Tíminn - 25.09.1976, Blaðsíða 6
6
TÍMINN
Laugardagur 25. september 1976.
427 kindur fórust í Svartó
Mó-Sveinsstööum. Eitt hræ
fannst við leit viö Svartá i gær
og hafa þvi 427 kindur farizt i
ánni.
Ekki er ákveðiö hver kemur
til meö aö bera tjóniö af þessu
slysi, en fundur um þaö mál
verður haldinn i upprekstrarfé-
laginu viö fyrsta tækifæri. Jón
Tryggvason, oddviti i Bólstaöa-
hliöarhreppi, sagöi i viötali viö
Timann, aö eðli málsins sam-
kvæmt væri eölilegast aö tjóniö
lenti á upprekstrarfélaginu, en
ekki einstökum bændum, vegna
þess aö samvinna væri um aö ná
fé af afrétti og um réttarstörf.
Jón gat þess, aö þegar heföi
verið haft samband viö Bjarg-
ráðasjóð og heföi af hálfu hans
veriö tekiö liklega i þaö, aö
sjóöurinn myndi taka þátt i
tjóninu, en ósamið er um meö
hverjum hætti það yrði.
Ekki er fullkannaö, hverjir
áttu féö, sem fórst, en öll mörk
voru skráö jafnóðum og hræin
náöust úr ánni. Hræin veröa öll
grafin.
Myndirnar á siðunni tók
Magnús ólafsson, fréttaritari
Timans, viö Svartá, þegar unniö
var aö þvi að ná hræjunum úr
ánni.
Svartá:
1877
- EKKI
1886
Guðmundur Jósafatsson
hringdi frá Blönduósi i gær og
kvaöst hafa rannsakað betur,
hvaöa ár þaö var, er fjárskaöi
varö i Svartá með svipuðum
hætti og i fyrradag. Sagðist
hann hafa komizt að þeirri
niðurstöðu, að það hefði verið
1877, en ekki 1886.
Þetta styðst við það, að sá,
sem varðveitti lengst minn-
ingu um þennan atburð, Jón
Jakobsson Espólin, siðast i
Köldukinn, sagði þetta hafa
verið fermingarárið sitt. En
Jón fæddist árið 1863, og mun
hafa verið fermdur fjórtán
ára.