Mánudagsblaðið - 07.06.1965, Síða 1
‘Bla.6fyr,
17. árgangur
Mánudagur 7. júní 1964
21. tölublad
Banndjöflar borgaríhaldsins
Berlínarmúr í Reykjavík
Höfniimi lokað? — Hsykvíkingar „rændir" einum
íegursfa stað borgarinnar — Heimta milljónasóun
— Heimskuieg og évinsæl tillaga BANNDIÖFLá
borgaríhaldsins — Bjargar Geir sumarkvöldunum
og sunnudagsgöngunni? — Höínin er Signa og
Tempsá Reykjavíkur —
Það var eins og rekinn væri
rjtingur í alla góða Reykvík-
inga er þeir opnuðu Morgun-
biaðið miðvikudaginn 2. júní.
Á útsíðu blaðsins var frétt með
stórri fyrirsögn þar sem tilkynnt
er um tjllögur, sem tveir aular
borgaríhaldsins þeir Einar Thor-
oddsen núverandi eða fyrrver-
andi borgarfulltrúi og einhver
Bjarki Elíasson hjá lögreglunni,
hafi samið í sambandi við slysa-
hættu við höfnina. Þessar tillög-
ur eru frámunalega kjánalegar,
leysa síður en svo þann vanda,
sem þær eiga að leysa og eiu
tilræði við frelsi borgara Reykja-
víkur við einn fegursta og vin-
sælasta skemmtigöngustað borg-
arinnar, Reykjavíkurhöfn.
Bæfir ekki
Sagt er að tillðgurnar eigi að
draga úr slysahættu. Þá er bezt
að gera sér það ljóst að þeir
sem stafar hætta af höfn-
inni eru drukknir sjómenn, sem
girðing kringum höfnina getur
ekki haldið frá umferð þar, því
skipin eru heimili þessara
manna og ekki er meiningin að
útvega hverjum og einum leið-
s.ögn um borð í sitt skip og enn
síður ef þeir ætla £ land aftur
fljótlega. Á að kcma upp barna-
gæzlu fyrir drukkna sjómenn í
Reykjavíkurhöfn? Þetta er al-
gev vitleysa út í bláinn. Koma
yrði upp heilum flota af bílum
ti’ þess og heilum skara af
mönnum sem mundu kosta milj
jónir.
Kugsum okkur að tveir til j
fjórir menn væru hafðir í þetta
á bverri nóttu og svo léti einn
dóninn illa, þegar komið væri
um borð og vildi ekki fara að
sofa undir eins eins og góðu
börnin heldur heimtaði eð
drekka meira brennivín. Þá
þyrftu „verndarenglarnir1 ‘ að
eyða öllum sínum tíma yfir hon-
um og við hliðið eða hliðm
væri orðinn á skammri stundu
heili skari af félögum. þegar
viðskiptin væru mest, sem
mundu setja allt á annan end-
ann. Kalla þyrfti út vara’ið
sem mundi kosta offjár og er
ábyggilegt að slíkt gæti rokið
r.rarga nóttina upp í þúsundir. Og
svo vaktin á daginn. Nei til sam
ans mundi þetta skipta milljón-
um á ári og finnst Reykvíking-
um nóg með sína skatta eins
cg þeir eru þótt einhverjir bjálf-
ar komi ekki með eindæma
heimskar tillögur er gera nokk-
ur hundruð borgara í viðbót
að skattadellu-fyrirvinnu.
I hvers þágu?
Nóg er óráðsían samt hjá hinu
opinbera. Og hvar á svo að taka
mannskapinn í þetta? Hann
fer beint og óbeint frá arðbær-
aim störfum í efnahagslífinu.
Það er eins og annar þessara
nefndarmanna sé á kaupi hjá
Sambandinu, því að það á að
afhenda því eina af verðmæt-
ustu lóðunum við höfnína sem
tíl kæmi við þessar ráðstafanir
með lokun einnar götunnar.
Sjá!fs!æðismeim
þreyftir
Svona smekklaus og illa falm
kaup á fylgi Framsóknarmanna
við tillöguna eru þessum mönn-
um til skammar og algjör
hneykslismál fyrir Geir borgar-
stjóra. íhaidið hefur þann meiri-
hluta í borgarstjórn, að það
þsrf ekki að kaupa Framsókn.
Ætlar hér að sannast ennþá
emu sinni að íhaldið man eftir
öUum nema sínu eigin stuðnings-
fólki. Eru margir góðir Sjá'f-
stæðismenn orðnir æði lang-
þveyttir á þvf. Þetta ætlar Ihald-
ið að gera eftir að sumir góðir
Siálfstæðismenn hafa selt fast-
eignir sínar í Reykjavík vegna
r.eyðar skapaðrar vegna stór-
eignaskatts og annars opinbers
þjófnaðar, sem hefði kostað
uppreisn í öllum vestrænum
löndum nema Islandi, og sem
Sjálfstæðisforustan lagði blessun
sma yfir meira og minna ti’
þess að hanga í stjórn shr.
ummæli Björns Ólafssonar, sem
þo var valinn af einkakapítal-
inu í Reykjavík til að gæta
hagsmuna þess, sem brást svo
herfilega að hann er út úr póli-
tik.
Kvöldaöngur
hannaðar
Hugsið ykkur það vit, að ætla
að útiloka borgara Reykjavíkur
frá hinum yndislegu vor- sum-
ar- og haustkvöldgöngum við
höfnina sína nema þá ef íil
viil í gegnum eitthvert viðbjóðs-
legt bannport. Og þar á ofan
rriilljóna sóun á skattpíningar-
peningum. Þetta verður tvöföld
eða þreföld sóun, því menn-
irnir, sem um framkvæmdina
eiga að sjá eru teknir úr hinu
skapandi átvinnulífi. Og til
hvers þetta allt? Til þess að
reyna að hafa vit fyrir einhverj-
um drukknum, sem þurfa að
komast um borð í skip sín og
sem fara um borð í sín skip.
Bkki verður um villzt hversu
frámuna bjálfalegar þessar til-
lögur eru skal aðeins bent á
nokkur atriði úr mörgum tug-
um, sem af er að taka.
Nokkur augljés
atíiði
Lokun á höfninni útilokar
ekki fulla menn frá höfn-
inni, nema hver og einn sem
að kemur verði fluttur niður
í sína koju og ekki yfirgef-
inn fyrr en hann er sofnað-
ur í sinn haus. Þetta sjá all-
ir heilvita menn að er gjör-
samlega óframkvæmanlegt.
Gegnum borgirnar London og
París, renna ámar Thames
Framhald á 6. síðu.
Madame Butterfly í Þjóðleikhúsinu
Atriði Újt sýningu Þjóðleikliússins á Madame Butterfley.
(Sjá umsögn á 6. síðu).
Fáránleg jarðarkaup Reykjavíkur
Kaupir íegurstu jarðirnar í nágrenninu íyrir
fávita, drykkjumenn og rumpulýð.
Skyldi það vera tilfellið, að Reykjavíkurborg sé að kaupa
upp beztu jarðir í nágrenni höfuðstaðarins til að hýsa þar
drykkjuræfla, ólánsmenn aðra, hálfvita og allskyns rumpulýð,
sem borgarstjórnin telur sig skulda framfæri? Það er von, að
borgari spyrji, þegar hann ekur hér um nágrennið og er bent
á hina ýmsu staði, sem borgin hefur komizt yfir og allir eru
reknir með tapi og ótöldum milljónakostnaði fyrir borgarbúa.
VlÐINESIÐ
Víðinesið, sem borgin hefur
umráð yfir, er rekið eins og
nokkurskonar útbú frá afvötn-
unarhælum höfuðstaðarins.
Þangað fara þeir, sem fullir
hafa verið vikum saman og
hafa vart heilsu né fé til frek-
ari drykkju. Hvílast þeir þar
um stund, eins og Gunnarsholts
lýðurinn, unz þeim áskotnast
bæði fé og heilsa til frekari
drykkju. Um störf er vart að
ræða, þótt heita eigi, að þeir
vinni við búskapinn. Tómt tap
og vitleysa. En þessi jörð er
við sundin blá, með fegurstu
stöðum í nágrenni Reykjavík-
ur.
ARNARHOLTIÐ
Uppi á Kjalarnesi er annað
stórbúið, Arnarholt, einskonar
lúxus-Kleppur, hvar staðar-
menn geta andað að sér hreinu
lofti, notið stórkostlegs útsýnig
og laugað sig í sól og sumri.
Þetta er enn ein opinbera eign
in. Þarna er almannafæri, og
ekki sízt óviðkunnanlegt, að
þetta blessaða fólk skuli bein-
línis til sýnig þarna. En ekki
þarf neitt minna en úrvals jarð
ir handa því.
Farkostur KAKALA um Atlantsála.
KAKALI brá sér í siglingu fyrir skömmu og ræðir nú farkostinn Gullfoss í dálkum sínum.
Gullfoss er nú að liefja sumarferðir sínar, og bráðlega lendir flaggskip flotans í harðri sam-
keppni. Viðbrögð Kakala í þessari ferð má lesa á 3. síðu.
Nú hefur spurzt, að enn ein
stórjörðin hafi komizt í hendur
Geirs bónda og manna hans,
og virðist ekki lát á því, hve
lengi má kaupa upp jarðir í
nágrenninu . Vissulega verður
því til svarað, að seinna muni
höfuðstaðurinn hafa gott af
þessum eignum, og vera má, að
svo verði. Hinsvegar er bezt að
geyma öll jarðakaup þar til not
anna kemur, en ekki láta núlif
andi Reykvíkinga standa í
ofsaútgjöldum vegna þessara
fáránlegu jarðakaupa.
MJÓLKURPENINGUR
GEIRS O. FL.
Hérna uppi við Korpu blasir
svo við mjólkurpeningur Geirs
borgarstjóra. Þar eru á beit
allar kýr Koi-púlfsstaða, nær
160 mjólkandi gripir auk kálfa
og bola, mjólkurbú rekið í sam
keppni við bændur, og auðvit-
að með koltapi. Þessa vitleysú
vitum við, að Geir vill leiðrétta,
m.a. fá hestaeigendum jörðina
í hendur, unz hennar verður
þörf. En þar er borgarverk-
fræðingur eins og snúið roð í
hundskjafti og hótar illu, ef
Korpúlfsstaðir vérði settir und-
ir slík fyrirtæki t.d. Fálk. Menú
spyrja undrandi, hve lengi Geir
borgarstjóri ætlar að haldá
þessum jarðakaupum áfram,
og hversvegna ekki má setjá
einhver útnárakot undir
drykkjuræfla á framfæri borg-
arinnar og fávitahópa þá, setn
ríki og borgur telur rétt að
séu ekki á götunum. Svona
bruðl er orðið óþolandi — eh
Reykjavíkurborg hefur efni á
öllu, meðan hægt er að ot&
Gjaldheimtunni á borgarana.
Má vera að þetta gleymist
ekki.