Tíminn - 21.01.1977, Blaðsíða 11

Tíminn - 21.01.1977, Blaðsíða 11
Föstudagur 21. janúar 1977. 11 Japanskir og amerískir vísindamenn álykta: * Stm í. dt , fli . ®8Si&fí _ >t ;■** ' * %-» - ^ '*"'*^C**- w ' ^ >v Tk' , -** m b#Sr V” *<IA Japönsku vísindamennirnir notufiu apa við tilraunir sinar, og kynnu margir aö álita, að meðferðin sem þeir fengu væri harlaómannúöleg. HLUTVERK HEILANS OFMETID? Hefur heilinn eins litið að segja I sambandi við gáfur og hjartað 1 sambandi við tilfinningalifið? Æ fleiri visindamenn hallast að þeirri skoðun, að svo sé, og byggja þeir á niðurstööum rannsókna, sem gerðar hafa verið á þessu sviði á siðustu ár- um. Liklega eru flestir nú á tlmum orðnir afhuga þeirri kenningu forfeðra okkar, að ást og tilfinn- ingar byggju i hjartanu, en þrátt fyrir það lifa enn I málinu orð og orðatiltæki, sem minna á hana, s.s. „hjartasorgir”, „hjartans útvalinn” o.þ.h. En aö heilinn skuli ekki vera æðsta liffæri likamans, og miðstöð gáfna og æöri taugaviðbragöa, kemur vist flestum á óvart. Þaö er rannsóknarstofnun i læknisfræði i Tókýó, sem i sam- ráði viö Marylandstofnunina i Bandarikjunum hefur unniö að rannsóknum á þessu, og nú fyrir skömmu sendi hún frá sér skýrslu um niöurstööur rann- sóicnanna. Eru þá rúm tiu ár lið- in frá þvi visindamenn fyrst fóru aö fjalla um þetta vanda- mál. 1 skýrslunni segir m.a., að heilinn vinni aðeins eins og tölva. Hann taki á móti upp- lýsingum frá öðrum likamshlut- um og viðbrögð hans við þeim séu ósjálfráð. Sem dæmi má taka, ef maður er úti og kalt er i veðri. Fyrst kólnar honum á fót- um, höndum og húðinni. Þaðan fara boö til heilans, og svarar hann meö þvi að senda frá sér önnur boð. I þessu tilfelli til hjartans um að dæla hraðar og auka blóöstreymið. En þaö sé greinilegt, aö þessi svörun heil- ans gerist alveg án „skilnings” af hans hálfu. ómannúðlegar tilraunir? Fyrir nokkrum árum hófu visindamenn við Maryland- stofnunina, að gera tilraunir á öpum með það i huga að finna út hvert hlutverk heilans væri i raun og veru. Tilraunirnar voru i þvi fólgnar aö eyöileggja heil- ann I tilraunadýrunum með ákveðnum geislum. Frá eyði- leggingu heilans að dauöastund- inni, liðu aöeins fimm minútur, en á þeim tima tókst visinda- mönnunum aö gera allmörg gáfnapróf á heilalausa apanum, — sams konar próf og gerö höfðu veriö á honum áöur. Það merkilega var-að apinn svaraöi þeim alveg jafn vel og áður. Það virðist þvi sem taugaviðbrögð hinna ýmsu liffæra likamans fari i gegnum einhverja aðra stöð en heilann, og að ekki skipti máli i þvi sambandi, hvort hann er til staðar eða ekki. Hópur japanskra visinda- manna, sem kynntu sér þessar niöurstöður viö Maryland- stofnunina árið 1971, uröu hug- fangnir af þessu viðfangsefni. Þeir álitu sem svo, að úr þvi að gáfurnar væru ekki háöar heilanum einum, hlytu aörir likamshlutar að gegna allt ööru hlutverki en talið hafði verið fram til þessa. Viö heimkomuna hófu þeir þvi umfangsmiklar til- raunir. Þeir tóku fjögurra ára gamlan sjimpansa, og fram- kvæmdu á honum fjölmarga lif- færaflutninga til að athuga hvort það heföi nokkur áhrif á „gáfur” hans. Þeir skiptu á öll- um mikilvægum limum og innri liffærum hans, höndum, fótum, lifur, nýrum, hjarta, og æxlunarfærum. „Gáfur” apans voru mældar eftir ákveðnu stööluðu kerfi fyrir og eftir hvern flutning, og i ljós kom, að þær breyttust i hvert sinn. Tilraunirnar sýndu, aö eftir aö skipt hafði veriö um lifur i apanum, batnaði sjón hans. Ný nýru deyfðu minni hans, en ann- Albert Einstein var sénl. Hafði hann kannske gáfurnar I fótun- um? ar flutningur innri liffæra skerpti yfirleitt athyglisgáfu hans. Ný kynfæri gerðu hann árásargjarnan, en ný augu juku kynhvöt hans. Ennfremur fór fram flutningur á húð, hala og vöðvavefjum, sem kölluðu fram greinilegar breytingar á „gáfunum”. Tilraunadýriö stóð að lokum uppi með alveg nýjan persónuleika, að sögn japönsku visindamannanna. Og eftir margra ára rannsóknir telja þeir sig nú geta fullyrt, aö þessi kenning sé rétt. Það er auðvitað ekki hægt að framkvæma tilraunir af þessu tagi á mönnum, og það eru án efa margir, sem fordæma svona meöferö á dýrum. En Japanirn- ir segja, að mjög mikilvægt sé, aö þessum rannsóknum sé hald- ið áfram, og geti þær haft mikil áhrif á þróun mannsins i fram- tiöinni. Þeir bera þetta saman við hina fornu nálarstunguað- ferð Kinverja, sem Vestur- landamenn hafa enn ekki getaö útskýrt. — Hlutverk heilans I heildarlikamsstarfseminni er ofmetið — segja þeir, og benda á, að bæöi fyrrgreindar rann- sóknir sem og nálarstunguað- ferðin sanni það ótvirætt. I lífeðlisfræðinni heyrir það nú fortiöinni til að tala um hjartaö sem „bústað tilfinninga og ástar”. Við eigum ef til vill eftir að upplifa þaö, að heilinn sem „miðstöö gáfna” fari sama veg. (þýtt og endursagt JB)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.