Tíminn - 21.12.1976, Blaðsíða 11
Þriöjudagur 21. desember 1976
11
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. RLstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn-
arfulltrúi:. Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri:
Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur i Edduhúsinu
viö Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur i Aöal-
stræti 7, simi 26500 — afgreibslusimi 12323 — auglýsinga-
simi 19523. Verö i lausasölu kr. 60.00. Askriftargjald kr.
1.100.00 á mánuöi. Blaðaprenth.f..
AAikilvæg
löggjöf
Frumvarpið um rannsóknarlögreglu rikisins
og fylgifrumvörp þess, hafa nú verið afgreidd
sem lög frá Alþingi. Með þvi er tvimælalaust
stórt spor stigið til að treysta réttaröryggið i
landinu, með tilliti til nýrra og breyttra að-
stæðna.
Frumvarpið um rannsóknarlögregluna var
samið af nefnd, sem Ólafur Jóhannesson dóms-
málaráðherra skipaði 6. október 1972 til að endur-
skoða dómsmálakerfi landsins og er það þvi að-
eins hluti af þvi verkefni. Samkvæmt frumvarp-
inu, sem nú er orðið að lögum, verður komið á fót
sérstakri stofnun, rannsóknarlögreglu rikisins.
Yfirmaður þessarar stofnunar nefnist rann-
sóknarlögreglustjóri. Ljóst er að embætti rann-
sóknarlögreglustjóra rikisins verður mjög
þýðingarmikið. Það heyrir beint undir dóms-
málaráðherra, enda þarf rannsóknarlögreglu-
stjóri að hafa jafna aðstöðu gagnvart öllum lög-
reglustjórum á landinu, stöðu sinnar vegna.
Hann verður að sjálfsögðu að hlita fyrirmælum
rikissaksóknara eins og aðrir lögreglustjórar.
Samkvæmt þessu verður yfirsakadómarinn i
Reykjavik eigi lengur yfirmaður rannsóknarlög-
reglunnar i Reykjavik, svo sem nú er. Er þar með
stigið spor i þá átt að aðskilja dómsvald i opin-
berum málum og lögreglustjórn, þó að eigi þyki
fært að stiga það skref til fulls.
Lögin gera ráð fyrir að starfandi verði sérstök
rannsóknarlögregludeild við lögreglustjóraemb-
ættið i Reykjavik, er rannsaki til fullnustu vissa
flokka brotamála, þar á meðal brot á umferðar-
lögum, sem er einn umfangsmesti málaflokkur-
inn a.m.k. að þvi er málafjölda varðar. Þegar er
starfandi sérstök umferðadeild hjá lögreglu-
stjóraembættinu i Reykjavik. Má ljóst vera, að
það verður kostnaðarminna fyrir rikissjóð og
verulegt hagræði fyrir almenning, að slik brot
séu rannsökuð til fullnustu á sama stað i stað þess
sem nú er, að frumrannsókn fer fram hjá lög-
reglustjóraembættinu, sem siðan sendir málin til
rannsóknarlögreglu til áframhaldandi rannsókn-
ar.
Rannsóknarlögreglu rikisins er aftur á móti
ætlað að rannsaka meiriháttar afbrot, svo sem
brot á hegningarlögum. Ætlazt er til, að hún hafi
á að skipa hinum hæfustu mönnum, sem völ er á,
sérfróðum á ýmsum sviðum rannsókna. Ekki er
sizt nauðsynlegt, að þar séu menn, sérfróðir um
bókhaldsrannsókn, en rannsókn mála dregst oft
úr hófi fram, þegar bókhaldsrannsókn þarf að
framkvæma. Rannsóknarlögreglustjóri á að geta
sent sérfræðinga sina til aðstoðar lögreglustjór-
um hvar sem er á landinu, þegar þörf krefur.
Einnig er eðlilegt, að rannsóknarlögregla rikisins
hafi með höndum rannsóknir á þeim málum, sem
spanna yfir mörg lögsagnarumdæmi svo sem oft
er t.d. i smyglmálum.
Sennilegt er, að verulegur aukakostnaður fylgi
þessari nýju skipan þótt hún geti jafnframt leitt
til sparnaðar á vissum sviðum. Aðalatriðið er
vitanlega það, eins og sagði i greinargerð frum-
varpsins, að samræma rannsóknir brotamála um
allt land og stuðla að fljótvirkari og öruggari
meðferð brotamála. Þvi er næsta liklegt að þessi
nýja löggjöf muni marka mikilvæg spor i réttar-
farsmálum.
Þ.Þ.
Stjórnarfar Spónar þokast í lýðræðisótt
ÞAÐ þykir ljóst eftir
þjóðaratkvæöagreiðsluna,
sem fór fram á Spáni
siðastliðinn miövikudag, aö
Jóhann Karl konungur og
rikisstjórn hans eigi traustu
fylgi að fagna um þessar
mundir hvað sem siðar verð-
ur. Úrslit atkvæðagreiðslunn-
ar urðu mikill sigur fyrir kon-
ung og stjórn hans. Atkvæða-
greiðslan snerist um, hvort
þjóðin vildi staðfesta lög þau
um nýtt þingstjórnarfyrir-
komulag. sem nýlega höfðu
verið afgreidd frá hinu stjórn-
skipaða þingi Spánar. Sam-
kvæmt þeim verður þingið
kosið i heinum kosningum og
verður það i tveimur deildum.
I neðri málstofunni verða 300
fulltrúar, allir kosnir af þjóð
inni, en 204 i efri málstofunni,
þar af verða 40 skipaðir af
kóngi, en aðrir þjóðkjörnir.
Allir flokkar nema kommún-
istar fá að taka þátt i kosning-
unum. Þetta olli miklum
ágreiningi og reyndu flestir
flokkanna að fá þessu breytt,
en stjórnin svaraði þvi, að hún
myndi ekki breyta þessu
fyrir kosningarnar, en nýkjör-
ið þing fengi vald til að gera
það. Af þessum ástæðum skor-
uðu seytján flokkar af 51, sem
þegar hafa verið stofnaðir á
Spáni, á kjósendur að taka
ekki þátt I atkvæðagreiðslunni
og mótmæla þannig útilokun
kommúnista. Aðeins þrir af
þessum flokkum eiga veru-
legu fylgi að fagna, eða sósial-
demókratar (PSOE), sósial-
istar og kommúnistar. Þrátt
fyrir þessa áskorun þeirra,
varð þátttaka þó mikil, eða
77,3%. Af þeim greiddu 94,2%
atkvæði með hinu nýja fyrir-
komulagi, en 2.6% sögðu nei.
Aðrir skiluðu auðu, eða seðlar
voru ógildir. Þetta þykir að
vonum mikill sigur fyrir
stjórnina. Þeir, sem biðu
mestan ósigur voru hægri-
sinnar, sem beittu sér gegn
breytingunni og hvöttu menn i
nafni Francos að skila nei-
seðlum. Vinstri flokkarnir
urðu einnig fyrir verulegu
áfalli, þar sem þátttakan varð
mun meiri en spáð hafði verið.
Fylgismenn þeirra hafa annað
hvort ekki farið eftir áskorun
þeirra eða eru ekki fleiri en
þetta.
ÞAÐ þykir vafalitið, að
vinsældir kóngs hafi mjög
stutt að þessum úrslitum.
Þjöðin virðist að sinni hafa
fylkt sér um þá stefnu hans að
koma á lýðræðislegum stjórn-
arháttum i áföngum.
Konungur fór sér hægt af stað
og fól fyrst sama manni að
gegna störfum forsætisráö-
herra og ' gegnt hafði þvi
siðustu árin i stjórnartið
Francos. 1 júlimánuði siðast-
liðnum breytti hann svo um
stjórn og fól hana nánum vini
sinum, Adolfo Suarez 44 ára
gömlum og tiltölulega litið
þekktum. Suarez virðist þegar
hafa sýnt það, að hann hafi
verið traustsins verður. Hon-
um tókst að fá hið stjórnskip-
aða þing, sem Franco hafði
valið á sinum tima, til að fall-
ast á miklu róttækari breyt-
ingar en flestir þoröu að gera
sér vonir um i upphafi. Jafn-
fram t hefur honum tekizt að fá
meirihluta þjóðarinnar til að
samþykkja hana. Samkvæmt
þessum nýju lögum verður
kosið til þings á Spáni i mai
eða júni næstkomandi, og
verður með þvi stigið mikil-
vægt skref til að koma á
lýðræðislegum stjórnar-
háttum á Spáni. Jafnframt
opnast sá möguleiki, að Spán-
verjar fái aðild aö Efnahags-
Karl Jóhann og Soffia drottning.
vinstri eru þrir flokkar eins og
áður er getið, sem hafa veru-
legt fylgi. Til hægri eru tveir
flokkar, sem taldir eru liklegir
til verulegs fylgis. Annar
þeirra er kristilegur flokkur,
en hitt er Sameiningarflokk-
urinn, sem er undir forystu
Manuel Fraga Iribarne, sem
var innanrikisráðherra i
fyrstu stjórninni, sem Jóhann
Karl myndaði. Meðal forystu-
manna hans er einnig Lopez
Rodo, sem hefur verið mikill
áhrifamaður i katólska félags-
skapnum Opus Dei, sem veru-
lega kom við sögu i stjórnartið
Francos. Margir spá þvi að
þessi flokkur eigi eftir að
vera helzti ihaldsflokkur
Spánar, en þó verði hann frek-
ar frjálslyndur, þvi að þau
öfgaöfl, sem eru lengst til
hægri, muni ekki skipa sér
undir merki hans, heldur
reyna að stofna ný samtök,
sem ekki eru þó likleg til
mikils fylgis að sinni. Fyrir
nokkru hefur svo verið stofn-
aður nýr flokkur, sem lýst
hefur yfir þvi, að hann sé mið-
flokkur og muni standa milli
hægriog vinstri. Helzti foringi
hans er Jose Maria de Areilza,
sem var utanrikisráðherra i
fyrstu stjórn konungs, en
hafnaði þátttöku i núverandi
rikisstjórn. Annarforingi hans
er Pi Canbanillas Gallas, sem
var um skeið upplýsingamála-
ráðherra hjá Franco, en var
vikiö úr starfi, þvi hann þótti
of frjálslyndur. Ýmsir spá þvi
að Suarez forsætisráðherra
kunni að skipa sérundir merki
þessa flokks, ef hann blandar
sér þá nokkuð i flokkabarátt-
una að sinni. Annars er á
þessu stigi erfitt að spá um
stuðning flokkanna, þvi að
fyrst nú mun barátta þeirra
hefjast að ráði með tilliti til
kosninga á komandi vori.
Þ.Þ.
bandalaginu og Atlantshafs-
bandalaginu, en slikt var úti-
lokað meðan einræðisstjórn
fór þar með völd.
EFTIR er hins vegar að sjá,
hvernig hið nýja stjórnkerfi
gefst Spánverjum. Margir spá
mikilli flokkssundrungu og
upplausn. Þegar hafa verið
stofnaðir rúmlega fimmtiu
flokkar eins og fyrr segir.
Fæstir þeirra eru þó ekki
annað og meira en nafnið. Til
Donna Carmen, ekkja
Francos, að greiða atkvæði.
ERLENT YFIRLIT
Jóhann Karl hefur
stuðning Spdnverja