Tíminn - 20.11.1976, Blaðsíða 2
iilllUlli'
Laugardagur 20. nóvember 1976
erlendar fréttir
• Barnauppboð
tíðkast enn
á Ítalíu
Reuter, Bari á ttaliu. — Fjórir
menn hafa verib dæmdir til
allt að eins árs fangelsisvist-
ar, fyrir illa meöfcrð á ungum
dreng, sem framdi sjáifsmorð
fyrir nokkru siðan, eftir aö
hann hafði verið seldur á
verkamannamarkaði á subur-
hluta ttaliu.
Drengurinn, Michele Co-
lonna, var seldur bónda
nokkrum I nágrenni Bari á
italiu, i ágústmánubi árið
1975. Þá var haldið árlcgt upp-
boðl smábænum Altamura, en
á uppboði þessu eru börn seld
til þrælkunar.
Fyrir rétti i Bari kom fram
að bóndi sá sem keypti Mic-
hele, Giacinto Lorusso,
greiddi foreldrum hans 125.000
lirur, rúmlega tuttugu þúsund
krónur, í reiðufé fyrir hann,
auk þess að hann lét þeim i té
nokkurt magn af osti, við,
mataroliu og salti.
Saksóknarinn i máli mann-
anna fjögurra hélt þvi fram að
drengurinn, sem gengið hefur
kaupum og sölum siðan hann
var ellefu ára gamall, hafi
unnið fimmtán stunda vinnu-
dag að jafnaði, og hafi vinnu-
timinn hafist klukkan þrjú að
nóttu.
í nóvember á siöasta ári,
þegar drengurinn var fjórtán
ára gamall, skaut hann sjálf-
an sig til bana með riffli ,,eig-
anda” sins.
Mennirnir fjórir, sem
dæmdir hafa verið fyrir illa
meðferö á drengnum, eru allir
fyrrverandi „eigendur” að
drengnum.
Móðir drengsins bar fyrir
réttinum aö hann hefði af
sjálfsdáðum hætt I skóla ellefu
ára gamall, þar sem hann
hefði viljað fara aö vinna og
safna sér fé til að kaupa bú-
jörö.
• Góðir hvítir
menn í Suður-
Afríku........
Reuter, Jóhannesarborg. —
Leiðandi hvitir kaupsýslu-
menn i Jóhannesarborg I Suö-
ur-Afrlku, tilkynntu i gær að
þeir hefðu stofnað sjóð, sem
þeir vonuðu aö myndi geta
numiö milljónum sterlings-
punda, en tiigangur hans væri
sá að aöstoöa fjárhagslega þá
blökkumenn sem búa við
kröppust kjör i landinu.
Sjóðnum er ætlaö að styrkja
blökkumenn til kaupa á
ibúðarhúsnæöi, til menntunar
og til þess að koma sér upp að-
stöðu til skemmtanahalds.
• Flugvöliurinn
í Beirút
opnaðurá ný
Reuter, Beirút. — Alþjóðlegi
flugvöllurinn í Beirút vari gær
opnabur að nýju fyrir flugum-
ferð, eftir að hafa veriö lokað-
ur i nær fimm mánuði, vegna
borgarastyrjaldarinnar i
Libanon. Hann var I gær
opnaður undir vernd friöar-
gæsluhers Arababandalags-
ins.
Fyrsta vélin sem lenti á
flugvellinum i gær var Boeing
707 vél frá Middle East Air-
lines, sem flaug lágt inn yfir
borgina og lenti. Þcgar hún
snerti jörðina brutust út mikil
fagnaöarlæti meðal starfs-
manna flugvallarins.
Undir kvöld i gær höfðu
þrjár vélar til viðbótar lent á
vellinum, frá Saudi-Arabiu,
Sviss og Frakklandi. Um
hundrað og tuttugu farþegar
komu meö þeim, en um tvö
hundrub fóru meö þeim þegar
þær sneru frá Beirút.
Midþjónuð ker
nýr liður í meng-
unarvörnum ÍSAL
HV-Reykjavik — Þetta er liður i
mengunarvarnakerfi þvi, sem
setja á upp, og er komið i tvö ker
hjá okkur. Þessar þrjár vikur,
sem iiðnar eru frá uppsetningu
hefur kerfi þetta reynzt nokkuð
vel og viröist jákvætt en fyrri
gerðir hafa ekki reynzt nógu hag-
stæðar, sagöi Ragnar Halldórs-
son, forstjóri islenzka álfélags-
ins, i viðtali við Timann i gær.
Þessi liður mengunarvarna,
sem Ragnar talar um, er
uppsetning svonefndra
miðþjónaöra kerja i álverinu i
.Straumsvik. Þessi tegund kerja
gerir kleift að soga ekki minna en
95% af kergufunum til
hreinsistöðva, og hreinsa þær þar
yfir 99.8% áður en þær fara út i
andrúmsloftið.
— Þetta er auðvitað aðeins
byrjunin, sagði Ragnar ennfrem-
ur i gær, en ef útkoman verður
áfram jákvæð, þá höldum við
sjálfsagt áfram með þetta á
næsta ári. Hins vegar er þetta
nokkuð mikið fyrirtæki að koma
þessu á öll 280 kerin sem hér eru,
enda er mikið rask á kerjunum
við þetta. Myndin hér fyrir ofan
er af öðru kerinu, sem er meö
nýja búnaöinum.
Mikið vatnsveður d Vestfjörðum:
Vegir skemmdust víðast
hvar og urðu ófærir
gébé Rvik — Hið versta veður
gekk yfir Vestfirði i fyrrinótt, og
urðu viða skemmdir á vegum
vegna aurbleytu og skriðufalla.
Úrkoma var geysilega mikil, auk
þess sem mikill stormur geisaði
Að sögn Arnkels Enarssonar hjá
vegaeftirlitinu, urðu nokkrir
vegir ófærir á timabili, en i gær-
dag var unnib sleitulaust að við-
gerðum, og var þeim ekki öllum
lokið i gær, þó að á flestum
stöðum væri orðið fært á ný.
— Skarð kom i Vestfjarðaveg i
Bjarnadal i Onundarfirði, en þar
var mikið vatnsveður og stormur,
sagöi Arnkell. Vegurinn varð
ófær á timabili, en var svo aftur
orðinn fær um miðjan dag i gær,
þar sem tekizt hafði að lagfæra
skarðið i vegfyllinguna. Þó sagði
Arnkell að mikil vinna væri enn
eftir við veginn. — Þá lokaðist
vegurinn út i Ketildali, en ekki er
vitað hvenær viögerð þar lýkur en
vonandi verður það fyrir kvöldið,
sagði Arnkell i gær. — 1 Tálkna-
firði lokaðist vegurinn rétt fyrir
utan þorpið þar sem farið er út i
Stóra-Laugardal og varð þar
alveg ófær. Aætlað var að reyna
að opna veginn i gær eða i dag.
— Grjóthrun var talsvert i
Patreksfirði við svokallaða
Raknadalshlið og minni háttar
aurskriður féllu á veginn, en
þetta var lagfært strax i gær-
morgun að sögn Arnkels. Þá féllu
miklar aurskriður i Óshlið og
komu töluverð skörð i vegbrún-
ina. Þar var unnið við að ryðja
veginn, og vonir stóðu til að þvi
verki lyki i gærkvöldi. Það verður
þó aðeins til bráðabirgða, þvi að
mikil vinna er þar enn eftir, sagði
Arnkell.
— Þorskafjarðarheiði er aðeins
fær stórum og kröftugum bifreið-
um eins og er, en mikil bleyta og
krap er á heiðinni, sagöi Arnkell.
Ekki kvað hann hafa frétzt um
skemmdir viðar á vegum, en á
mörgum stöðum eru vegir blautir
og seinfarnir.
Norðurd
flæðir
yfir
bakka
sina
gébé Rvik —Mikil úrkoma var
i Norðurárdal i fyrrinótt og
varð þvi geysimikið vatns-
magn i Norðurá, sem fiæddi
yfir bakka sína. Oft er hætta á
að fé króist af á eyrum I
vatnavöxtunum. Timinn hafði
samband við bæinn Hraunsnef
i gær, og fékk þær upplýsing-
ar, að mestu flóðin væru á
Deseyjarengjum, sem á
sumum stöðum væru I kafi.
Þar gengur mikið af fé, en þar
sem vatnið hafði Htið sjatnað i
gærkvöldi, var ekkert vitað
um hvort féskaðar hefðu orð-
iö. Flóðin voru i hámarki i
fyrrinótt og gærmorgun, en
fóru minnkandi þegar á
daginn leið. Mjög mikil úr-
koma var, en litið eða ekkrt
rok.
Algengt að bif reiðaeigend-
ur skilji bílana eftir ólæsta
og verðmæti á glómbekk
FJ-Reykjavík. — Við laus-
lega könnun/ sem við í lög-
reglunni gerðum á bif-
reiðastæðum í Reykjavík,
kom í Ijós, að margir bfl-
anna voru ólæstir og því
auðveld bráð fyrir þjófa,
sagði Grétar Norðfjörð,
lögreglumaður, á fundi
með fréttamönnum í gær.
— f ýmsum bílanna voru
mikil verðmæti á glám-
bekk, víxlar, verðbréf,
veski og þess háttar.
A vegum F.l.B. i sam-
starfi við lögregluna i Reykjavik,
er nú hafin herferð til að fá bif-
reiðaeigendur til að læsa bilum
sinum, þegar þeir skilja þá ein-
hvers staðar eftir.
— Þjófnaðir á og úr bifreiöum
hafa aukizt undanfarin ár, sagði
Gre'tar. Mest er um aö stolið sé
segulbandstækjum og útvörpum
úr bilunum. Þaö væri skynsam-
legt, þegar slik tæki eru keypt I
bilinn, aö eigandinn léti grafa
nafnnúmer sitt á tækin til aö auö-
velda lögreglunni að koma tækinu
aftur til eigandans. Með þessu
gætu þeir sem kaupa notuð tæki
lika gengið úr skugga um þaö, að
tækið er heiðarlega fengið, en
ekki stolið.
Varöandi þjófnað á bilum
nefndi Gretar dæmi um mann,
sem ætlaði að skreppa i tvær
minútur inn I hús og skildi
kveikjuláslykilinn eftir i bilnum.
Þegar hann kom út aftur var bill-
inn horfinn og áður en lögreglunni
tókst að handsama þjófinn hafði
hann ekið á nokkra bila og þannig
valdið bifreiðaeigandanum tjóni
upp á nokkur hundruö þúsund.
Grétar kvað minnst um þjófn-
aði úr bilum I Breiðholti og Ar-
bæjarhverfi, þar sem bilastæðin
eru bezt upplýst. Algengt er, þar
sem bilum er lagt i myrkri aö
bensinþjófar fari á kreik og
einnig er mikið um það að dekkj-
um sé stolið undan bilum og jafn-
vel heilum girkössum, þar sem
þjófarnir geta athafnað sig i ró og
næði i skjóli myrkursins. Kvaöst
Grétar vita til þess, að upp heföi
komizt um unglinga, sem heföu
haldið bilum sinum gangandi á
stolnu bensini.
I.æsift verðmæti inni l
faruugursgeymslu eða
hanskahiilfí.