Tíminn - 21.12.1976, Blaðsíða 7
Þriöjudagur 21. desember 1976
l'l' iI'l
7
í jólaumferðinni
F.I. Eeykjavlk. — Bókaútgáfan
Hildur hefur sent frá sér bókina
Ragnheiöi eftir Margit Ravn i
þýðingu Helga Valtýssonar. Set-
berg offsetprentaði.
Ragnheiöur er ung óslóar-
stúlka, aðeins tæplega tvitug.
Hún hleypur i skarðið fyrir systur
sina, sem hefur ráðið sig sem
heimiliskennari i Austurrvogi á
vesturströnd Noregs. Þarna I
sveitinni biða hennar margs kon-
ar ævintýri, bæði skemmtileg og
hið gagnstæða, og hún hittir lika
þann eina rétta, en ýmis ljón
reynast á veginum, m.a. verður
dálitill gullhringur örlagarikur.
Námskeið í
Hróarstungu
Ungmennafélagiö Hróar hélt
félagsmálanámskeiö aö Hallfreö-
arstööum i Hróarstungu, sem öll-
um hreppsbúum var boöin þátt-
taka i. Fjórtán manns sótti nám-
skeiöiö sem stóö yfir átta kvöld
frá 5.-21. nóvember. Leiöbeinend-
ur voru Helgi Gunnarsson og
Sigurjón Bjarnason, formaöur
Ungmenna- og iþróttasambands
Austurlands.
Námskeiðið fjallaði aðallega
um almenn fundarstörf og ræðu-
mennsku, og var það sótt af mikl-
um áhuga þrátt fyrir miklar
vegalengdir eða allt að 25 km. leið
þeir sem lengst áttu. Þá má bæta
við að veðurguðirnir voru einkar
hliðhollir.
Þátttakendur telja aö nám-
skeiðið hafi veriö mjög gagnlegt,
og vilja þeir hvetja sem flestar
sveitir til aö koma á fræöslu I fé-
lagsstörfum.
Formaður Ungmennafélagsins
Hróars eru Jón Steinar Elisson á
Hallfreðarstöðum.
12 myndasögur af Hróa hetti og
köppum hans
gébé Rvlk.— Hjá Nesprent í Nes-
kaupstað er komin út önnur út-
gáfa hinnar vinsælu bókar, Hrói
höttur og kappar hans.Bókin var
fyrst gefin út árið 1965, og í þess-
ari útgáfu hefur verið bætt við
nokkrum sögum sem ekki voru I
þeirri fyrri. I bókinni eru tólf
myndasögur og i allt 252 heilsiðu-
myndir. Sögurnar segja frá bar-
áttu Hróa hattar og kappa hans,
við heri Normanna, fógetann I
Nottingham, þrælaveiöara frá
Algier, þjóðvegaræningja og ó-
prúttna landeigendur. Oft komast
þeir i hann krappann, en vegna
snarræðis og kænsku Hróa hattar
komast þeir úr hverri raun.
— spurninga-
keppni
Eins og undanfarin ár hefur nú
verið efnt til spurningakeppni um
umferðarmál fyrir 6-12 ára börn.
Að þessu sinni taka 32 bæjar- og
sveitarfélög þátt i spurninga-
keppninnieðaallsum 25.400 börn.
Keppnin er haldin á vegum skóla-
nefnda I samvinnu við löggæzlu-
menn á hverjum stað.
Getrauninni er ætlað að vekja
nemendur og fjölskyldur þeirra
til umhugsunar um ýmsa þætti
umferðarinnar og sem slik hefur
hún ótvirætt gildi. Þótt ætlazt sé
til að foreldrar leiöbeini börnun-
um með getraunina er vert að
benda á að þau sjálf fái að glima
sem mest við rétta úrlausn svo
það vekji þau til frekari umhugs-
unar.
Ýmis félög og stofnanir hafa
gefið verðlaun á hverjum stað og
mun lögregla færa þau hinum
heppnu heim á aöfangadag.
Leyndarmál
steinsins
— ný Ijóðabók
eftir Hafstein
Stefánsson
gébé Rvik.— Ú'tgáfan Skákprent
hefur sent frá séi ljóðabðk Haf-
steins Stefánssonar: Leyndarmál
steinsins. í bókina ritar Guð-
mundur G. Þórarinsson nokkur
orð um höfundinn og segir þar
m.a.: Hafsteinn Stefánsson er
enn eitt dæmi þeirra Islendinga
sem vinna fyrir sinu daglega
brauði höröum höndum en hafa
jafnframt bergt af tærustu lind-
um islenzkrar tungu og búa yfir
snjallri frásagnargáfu, bæöi I
bundnu og óbundnu máli, þar sem
saman fer næm tilfinning, meitl-
aðar og hnitmiðaðar setningar, ó-
trúlegt vald á málinu og mikil
yfirsýn yfir viölendi mannlegrar
tilveru. — Bókin er 176 bls. aö
stærð, og sá Skákprent um setn-
ingu og prentun og Guðjón ólafs-
son teiknaði myndir.
LJÓSMYNDIR
SIGFÚSAR
EYMUNDSSONAR
Um 100 ljósmyndir af húsum, mannvirkjum og mann-
lifi i Reykjavik og út um land. Heillandi fróðleikur i
vönduðum myndum um horfið menningarskeið áður
en vélöldin gekk i garð.
Guðmundur
G. Hagalín
CUDM.G.HttCALÍM *
EKKI
FÆDDURi
i CÆR'«
EKKI FÆDDUR í GÆR
sjálfsævisaga Guðmundar G. Hagalins. Gerist á Seyðis-
firði og i Reykjavik á árunum 1920-25. Saga verðandi
skálds sem er að gefa út sinar fyrstu bækur. Sjóður
frábærra mannlýsinga — frægra manna og ekki
frægra.
James
Dickey
leikið við
daiiáanH
LEIKIÐ VIÐ DAUÐANN
eftir James Dickey. Æsispennandi bók, seiðmögnuð og
raunsæ. Hefst eins og skátaleiðangur, endar eftir magnaða
baráttu um lif og dauða bæði við menn og máttarvöld.
Þórarinn
Helgason
I»óflAHINN MCLGASON
ogstörf
LEIKIR OG STÖRF
bernskuminningar úr Landbroti eftir Þórarin Helga-
son. Einlæg lýsing á tilfinningalifi drengs sem verður
fyrir áfalli. Sjór fróðleiks um sveitalif og sveitabörn
i upphafi aldarinnar.
Listamanna-
þættir
— ekki Ijóðabók
ÞAU MISTÖK hafa orðið, er sagt
var frá hinni nýju bók Tómasar
Guðmundssonar, Aö haustnótt-
um, i blaðinu á sunnudaginn, að
hún er i fyrirsögn sögö ljóðabók.
Þaö kemur fram i greininni
sjálfri, að svo er ekki, heldur eru
þetta þættir, sem skáldið hefur
skrifaö um ýmsa listamenn.
Guðmundur
Halldórsson
HAUSTHEIAATUR
eftir Guðmund Halldórsson frá Bergsstöðum. Þriðja
smásagnasafn þessa sérstæða höfundar. Sögusviðið er
sveitin, eftir að fámennt varð á bæjum og vélin komin
i staðinn fyrir glatt fólk og félagsskap. Næmur skiln-
ingur á sálarlifi fólks og sálrænum vandamálum
einkennir þessar sögur.
Almenna Bókafélagið
Austurstræti 18, Bolholti 6.
simi 19707 simi 32620