Tíminn - 25.07.1976, Síða 17
Sunnudagur 25. júli 1976.
TÍMINN
17
undir nafninu Ráöherrabústað-
urinn.
— oOo —
Viðhöldum sem leið liggur upp
Breiðadalinn og á Breiðadals-
heiði, sem er hæsti fjallvegur á
Vestfjörðum, 610 m.
Uppi á fjallinu er gróðurlaust,
og á vinstri hönd komum við brátt
að Siígandafjarðarvegi, sem
liggur til kauptúnsins Suðureyrar
i Súgandafirði.
Ef við ætlum til Suðureyrar,
liggur leiðin fyrstum Botnsheiði,
við ökum niður Botnsdal, sem
kenndur er viðbæinn Botn, en þar
var til skamms tima numinn
Surtarbrandur siðast 1940-1942.
Brátt eru Kvianes og Laugar að
baki, en hjá siðarnefnda bænum
var reist sundlaug 1933, og þar fer
sundkennsla fram.
Löggildingu sem verzlunar-
staður fékk Suðureyri skömmu
fyrir aldamót. Kirkja og félags-
heimili eru á staðnum.
— oOo —
Ef við ætlum til Isafjarðar
höldum við yfir Breiðadalsheiði
og niður Dagverðardal. Fjörður-
inn sem framundan blasir við
okkur, heitir Skutulsfjörður, og
við hann stendur ísafjörður,
höfuðstaður Vestfirðinga.
tsafjörður
Isafjörður hét áður Eyri við
Skutulsförð. Kaupstaðaréttindi
hlaut bærinn 1866 og hefur hann
um langan aldur verið helzti
verzlunarstaður á íslandi vestan
verðu, norðan Faxaflóa.
Þegar Danakonungur gaf
verzlun frjálsa á Islandi við alia
þegna sina 1788, skyldi Eyri við
Skutulsfjörð vera einn af 6 helztu
verzlunar- og iðnaðarstöðum i
landinu.
Eldri hluti kaupstaöarins
stendur á malareyri, sem lokar
firðinum fyrir úthafsöldum og
skapar hin ágætustu hafnar-
skilyrði.
Aðalatvinnuvegur Isfirðinga er
tengdur sjávarútvegi, en eins og
fyrr segir er þar rekin umfangs-
mikil verzlunar- og þjónustu-
starfsemi. A Isafirði er byggða-
safn og visir að listasafni. Þar er
sýslumanns- og læknissetur, flug-
völlur, barna-, gagnfræða- og
menntaskóli.
Bolungarvik
Ef við ætlum til Bolungarvikur,
liggur leið okkar fyrst út með
Eyrarhlið og til Hnifsdals, sem
umkringdur er háum fjöllum.
Sjósókn er aðalatvinnuvegur
Hnifsdælinga, en mjög er það til
baga, hve höfnin þar er slæm. 1
Hnifsdal fórust 20 menn i snjóflóði
18. febrúar 1910, en ekki er nú
byggt á sama stað. Hnifsdalur til-
heyrir nú Isafjarðarkaupstað, svo
sem Skutulsfjörður allur.
Óshlið heitir hliðin milli Hnifs-
dals og Bolungarvikur, snarbrött
og skriðurunnin, enda hafa þar
oft fallið snjóflóð, og skriður
valdið slvsum.
Bolungarvik er útgerðar- og
verzlunarstaður við samnefnda
vik. 1 Bolungarvik er ein elzta
verstöð landsins, enda stutt það-
an á fengsæl fiskimið. Bolungar-
vik er nú i kaupstaðatölu, þar er
prestssetur, sundlaug og félags-
heimili.
Upp úr Bolungarvik ganga
tveir dalir, Tungudalur og Syðri-
dalur, en á milli þeirra er fjallið
Ernir. 1 Syðridal er Syðradals-
vatnogherma fornar sagnir, að á
bakka þess hafi bær Völvusteins
staðið, þess sem sumir telja að
ort hafi Völuspá, frægast allra
norrænna kvæða.
Úr Bolungarvik er ökufært inn
Hliðardal, yfir Hærrikross og
niður i Breiðabólsdal til eyði-
byggðarinnar i Skálavik.
Ef við ætlum til Súðavikur frá
tsafirði, ökum við eftir Vest-
fjarðavegi til Góustaða. Þaðan
liggur til vinstri hliðarvegur inn i
fjarðarbotn, en siðan út Kirkju-
bólshlið, en þar er flugvöllur ts-
firðinga.
Við höldum inn eftir Súðavikur-
hlið, snarbrattri og hrikalegri, og
komum brátt til Súðavikur við
Alftafjörð. Þorpsmyndun hófst
tsafjörður.
þar fyrir um 80 árum, eftir að
Norðmenn settu þar á laggirnar
hvalveiðistöð.
A ísafirði eigum við annan kost
fyrir hendi, og hann er sá að fara
með Djúpbátnum til ögurs. Við
þurfum þó að gæta þess að panta
timanlega far fyrir bilinn, svo að
tryggt sé að við komumst með
bátnum.
VIGUFt
A leiðinni til Ogurs siglum viö
fram hjá Vigur, vestur af ögur-
nesi, en hún mun vera næst-
stærsta eyja i ísafjarðardjúpi.
Hún er 2000 metra löng og tæpir
400 metrar á breidd og þykir hin
mesta hlunnindajörð. 1 Vigur er
gömul vindmylla og er henni enn
haldiðvið ásamtmyllusteinum og
öðru tilheyrandi.
Við tökum land i ögri, hinu
forna höfðingjasetri við ögurvik
milli Skötufjarðar og Mjóafjarð-
ar. Þar er kirkjustaöur. Um
miðja siðustu öld var reist i ögri
eitt stærsta ibúðarhús i sveit á ts-
landi og stendur það enn.
1 ögri var allmikil verstöð fyrr-
um.
Siðan liggur vegurinn inn með
Reykjarfirði, en Reykjanes heitir
nesið milli Reykjafjarðar og tsa-
fjarðar. Fremst á nesinu er
Flateyri.
Reykjanesskóli. Þar er sundlaug
og gróðurhús.
Vegurinn liggur siðan inn með
Isafirði að vestan og kemur aftur
á Djúpveginn skammt þar frá
sem heitir Eyri.
—oOo—
t stað þess að aka eftir Vatns-
fjarðarvegi inn til Isafjarðar,
hefðum við getað haldið rakleiðis
áfram eftir Djúpveginum og fariö
yfir Eyrarfjall. Siðan hefðum við
beygt til hægri, ekið inn i botn
tsafjarðar, sem er syðsti fjörður-
inn suður úr tsafjarðardjúpi, all-
langur og mjór. Þar er litið sem
ekkert undirlendi. Úr fjarðar-
botninum liggur vegurinn svo út
með tsafirði að austan, um
Gjörvidal, fram hjá Múla og
Laugabóli og að Arngerðareyri,
þar sem fyrrum var verzlunar-
staður Inndjúpsmanna. Þaöan
liggur Langidalur, lengstur og
stærstur allra dala, sem suður
frá tsafjarðardjúpi liggja.
Leiðin liggur út með fjallinu
Armúla, en brátt blasir við okkur
Kaldalón, 5 km langur fjörður,
sem skerst inn úr norðanverðu
tsafjarðardjúpi i átt til Dranga-
jökuls. Inn af Kaldalóni er sam-
nefndur dalur, allbreiður og er
landslag þar all andstæðurikt.
Fremst eru grösugar eyrar og ós-
hólmar, sem áin Mórilla hefur
fyllt upp með jökulframburði. Of-
ar taka svo við jökulöldur og aur-
ar. Skriðjökull felluri dalbotninn,
en hann hefur dregizt mjög
saman á siðustu árum. Sigvaldi
Kaldalóns, héraöslæknir i
Armúla, hreifst svo mjög af nátt-
úrufegurð i Kaldalóni, að hann
tók upp ættarnafn og kenndi sig
við fjörðinn.
—oOo—
Snæfjallaströnd heitir ströndin
frá Kaldalóni og út til Vébjarnar-
núps, og er ytri hluti hennar
óbyggður. Yzti bær i byggð á
Snæfjallaströnd heitir Tyrðil-
mýri. Þar er Mýrará , og er hún
virkjuð fyrir bæina fimm á
Snæf jallaströndinni og ibúa
Æðeyjar, sem er skammt undan
landi á Snæfjallaströnd.
Æðey er um 2,2 kmTöng og 1 km
á breidd og hefur hún jafnan þótt
hin mesta hlunnindajörð.
Við erum enn á ný stödd við
Neðri-Bakka i Langadal, og er nú
ferð okkar heitið yfir Þorska-
fjarðarheiði.
Vegurinn liggur inn i dalbotn-
inn, fram hjá Kirkjubóli og
Fremribakka og fylgir Langa-
dalsá fyrsta spölinn upp brekkur
Þorskafjarðarheiðar. Þorska-
fjarðarheiði ergrýtt og hrjóstrug,
en útsýn af henni er mikil og við.
Heiðin hefur frá fornu fari verið
ein fjölfarnasta leiðin milli
Breiðafjarðar og Djúps, en ak-
vegur var lagður um hana 1947.
Leið sú er allfjölfarin á sumrin,
en jafnan lokuð á vetrum vegna
snjóþyngsla. Mikill fjöldi
smávatna er á Þorskafjarðar-
heiði. Þar er sæluhús, sem Vega-
gerð rikisins hefur reist.
Skammtfrá Lómavatni, sem er
i um það bil 450 metra hæð, eru
sýslumörk Austur-Barðastrand-
arsýslu og Norður-lsafjarðar-
sýslu.
Cr Dýrafirði.