Tíminn - 20.11.1976, Page 15
Laugardagur 20. nóvember 1976
15
Jffl firlfe
f lokksstarfið
Viðtalstímar
alþingismanna og
borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins
Einar Agústsson veröur til viötals á skrifstofu Framsóknar-
flokksins, Rauöarárstig 18, laugardaginn 20. nóv. kl. 10-12.
Framsóknarfélag Akureyrar
Heldur fund i Hafnarstræti 90, mánudaginn 22. nóv. kl. 20.30.
Fundarefni: íþrótta- og æskulýösmál. Bæjarfulltrúar
Framsóknarmanna hefja umræöur og svara fyrirspurnum.
Stjórnin.
Kjósarsýsla
Framsóknarfélag Kjósarsýslu, efnir til almenns félagsfundar f
Hlégaröi, laugardaginn 20. þ.m. kl. 14.30.
Dagskrá: Kosning fulltrúa á kjördæmaþing,— Stjórnin.
Snæfellingar
Annaö spilakvöld framsóknarmanna á Snæfellsnesi veröur f fé-.
lagsheimilinu Röst Hellissandi laugardaginn 20. nóvember kl.
21.00. Heildarverölaun fyrir þrjú hæstu kvöldin eru ruggustóll
frá Aton. Avarp flytur Hjálmar Gunnarsson útgerðarmaður
Nestrió leikur fyrir dansi.
Framsóknarfélögin/
Reykjanes-
kjördæmi
Kjördæmisþing framsóknarmanna i Reykjaneskjördæmi verö-
ur haldið aö Hlégaröi f Mosfellssveit sunnudaginn 21. nóv. og
hefst kl. 10 árd.
Ræöur flytja Einar Agústsson utanrikisráöherra og Jón Skafta-
son alþm.
Formenn flokksfélaga eru minntir á kjör fulltrúa á þingiö.
Stjórn K.F.R.
Félag framsóknarkvenna
í Reykjavík
Tekiö veröur á móti munum á basarinn laugardaginn 20.
nóvember eftir hádegi.
Basarnefndin.
Akranes
Framsóknarfélag Akraness heldur Framsóknarvist i félags-
heimili sinu aö Sunnubraut 21, sunnudaginn 21. nóvember kl.
16.00.
Þetta er 2. vistin i 3. kvölda keppni.
öllum heimill aðgangur meöan húsrúm leyfir.
Wcs n Cfl^e
LEIGJUM
glæsilega veizlusali
fyrir hvers konar mannfagnað, svo
sem: árshátíðir, fundi, ráðstefnur,
jólatrésskemmtanir o. f I. hvort sem er
að degi til eða á kvöldin.
Upplýsingar í simum 2-33-33 & 2-33-35.
Auglýsið í Tímanum
Starfsemi Vængja hefst að nýju
gébé Rvik — Sú 10 sæta vél, sem
nú verður tekin i notkun, er i full-
komnu lagi og nýyfirfarin, sagði
Guðjón Styrkárson, stjórnarfor-
maður Vængja h.f. igærkvöldi, og
sagði ennfremur að undanfarið
hefði verið unnið að skoðun og
viðgerðum á flugvélum Vængja
og hefði það starf verið unnið
undir yfirstjórn sérfræðings frá
Airworks i Bandarikjunum, en
fyrirtækið hefur annast mótor-
Úr nótna-
kveri Önnu
Magdalenu
Bach
A morgun veröur efnt til tón-
leika i Háteigskirkju.
Flutt veröur ýmiss konar tón-
list, sem skráö er I nótnakveri
önnu Magdalenu Bach, eiginkonu
Jóhanns Sebastian Bach. Nótna-
kveriö fékk Anna i afmælisgjöf
frá bónda sinum áriö 1725. Á
næstu árum voru skráö i kver
þetta mörg af eftirlætistónverk-
um fjölskyldunnar, bæöi eigin
tónsmiöar svo og verk frægra
samtiöarmanna. Gætir þar
margra grasa svo sem einleiks-
verka fyrir sembal og orgel, en
einnig söngverk ýmiss konar,
enda var Anna Magdalena mikils
metin söngkona.
1 Háteigskirkju veröa flytjend-
ur nótnakversins þær Ágústa
Agústsdóttir, sópransöngkona,
Auður Ingvadóttir, sellóleikari,
’Helga Ingólfsdóttir, semballeik-
ari og Haukur Guölaugsson,
orgeileikari auk barnakórs Tón-
listarskólans á Akranesi undir
stjórn Jóns Karls Einarssonar.
Þau Agústa, Helga og Haukur
fluttu hluta af þessari tón-
leikaskrá á Skálholtshátiö á s.l.
sumri, en nú hefur ýmsu verið
aukiö við.
viðgerðir fyrir Vængi h.f. frá þvi
að félagið hóf starfsemisína hér á
landi.
— Airworks i Bandarikjunum
annast viðhald og viðgerðir fyrir
37 flugfélög viðs vegar um heim
og hafa 400 manns I sinni
þjónustu, sagði Guöjón. Þá sagöi
hann að ráðinn heföi verið nýr
yfirflugvirki til Vængja hf. Ralph
Hall aö nafni, en hann mun hafa
starfað um 5 ára skeiö hjá Air
New England i Boston, sem eiga
og reka 17 flugvélar af Twin
Otter-gerð. Yfirflugvirkinn er
ráöinn i samráöi við framleiöend-
ur Twin Otter vélanna I De
Haviland i Kanada og þá erlendu
aðila sem séö hafa um öryggis-
mál Vængja h.f., til aö byrja meö
um 6 mánaöa skeiö og er hann
væntanlegur til landsins i næstu
viku, sagöi Guöjón.
— A meðan Ralph Hall dvelst
hér, verður unnið að þvi að
mennta islenzka flugvirkja til aö
annast viðhald og viðgerðir á vél-
um félagsins, en eins og kunnugt
eraffréttum, erenginn maður nú
i landinu laus til starfa meö rétt-
indi á slikar vélar, utan einn á
Akureyri, sagði Guöjón.
— Þaö er vilji forsvarsmanna
Vængja h.f. að fyllsta öryggis sé
gætt i hvivetna og þess vegna
reyndist nauðsynlegt aö fá er-
lenda sérfræðinga og starfsmenn
þar sem sú þjónusta og nauösyn-
legt eftirlit, var ekki fáanlegt hér
á landi, sagði Guðjón Styrkárson
aö lokum.
1 tilefni Iðnkynningar er ákveöiö aö verksmiöja Glits aö Höfðabakka 9,
veröi f fullu starfi laugardaginn 20. nóvember, og opin fyrir almenning
milii klukkan 10 og 16.
Þar gefst kostur á aðskoða hin ýmsu framleiöslustig viö geröleirmuna
svosem mótun leirsins, skreytingu, glerjun og brennsiu. Glit framieiö-
ir f dag meira úrval leirmuna en nokkru sinni fyrr. T.d. handunna
nytjahluti, matarstell, kaffi og tesett, jóla og skrautmuni, popkeramik
og fleira.
tu
viðskiptamanna,
banka
og sparisjóða
Þann20. nóvember 1976 ganga i gildi breyttar reglur um vexti við
innlánsstofnanir, samkvæmt tilkynningu Seðlabanka íslands,
dags. 21. september 1976.
Þessar reglur fela m.a. i sér hækkun á vanskilavöxtum (dráttar-
vöxtum) úr 2% i 2,5% á mánuði eða fyrir brot úr mánuði.
Athygli viðskiptamanna innlánsstofnana er vakin á þvi að frá
20. nóvember 1976 verða tékkar þvi aðeins bókfærðir á hlaupa-
reikninga, að innstæða eða yfirdráttarheimild sé fyrir þeim. Sé
svo ekki, þegar tékka er framvisað, verður reikningnum lokað
fyrir frekari skuldfærslum.
Áhersla er lögð á, að sérhver innstæðulaus tékki verður tekinn til
innheimtumeðferðar, og skuldari jafnframt krafinn um vanskila-
vexti og innheimtukostnað. Innstæða reikningsins verður kyrrsett
og henni ráðstafað til greiðslu kröfunnar svo sem hún nægir til.
Þá er lögð sérstök áhersla á eftirfarandi atriði:
Tékkainnheimta er tekin upp i vaxandi mæli hjá reikningsbanka
og kröfugerð haldið bæði að útgefanda og framseljanda, samfara
lokun reiknings. Seðlabankinn annast innheimtu áfram, þegar til-
efni gefst til.
Breyting i framkvæmd nær nú fyrst til hlaupareikninga einna, en
unnið er að þvi, að heildarreglur, sem ná bæði til hlaupareiknings-
og ávisanareikninga, taki gildi sem fyrst i næsta mánuði.
Reykjavik 19. nóvember 1976
Samvinnunefnd banka og sparisjóða