Tíminn - 21.12.1976, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 21. desember 1976
HEILBRIGÐIS-
OG HOLLUSTU-
EFTIRLIT ILL-
FRAMKVÆMAN-
LEGT VEGNA
MARGSKIPTINGA
Innlendar
kartöflur
endast fram
f apríl
Þrátt fyrir rýra uppskeru kartaflna á siöastliðnu
hausti á Suðurlandi, eru horfur á að þær muni end-
ast út febrúarmánuð, en á Norðurlandi var upp-
skera viöast hvar góð og þar munu innlendar kart-
öflur verða á markaönum fram I aprfl, segir i
fréttabréfi Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins.
Hingað til hefur verið mjög góð nýting á kartöflum
á Suðurlandi, litið um skemmdir, en töluvert
smælki.
Fram að þessu hafa nær eingöngu veriö seldar
kartöflur i II. verðflokki, sem eru fremur smáar.
En frá og með þessari viku verða á markaönum
kartöflur i I. verðflokki sem eru jafnari aö stærö, og
lítið um smáar kartöflur i þeim flokki. Þaö eru
flestir sammála um að bragðgæði kartaflanna hafi
verið með bezta móti i haust og vetur. Grænmetis-
verzlun landbúnaðarins mun fá um 500 tonn af
pólskum kartöflum eftir áramót og i vor hafa verið
tryggðar kartöflur erlendis frá, sem ættu að duga
þar til nýjar italskar kartöflur koma á markaðinn.
Þrátt fyrir lélega uppskeru kartaflna viðast hvar
i V-Evrópu hefur ekki verið sett á útflutningsbann,
en frá Bandarikjunum og Kanada hafa verið seldar
kartöflur viða á meginlandi Evrópu. Þannig að
verðið hefur haldizt nokkurn vegin óbreytt siðustu
vikur.
Flestar tegundir grænmetis eru nú til hjá Græn-
metisverzluninni og allt sem bendir til þess að nægi-
legt framboð verði á grænmeti i vetur.
gébé-Rvik — Það eru eftirlitsmenn frá
mörgum aðilum, sem sjá um heilbrigð-
is- og hollustueftirlit opinberra aðilja,
en það er litil eða engin samvinna milli
þessara aðilja og eftirlitsmennirnir
túlka reglugerðina mjög misjafnlega,
þannig að þeir eiga oft erfitt meö að
framfylgja henni, sagði Sverrir Berg-
mann læknir, þegar Timinn ræddi við
hann nýlega. Hann sagði einnig að þetta
eftirlit heyrði undir mörg ráðuneyti og
að samvinnan milli eftirlitsmanna
þeirra væri mjög litil. Borgarlækni hef-
ur verið falið, að bera þá ósk fram við
heilbrigðisráðuneytið, að það beitti sér
fyrir úrbótum um þetta mál, sem er tal-
ið orðið mjög aðkallandi.
A fundi I heilbrigðismálaráöi nýlega,
var lögð fram greinargerð heilbrigðis-
eftirlitsins, um heilbrigðis- og hollustu-
eftirlit opinberra aðilja. I bókun frá
fundi þessum, segir m.a. að ráðið telji
það áþreifanlega staðfest að fram-
kvæmd ýmissa þátta heilbrigðis- og
hollustueftirlits sé illframkvæmanleg
við núverandi aðstæður. Bókun þessi
var samþykkt samhljóða i heilbrigðis-
ráðinu.
íslendingar meðal
þátttakenda í fyrstu
telex-skákkeppninni
Gsal-Reykjavik — Allnýstárleg skák-
keppni landa á milli veröur haldin eftir
áramótin, svonefnd telex-keppni i skák
— en fyrirkomulag keppninnar er þann-
ig, að hver sveit verður stödd i sfnú
heimalandi og verða leikirnir sendir
jafnóðum á telex milli landanna. Islend-
ingar verða meðal þátttökuþjóða I þess-
ari fyrstu telex-skákkeppni, og mun is-
lenzka sveitin keppa fyrst við Skota.
AðsögnEinars S. Einarssonar forseta
Skáksambands Islands verður hver
sveit skipuð átta mönnum, 6 karlmönn-
um, einni konu og einum unglingi — og
er keppnin útsláttarkeoDni. Einar sagði.
að Skáksambandiö þyrfti að útvega full-
trúa til þess aö vera viöstaddur keppn-
ina I Skotlandi, og jafnframt myndu
Skotar hafa fulltrúa hér á landi það
kvöld, sem keppnin fer fram.
Keppni þessi er haldin að tilstuðlan
Alþjóðaskáksambandsins FIDE og
Alþjóðabréfskáksambandsins og á að
verða lokið fyrir endaöan april. Fjórtán
þjóðir taka þátt i þessari fyrstu telex-
skákkeppni, ísland, Skotland, Finnland,
Pólland, Astralia, Sviþjóö, Noregur,
Danmörk, Frakkland, Holland, Sovét-
rikin, V-Þýzkaland, A-Þýzkaland og
Guyana.
II byqqinqa
— þar sem Alþingi hefur ekki sinnt því
að ætla okkur tekjur til að fjármagna
þetta, segir Sigurður E. Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Húsnæðismálastjórnar
var úthlutað, en lánafjárhæðir
miöastsvo við þann tima er bygg-
ingin er fokheld. Ef byggingarað-
ili fékk úthlutað meöan lánafjár-
hæðin var sett 1.7 milljónir króna
á Ibúð, en húsið verður ekki fok-
helt fyrr en á þessu ári, þegar bú-
ið er að hækka lánið i 2.3 milljón-
ir, „skuldum” við þeim aðila 600
þúsund krónur á hverja ibúð. Það
má jafnvel reikna meö að niöur-
stööutalan verði yfir fimm
hundruð milljónir króna.
Það hefur hreinlega orðið
sprenging i þessum málum hjá
okkur undanfarið. Það er veru-
lega ánægjulegt aö nú skuli sveit-
arfélög og sjálfseignafélög vera
farin aö byggja i svona auknum
mæli yfir aldraða
Á þeim umsóknartima sem nú
stendur yfir hafa borizt, beiðnir
frá sveitarstjárnum vlða um
land. Þegar liggja fyrir umsóknir
um lánveitingar til tvö hundruð
niutiu og tveggja Ibúða, sem sam-
kvæmt núverandi upphæð myndi
verða sex hundruð sjötlu og ein
milljón og rúmlega hálfri betur.
Vafalitið eiga eftir að berast
enn fleiri umsóknir, þar sem um-
sóknarfrestur rennur ekki ut fyrr
en 1. febrúar, en þær umsóknir
sem þegar hafa borizt eru:
Frá borgarsjóði Reykjavikur,
umsókn um lán til byggingar á
tveim ibúöarblokkum fyrir aldr-
aða. önnur á að vera við Dal-
braut, fimmtiu og fjórar ibúðir en
hin viö Lönguhlið, þrjátiu Ibúðir.
Okkur er þar ætlað að taka þátt I
fjármögnun framkvæmda
Reykjavikurborgar.
Frá Samtökum aldraðra I
Reykjavik, umsókn um lán til
bygginga á sextlu og fjórum Ibúð-
um á Flyðrugranda.
Frá ytri Torfustaðahreppi I
A-Hþnavatnssýslu, umsókn um
Framhald á bls. 17
Ð MILLJONIR NÆSTA ÁR
3
ávíðavangi
Kosning í
bankaráðin
1 gær fóru fram kosningar á
Alþingi I bankaráð rikisbank-
anna. Stjórnarflokkarnir
stilltu upp sameiginlega I
þessutn kosningum og voru
listarnir studdir af öllum
stjórnarþingmönnum.
Eina undantekningin
var i sambandi við kjör
bankaráðs Landsbankans.
Þar skilaði einn af 42 stjórnar-
þingmönnum auðu. Kratar,
undir forystu Gylfa Þ. Gisla-
sonar, höfðu gert sér vonlr um
að takast mætti aö kljúfa
stjórnarflokkana i sambandi
við Landsbankakosninguna
með það fyrir augum að
tryggja Baldvini Jónssyni á-
framhaldandi setu i banka-
ráðinu. Gerði Gylfi sér vonir
um, að honum tækist að fá
„lánuö” nokkur atkvæði frá
Sjálfstæðisflokknum, en fór
bónleiöur til búðar, eins og at-
kvæðatöiurnar bera meö sér.
Endursendi
kveðjuna
Albert Guömundsson og
Davið Oddsson eru ekki ein-
ungis samflokksmenn heldur
einnig sessunautar i borgar-
stjórn Reykjavlkur. En þrátt
fyrir, að þeir sitji hlið við hliö,
fljúga ott á tiöum hnútur milli
þeirra. Og jafnan er það
Daviö, sem upphafinu veldur.
Davið reyndi aö klekkja á Al-
bert I sambandi við Armanns-
fellsmáiið svonefnda og hefur
siöan reynt aö gera sam-
flokksmanni sinum flest til
miska.
Albert um Davíö: Maöur veröur
aö sætta sig við það, að bera þaö
við hægra brjóst, sem manni er
skammtað.
A sfðasta borgarstjórnar-
fundi réðist Daviö heiftarlega
á Albert I sambandi við lista-
verkakaup og vandaði honum
ekki kvebjurnar, talaði m.a.
um siðleysi.
Albert Guðmundsson svar-
aöi Davíö Oddssyni um hæl og
sagbist visa siðleysistali borg-
arfulltrúans heint til föðurhús-
anna. Siðan sagði Albert citt-
hvað á þessa ieið:
„Það er nú svo, þegar maö-
ur slæðist af tiiviljun inn i póli-
tikina, að saman veljast inenn
eins og við (þ.e. A.G. og D.O.).
Þá verður maður aö sætta sig
við það að bera það við hægra
brjóst.sem manni er skammt-
aö!"
Talað við Vísi
i ræöu sinni sagöi Albert
Guðmundsson, að sér kæmi
ekki á óvart, þótt þrekvirkis
Daviðs Oddssonar yröi getib á
útsiöu VIsis daginn eftir. Visir
hefur að jafnaöi ekki frétta-
menn I borgarstjórninni, en
viö sérstök tækifæri, þegar
Daviö Oddsson þarf ab ná sér
niðri á Gunnari Thoroddsen
eða Albert Guðntundssyni,
bregzt það ekki, að Visir kem-
ur með fréttirnar daginn eftir.
Albert Guðmundsson reynd-
istsannspár um þetta efni, þvi
aö daginn eftir borgarstjórn-
arfundinn i siðustu viku gat
Visir unt málabúnað Daviðs
Oddssonar á útsiðu. Þannig
má segja, aö Visir sé privat--
málgagn þessa borgarfull-
trúa, þegar borgarmálafréttir
eru annars vegar. —a.þ.