Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 07.06.1965, Blaðsíða 6

Mánudagsblaðið - 07.06.1965, Blaðsíða 6
Banndjöflar íhaldsins Mánudagur 7. jóní 1964 Frábær sýning á Butterfly Framhald af 1. síðu. og Signa og eru þær taldsr með mestu prýðum þessara borga. Til sannindamerkis um það er öll sú vinna og allt það skraut, sem lagt hef- ur verið í árbakkana svo tug- um kílómetra skiptir. Það er fólk búið að detta út af þess- um bökkum í hundruðir ára. Hvemig stendur svo á að ekki er búið að loka ölium þessum bökkum með háum múrveggjum og gaddavír eins og múrnum í Berlín? Vegna þess að það er’gerð sú krafa til fólks að það beri ábyrgð á sjálfu sér, og ekki er enda- laust hægt að hafa vit fyrir fólki. Og' ef nokkrar fylli- byttur með ofdrykkju sinni ætla að útiloka borgarana frá yndislegustu stöðum borga sinna og framkvæmdin kost- ar glæköstun á æðigengnum peningum sem þó er engin björgun, þá hafa borgarfeð- ur þessara borga og fjölda annarra hreinlega sagt, TIL FJANDANS MEÐ FYLLT- BYTTURNAR“. Annars má benda á það hér að telja má nokkuð víst, að ef állir þeir fjármunir, sem ætlaðir eru í að bjarga sem er eng- in björgun, nokkrum fylli- byttum, væru settir í aukna þekkingu og tæki á hinum svo mjög vanbúnu sjúkra- húsmálum okkar væri víst, að hægt væri að bjarga stórum hóp góðra og nýtra borgara, sem £ dag fellur í valinn. Ekki vilji almennings Hver einasti læknir getur skrifað upp langan lista þessu viðvíkjandi, og er mið- ur hversu hljóðlátir þeir hafa verið um þessi mál. En vit- leysan er svo mikil í gangi í heimskulegu snobbi við í- myndaðan en engan vilja al- mennings, að varla má ein- hver kerling meiða sig öðru- vísi en allar hinar svo ekki sé rokið upp til handa og fóta og stofnað félag um kellinguna sem meiddi sig öðruvísi en allar hinar, svo að kellingin sem meiddi sig öðruvísi en allar hinar meiddi sig ekki öðruvísi en allar hin- ar heldur eins og allar hinar. Reykjavíkurhöfn er Signa og Thames Reykjavíkur. Uppreisn! Ef reisa .»tti Berlínarmúr með fram bökkum Signu eða Tham es og einhverjir BANNDJÖFL AR reynd®- að ræna borgara París og London út af dellu yndislesu ánum sínum og skemmtigöngunum með þeim, yrði hrein og klár uppreisn og öll borgarstjórnin kjöl- dregin með tölu. Hér verður að koma til kasta Geirs borg- arstjóra, sem er sendur í þetta mikla embætti og trún- aðarstarf af ungri íhalds- æsku fyrst og fremst, sem ætlast til þess af honum, að hann komi óllum bjálfahætti BANNDJÖFLA fyrir kattar- nef. Hér hefur hann fengið sitt bezta tækifæri. Því skal aldrei trúað að Ihaldið og Geir verði til þess sama og Ulbricht í Berlín, að borg- arar Reykjavíkur hafi ekki frjálsan og óhindraðan að- gang að allri borginni sinni, þar sem reistur verði „BER- LÍNARMÚR" með sínum hliðum í Friedrichstrasse og Checkpoint Charlie. Einar Olgeirsson, Brynjólfur Bjarna- son og aðrir stórkommar mundu æpa af ánægju, ef þeir hefðu vald til slíks. Þvert á móti bíður nú það verkefni íhaldsins að sópa burt úr þjóðfélaginu alls kyns höftum og bönnum sem úir og grúir af og fólk er yfir sig þreytt á. Burt með bjálfalega BANNDJÖFLA, æskan, nútímamaðurinn heimtar frelsi. „Reykvíkingur". Pétur: Ætlarðu ekki í kirkju í dag, það væri réttara en að sitja á ölknæpu allan sunnu- daginn. Páll: Nei, ég sit kyrr. Það er betra að sitja á knæpunni og hugsa um kirkjuna, en að vera í kirkju, og hafa hugann alltaf á knæpunni. Sjónvarpið Sunnudagur 1300 Chapel of the Air 1330 Pro Bowlers Tour 1500 This Is the Life 1530 Wonderful World of Golf 1630 Air Force News Review 1700 The Big Picture 1730 The Ted Maek Show 1800 Disney Presents 1900 AFRTS News 1915 Social Security in Action 1930 Sunday Special 2030 Bonanza 2130 The Ed Sullivan Show 2230 San Francisco Beat 2300 AFRTS Final Edition News 2315 Northern Lights Playhouse „Night in New Orleans“ Mánudagur 1700 Science All-Stars 1730 Spike Jones 1800 Password 1830 Shotgun Slade 1900 AFRTS News 1915 Sports Round-up 1930 Harrigan and Son 2000 Death Valley Days 2030 Danny Kaye Show 2130 The Alfred Hitchcock Hour 2230 Bold Venture 2300 AFRTS Final Edition News 2315 The Tonight Show Þriðjudagur 1700 Tuesday Matinee ,,I Met Him in Paris“ 1830 Silver Wings 1900 AFRTS News 1930 The Andy Griffith Show 2000 My Favorite Martian 2030 The Entertainers 2130 Combat 2230 Dupont Cavalcade 2300 AFRTS Final Edition News 2315 Lawrence Welk Miðvikudagur 1700 Tac Library 1730 Parents Ask about School 1800 Alumni Fun 1830 True Adventure 1900 AFRTS News 1930 The Dick Van Dyke Show 2000 Bob Hope — Viet Nam 2100 I Led Three Lives 2130 The Untouchables 2230 Markham 2300 AFRTS Final Edition News 2315 Feature Film „Wild Harvest" Fimmtudagur 1700 Navy History 1730 Communism 1800 To Tell the Truth 1830 Ripcord 1900 AFRTS News 1930 Beverly Hillbillies 2000 My Three Sons 2030 The Jimmy Dean Show 2130 The Defenders 2230 The Third Man 2300 AFRTS Final Edition News 2315 Feature Film „Hazard“ Föstudagur 1700 Dobie Gillis 1730 Sea Hunt 1800 I’ve Got a Secret 1830 Wanted: Dead or Alive 1900 AFRTS News 1915 Encyelopedia Britannica 1930 Grindl 2000The Edie Adams Show 2030 Mollywood Palace 2130 Rawhide 2230 Heart of the City 2300 AFRTS Final Edition News 2315 Northern Lights Playhouse „I Met Him in Paris“ Laugardagur 1000 Children’s Corner 1200 Roy Rogers 1230 Files of Jeffrey Jones 1300 Country America 1400 Colonei Flack 1430 Saturday Sports Time 1630 Col. March of Scotland Yard 1700 Current Events 1730 G. E. College Bowl 1800 Shindig 1855 Chaplain’s Corner 1900 AFRTS News 1915 The Telenews Weekly 2030 12 O’clock High 2030 Dasilu Playhouse 2130 Gunsmoke 2230 M-Sqad 2300 AFRTS Final Edition News 2315 Ncrthem Lights Playhouse „Out of This World“, S.I. ffmmtudagskvöld frum- sýndi Þjóðleikhúsið Madame Butterfly eftir Giacomo Pucc- ini. Var sýning þessi ein hin ánægjulegasta sinnar tegundar, sem lengi hefur sézt í leikhús- inu. Flestir þekkja söguþráð óperunnar, söguna um Cho Cho San, alias Butterfly, sem skyndi lega giftist amerískum flota- foringja, eignast með honum barn, en hann stingur af, kvæn- ist amerískri konu og kemur svo í heimsókn þrem árum síð- ar m.a. til þess að fá hana til að eftirláta þeim hjónum barn- ið. Kringum þessa höfuðatburði er svo mikil ást, fagur söngur, harmur og örvænting, sem end ar á því, að Madame Butterfly fremur sjálfsmorð. Músíkkin og söngvarnir eru yndisfagrir, um hverfið skemmtilega litríkt, sér yfir Nakasaki og búningarnir japanskir. Öhætt er að fullyrða, að Þjóð leikhússtjóri hefur ekki fengið „vitlausan“ pakka nú, er hann fékk sænsku söngkonuna Rut Jacobson. Ungfrú Jacobson hreif strax í upphafi hugi á- horfenda með einkar fallegri rödd, skemmtilegri og viðfeld- inni sviðsframkomu og ein- hverjum „sjarma“, sem ekki er, svo gott að henda reiður á. I Guðmundur Guðjónsson í hlut, verki Pinkertons bókstaflega ^ fór fram úr öllum vonuln, söng að allra dómi hreint prýðilega, öruggur í fasi, „amerískur“, frjálsmannlegur og vakti sam- söngur þeirra mikla hrifningu. Svala Nielsen, Suzuki, söng hlutverk þemunnar af mikilli innlifun og ágætum, og Guð- mundur Jónsson, virðulegur í hlutverki konsúlsins, brást ekki að venju. Hjónabandsmiðlarinn Goro varð einkar sikemmtileg- ur í meðförum Sverris Kjart- anssonar, gervið ágætt,, í- smeygilegur á svip, eins og at- vinnan krefst, og röddin vel þjálfuð. Leikstjórinn, Leif Söder- ström, hefur sannarlegá farið næmum höndum um verk þetta. Því er stjórnað í „konvensjon- al“ stíl, en leikstjórinn hefur sett skemtmilegt mót á leikend ur, sviðið var vel nýtt og hreyf ingar og hópsenur báru meist- ara sínum góðan vott. Sérlega má benda á, hve nákvæmar hópsýningarnar vom, yfirsýn hr. Söderströms kom skemmti- lega á óvart hér á sviði, hvar oft vinstri höndin veit ekki, hvað sú hægri gerir. Það er óhætt að fullyrða, að hér sé um að ræða verkefni, sem allir áðilar skila vel, hvergi brá skugga á, svo teljandi væri. Mikið ber að þakka hljómsveit arstjóranum, Nils Gireríllus, einum af fremstu tónlistarmönn um Svía. Er svo að sjá, að ís- lenzkir hljómlistarmenn vinni hvergi eins vel og undir erlend um stjórendum. Var áberandi, að hljómsveitin gerði EKKI sitt bezta til að kæfa raddir söngvara, eins og jafnan hefur verið keppikefli hennar, einkum vissra einstaklinga innan hljóm- sveitarinnar. Það var einkar gaman að horfa á hr. Grivillius stjórna, enda var honum klapp- að lof í lófa. Madame Butterfly er loka- stykkið á þessu leikári, og er óhætt að segja, að vart hefði verið á betra kosið, svo vel vinna nú söngvararnir verk- efni sín. Þegar tjaldið féll, var ákaft klappað, áhorfendur kunnu sýnilega að meta bæði efni og meðferð. ÚR EINU í ANNAÐ Eins og kunnugt er, fór Bjöm alþingismaður á Löngu- mýri til Parísar fyrir rösku ári og heimsótti þar ýmsa skemmtistaði að hætti íslenzkra ferðamanna. Björn er glettinn mjög, gaf yngismeyjum heimsborgarinnar títt auga, enda sumar léttklæddar og girnilegar. Þegar Lúðvík Kemp á Skagaströnd frétti um ferðir Bjöms, og gleði hans í Frakkaveldi, varð honum, að sögn, að orði: „Fór til París fékk sér staup, falaði niptir hringa. Hækkaði gleðikvennakaup knapi Húnvetninga.“ Jæja, nú er Geir okkar borgarstjóri loksins farinn að rífa Pólana, og er það vel. Næsta verkefni, sem þegar ætti að byrja á, er að eyða öllum kofunum og ryðguðu ruslakompunum, sem finnast um alla borgina, og um leið leggja að jörðu þær minjar hermannabragga, sem enn eru við lýði. Einkum og sér í lagi gamla reykháfa, eldstæði, hálfhrunda veggi og steypt gólf, sem enn eru eftir af bröggum þessum. Allt þetta rusl er til mesta ósóma, borgarbúum og ferðafólki il megnustu leiðinda. Áfram með hið góða verk, Geir. Þá mun endanlega ákveðið, að Glaumbær verði aðset- ursstaður sjónvarpsins islenzka. Húsið mun nú í eigu Framsóknarflokksins, og verður víst ekki gefið. Það eru margir farnir að hlakka til að sjá íslenzka sjónvarpið — skandinavísku útgáfuna — því flestir sem séð hafa sjón- varp í Svíþjóð og Noregi fussa og sveija við svoleiðis rusli. Öll Evrópa stendur þeim framar, en útilokað, að því er virðist, að sækja þekkingu annað en í þessi út- skæklalönd. ©-------------------------------- Illska er allmikil í listamannaheiminum, eins og vant er. Þykjast sumir hafa fengið nóg af þeim Valtý Péturs- syni á Mbl. og Kurt Zier á Vísi. Báðir þessir listamenn eru ,,klessumenn“ hafa þá stefnu jafnan í hávegum. Þyk- ir sumum 'listamönnum þessari stefnu málaralistarinnar vera gert of hátt undir höfði, þegar þessi blöð útbásúna ágæti hennar í tíma og ótíma. Ekki gat lubbinn í Tímanum setið á sér þegar hann loksins frétti, að Madame Butterfly yrði sýnd hér. Þegar sveitamaðurinn skýrði frá fréttinni þurfti hann endilega að setja hana undir fyrirsögn þess efnis, að hér væri um japanska „ástandssýningu“ að ræða. Þykir þetta víst afar smekklegt. Gaman væri ef sveitavargurinn við blaðið ætti að lýsa sumum af frægustu viðfangsefnum heimsleikhús- anna, og keyra undir sama smekldeysið og fjósdauninn, sem þarna kom skýrast fram. Greinin í síðasta tölublaði um „íslenzka drykkjumenn- inguna“, sem brauzt út í Danmörku þegar bjórverkfallið byrjaði, hefur vakið feikna athygli og okkur borizt fjöldi bréfa. Við munum máske birta eitthvað af þessum bréf- um, en tónninn í þeim er næstum eins — almenn ósk um tilraunabjórsölu á Islandi. Ef eitthvert bréf berst, sem brýtur upp á einhverju nýstárlegu mun blaðið birta það. öllum er heimilt að leggja orð í belg.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.