Tíminn - 21.01.1977, Side 13

Tíminn - 21.01.1977, Side 13
Föstudagur 21. janúar 1977. 13 leika tvö tónverk eftir Max Reger: Serenööu I G-dúr fyrir flautu, fiölu og viólu op. 141 a og Allegro grazioso fyrir flautu og pianó / Jacqueline Eymar, Gunter Kehr, Erich Sichermann og Bernhard Braunholz leika Píanókvartett I g-moll eftir Fauré. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veöurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Viö vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miödegissagan: „Bókin um litla bróöur” eftir Gustaf af Geijerstam Séra Gunnar Árnason les þýö- ingu sina (9). 15.00 Miödegistónleikar. Kammerhljómsveit Berlin- ar leikur Konsertinó nr. 2 i G-dúr eftir Ricciotti Sin- fóniu i C-dúr, „Leikfanga- sinfóniuna”, eftir Haydn og „Smámuni”, balletttónlist eftir Mozart. Stjómandi: Hans Benda. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphom. 17.30 Ctvarpssaga barnanna: „Borgin viö sundið” eftir Jón Sveinsson (Nonna) Freysteinn Gunnarsson Is- lenskaöi. Hjalti Rögnvalds son byrjar aö lesa siöari hluta sögunnar (fyrri hlut- inn var á dagskrá vorið 1975). 17.50 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 I Hvltársiöu minning- anna Guörún Guölaugsdótt- ir talar viö Benjamin Jó- hannesson bónda á Hall- kelsstööum. 20.00 „Goyescas” eftir Enrique Granados Mario Miranda leikur á planó. 20.45 Myndlistarþáttur I um- sjá Þóru Kristjánsdóttur 21.15 Einsöngur: Joan Sutherand syngur Nýja fil- harmonluhljómsveitin leik- ur meö: Richard Bonynge stj. 21.30 Útvarpssagan: „Lausn- in” eftir Arna Jónsson Gunnar Stefánsson les (8). 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir. Ljóöa- þáttur. Umsjónarmaöur: Njöröur P. Njarövik. 22.40 Afangar Tónlistarþáttur I umsjá Asmundar Jónsson- ar og Guöna Rúnars Agn- arssonar. 23.30 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp Föstudagur 21. janúar. 20.00 Fréttir og veöur 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Prúöu ieikararnir Leikbrúðuflokkur Jim Hen- sons bregður á leik ásamt söngvaranum Jim Nabörs. Þýöandi Þrándur Thorodd- sen. 21.00 Kastljós Þáttur um innlend málefni. Umsjónar- maöur ómar Ragnarsson. 22.00 Kreppan og hvíta tjaldit (Brother, Can You Spare A Dime?) Bresk kvikmynd frá árinu 1974. Myndir lýsir bandartsku þjóöfélagi á ár- unum 1930—1942. Þráöur er spunninn úr fréttamyndum og leiknum kvikmyndum frá þessum tima og teflt fram ýmsum andstæöum raunveruleika og leiks. Franklin D. Roosevelt forseti og James Cagney leikari eru söguhetjur hvor á sinn hátt, og auk þeirra kemur fram I myndinni fjöldi nafntogaöra manna og kvenna. Þýöandi Stefán Jökulsson. Dagskrárlok. Hinrik konungur VIII og konur hans sex Eftir Paul Rival hann mundi aldrei skilja, djúpið milli kynslóðanna er aldrei hægt að brúa. Það hafði ekki verið meira en fimmtán og seytján ára aldursmunur á honum og Onnu og Georg og þó hafði honum aldrei tekizt að ná til þeirra. Hinrik var orðinn þreyttur á að þrá, hann var næstum orðinn þreyttur á að lifa. Richmond Því skyldi hann ekki vera ánægður með Richmond, hann var næstum fulltíða. Hinrik þekkti hann og þótti vænt um hann. Richmond var mörgum gáfum gæddur, hann var f ríður, menntaður og hugrakkur. Hann las Ijóð hann virti föður sinn og elskaði hann, á hverju kvöldi kom hann og bauð honum góða nótt með kossi þá fékk Hinrik innsýn í hið tæra og trygga hugarfar drengsins. Richmond hafði allt til að bera, sem Hinrik sjálfur hefði viljað eiga i sínu fari, Richmond elskaði lífið og lysti- semdir þess, en á honum var hvorki blettur né hrukka. í fögrum augum þessa konungborna riddara, mátti lesa þunglyndi þessarns, sem getið er af ást, hins óskilgetna, þess sem enginn óskaði að yrði til, barnsins, sem hafði verið vanrækt og alið upp hjá vandalausum. Árum sam- an hafði Hinrik ekki einu sinni hugsað til hans og móðir hans var eins og hver önnur léttúðardrós, hún var alltaf glöð og dálítið kenjótt, hún hafði alltaf notið góðs af að hafa verið frilla konungs, Bessie Blount hafði notfært sér samband sitt við Hinrik til hins ýtrasta. Þegar hún varð ekkja eftir hinn kynsæla Taillebois, hafði hún hafn- að bónorði Lord Grey, sem var frændi konungs, henni fannst Grey of gamall og nízkur. Hún giftist einum rík- asta og föngulegasta manni við hirðina, sem var átján árum yngri en hún, nafn hans var Lord Clinton og í faðmi hans hafði Bessie, alveg gleymt Richmond. Hinrik elskaði Richmond, það var eins og hann hefði þörf f yrir að bæta honum þá ástúð sem drengurinn hafði farið á mis við og þess heldur, þar sem Hinrik vissi að hann var sjúkur og hann óttaðist um líf hans, þegar líða tók á daginn var Richmond með skjálfta, þá hafði hann hita, á morgnana var hann rjóður og augu hans glönsuðu óeðlilega. Hinrik þekkti einkennin, þennan bölvald ætt- arinnar, sem hafði orðið þeim feðgum að f jörtjóni, Arth- úr bróður hans og föður þeirra Hinrik VII, þessi sjúk- dómur var oft landlægur þar sem þokur eru tíðar. Hinr- ik þorði ekki að senda Richmond til Wales og gera hann að landstjóra þar. Richmond hafði verið eitt ár í Frakk- landi, lotslagið í París er gott og þurrt og á vel við Lund- únabúa, en Richmond hafði verið of léttúðugur og gefið sig á vald átríðum sínum. Á veturna var Richmond send- ur til suðurstrandarinnar að Ermasundi, þar skín sólin stundum og golfstraumurinn vermir loftið. Richmond átti að verða skírlífur en vegna valdastreitunnar hafði honum verið fengin til rekkjuneytis ung stúlka af ætt Howardanna, þaðtók á krafta hins unga manns, sem var að veslast upp. Hinrik var þó vongóður og bað Guð að þyrma drengnum, hann vildi ekki trúa því að hann ætti að missa Richmond. Honum fannst hann geta bundið hann við lífið með því að hlaða á hann gjöfum og gera hann auðugan. Hinrik sagði stundum: „Farðu ekki frá mér, ég skal gefa þér England." Það var vel hægt að útnef na Richmond sem krúnuerf- ingja. Þær María og Elísabet voru báðar búnar að missa erfðaréttinn, lagalega voru þær eins óskilgetnar og bróð- ir þeirra, hann var líka karlmaður. Þegar á allt var litið því skyldi sá óskilgetni ekki erfa? Vilhjálmur sigurveg- ari var óskilgetinn, hann hafði þó gert England að því, sem það var, ensku konungarnir höfðu erft hásæti sitt frá honum. AAaría var óþægur Ijár í þúfu. Þegar Anna dó, hafði AAaría talið sig hólpna og réttindi sín trygg. Hún skrifaði Cromwell og bað hann að miðla málum. Hinrik neitaði að hitta hana, hann lét AAaríu dvelja á- fram að Hunsdon kastala, en sendi henni blessun sína. Hinrik fannst of langt gengið að taka AAaríu af lífi, en hann vildi láta hana viðurkenna að hún væri óskilgetin og láta Richmond eftir erfðaréttinn. Howard bauðst til að fara og tala við AAaríu og reyna að fá hana til að sam- þykkja sá gamli ref ur trúði ekki öðru en honum tækist að tala um fyrir varnarlausum ungum fanga, AAaria var aðeins tvítug. Howard hafði tvo biskupa með sér en AAaría stóðst allar fortölur, hún sagðist vera auðmjúkur þræil kon- ungs, en jafnframt sagðist hún vera Drottins þjónn og GUÐhafðigert hana að lögmætri erfðaprinsessu. How- ard stóð fast á sínu og missti að lokum stjórn á skapi sinu, hann skók gamlan hrukkóttan hausinn af miklum móði. AAaría var smávaxin hún nötraði og starði á How- ard stingandi augum. Gamli maðurinn sagði: „Ef þú værir dóttir min, mundi ég slá höfðinu á þér við vegg." En AAaría var ekki dóttir hans, heldur tilvonandi drottn- ing hans. AAaría var ekki hrædd við vonzku Howards, hún vissi að hann var vondur maður, hún vissi að hann svaf hjá vinnukonu eldastelpu, og stundum kallaði hann á þessa skækju, til að pína konu sína, þá tróðu þau eigin- konuna undir fótum sér, þar til hún spýtti blóði. Síðan báru þau út þann orðróm að frú Howard væri vitskert. Howard froðufelldi af vonzku, en AAaría endurtók að hún mundi engu heita. Þeir gætu losað sig við hana með eitri eins og móður hennar, hún var reiðubúin. Gamli morðinginn varð að f ara við svo búið, ásamt biskupum sinum. Howard fór aftur til London og hvatti konung til að drepa AAaríu. Það væri auðgert, réttarhöldin yfir önnu og síðan aftaka hennar væri ágætt fordæmi, það væri ekkert því til fyrirstöðu að dómstóll dæmdi AAaríu sem svikara og til lífláts. Slíkar aðgerðir hefðu verið Howard að skapi, en Hinrik hikaði og Cromwell bauðst til að afgreiða málið á mildari hátt. Cromwell byrjaði á því að svipta AAaríu öllum erf ðarétti, til þess veittu báðar deildir þingsins lið, þingmennirnir lýstu yfir því að Hinrik væri algjörlega sjálf ráður um hásætið og ráðstöf- un þess, bæði í nútíð og framtíð og gæti því sjálfur á- kveðið eftirmann sinn. Að því loknu, lét Cromwell AAaríu vita um hvað hún ætti á hættu, að öxin biði hennar. Písl- arvætti hefði verið AAariu kærkomið, en Karl keisari vissi hvernig málum var komið. Hann ráðlagði AAaríu að látast samþykkja erfðaafsal, þvingunarloforð væri ekki bindandi, fyrir Guðs augliti og kirkjan viðurkenndi á- vallt fyrirvara, þó huglægur væri, þegar svo stóð á. Keisarinn sagði að AAaría yrði að lifa til þess að geta — síðar meir — bjargaði Englandi og gefið það aftur móð- urkirkjunni. AAaría var lengi á báðum áttum, svo var það kvöld eitt, að hún tók ákvörðun og undirritaði lagagrein, sem kvað á um algjöra hlýðni, skjal þetta hafði Crom- well skrifað og sent AAaríu. Þá heimsóttu þau Hinrik og Jane AAaríu, þau föðmuðu hana og Jane gaf henni hring. Nú var aðeins eftir að gera Richmond að prinsi af Wales, en hann var að dauða kominn. Hinrik hafði vafa- laust gert skakkt í að senda drenginn til Tower, til að vera viðstaddur aftöku önnu. Hann hefði átt að varð- veita drenginn frá hinum hræðilegu augum önnu. Rich- mond var alltaf að tala um hið fagra höfuð, sem féll fyrir öxinni, hann gat ekki sofið og var farin að spýta blóði. Ekkert stöðvaði sjúkdóminn, ekki einu sinni hið hlýja júní sólskin né ilmurinn af nýslegnu heyi, né heldur

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.