Tíminn - 30.04.1977, Blaðsíða 7

Tíminn - 30.04.1977, Blaðsíða 7
Laugardagur 30. aprll 1977 7 Hamingjan höndluð í annarri tilraun Eftirlætishjón kvikmyndaunnenda eru án efa Natalie Wood og Robert Wagner, enda eruþau hamingjusamt og fallegt par. Ékki hefur hjónabandsbrautin verið bein og greið, þvl að þau eru hvort um sig þrigift, — þar af tvisvar hvort öðru. Natalie Wood, sem var fræg barnastjarna, sá Robert fyrst, þegar hún var 10 ára gömul.en hann 18, og sagði þá að bragði við móður slna: — Égætla að giftast honum! Ekki varð úr giftingu þá strax, en þeg- ar hún náði 18 ára aldri, tvinónuðu þau ekki lengur, heldur var brúðkaup haldið með pomp og prakt og öllum þeim auglýsinga- glaumi, sem fylgir kvikmyndastjörnum. Hjónabandið entist I sex ár i stöðugu augliti almennings, sem fylgdist vel með hverju fótmáli þessara dýrlinga sinna. En þá „sprungu þau á limminu” og skildu. 1 kjölfarið fylgdi margra ára sálgreining fyrir þau bæði, og bæði fundu þau sér aðra Hfsförunauta. t þeim hjóna- böndum eignuðust þau eitt barn hvort. En hvort heldur örlögin vildu hafa það svo, eða það var bara tilviljun, lágu leiðir þeirra saman á ný upp úr 1970, og þá kom 1 Ijós, að enn lifði I gömlum glæðum. Bæði fengu skilnað frá þáverandi mökum sinum og gengu á ný I hjónaband saman. Það gerðist fyrir fjórum árum, og eiga þau nú eina dóttur saman, sem nú er tveggja ára, Courtney að nafni. Virðast þau bæði vera ákaflega hamingju- söm, bæði I einkalifi ogeinsl starfi, en bæði njóta þau velgengni I skemmtanaiðnaðinum. Á meðfylgjandi myndum má sjá myndir frá fyrra brúðkaupi þeirra, árið 1957, og hjónin, eins og þau Ilta út nú, 38 ára og 46ára gömul, ásamt Courtney og dóttur Natalie af hjónabandi (nr. 2). y ekki að gabba' ^ hann, hann er ^ snjallari y) okkur! v ^ Svalur, þessi / tilraun þin að gabba' Rusty um borð i ( ^bátnum mistókst^ I hrapalega! k Bezta tilraunin var þegar við buðum honum í rækjuveizluna. Tíma- spurningin Kaupir þú happdrættis- skuldabréf hjá rikinu? Steinunn Gunnarsdóttir, húsmóðir: Já, börnin mín fjögur hafa gert þaö. Eyrún Kristinsdóttir, útivinnandi húsmóðir: Nei, það hef ég aldrei gert. Sigrún Einarsdóttir, skrifstofu- stúlka: Nei. Mér hefir reyndar dottið þaö I hug, en aldrei gert þaö. Ingólfur Hjartarson, lögfræðing- ur: Ekki I ár, en ég hef gert það áður og þá fyrir börnin. Unnar Már, trésmiöur: Já, já. Ég á tvö. Ég keypti lfka fyrstu bréfin.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.