Tíminn - 03.05.1977, Blaðsíða 1

Tíminn - 03.05.1977, Blaðsíða 1
Áætlunarstaoir: Bildudalur-Blönduóc Búðardalui IFIateyri-Gjögur-Hólmavík Hvammstangi-Rif-Reykhólar Sigluf jörður-Stykkishólmur Súgandaf jörður Sjúkra- og leiguflug um allt land ' i, WÍWíWM- 1 Slöngur — Bárkar — Tengi Símar: • 'TJ í 2-60-60 oa 2-60-66 ■ 98. tölublað— Þriðjudagur 3. mai—61. árgangur SMIÐJUVEGI 66 Kópavogi — Sími 76-600 — talinn einn f jöl- mennasti 1. maí fundur til þessa JB-Rvik — Hátiöahöldin, sem haldin voru i Reykjavik i tii- efni af 1. mai, alþjóölegum baráttudegi verkalýösins, tók- ust meö prýöi og áttu veöur- guöirnir ekki litinn þátt i þvi. Aö venju var farin kröfuganga frá Hiemmi niöur á Lækjar- torg og þar haldinn útifundur, en auk þess var önnur ganga farin, og ýmis féiagasamtök héldu innifundi viös vegar um borgina siöar um daginn. Fjölmargir tóku þátt i kröfugöngunni, sem fór niöur Laugaveginn og mun úti- fundurinn hafa veriö einn sá fjölmennasti, sem haldinn hefur verið 1. mai hér á landi. Aö þessari kröfugöngu og fundi stóðu Fulltrúaráö verka- lýösfélaganna i Reykjavik, Iðnnemasamband Islands, Bandalag starfsmanna rikis ogbæja og Farmanna og fiski- mannasamband Islands. Niður Laugaveginn var gengið við lúðrablástur frá Lúöra- Björn Jónsson ávarpar mannfjöldann og tilkynnir um ákvöröun stjórnenda ASÍ aö yfirvinnubann gangi I gildi frá og meö 2. mai. sveit verkalýðsins og Lúðra- sveitinni Svani og fánar og kröfuspjöld með kröfum dagsins borin hátt. Hæst bar kröfurnar um 100 þúsund kr. lágmarkslaun og visitölubæt- ur á laun. Ræðumenn á fundinum voru Kolbeinn Friðbjarnarson, for- maður Verkalýðsfélagsins Vöku, Jóhanna Sigurðardóttir frá Verzlunarmannafélagi Reykjavikur og ávörp fluttu þeir Sveinn Ingvason frá Iðn- nemasambandi tslands og örlygur Geirsson frá Banda- lagi starfsmanna rikis og bæja. Fundarstjóri var Jón Snorri Þorleifsson formaöur Trésmíðafélags Reykjavikur. Auk þessa ávarpaöi Björn Jónsson forseti ASl mannfjöldann, og lýsti hann. þvi þar yfir, að stjórnendur Alþýðusambands íslands hefðu samþykkt þaö einróma, að yfirvinnubann gengi i gildi i landinu frá og með mánu- deginum 2. mai. Sagöi hann að tveggja mánaða samninga- fundir verkalýðsforystunnar og atvinnurekenda i kjara- baráttunni hefðu engu breytt, og væru viðbrögð atvinnurek- enda nú hin sömu og verið hefðu þegar þeir hófust. Við svo búið mætti ekki standa og það yrði að færa baráttuna út fyrir samningsborðið. Verka- lýðsfélögin væru flest búin að útvega sér verkfallsheimild frá meðlimum sinum, en alls- herjarverkfallinu yrði ekki beitt nema nauösyn krefði og sýnt væri að smærri aðgeröir dygðu ekki. ALDARAFMÆLI Aldarafmæli á i dag Friðrika Jónsdóttir i Fremstafelli, fyrrum ljós- móðir í Ljósavatnshreppi. Hún er fædd á Gvendarstöö- um, en ólst upp i Hriflu, dótt- ir hjónanna Jóns Kristjáns- sonar og Rannveigar Jóns- dóttur og þvi alsystir Jónas- ar Jónssonaralþingismanns og ráðherra. Friðrika er ógift og barnlaus, en hefur átt heima i Fremstafelli frá 1914, fyrst hjá Kristjáni, bróður sínum, og siðan hjá Jóni, syni hans. Jafnframt ijósmóðurstarfi og heimilisvinnu tók Friðrika þátt i ýmsum fé- lagsstörfum, einkum i þing- eysku kvenfélögunum. Hún er minnug og fjölfróð og hefur lengst af verið mjög heilsuhraust, en þó er heilsu hennar nokkuð tekið að hraka hin siðustu ár, og dvelst hún nú á sjúkrahúsinu á HUsavik. Friörika Jónsdóttir í tilefni af þessum merku timamótum i ævi Friðriku hafa bræðrabörn hennar stofnað sjóð sem varið skal til þess að gera skreytta glugga i kirkjuna á Ljósa- vatni, en ætlunin er að endurgera hana til að minn- ast Þorgeirs Ljósvetninga- goða og þúsund ára afmælis kristnitökunnar. 99 Stjörnulið” Bobby Charlton — er væntanlegt til íslands MikiII fjöldi tók þátti kröfugöngunni og útifundinum á Lækjartorgi fyrsta mai. Timamyndir Róbert SOS-Reykjavik — Knatt- spyrnusnillingurinn Bobby Charlton er væntanlegur til ls- lands, þar sem hann og félag- ar hans munu sýna listir sinar á Laugardaisvellinum 1. júni n.k. væntanlega gegn islenzka landsliöinu. Knattspyrnuráö Reykjavikur mun taka á móti Charlton, sem kemur hingaö ásamt 16 af frægustu knatt- spyrnumönnum Bretlands- eyja. Liöiö nefnist „Bobby Charlton’s International AII Star”, eöa STJÖRNULIÐ CHARLTON’S. Þaö er óhætt aö segja, aö koma stjörnuliösins sé einn mesti iþróttaviöburður, sem hefur átt sér staö hér á landi. Allir leikmenn liðsins eru heimsfrægir. Vafalaust verö- ur sett vallarmet á Laugar- dalsvellinum, þegar þessir snjöllu leikmenn leika þar. Nánar er sagt frá þessum viöburði á blaðsiðu 19. Yfirvinnubannið mjög víðtækt — Sjá bak.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.