Tíminn - 21.01.1977, Blaðsíða 2
2
Föstudagur 21. janúar 1977.
hreppstjóri á Sleitustööum i
Skagafirði, 93 ára 23ja janúar,
situr iengst til vinstri á þessari
mynd. Sigrún dóttir hans, hús-
freyja á Sleitustööum, 67 ára,
situr lengst til hægri. Fyrir aft-
an þau standa Þorvaidur sonur
Guörúnar 44 ára og Eyrún dóttir
hans, 20 ára, og miili langömmu
sinnar og langalangafa situr
Ingi Þór sem er tveggja og hálfs
drc
ætt
erlendar f réttir
• Jimmy Carter
tekinn
við embætti
Keuter, Washlngton. —
Jimmy Carter sór i gær emb-
ættiseiö sinn sem þritugasti og
niundi forseti Bandarfkjanna,
og hét þvl jafnframt, aö helga
störf sin „nýju upphafi, nýju
átaki” eftir reynslutima þann,
sem þjóöin heföi gengiö i
gegnum undanfariö.
Carter sem cr fimmtiu og
tveggja ára gamail, fyrrum
yfirmaöur i sjóher Bandarikj-
anna og fyrrvcrandi fylkis-
stjóri I Georgia-fylki, er fyrsti
forsetinn úr suöurrikjum
Bandarikjanna um meira en
þriggja alda skciö. Hann hefur
risiö meö eindæmum hratt
upp á stjörnuhimininn.
t ræöu sem Carter hélt viö
embættistöku sina i gær, hét
hann þvi aö hefja nýjar aö-
geröir til þess aö hægja á vig-
búnaöarkapphalaupinu, en
sagöi jafnframt aö Bandarikin
myndu viöhaida nægilegum
hernaöarlegum styrk til þess
aö þurfa ekki aö sanna getu
sina i styrjöld.
Taliö er aö um eitt hundraö
þúsund áhorfcndur hafi fylgzt
meö þvi þegar Carter sór
embættiseiö sinn fyrir framan
þinghúsiö i Washington f gær,
en miiljónir manna til viöbót-
ar, bæöi innan Bandarfkjanna
og utan, fylgdust meö athöfn-
inni i sjónvarpi. Henni var
sjónvarpaö beint.
Carter stóö bak viö hlif úr
skotheldu gleri þegar hann sór
eiöinn og Gerald Ford, fráfar-
andi forseti Bandarikjanna
stóö honum til annarrar hand-
ar.
Skömmu áöur en Carter sór
embættisciö sinn sem forseti,
var Walter Mondale svarinn i
embætti varaforseta.
• Skutu hver
ó annan og
fórnarlambið
slapp
Reuter, Róm — Atta daga erf-
iöleikum hálf-fertugrar hús-
móöur i Róm lauk 1 gær, þeg-
ar þrír menn, sem höföu rænt
henni, lentu I innbyröis iildeil-
um og hófu skothrtö hver aö
öörum.
Eftir stuttan bardaga óku
mcnnirnir á brott 1 bifreiö, og
konan, frú Maria Boldrin,
dóttir fésýslumanns I Padua,
uppgötvaöi skyndilega aö hún
var frjáls feröa sinna.
Tveir mannræningjanna
fundust skömmu siöar, særöir
af byssukúlum, en hins þriöja
er enn leitað.
Vfirvöld kunna enga skýr-
ingu á deilum mannanna og
bardaganum,
• Arfleiddi
Jesú
Reuter, Portsmouth á Eng-
landi. — Ernst Digwced, fyrr-
um kennari, sem lézt á siöasta
ári, áttatiu og eins árs aö
aldri, arfleiddi Jesú Krist aö
tuttugu og sex þúsund sterl-
ingspundum (yfir sjö milljón-
um islenzkra króna).
Eftir þvi sem lögfræöíngar
segja hefur erföaskrá kennar-
ans skapaö nokkurt vanda-
mái. I henni er tekiö fram, aö
peningana skuli ávaxta á ein-
hvern hátt i áttatiu ár, en siö-
an segir: - Ef Jesú Kristur
kemst á þessum áttatfu árum
til valda á jöröinni, þá skuli
þeir sem hafa fé þetta og á-
vöxtu þess meö höndum,
veröa sér úti um sannanir sem
færa þeim heim sanninn um
hver hann er, afhenda honum
alit þaö fé og eignir sem þeir
hafa meö höndum fyrir hans
hönd. —
— nemendur skólanna fó lifandi
starfskynningu
MÓ-Reykjavik. — Nýstárieg
kynning á Islenzkum iönaöi fer
fram i tveimur skóluin IKópavogi
i tilefni af „Degi iönaöarins” sem
veröur föstudaginn 28. jan. n.k..
Þaö eru nemendur i Vighólaskóla
og Þingholtsskóla sem hafa und-
irbúið kynninguna meö þvi aö
fara I smáhópum í fjölmörg fyrir-
tæki og tekiö saman greinargerö
um starfsemi þeirra. Siöan setja
nemendurnir upp sýningu f skól-
um sfnum á framleiösluvörum
fyrirtækjanna.
Þetta verk vinna nemendurnir i
samráöi við kennara sina, og fá
þeir með þessu mjög lifandi
starfskynningu..Sem dæmi um
sýmingarnarmá nefna, að i Þing-
holtsskóla mun byggingariðnað-
ur, matvælaiðnaður, þjónustuiðn-
aður og prentiðnaður verða
kynntur, en i Vighólaskóla fer
m.a. fram kynning á húsgagna-
iðnaði, fataiðnaði og listiðnaði..
Sýningarnar verða opnar al-
menningi kl. 14.00 á föstudag og
verða opnar iþrjá daga,eða til kl.
22.00 á sunnudag.
Iðnaðarráðherra dr. Gunnar
Thoroddsen og frú munu heim-
sækja Kópavog í tilefni iðnkynn-
ingarinnar og skoða iðnfyrirtæki
þar fyrir hádegi ásamt forustu-
mönnum islenzks iðnaðar. Þeir
munu síðan veröa við opnun sýn-
inganna I barnaskólunum, sem
fer fram kl. 11.00.
Kl. 14.30 hefst slðan fundur um
iðnaðarmál i Félagsheimili
Kópavogs og mun iönaðarráö-
herra flytja þar ávarp, en fram-
söguerindi flytja Björgvin Sæ-
mundsson bæjarstjóri og Daviö
Sch. Thorsteinsson, form. Félags
ísl. iðnrekenda.
Fundarstjóri verður Magnús
Bjarnfreðsson.
Umdæmis
stjóra Lions
þinga
F.I. Reykjavik — Umdæmis-
stjórar Lionshreyfingarinn-
ar á Norðurlöndum þinga i
Reykjavik að Hótei Loftleiö-
um dagana 21.-22. janúar
n.k. Þátttökurétt I ráðstefn-
unni eiga núverandi og fyrr-
verandi umdæmisstjórar en
gert er ráö fyrir 60-70 erlend-
um þátliakendum.
Umdæmisstjórar Noröur-
landa hittast árlega, og
munu þeir á þessu þingi
einkum fjalla um unglinga-
skipti og framtið Lions-
hreyfingarinnar, sem er al-
þjóðahreyfing.
Fjölumdæmisstjóri er nú
Axel V. Magnússon, ölfusi,
umdæmisstjóri 109 A er
Gunnar Asgeirsson, Reykja-
vik og umdæmisstjóri 109 B
er Asgeir H. Sigurðsson,
Vopnafirði.
.......... ^
Nýstárleg kynning
á iðnaði í Kópavogi
GS tsafiröi— Eins og sagt var frá
i blaðinu 1 gær, fékk vélbáturinn
Guðný drauganet i skrúfuna, og
dró varðskip bátinn inn til Dýra-
fjarðar. Þar tókst að losa netið og
virinn úr skrúfunni, og viö fyrstu
athugun virtist sem litlar eða
engar skemmdir hefðu orðið á
vélinni. Vélbáturinn Guðný
neyddist til að skilja eftir linuna,
sem nýbúið var að leggja þegar
báturinn fékk netið i skrúfuna.
Eftir að netið hafði verið losað gat
báturinn farið út á miðin og náð
allri linunni inn aftur. Fór þvi
betur en i fyrstu leit út fyrir, þvi
óttazt var að linan myndi tapast
og að vélin hefði stórskemmzt.
Landaði báturinn afla sinum á
Isafirði laust eftir hádegi i gær.
Rússi með
smokkfisk
í beitu
Þetta sovézka skip liggur nú
i Sundahöfn I Reykjavik, en
þangaö kom þaö meö farm af
smokkfiski, sem nota á i
beitu hérlendis. Þaö viröist
nú liöin tiö, aö tslendingar
geti sjálfir séö sér fyrir beitu
á öngla sina, en ef til vill er
þetta eölileg samvinnuþró-
un: sjá okkur fyrir beitu til
aö veiöa þann fisk sem viö
siöan seljum þeim.
Góð rækjuveiði í
ísafjarðardjúpi
— rækjumiðin í Öxarfirði enn
lokuð vegna mikils seiðamagns
gébé Reykjavik — Rækjuveiöi
á ísaf jaröardjúpi hefur gengið
mjög vel frá þvi aö hún hófst
að nýju eftir áramótin, sagði
Guðmundur Sveinsson
fréttarritariblaðsins á Isafirði
i gær. 1 Djúpinu stunda um 47
bátar rækju og fá ljómandi
góða veiði, 1 til 1 1/2 tonn i
róðri. Rækjaner yfirleitt mjög
góð.
Rækjumiðin i öxarfirði hafa
verið lokuð frá þvi fyrir ára-
mót vegna hins mikla seiða-
magns sem bátarnir fengu I
rækjutrollin. Hjá sjávarút-
vegsráðuneytinu fékk blaðið
þær upplýsingar, að eftir
áramótin hefði það komið i
ljós, þegar eftirlitsmaður var
við athuganir á rækjumiðun-
um I öxarfirði, að sjaldan hafi
verið eins mikið seiöamagn i
firðinum og nú. Miðin verða
þvi lokuð um ófyrirsjáanlegan
tima, en gaumgæfilega verður
fylgzt með seiðamagninu.
Rannsóknarskip Hafrann-
sóknarstofnunar, Dröfn, er
Framhald á bls. 19.