða svo göfug húsgögn frá
fagurfræðilegu sjónarmiði, að
þau verði óseljanleg. Það er
einmitt þarna, sem hnifurinn
stendur i kúnni.
— Almenningstengsl eru ekki
litils virði i húsgagnaiðnaði. Hús-
gagnaiðnaðurinn hefur haft náin
tengsl við almenning frá upphafi.
Ég er ekki neinn forngripur, en
samt hefi ég rætt persónulega við
menn, sem ég var að smiða hús-
gögn fyrir. Menn segja fyrir um
þarfir sinar og tilhögun og
húsga gna sm iðurinn gefur
ábendingar. Sumar eru til
þæginda, aðrar sem gera hlutinn
ódýrari, en ella. Mér er til efs, að
smekkur þjóðarinnar væri
nokkru betri þó við hefðum frá
fyrstu tið sagt við þetta fólk, — en
góði maður þú hefúr ekkert vit á
þessu, við erum sérfræðingar og
vitum hvað þér er fyrir beztu.
— Við höfum lika haft nána
samvinnu við fólk, sem rekur
húsgagnaverzlanir, og það hefur
svo sannarlega áhuga á fallegum
hlutum, enda eru flest isienzk
heimili til vitnis um það.
Gunnar Baldursson nemi og Halldór ólafsson bólstrari setja utanum
sessur.
Axel Friðriksson. nemi vi-ð stórvirka, sjálfvirka pússningavél.
Sláturhússtjórar
Nú er rétti tíminn
til að huga að þörfum ykkar —
aðeins 2 mánuðir til sláturtíðar
HÖFUM Rafdrifin brýni
epti cYPP Á Hnífar — allar tegundir
Færibandareimar
BOÐSTOLUM: Gúmmímottur
Vatnsdælur
Vatnssíur
Háþrýstivatnsdælur
Skrokkaþvottabyssur
Skrokkaþvottadælur
Gólfþvottabyssur
Vinnsluborðabyssur
Háþrýstivatnsslöngur
Klórtæki o.fl.
ÁRNI ÓLAFSSON & CO.
40088 a* 40098
Auglýsið í Tímanum