Tíminn - 10.05.1977, Síða 4

Tíminn - 10.05.1977, Síða 4
4 Þriöjudagur 10. mal 1977 Friðjón Guðröðarson: Bjarni Bjamason í Brekkubæ át Þann 10. mal 1977 fyllir Bjarni I Brekkubæ áttunda áratuginn og af þvl tilefni þótti vi&eigandi aö spjalla ofurlitiö viö afmælis- barniö. Aö beiöni ritstjóra Tlm- ans er undirritaöur staddur aö heimili Bjarna, Brekkubæ I Nesjum, Austur-Skaftafells- sýslu, og hyggst nú þrátt fyrir litla kunnáttu á sviöi blaöa- mennsku, reyna aö setja saman meö Bjarna ofurlltiö spjall um fyrri tíma og ýmis viöhorf þá og nú. Annars eru nú fleiri tlmamót I llfi Bjarna en áttræöisafmæliö, þvl aö allt frá árinu 1917, þ.e. 1 sextiu ár, hefur hann búiö hér I Brekkubæ I Nesjum, sama tíma hefur hann veriö söngstjóri og organisti viö Bjarnaneskirkju, og aö sögn fróöra hefur hann, þau sextíu ár sem hann hefur starfaö, aöeins tvisvar sinnum veriöfjarverandi athöfn. Einnig hefur Bjarni tekiö mjög virkan þátt I málefnum héraösins, setiö lengi í hreppsnefnd og skóla- nefnd, var fyrsti formaöur kirkjukórasambands Aust- ur-Skaftafellssýslu, söngstjóri karlakórs Hornafjaröar frá stofnun 1937 og margt fleira. Bjarni var mjög virkur og áhugasamur ungmennafélagi, og á árunum 1924-1956 var hann I stjórn Ungmennafélagsins Mána, lengst af sem ritari. En höfum ei formála þennan lengri og gefum afmælisbarninu orö- iö. — Bjarni, hvenær og hvar ert þú fæddur og viltu segja mér frá foreldrum þínum og æsku? — Ég er fæddur á nýbýli úr Hruna á Brunasandi I Fljóts- hverfi, Vestur-Skaftafellssýslu, sem nefnt var Tangi. Foreldrar minir stofnsettu þaö. Þar voru engin mannvirki, faöir minn byggöi þar upp bæjarhús og þar vorum viö I fimm ár. Þaöan fluttust þau aö Kálfafelli I Suöursveit og voru þar I tvö ár, og árið 1903 þá flytjumst viö aö Holtum á Mýrum og erum þar I fimm ár. Þaö var partur úr Holtum, aö vlsu sjálfstætt býli, en þaö var margbýlt þar. Og 1908 fluttumst viö hingaö aö Brekkubæ og hér hefur veriö minn bústaöur slöan. Ég missti fööur minn áriö 1910, hann var hér aðeins tvö ár. Ég bjó með móöur minni, var þá ungur, en hún komst áfram meö aðstoö húsmanna, og síöan fór ég aö geta hjálpaö til og gekk svo til 1917, aö ég er tekinn viö búinu aö nafnitil. Viöbjuggum hér.égog móöir mín til 1926, aö ég gifti mig. Kona mín er frá Fornu- stekkum I Nesjum, Ragnheiöur Sigjónsdóttir. — Nú langar mig til, Bjarni, aöeins aö spyrja þig um skóla- göngu þina. — Ég var nú fyrst á unglinga- skóla hér I Nesjum undir ágætri stjórn Siguröar Arngrlmssonar, ég var þá ekki búinn að ljúka barnaskólanámi, en fékk aö vera I unglingaskólanum slö- asta áriö áöur en ég fermdist og haföi mjög gott af þvl. Nú, svo var ég hjá séra Þóröi, ég tók tlmakennslu þar til 1915, aö ég sótti um aö vera I gagnfræöa- skólanum á Akureyri og var þar I eitt ár I fyrsta bekk, veturinn 1915-1916. Þá voru þar yfir- burðakennarar, Jónas frá Hrafnagili kenndi sögu. Páll Ar- dal, séra Geir vlgslubiskup, Magnús Einarsson organisti, þá orðinn roskinn nokkuö, og Lárus Rist voru kennarar viö skólann. — Varstu viö nám hjá honum þennan vetur I orgelleik? — Fyrsta mánuöinn, sem ég var fyrir noröan, fékk ég auka- nám I orgelleik, þaö var söng- kennsla I skólanum, en engin kennsla I hljóöfæraleik, ég tók hjá Magnúsi tvo tíma á viku, allan veturinn út. — Og er þaö þln frumrun, eöa varstu farinn sjálfur eitthvaö aö spila? — Nei, ég þekkti ekki nótur fyrr en ég kom þangaö I október 1915. Þaö tókst þannig til, og ég gleymi þvl aldrei, aö ég fékk bréf frá Þórhalli Daníelssyni kaupmanni, þeim ágæta manni, sem var fjölhæfur og spilaöi nokkuö á hljóöfæri, og endrum og eins spilaöi hann hér. Þaö voru lánuö hljóöfæri I Bjarnar- neskirkju, og hann spilaöi stundum þá. Ég minnist þess aö á miöjum vetri fæ ég bréf frá honum, og þar fagnaö yfir þvl aö móöir mln' heföi tjáö honum aö ég heföi tekiö þarna auka- nám, og hann hvatti mig til þess aö halda þvi áfram I þvl augna- miöi aö ég tæki viö starfi organ- ista i kirkjunni, þegar heim kæmi. Voriö 1916 þá spila ég fyrst I kirkju og hef haldiö þvl siöan, en hljóöfæri var þá ekki I kirkjunni og lánuöu ýmsir, en hljóöfæri var nú ekki alltaf not- aö, en þegar þaö var notaö, eftir 1916, þá spilaöi ég undir. Og siö- an hef ég spilaö I kirkjunni I Bjarnanesi. Orgelnám stundaöi ég um liölega tveggja mánaöa skeiö hjá Páli Isólfssyni, vetur- inn 1928-1929, og jafnframt nám I söngskóla Siguröar Birkis á sama tlma. Haföi ég mikiö gagn og ánægju aö þessu, einnig kynnum af mönnum þessum, svo og tsólfi fööur Páls, en þar var ég heimagangur. — Eins og þú minntist á áöan Bjarni, þá varstu einn vetur I Gagnfræöaskólanum á Akur- eyri hjá Stefáni skólameistara og fleiri hæfum mönnum. Var þaö vegna fjárhagserfiöleika, eöa hvaö olli þvi aö þú hélzt ekki áfram skólagöngu þar, þrátt fyrir þaö aö þér féll þar mjög vel? —-Þaö var fjárskortur. Móöir mln var hér ein heima, ég var einbirni og haföi ekki möguleika til þess aö halda þar námi áfram og hlaut þvl aö snúa mér aö starfi forfeöra minna og for- mæöra. — En haföi þaö veriö rætt á heimilinu á meöan faöir þinn liföi, aö þú færir til mennta? — Já, þaö var gert, þvl aö þau fluttust nú þarna sveit úr sveit, og móöir mín, hún var vel gerö kona, ýtti undir þaö aö viö flytt- um INesin til þess aö ég nyti aö- stoöar prestsins til undirbún- ings fyrir skóla. Svo það var ákveöiö.ef allt heföi gengiö eöli- lega. Eins og ég gat um áöan þá tók ég forstööu búsins tiltölulega stuttu eftir aö ég kom aö noröan, og þá fór ég aö stunda sjálfs- nám. Ég fékk bréf frá Stefáni skólameistara, og hann harm- aöi þaö aö ég skyldi ekki halda námi áfram. Þaö voru þarna ágætir Hornfiröingar meö, séra Páll heitinn á Skinnastaö og Guöjón Benediktsson múrari I Reykjavlk og Guömundur Arnason frá Svlnafelli. Ljóm- andi félagar. En vegna heimilisástæöna minna varö ég aö sllta sambandi viö þaö allt- saman. Ég byrjaöi aö æfa kóra hér 1920 og þaö var nú meö úr- tökum til 1930, en alltaf haldið viö. Þó ekki væri formlega stofnaöur kór hér eöa söngfélag, þá hélt ég þvi uppi. Viö æföum á heimili mlnu og þaö voru ánægjulegar stundir. Ég fór aö stunda jaröræktarstörf, þau hafa veitt mér mikla ánægju og llfsfyllingu, fór hér I ræktun og byggingar, var búinn svona langt til aö koma Ibúöarhúsinu sæmilega upp, byrjaöi aö byggja þaö áriö 1926 og var meö þaö i takinu til 1934. Fólkiö var ákaflega áhuga- samt og lagöi mikiö á sig 1 öll þessi ár, þaö hafa oröið manna- skipti, eölilega, en þaö hefur verið mikill áhugi, hér veriö söngfólk alla tlð, þaö veröur engu áorkaö nema fá fólkiö I starfiö meö sér, og ég er mjög þakklátur fyrir hversu vel fólkiö stóö meö mér, þaö var mér hvatning og örvun aö finna já- kvæöan vilja þess. Prestarnir voru flestir miklir söngmenn og höföu áhuga á þessu, og þaö örvaöi mig og jafnhliöa kór- Bjarni I Brekkubæ viö orgeliö. Söngstj órinn, bóndinn og organistinn sóttur heim starfsemina. Þá hef ég haft nemendur frá 1920, þaö voru aö vlsu fáir fyrst, en á hverjum vetri fram á síöustu ár. Voru nemendur fleiri og færri á hverjum vetri I byrjunartilsögn I orgelleik og sumir hafa nú orö- iö nokkuö góöir. Ég hætti kennslu um 1970. — Viö erum búnir aö rabba mikiö um söngmálin, þau eru nú mál málanna I þinu llfi Bjarni, en þú hefur samt lagt hönd aö ýmsum öörum málum. — Ég tók nú aldrei mikinn þátt I stjórnmálum, en ung- mennafélagiö gekk ég I fermingaráriö mitt 1911. Og i stjórn þess var ég lengst ritari, frá 1924-1956. En I hreppsnefnd lenti ég á árinu 1946, eöa á fimmta áratugnum, og var þar til 1970. Og I skólanefnd var ég skipaöur um llkt leyti og var formaöur þeirrar nefndar til 1970. Ég er I skólanefndinni enn- bá! — Bjarni á þinni löngu llfsleiö hefur þú aö sjálfsögöu kynnzt mörgum mætum mönnum, bæöi hér heima I héraöi og annars staöar, t.d. mönnum, sem hafa staöiö uppúr I þjóömálabarátt- unni. Viltu segja mér eitthvaö af þessum mönnum? — Já, þaö er af miklu aö taka. Þegar ég kom hér I Nesin, þá var hér mikiö af ágætismönn- um, og þetta uröu nú svo aö kalla allt vinir mínir og bar ekki skugga á svo heitiö geti allan þennan tlma. Ég tiltek Þórhall Danlelsson, Þorleif Jónsson al- þingismann I Hólum og son hans Þórberg, sem slöan varö þing- félaginu mestar sinar eignir og fljótt, hann var mikill ágætis- maöur. Þetta voru alltsaman ljómandi menn, áhrifamenn og kraftmenn á slnu sviöi, sem ég ber mikla virðingu fyrir, og hugsa oft meö hlýjum huga til þeirra tlma. Þaö var gott aö vera uppi á þessum árum, þaö var mikiö af hugsjónamönnum. Þaö var ákaflega hagstætt, held ég, aö vera uppalinn I slíku um- hverfi eins og var hér I Nesja- sveit. — Ef ég mætti skjóta því hér inn I Bjarni, þú þekktir Þórhall Danlelsson vel.Ég held aö Þór- hallur hafi veriö hugsjónamaö- ur, hann var kaupmaður, en slö- an kemur hér samvinnufélags- skapurinn, og ég held aö hann hafi mjög skiliö þörfina fyrir hann. — Já, þaö er alveg óhætt aö segja þaö. Hann selur kaup- félaginu mestar slnar eignir og' byrjar svo upp á nýtt á öörum vettvangi, varöandi sjávarút- veg. Þetta var sérstakur maöur. Þetta var listrænt fólk. Ég má til aö minnast llka á konuna hans ogbörn. Dætur þeirra voru miklar söngkonur og frú Ingi- björg var mjög vel gefin kona og haföi mikla og fagra rödd. Kaupfélagiö blómgaöist fljótt, og sá sem hrinti því af staö, var Siguröur frá Kálfafelli. Því var tekið fagnandi og gekk vel. Jón Ivarsson var mikill hugsjóna- og baráttumaöur og fjárhagur félagsins lagaöist ákaflega mik- iö I hans tlö. Ég hefi miklar og góöar minningar um þá for- stjóranaalla saman, t.d. Bjarna Guömundsson. Þaö má fljóta hér meöj aö Kaupfélagiö hefur veriö lyftistöng á þessum árum allra framfara I sýslunni, þaö má segja, aö þaö hafi veriö verzlun og banki á tlmabili, og framfarir hér I sveitum eru byggöar á kaupfélaginu og svo náttúrulega vöxtur Hafnar- kauptúns. Meö viröingu fyrir öllum þeim sem veriö hafa for- stjórar, þá má nú ekki gleyma vini minum Asgrlmi Halldórs- syni, þeim ágætismanni, og hans lipurð og manndómi I garö viöskiptavina kaupfélagsins. — Bjarni.þú þekktir Jónas frá Hriflu? — óhikaö er hægt aö slá þvl föstu, aö Jónas Jónsson frá Hriflu var sterkgáfaöur maöur og hugsjónamaöur. Og aö mín- um dómi réttsýnn og góöur. Svo var annar maöur, sem ég haföi nú einna lengst kynni af og á mikiö I fórum minum I sam- bandi viö þann kunningsskap. Þaö var dr. Helgi Pjeturss. Ég var strax hrifinn, eftir nokkra athugun, af ritum hans um heimsfræöi og líffræöi og hef skrifaö eilltiö um þaö I timarit, en þaö er óhætt að segja, aö hann er einn af þeim mönnum, sem ég hef taliö allra athyglis- veröasta af þeim sem ég hef kynnzt. — Heföir þú, ef þú hefðir mátt ráöa, kosiö annaö en starf bónd- ans? — Þaö eivnú þaö. Maöur sér þaö nú á eftir, aö maöur heföi nú ýmislegt kosiö aö gera. Mér finnst aö ég hafi komiö of litlu af hugsjónum mlnum I fram- kvæmd, eöa raunverulega eng- um, ekki nema aö nafninu tfi. En ég veit ekki. Ég hef stundum veriö aö hugsa um þaö, hvort ég heföi veriö nokkuö hamingju- samari aö hafa tekiö annaö starf. Ég er ekki viss um, aö þaö hafi átt betur viö mig, og þaö hefur ekki tekizt á, þetta litla starf mitt I listum, I söngmálum og búskapurinn, þaö hefur stutt hvaö annað. Ég var nú einyrki og var I nokkrum framkvæmd- um, og þá tók ég nú oftast I hljóöfæriö á hverjum degi, þá fannst mér ég vera miklu ákveðnari og duglegri viö starf- iö. En sannleikurinn er nú sá, aö landbúnaöarstörfin, þau hafa veitt mér llfsfyllingu og hafa veriömér mjög til þroska, og ég

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.