Tíminn - 24.05.1977, Page 4

Tíminn - 24.05.1977, Page 4
4 Þriðjudagur 24. mai 1977. (■uniiar. islundsmeislari i hárskurði, fyrir miðju ásamt „módel um" og sigurvegurum i nemaflokki. Onnur Ira hægri er Dóróthea Magnúsdóttir og lengst til vinstri er Cluðjón Þór Guðjónsson. Þau eru bæði nemendur Gunnars Guðjónssonar. Islandsmeistaramót í hárskurði og hárgreiðslu — karlmenn í efstu sætum meistaraflokks KJ-Reykjavik — i fyrradag fór fram á Seltjarnarnesi íslands- keppni i hárskurði og hár- greiðslu. islandsmeistari i hár- skurði varð Gunnar Guðjónsson sem rekur rukarastofuna Kigaró i Iðnaðarmannahúsinu. islandsmeistari i hárgreiðslu kvenna varð Sigurður Kenónýs- son, eigandi llárgreiðslustofu Krósa i Starmýri 2. Má með sanni segja að karlmenn séu óð- um að hæta fyrir kvcnnaárið margumtalaða. I september á þessu ári fer siðan fram i Laugardalshöll Norðurlandameistaramót i hár- skurði og hárgreiðslu og öðluð- ust 5 efstu i islandskeppninni rétt til þátttöku þar. Verður Norðurlandameistaramótið haldið hér i tilefni tiu ára af- mælis Sambands hárgreiðslu- og hárskerameistara á Islandi Sjálfsagt verður það hörð keppni, en þó full ástæða til að Svipinvud frá kcppninni á sunnudag. vera bjartsýnn fyrir hönd is- lenzku keppendanna. A Islandsmeistaramótinu nú kepptu 4 karlmenn i hárgreiðslu kvenna, og eins og fyrr segir varð einn þeirra hlutskarpastur i keppninni. Einnig fór nú fram i fyrsta skipti hárskurðarkeppni nema og urðu þar i fyrstu og öðru sæti nemar Gunnars Guð- jónssonar, tslandsmeistara i hárskurði. Dóróthea Magnús- dóttir nr. 1 og Guðjón Þór Guð- jónsson i öðru sæti. Hárgreiðslumeistari ’77 KJ-Reykjavik — Timinn hafði i gær samhand við Gunnar Guð- jónsson íslandsmeistara i hár- skurði. Sagðist liann vera injög ánægður með úrslitin og ekki siztað eiga tvo sérstaklega efni- lega nemendur, sem urðu i fyrsta og öðru sæti i nema- keppninni i harskurði. „Þau eru mjög áhugasöm og efnileg bæði tvö, og hafa sjálf unnið til þess- ara verðlauna með mikilli vinnu og meö því að leggja hart að sér", sagði Gunnar Guðjónsson. Gunnar rekur rakarastofuna Figaró og hefur gert i rúmt ár, en átti áöur helming i Rakara- stofunni á Klapparstig. Figaró er til húsa i Iðnaðarmannahús- inu og þegar Timinn leit þar inn i gærdag var þröng á þingi og fréttamanni vinsamlega til- kynnt að hann kæmist ekki að i dag. Gunnar Guðjónsson er búinn að vera i hartnær 20 ár við hár- skurðinn, en hann byrjaði að læra 1958 hjá Hauki Óskarssvni. Hann tók i fvrsta skipti þátt i tslandsmeistaramótinu fvrir tveimur árum og hafnaði þá i fjórða sæti. Þetta árið varð hann lslandsmeistari á saman- lögðum stigum i skúlptúr- og tizkuklippingu. Við óskum Gunnari til hamingju með titil- inn og — og nemana — og vel- farnaðar á Norðurlandamótinu i haust. lslaiidsmeistarar ‘77. Gunuar Guðjónsson t.v. og Sigurður G. Kenónýsson t.h. Ti/.kan i dag. Svipmvndir frá keppninni. Timamyndir Gunnar. Hárgreidslumeistari ir sjómannsblóðið. Sigurður keppti I sveinakeppni i hár- greiðslu árið ’70 eöa '71, hann mundi ekki hvort árið það var, og varð þá i fyrsta sæti i klipp- ingu og blástri. Framundan er svo þátttaka i Norðurlandamót- inu og þá er bara að standa sig. kvenna ’77 KJ-Reykjavik — ,,Ég er eðlilega mjög ánægður með þctta allt. Þetta er búiö að vera mjög erf- itt, mikill undirbúningur og maður þurfti að leggja hart að sér. Þetta stóö frá kl. 9 á sunnu- dagsmorgun til kl. 0 um kvöldið og ég var oröinn verulega þreyttur þegar allt var afstaðiö og nú hvili ég mig sem bezt ég get", sagði Sigurður G. Kenónýsson i viðtali við Timann i gær. Sigurður G. Benónýsson (kallaður Brósi) rekur Hár- greiðslustofu Brósa. Hann er sonur Binna i Gröf, sjókemp- unnar gömlu, en ferst hár- greiðslan vel úr hendi þrátt fyr-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.