Tíminn - 03.05.1977, Blaðsíða 7

Tíminn - 03.05.1977, Blaðsíða 7
nTQ CO D tx Þriðjudagur 3. mai 1977 7 Hún var öðluð fyrir listdans Dame Margot Fonteyn fékk aðalstign vegna listar sinnar, en hún hefur um ára- raðir verið ein frægasta ballett-dansmær i heimi. Nýlega gerði listamaður að nafni Enzo Plazzotta styttu af Margot Fonteyn i London. Þarna er frúin að virða listaverk- ið fyrir sér, en þetta er aðeins frummynd- in, en eftir er að steypa styttuna i brons. Listakonan segist ætla að gefa bronsstytt- una af sjálfri sér frú Imeldu Marcos, konu Marcos forseta á Filippseyjunum. Margot Fonteyn segist vera mjög ánægð með listaverkið, jafnvægi og fegurð dansins sé fólgin i þvi. Bing Crosby við starf Bing Crosby, söngvarinn góði, hefur hingað til borið aldurinn vel ( 72 ára). Nýlega varð hann fyrir þeirri óheppni að falla ofan af leiksviði og skaða hrygginn. Hann sést hér yfirgefa sjúkrahúsið í Burlingame i Kaliforniu, i fylgd konu sinnar, Kathy, eftir 5 vikna dvöl i sjúkrahúsinu. Han f ær enn sársaukaverki þegar hann stendur og býst við að þurfa frekari meðferðar við. Við skulum biða rólegir r. hér s volitla stund... Bátur Svals og Sigga nálgast bát apans mjög hægt og varlega.... Hann er alveg . rólegur C_7 ennþá... _ Veiztu hvað? Það var meira gaman , að gera ekkert. y Förum að kasta steinum i ánna. Ekkert Hvað ertu að gera Haddi? y Klukkustund __ . -x- seinna.. yv Jæja, timi tiT^ kominn að fara um borð y -'y: ;‘ r .. -• - vx i tilhans. 0 Tíma- spurningin Gerir þú þér vonir um, að kjarasamningar tak- ist i tæka tið? Lárus Jónsson, kaupmaður: Það er ekki gott að segja, ég efast þó stórlega um það. Maður vonar það bezta, en getur búizt við hinu versta. Reynir Þórðarson, skrifstofu- maður: Nei. Magnea Ragnarsdóttir, skrif- stofustúlka: Ég hef ekki fylgzt mikið með þessum málum, en ég á frekar von á verkföllum. Agústa Jónsdóttir, starfstúlka á Borgarspitalanum: Nei, þaö geri ég mér engar vonir um. Bjarni tiuðmundsson, rafvirki: Nei, ég held að lítil von sé til þess. Þetta er alltaf aö veröa verra og verra. Þaö er sifellt farið fram á meiri kröfur, sem ég álft að þjóðfélagiö geti ekki staðiö undir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.